Morgunblaðið - 24.12.1997, Page 38

Morgunblaðið - 24.12.1997, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNB LAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 39 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HÁTÍÐ BARNANNA JOLIN eru oft kölluð hátíð barnanna. Gleði barnanna yfir ljósadýrðinni, gjöfunum og hátíðarbragnum er mest og einlægust. Þeir, sem eiga böm, gera sitt bezta til að gleðja þau á jólunum og flestir foreldrar vilja eyða há- tíðisdögunum með bömum sínum. Jólin em líka hátíð bamanna í annairi og dýpri merk- ingu. Fagnaðarerindið birtist mannkyninu í litlu bami. Þannig tilkynnti engillinn, sem birtist íjárhirðum í hag- lendum Betlehems, fæðingu þess: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn íognuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yðm' er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“ Sérhver barnsfæðing er yfirleitt fagnaðarefni. í sak- leysi sínu og einlægni em bömin fulltrúar þess bezta í manninum, enda lagði Kristur áherzlu á að maðurinn varðveitti bamið í sjálfum sér. Er lærisveinar hans spurðu hann hver væri mestur í himnaríki, kallaði hann á lítið bam, setti það á meðal þeirra og sagði: „Sannlega segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki. Hver sem auðmýkir sjálfan sig eins og bam þetta, sá er mestur í himnaríki. Hver sem tekur við einu slíku bami í mínu nafni, tekur við mér.“ Að taka við bömunum í nafni Krists er að taka á móti Kristi, taka á móti boðskap hans. En hvemig tökum við á móti bömunum okkar, sem einstaklingar og sem samfé- lag? Islendingar eignast hlutfallslega fleiri böm en flest- ar aðrar iðnvæddar þjóðir. Heilbrigðiskerfið stendur sig vel; óvíða er ungbamadauði minni en á Islandi. í alþjóð- legum viðhorfskönnunum kemur sömuleiðis fram að Is- lendingar em sú vestræna þjóð, sem vill eignast flest böm og telur þau jafnvel forsendu lífsfyllingar. Þótt böm séu samkvæmt þessu velkomin í íslenzku samfélagi er engu að síður margt sem bendir til að það sé ekki að öllu leyti bamvænt. Stutt er síðan fréttir birtust af ofbeldi fullorðinna gegn vamarlausum bömum; nokk- uð sem vissulega er ekkert einsdæmi, en engu að síður smánarblettur á samfélaginu. Afleiðingar vanrækslu á uppeldi og umönnun bama geta verið skelfilegar; þannig var ungur maður fyrir stuttu dæmdur fyrir á fjórða tug afbrota, sem hann framdi sextán ára gamall. Hann var í reiðileysi á heimili, þar sem fullorðinna naut ekki við, hafði ekki fengið þá væntumþykju, leiðsögn og aga, sem öllum er nauðsynleg. Framangreind dæmi eiga auðvitað aðeins við um lítinn minnihluta bama og unglinga. Flest íslenzk böm eiga foreldra, sem gera sitt bezta til að búa vel að þeim. Engu að síður er pottur brotinn á sumum sviðum, sem snúa að stærri hópum íslenzkra bama. Undanfarið hefur til dæmis verið bent áþað æ oftar að ótrúlega mörg íslenzk böm eiga þess ekki kost að umgangast báða foreldra sína, ýmist vegna þess að foreldrar, sem ekki hafa forsjá bama sinna, vanrækja skyldur sínar eða þá að forsjár- lausir foreldrar em beinlínis hindraðir í að nota um- gengnisrétt sinn. Hvort tveggja bitnar jafnilla á bömun- um. Öll böm eiga að fá að umgangast báða foreldra sína eftir því sem kostur er og sækja til þeirra hlýju og leið- sögn. Enn eitt, sem snýr að flestum heimilum á Islandi, er að við gefum okkur almennt lítinn tíma fyrir fjölskyldulífið. Islenzkir foreldrar vinna einhvem lengsta vinnudag í iðnríkjunum og það bitnar óhjákvæmilega á bömum þeirra, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Bæði for- eldrar sjálfir og vinnuveitendur þeirra þurfa að átta sig á ábyrgð sinni í þessu efni. Rétt framkoma við upprennandi kynslóð skiptir sköp- um um framtíð þjóðarinnar. Við eigum að taka ábyrgð á bömunum okkar, taka á móti þeim í nafni Krists. Við eig- um að koma fram við þau í anda hinnar gullnu reglu sem hann setti okkur; leitast við að búa þeim þá æsku, sem við hefðum sjálf helzt kosið að eiga. Um leið og við opn- um hjarta okkar fyrir fagnaðarerindi jólanna ættum við að strengja þess heit að sérhver dagur verði hátíðisdagur bamanna okkar, þótt við leggjum okkur kannski enn meira fram á jólunum en ella. Morgunblaðið óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar. Á LEIÐ Á SUÐURPÓLINN Reyna að ná sambandi á að- fangadagskvöld INGÞÓR Bjarnason, Haraldur Örn Ólafsson og Ólafur Örn Haraldsson eiga eiginkonur og fjölskyldur heima á íslandi. Una Björk Ómarsdóttir, sam- býliskona Haralds Arnar Ólafssonar, og Sigrún Richter, eiginkona Ólafs Haraldssonar, halda jólin saman í Reykjavík í fjarveru þeirra feðga, ásamt Hauki Steini og Örvari Þór, sonum Ólafs. Eiginkona Ingþórs, Ragna Finnsdóttir, býr á Akureyri. Una Björk sagði í samtali við Morg- unblaðið að þær væru að leggja drög að því að ná sambandi við þá á að- fangadagskvöld. „Við erum búnar að tala við þá einu sinni í síma frá því að þeir lögðu af stað en við höfum fengið fréttir af ferðinni á hverjum degi og vitum að þeir eru við góða heilsu og í góðu skapi,“ sagði Una Björk. „Undirbúningurinn snerist mikið um að undirbúa þá andlega og þeir eru mjög kappsfullir og ákveðnir. Það er ekki síst andlega hliðin sem skiptir máli til þess að þeir geti haldið þetta út.“ En hvaða augum líta konur pólfar- anna þessa tveggja mánaða gönguferð um ísfrerann hinum megin á hnettin- um? „Mér fmnst frábært að þeir skuli hafa komist þetta og ég styð þá heils hugar. En auðvitað er þetta stundum einmanalegt og biðin er löng,“ segir Una Björk. Sambandi er þannig komið á að þær hringja í tjaldbúðirnar í Patriot Hills við ísjaðarinn á Suðurskautinu á þeim tíma þegar þremenningarnir hafa þangað talstöðvarsamband að láta heyra í sér. Ragna Finnsdóttir, eiginkona Ing- þórs, býr á Akureyri. Hún sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki koma Morgunblaðið/Björn Gíslason RAGNA Finnsdóttir, eiginkona Ingþórs Bjarnasonar. til með að hafa beint samband við eig- inmann sinn, Ingþór Bjarnason, um jólin en þó ætli konur Suðurskautsfar- anna að reyna að senda þeim kveðju á aðfangadag. „Við ætlum að hringja í rannsóknarstöðina á Suðurskauts- landinu og reyna að senda kveðjuna í gegnum þá sem þar eru.“ Ragna sagði það ekki þjóna neinum tilgangi að vera með í maganum yfir ferðalagi þremenninganna. „Eg veit hvað þeir geta og þeir eru í mjög góðu líkamlegu og andlegu formi. Áuðvitað er slæmt að hafa Ingþór ekki heima á jólunum en þetta er öruggasti tími ársins og ég er því alveg sátt við að hann fari á þessum tíma, öryggisins vegna.“ Morgunblaðið/Golli ^ FJÖLSKYLDA feðganna Haralds Arnar og Ólafs Arnar Haraldssonar. í þessum liópi eru tvær eiginkonur, tveir synir, móðir, tveir bræður, og tengdadóttir Suðurpdlsfara. Frá hægri: Haukur Steinn Ólafsson, Sigrún Richter, eiginkona Ólafs Arnar og móðir Haralds Arnar, Örvar Þór Olafs- son og Una Björk Ómarsdóttir, sambýliskona Haralds Arnar. Morgunblaðið/Þorkell Suðurskautsfararnir borða um 7.000 kaloríur á dag Frostþurrkað- ur kjúklingur og fleira lostæti SUÐURSKAUTSFARARNIR þrír eru að jafnaði á gangi í 10 klukkustundir á dag og þurfa staðgóðan mat til að fylla sig orku. Tómas Bjarnason í Utilífi sem aðstoðaði þá við að útbúa sig og er einn tengiliða þeirra hér á landi segist áætla að næringargildi þess sem þeir borða sé um það bil 7.000 kaloríur á dag en kyrrsetumað- ur þarf 2.000-2.500 kaloríur á dag. Matseðillinn er sá sami og þre- menningarnir studdust við á ferð sinni yfir Grænlandsjökul. í lok dags- ins þegar tjaldið hefúr verið sett upp er kveikt á bensínprímus, en gasprímus er ekki hægt að nota vegna frostsins. Siðan er eldaður sér- stakur frostþurrkaður matur, sem nefnist Mountain House, og eru til ýmsar bragðtegundir, t.d. lasagne, austurlenskur kjúklingur og ýmislegt fleira. Orkuríkasti maturinn er hins vegar svokallað pemmikani, sem er þurrkaður kjötgrautur sem hefur verið notaður frá upphafi heim- skautaferða. Einnig er reykt svína- síða í farangrinum ásamt íslensku smjöri og salami-pylsu, þorskalifur, múslí, hrökkbrauði og einnig kexi og súkkulaði. Samtals bræða suður- skautsfararnir snjó í 15 lítra af vatni sér til drykkjar á dag og blanda sér m.a. kakódrykki og te. Komirnar á íslandi en karlarnir á Suðurskautslandinu Morgunblaðið/Kristinn SIGURBORG Borgþórsdóttir og Kristjana Harðardóttir, sem er með 11 mánaða son sinn og Freys, Jón Snævar, í fanginu. Freyr átti erfitt með að kveðja soninn áður en hann lagði af stað í leiðangurinn, enda missir hann af fyrstu jólum hans. Fengu jólahangikjötið í nóvember „ VIÐ héldum jólaboð áður en Freyr og Jón lögðu af stað til Suðurskautslandsins, svo þeir fengu jólahangikjötið sitt. Svo tóku þeir með sér harðfisk og hákarl, en þeir ætla að borða sænska skinku á jólununi þarna niður frá,“ segja þær Kristjana Harðardóttir og Sigur- borg Borgþórsdóttir. Krisljana er kona Freys Jónssonar og Sigur- borg kona Jóns Svanþórssonar, en þeir eru full- trúar Islands í rannsóknarleiðangri Sænsku pólstofnunarinnar á Suðurskautslandinu. Þeir lögðu af stað suður á bóginn í lok nóvember og koma ekki heim fyrr en 6. mars. Konur þeirra halda því jólin án þeirra að þessu sinni. „Þetta var svo frábært tækifæri, að þeir urðu að fara,“ segja þær Krisfjana og Sigur- borg. „Við treystum því að þeir fari varlega, enda eru þeir báðir reyndir. Það er því engin ástæða til að óttast." Kristjana segir að Freyr hafi tekið jólagjafir með sér á Suöurskautslandið og skilið eftir pakka heima. Sigurborg hefur sömu sögu að segja, en bætir því við að þótt hún haldi jólin samkvæmt hefð, þá verði það aldrei eins þegar Jón sé ekki heima. „Undirbúningurinn hefur líka verið óvenjulegur. Jón var til dæmis ekki búinn að setja upp útiljósaseríurnar þegar hann fór!“ Sigurborg lét ekki nokkrar ljósaseríur veíj- ast fyrir sér og Krisljana tekur undir að þær verði bara að gera hlutina sjálfar þegar karl- arnir séu í burtu, reyndar gætu þeir vart verið fjær. Þær fá fréttir af mönnum sfnum reglulega. Þeir geta hringt af og til um gervihnattasíma og gera það í kvöld, aðfangadagskvöld. Þá geta þau skipst á tölvu- og símbréfum. „Ferðin hefur gengið mjög vel hingað til og frábært hvað jepparnir tveir hafa reynst vel,“ segja þær. „Þeir Jón og Freyr þekktust ekkert áður en þeir fóru að undirbúa ferðina. Sá und- irbúningur hófst fyrir tveimur árum og stóð óslitið allt þetta ár. Til allrar hamingju kemur þeim alveg ágætlega saman." I tölvubréfi, sem Freyr og Jón sendu frá sér á mánudag, kemur fram að þeir hafi fengið að sofa út þann dag, enda hafi sunnudagurinn verið langur og erfiður. „Við erum fimm eftir hér í stöðinni og er mjög rúmt um okkur í fjór- um herbergjum með 12 kojum, klósetti, gufu- baði, sturtu, stóru eldunarrými, stofu og borð- stofu. 220 v rafstöð o.fl. Svo eru menn að tala um harðræði í leiðöngrum. Það gildir ekki á þessum bæ né þeim næsta, sem er finnska stöðin Aboa. Þar hafa þeir sjónvarp og vídeó!“ segja þeir. Suðurskautsfararnir skreyta tjaldið sitt í kvöld Sjóða hamborg- arhrygg í bráðnum snjó ÞEGAR Suðurskautsfararnir þrír tjalda í kvöld, við lok 43. dags göngunnar í átt að Suðurpólnum, munu þeir skreyta tjaldið sitt með rauðum borða. „Jólin okkar verða ein- föld en ánægjuleg. Tjaldið verður heimili okkar. Við munum kveikja á kerti, reisa jólatréð okkar, hengja upp skraut og syngja jólalög," segir í skilaboðum sem bárust frá þeim í gær. Þremenningarnir munu Iáta þurrkaða heimskautafaramatinn liggja úti á sleðanum í kvöld en þess í stað gæða þeir sér á úrbein- uðum hamborgarhrygg sem þeir sjóða upp úr bráðnum snjó yfir loga frá bensínprímus. Eftir matinn opna þeir jólakortin frá ástvin- urn súium. í dag hafa Ingþór, Haraldur Örn og Ólaf- ur Örn lagt undir fót um það bil 900 kíló- metra af hjarni á göngu sinni í átt að Suður- pólnum. I boðunum sem bárust í gær sagði að þeir væru í 297 km fjarlægð frá Pólnum og í 2.300 metra hæð uppi á jöklinum. „Við erum nú á leiðinni í gegnum stórt rifskaflasvæði en við verðum að mestu leyti komnir í gegnum það um jólin,“ sagði í boð- unum. Gangi þeim áfram allt að óskum er ljóst að þeir ljúka göngunni á undan áætlun og ekki er loku fyrir það skotið að þeir nái í bækistöðvar Bandarflcjamanna á pólnum á gamlárskvöld. Sleðarnir, sem hver vó ríflega 100 kfló þegar lagt var af stað 7. nóvember, eru nú meira en þriðjungi léttari en í upphafi ferð- ar. Ferðaáætlunin gerði ráð fyrir því að þeir kæmu á pólinn þann 10. janúar en þegar blaðamaður Morgunblaðsins talaði við Ólaf Örn Haraldsson í Patriot Hills, daginn áður en þremenningarnir gengu af stað sagði hann að ef allt gengi að óskum væri draum- urinn sá að ná í áramótagleði Bandaríkja- mannanna í bækistöðinni á Pólnum. 43 dagar í sunnanbyl Kannski verður jólaveðrið á Suðurskauts- Iandinu jafnmilLog á íslandi en síðast þegar INGÞÓR Bjarnason, Ólafur Örn Haraldsson og Haraldur Örn Ólafsson á Suðurskauts- landinu. Myndin var tekin utan við Patriot Hills tjaldbúðirnar 12. nóvember, daginn sem þeir lögðu af stað frá ísröndinni áleiðis að Pólnurn. fréttist var það býsna hefðbundið; 20-30 stiga frost og linnulaus mótvindur, 6 vindstig og þar yfir, með skafrenningi. Að teknu tilliti til vindkælingar jafngildir það a.m.k. 47 stiga frosti. Við þessar aðstæður hafa þremenning- arnir lagt undir fót um 25 km á hverjum degi. Það má því segja að þeir hafi eytt síð- ustu 43 dögunum í sunnanbyl. Tómas Bjarnason, tengiliður þremenning- anna hér á landi, segir að í því roki sem oft- ast er á Suðurskautslandinu, séu menn stöðugt með eins og suð fyrir eyrunum og því geti menn lítið haft samband sin á milli á göngunni, samskipti bíði þess að menn séu búnir að koma yfir sig tjaldi á kvöldin. Hver þremenninganna er með vasadiskó meðferðis til þess að hlusta á tónlist þegar færi gefst. Fáeinir aðrir leiðangrar eru á Suður- skautslandinu og í skilaboðunum sem bárust frá leiðangursmönnum í gær segir að á að- fangadagskvöld verði næstu nágrannar þeirra ástralskur leiðangur í 150 kflómetra fjarlægð. Hugmyndir um kennslu á háskólastigi á Austurlandi Ný hugsun í háskólastarfí Tillaga fjárlaganefndar um að veita átta millj- ónum króna til undir- búnings háskólastarfi á Austurlandi hefur vak- ið athygli. Karl Blöndal kynnti sér hugmyndir um kennslu á háskóla- stigi á Austfjörðum. Fjárlaganefnd Al- þingis lagði til fyrir nokkru að átta milljónum króna yrði varið til undirbúnings háskólakennslu á Austurlandi á næsta ári. Hugmyndin er sú að leggja áherslu á fjarkennslu og end- urmenntun og lagði Jón Kristjáns- son, formaður fjárlaganefndarinnar, áherslu á það í samtali við Morgun- blaðið að ætlunin væri ekki að koma upp nýrri háskólastofnun. Emil Björnsson, aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, hef- ur stýrt nefnd, sem fjallað hefur um þessar hugmyndir, og sagði hann að hér væri á ferð ný hugsun í háskóla- starfi. Jón sagði að lagt hefði verið til að átta milljónum yrði varið til undir- búnings þessa máls að beiðni Há- skólanefndar Sambands sveitarfé- laga í Austurlandskjördæmi. Þessi fjárveiting var samþykkt við fjárlagaafgreiðslu á laugardag. „Hugsunin að baki var að Aust- firðingar gætu undirbúið málið,“ sagði Jón. „Þeirra umsókn var rök- studd og málið á því stigi að þótti rétt að verða við hluta af þeirra beiðni." Jón sagði að það kæmi í hlut menntamálaráðuneytis að ákveða hvernig féð yrði notað. Væntanlega yrði gert einhvers konar samkomu- lag um að kanna forsendur íyrir fjarkennslu og endurmenntun. Fylgst með málinu í mennta- málaráðuneyti Björn Bjamason menntamálaráð- herra sagði að fylgst hefði verið með þessum hugmyndum í menntamála- ráðuneytinu og þyrfti ráðuneytið að taka ákvörðun um það hvernig þess- ir fjármunir yrðu nýttir. Emil Bjömsson er formaður Há- skólanefndar Sambands sveitarfé- laga í Austuriandskjördæmi, sem var skipuð í febrúar. Hann sagði að nefndin hefði lagt tillögur sínar fyrir aðalfund Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi í ágúst og þar hefði henni verið falið að halda starfi sínu áfram. „Hugmyndirnar ganga út frá að það verði stofnuð miðstöð háskóla- náms og endurmenntunar á Austur- landi,“ sagði Emil. „Formið á mið- stöðinni hefur ekki verið ákveðið, en auðvitað munum við ræða við há- skóla í landinu. Það er þó ekki ljóst á þessu stigi hvort um verður að ræða útibú frá ákveðnum háskóla eða sjálfstæða miðstöð, sem yrði ein- hvers konar sameignarfyriríæki." Kennslunni dreift Hann sagði að hér væri á ferð ný hugsun í háskólastarfi. „Hún felst í því að dreifa kennsl- unni þar sem nemendurnir eru,“ sagði hann. „Þess vegna leggjum við mikla áherslu á að tengja saman framhaldsskólana á Austurlandi því að við lítum á þá sem ákveðinn grunn fyrir háskólamenntun og sí- menntun. Þetta eru sterkustu menntastofnanirnar á hverjum stað og með þessu reynum við að byggja á því sem fyrir er. Við leggjum mikla áherslu á að þeir verði tengdir saman með þvf, sem nefnist gagn- virkt sjónvarp eða fjarfundabúnað- ur.“ Hann sagði að þar með opnaðist möguleiki á að tengjast hvaða há- skóla, sem væri. Vilji fyrirtækja kannaður Að sögn Emils var gerð könnun á því meðal fyrirtækja á Austuriandi hvaða menntun skorti helst á vinnu- markaðnum. „Þar var talað um fjórþætta menntun," sagði formaður Háskóla- nefndarinnar. „Tungumál, gæðamál og stjórnun, tölvuþekking og sölu- og markaðsmál. Eftir þessari þekk- ingu kalla austfirsk fyrirtæki. Því má bæta við að þessa dagana stend- ur yfir könnun á vegum Rannsókna- stofnunar Háskólans á Akureyri meðal almenn- ings á Austurlandi á því hvaða nám hann kjósi helst að verði í boði.“ Hann kvað nefndina hafa reynt að finna hvem- ig háskólastarf hentaði aðstæðum á Austfjörðum best. „Hér eru mjög dreifðar byggðir," sagði hann um Austfirði. „Eg skoð- aði þriggja ára gamlan háskóla í Pr- ince George í Kanada, frekar litlum stað með 70 þúsund íbúa. Hann þjónustar gríðarlega stórt svæði í hinum dreifðu byggðum í gegnum sjö framhaldsskóla og geta verið allt að 300 kílómetrar milli skóla. Þar var strax lögð mikil áhersla á að hækka menntunarstigið á því svæði sem svar við miklum þjóðfélags- breytingum og byggðaþróun. Við höfum hug á að nýta tæknina til að skapa nýjar forsendur fyrir kennslu á háskólastigi á Austurlandi." Hann sagði að nefndin hefði farið fram á 16,4 milljónir króna. Ætlunin hefði verið launa starfsmann í eitt ár til að undirbúa stofnunina og tengja saman framhaldsskólana með fjar- skiptabúnaðinum með þessu fé.“ Fjárlaganefnd lagði eins og áður kom fram til að átta milljónum yrði varið til að undirbúa háskólastarf á Austurlandi. „Auðvitað náum við einhverjum árangri með þessu þótt þetta sé ekki öll upphæðin," sagði Emil. „Skrefin verða þá bara styttri og fleiri." Ekki ný huginynd Hugmyndin um háskólastarf á Austuriandi er ekki ný af nálinni. Sveinbjörn Bjömsson, fyrrverandi háskólarektor, var með þeim fyrstu, sem vöktu máls á henni og ræddi hana meðal ann- ars í ræðu, sem hann flutti við rektorsskipti í Háskólanum í september. Þar sagði Sveinbjöm að hvatt hefði verið til þess að i „öllum landshlutum [yrði] efnt til miðstöðva endurmenntunar, skemmra starfsnáms og byrjunar háskólanáms við bestu framhalds- skóla“. Bætti hann við að stuðningi hefði verið heitið við undirbúning að slíku námi á háskólastigi á Austur- landi og Vestfjörðum. Jón Kristjánsson sagði að Vest- fírðingar hefðu gert grein fyrir hug- myndum um svipað fyrirkomulag. Þar hefði nefnd unnið að undirbún- ingi málsins í tvö ár og hún hefði sent fjárlaganefndinni greinargerð um stöðu undirbúnings, en bæði hefði hann verið of skammt kominn og beiðni um fjárframlag borist of seint til að bregðast mætti við henni þar sem afgreiðsla fjárlaga hefði verið á lokastigi. Hann kvaðst telja að aukna menntun vantaði á Áustfjörðum til að efla atvinnulífið. Atvinnulífi hvatning „Ef einhvers konar háskólaum- hverfi væri innan seilingar fyrir austan gæti það orðið at- vinnulífinu hvatning,“ sagði Jón. „Það myndi meðal annars ýta undir það að fé bærist frá at- vinnulífinu til rannsókna og þróunar ef menn væru í meiri snertingu við háskólastarfið." Hann sagði að eins og málum væri nú komið kæmi tiltölulega lítið fé frá fyriríækjum til rannsókna og þróunar. Ein ástæðan væri reyndar sú að flest fyrirtæki á Austfjörðum væru fremur smá, en það segði ekki alla söguna. Jón kvaðst telja eðlilegt að í þess- ari umræðu væri spurt hvort Há- skólinn væri ekki nógu aðþrengdur um þessar mundir þótt ekki væri verið að leggja á hann auknar byrð- ar. Hér væri hins vegar ekki verið að tala um skólastarf með mikilli yf- irbyggingu, heldur að stofna til tengsla við bæði Háskóla íslands og aðrar stofnanir með tiltölulega ódýr- um hætti. Bjöm Bjarnason sagði að skoða yrði hvað í þessum hugmyndum fælist. Meðal annars væri talað um að kaupa fjarkennslubúnað. Ekki verið að tala um að stofna háskóla á Austurlandi „Það er alls ekki verið að tala um að stofna háskóla á Austurlandi," sagði Björn. „Hins vegar er verið að tala um endurmenntun og samstarf í tengslum við framhaldsskólana. Við höfum til dæmis stofnað miðstöð sí- menntunar á Suðurnesjum. Endur- menntunarstofnun Háskólans kem- ur að henni með óbeinum hætti og það er hægt að hugsa sér ýmiss kon- ar endurmenntun á Austurlandi eins og annars staðar. Kennaraháskólinn hefur verið með fjar- kennslu á háskólastigi á Austurlandi." Menntamálaráðherra sagði að spurningin væri meðal annars sú hvort þyrfti sérstakan búnað til að slíkt háskólastarf gæti farið fram, en hann sæi enga ástæðu til að leggjast gegn þvi að menn skoðuðu alla möguleika þarna fremur en ann- ars staðar til að nýta sér nýjustu tækni til að endurmennta menn. En það væri skilyrði að slíkt starf yrði í tengslum við Háskóla Islands og Háskólann á Akureyri. „Samstarf við háskóla lands- ins er skilyrði Vestfirðingar vilja svipað fyrirkomulag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.