Morgunblaðið - 24.12.1997, Page 34

Morgunblaðið - 24.12.1997, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN ______Vefsíða með stærðfræðiþrautum handa börnum og unglingum hefur verið opnuð._______ Gunnar Hersveinn skoðaði hana og ræddi við hönnuð hennar, Önnu Kristjánsdóttur prófessor, sem vonast til að foreldrar skoði síðuna með börnum sínum og spreyti sig á þeim um jólin. Hugkvæmni barna efld með þrautum • Ekki þvinga tilbúnum aðferðum upp á börnin! • Þau berjast áfram og finna sínar eigin lausnir. • Þrautirnar byggjast á dæmum úr raunverulegu lífi. RAUTIR til að brjóta heil- ann um stærðfræði er höf- uðmarkmið endurmennt- unamámskeiðs Önnu Kri- stjánsdóttur prófessors í stærð- fræði í Kennaraháskólanum. Hún nefnir það Heilabrot og hug- kvæmni og hefur verið með það síðan í haust fyrir 37 kennara á unglingastigi sem nota efnið jafn- óðum handa 800 nemendum sínum á aldrinum 10-16 ára. í liðinni viku opnaði Anna svo vefsíðu með þrautum handa almenningi og von- ast hún til að fólk spreyti sig á þrautunum um jólin. Hver kennari á námskeiðinu fær sendar þrautir með rafpósti á þriggja vikna fresti sem hann legg- ur íyrir nemendur sína. Kennarar ræða svo á sérstökum póstlista um lausnir nemenda sinna, einnig lesa þeir greinar um þessa tegund af stærðfræði og gera skýrslu um efnið. Þeir eru hvaðanæva af landi og hittast ekki nema á netinu - fram á vor. Þrautalausnir eru stærðfræði- kennsla byggð á skilningi barna og er markmiðið að örva með þeim samræður um lausnirnar og leyfa þeim að fara eigin leiðir. „Þrautirnar eru raunveruleg dæmi sem skapa umræður og efla sjálfstæði með börnum,“ segir Anna, „því þau þurfa að rökstyðja lausnir sínar. Þau mega fara eigin leiðir og kennarar og foreldrar sjá vel hvar þau standa.“ Hún segist hafa ákveðið að opna almenningi vefsíðuna til að gefa foreldrum tækifæri til að bæta við þekkingu barna sinna í stærðfræði. Og líka ef þeir telja að bömin geti gert meira en þau fá í skólanum. Hún vonast til að námskeiðið verði til þess að skapa sambönd milli kennara og líka milli bekkja og nemenda, en þeir geta til dæmis gert bekkjarkynningar og sett á síðuna. Anna hannaði vefsíðuna og þrír fyrrverandi nemendur hennar unnu hana, þær Sólrún Harðar- r .. . Morgunblaðið/Kristinn BORNIN skilja viðfangsefnin og finna eigin leiðir til að leysa þrautirnar," segir Anna Kristjánsdóttir. dóttir, Guðbjörg Helga Guð- mundsdóttir og Sigrún Þorsteins- dóttir. Síðan er www.is- mennt.is/vefir/heilabrot og til er önnur sem Guðbjörg Helga og Sig- rún unnu sem lokaverkefni í Kenn- araháskólanum, hún er http//syrpa.khi.is/~stae/ og ber nafnið Krákustígur. Þar má finna fleiri þrautir, bæði íslenskar og út- lenskar. Anna segist verða vör við mik- inn áhuga á námskeiðinu og hún viti um fleiri kennara en þessa 37 sem leggi þrautirnar fyrir nem- endur sína. Hún vonast svo til að opna vefsíðan verði vinsæl á heim- ilum. En hvaða merkja þrautalausnir? Anna segii- að nemendur leysi við- fangsefni sín án þess að þeim sé sérstaklega kennt hvernig þeir eigi að fara að. Hinsvegar skilja þeir um hvað verkefnin eru og halda þræði í þeim. Kennarar verða því að tileinka sér virðingu fyrir eðli- legum aðferðum barna til að leysa þrautirnir. Ekki er heldur nóg að leysa þrautirnar því þeir verða að geta útskýrt lausnina. Aftur á móti geta þau það ekki ef foreldrar segja þeim þegar þau gera heimavinnuna í stærðfræði, hvernig þau eigi að fara að. Þau botna ekki endilega í aðferðum foreldranna. Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma. Þjónusta - þekking - paögjöt. Áratuga reynsia. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305 HEILABROT Hér eru nokkur dæmi úr þrautum sem notaðar hafa verið á námskeiðinu Heilabrot og hugkvæmni. Málið er að glíma, finna lausn og tjá hana með orðum.____________ Þetta eru fínar fjölskylduglímur, og leysir þær hver með sinni aðferð. Flokkur A IMaría fór til sólarlanda með foreldrum sínum. Hún hafði með sér sumarleg föt: Gulan bol, hvítan bol, grænar stuttbuxur, rauðar stuttbuxur og ljósblátt pils. Hún var einnig með sandala og strigaskó. Hvað gat hún klætt sig á marga vegu? Athugið: Það var mjög heitt í veðri, henni datt ekki í hug að vera í tveimur bolum eða tvennum buxum! JBM Froskur nokkur var svo óheppinn að d lenda ofan í tíu metra háum brunni. Hann tók á það ráð að skríða. Á hverjum degi gat hann skriðið þrjá metra upp á við. En á nóttunni varð hann að hvfla sig og þá gerðist það að hann seig niður. Á hverri nóttu seig hann niður um samtals tvo metra. Eftir hversu marga daga komst hann upp úr brunninum? Flokkur B I Gunnhildur keypti afmælisgjöf fyrir 500 | kr., síðan keypti hún skó fyrir helming- inn af peningunum sem hún átti eftir. Þar næst fékk hún sér pylsu og mjólk fyrir 200 kr. og að Iokum eyddi hún helmingnum af því sem hún átti eftir í Lottó. Hún átti 1.000 kr. eftir í veskinu þegar hún kom heim. Hvað var Gunnhildur með mikla peninga í upphafi? 2Þrír drengir keyptu sér nesti fyrir dags- ferð sem þeir ætluðu í saman. Þeir ætl- uðu að hjóla upp að Þórólfsvatni og kannski veiða fisk. Adam eyddi ljórum sinnum meira en Davíð. Davíð eyddi einum þriðja af því sem Birgir eyddi og Birgir eyddi 200 krónum minna en Adam. Eyddi einhver þeirra 600 krónum? 3Lest fer frá Shrewsbury í Englandi þvert yfir Wales og endar í litluni bæ við ströndina. Á þessari leið eru mörg lítil þorp og lestin stoppar í hverju þeirra. Á hverri stöð kemur inn hópur fólks og tínist síðan einn af hópnum út á öllum stöðvunum sem eftir eru. Þannig kemur t.d. fólk inn á stoppi- stöð nr. 5 og fer einn af þeim út á stöð 6, ann- ar á nr. 7, þriðji á nr. 8... og sá fimmtándi á endastöðinni. Hvað koma margir inn í Iest- ina? Hvenær er fjölmennast í lestinni? (Reikn- ið með að fólk fari inn og út á sama tíma.) 4Litlu systkini Snorra eru að safna í sparibaukana sína. Þau fara mismun- andi að. Helga á nú þegar 1.500 kr. í spari- bauknum og ætlar að reyna að bæta við 20 kr. á hverri viku. Gísli á hins vegar 2.000 kr. í sínum bauk og ætlar að bæta við 6 kr. á hverri viku. Eftir hve margar vikur verður tvisvar sinnum meira í sparibauk Helgu en Gísla? Verður einhvern tímann jafnmikið í baukunum? Flokkur C I „Hve lengi hafið þið verið gift?“ spurði I Fríða hjónin sem hún kynntist á ferða- laginu. „Ég hef verið gift manninum mínum tvo þriðju hluta lífs míns en maðurinn minn, sem er 12 árum eldri en ég, hefur verið giftur mér sex elleftu hluta af sínu lífi,“ svaraði kon- an. Hefur Fríða fengið nægilegt svar? 2Hópur enskra unglinga fór inn á veit- ingastað og pöntuðu allir það sama. Heildarkostnaðurinn var 49 pund og 13 pence. Hve margir voru uiiglingarnir? 3Þegar búið var að leggja á borð í veislu voru þar samtals 11 hnífar og skeiðar. Það voru samtals 9 skeiðar og gafflar og sam- tals 14 linífar og gafflar. Hve margir hlutir voru af hverri gerð? 4 1 höfninni lá skip. Frá borðstokknum hékk stigi niður að vatnsyfírborðinu. Það voru 28 þrep í stiganum og 25 cm milli þeirra. Einn daginn hækkaði vatnsyfirborðið um 4 metra. Hve mörg þrep voru þá niður að vatnsyfirborðinu frá borðstokknum? 5Ef Gunnhildur er yngri en Katrín og Katrín er eldri en Inga, hvað er þá hægt að segja um aldur Ingu miðað við aldur Gunnhildar? r í 1 í i í ! I I i : I i i l L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.