Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 50
•> 50 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR HAFA unað sér vel í haustblíðunni undanfarnar vikur, gæðingar landsmanna, enda tíðin eindæmagóð
en nú munu margir þeirra komnir á hús til að þjóna eigendum sínum.
Reiðhestamir tekn-
ir snemma á hús
MIKILL hugur virðist í hestamönnum þessa
dagana því víða eru menn búnir að taka á hús.
Síðustu tvær helgar hafa margir verið á ferð og
miklar annir hafa verið hjá hestaflutningabílstjór-
um undanfarnar tvær vikur. Þrátt fyrir mjög gott
tíðarfar fyrir hross virðast menn heldur fyrr á
ferðinni með hýsingu nú en í fyrra. Valdimar
Kristinsson kíkti í hesthúsahverfin á höfuðborg-
* arsvæðinu og tók púlsinn á hestamennskunni
svona rétt fyrir jólin.
hafa lækkað heldur og eru dæmi um
að menn fái stórar rúllur 120 x 120
sentimetrar að stærð á 2.500 krónur
komið að hlöðudyrum. Algengt verð
hefur verið 3.500 krónur.
Allt bendir til að mikil gróska
verði í hestamennskunni í vetur.
Fyrstu mótin eða vetraruppákomur
eins og það er gjarnan kallað verða í
febrúar. Verið er að leggja síðustu
hönd á mótaskrá Landssambands
hestamannafélaga og sagði Sigurður
Þórhallsson hjá LH að hún yrði til-
búin í byrjun janúar. Heimtur á upp-
lýsingum frá félögunum hefðu verið
slæmar eins og oft áður.
Valdimar Kristinsson
ÁSTÆÐURNAR má vafalaust rekja
til landsmótsins næsta sumar.
Tamningamenn eru flestir komnir í
fullan gang með starfsemina og virð-
ist það smita út frá sér og frístunda
hestamenn fylgja gjarnan á eftir.
Góðviðrið virðist einnig örva menn
til að hefja útreiðar fyrr en ella. Víða
í hesthúsahverfum hafa menn verið
að endurbæta hús sín á ýmsa lund og
mikil gróska hefur verið í nýbygg-
ingum hesthúsa eins og greint hefur
verið ft-á í Morgunblaðinu.
Þrátt fyi'h' erfítt sumar til hey-
verkunar virðist mikið framboð á
& heyi. Rúlluheyskapur gerði
gæfumuninn og má ætla að meiri-
hluti hestamanna í þéttbýli sem ann-
arsstaðar sé farinn að gefa rúlluhey.
Minna framboð er af þurrheyi en
þrátt fyrir það stendur verð á því í
stað. Algengt verð er fimmtán krón-
ur fyrir kílóið komið að hlöðudyrum
kaupandans. Verð á rúllum virðist
MEÐAL þeirra hesta sem þjálfaðir verða í vetur með keppni í huga er
Váli frá Nýjabæ. Einhver bið verður þó á að hann verði hýstur því eig-
andinn og knapinn á myndinni stendur í stórræðum þessa dagana og
byggir 20 hesta hús að Varmárbökkum í Mosfellsbæ.
■ SIGURÐUR Sæmundsson,
landsliðseinvaldur íslenska lands-
liðsins, fékk á haustdögum tilboð um
að gerast landsliðsþjálfari Svía. Sví-
ar voru ekki ánægðir með árangur-
inn á mótinu í Seljord í sumar og
'*'eru farnir að huga að því að byggja
upp sterkara lið fyrir næsta mót
sem verður haldið í Þýskalandi.
■ SIGURÐUR hafnaði tilboðinu
að vandlega hugsuðu máli. Taldi það
of mikið rask fyrir sig og fjölskyldu
sína þótt vel væri boðið.
■ TRAUSTI Þór Guðmundsson
hefur gert árssamning við Wagner-
fjölskylduna sem rekur hestabúgarð
að Oedhof í Suður-Þýskalandi. Mun
hann hafa yfirumsjón með þjálfun
og tamningu auk þess að sinna reið-
kennslu.
^ ■ Trausti mun framlengja samn-
inginn næsta haust ef báðir aðilar
eru ánægðir með samstarfíð og mun
fjölskylda hans þá flytja utan á vori
komanda.
■ PÁLL Bragi Hólmarsson og
Hugrún Jóhannesdóttir sem hafa
unnið við tamningu og þjálfun
hrossa á félagssvæði Gusts hafa nú
flutt sig um set og verða í vetur með
starfsemina að Ingólfshvoli í Ölfusi.
Hestar/fólk
■ ÓLAFUR H. Einarsson, ný-
kjörinn formaður Félags tamninga-
manna, vígði nýlega 30 hesta hús að
Hvoli í Ölfusi þar sem hann býr
ásamt fjölskyldu sinni. Húsið er búið
eins og tveggja hesta stíum, svoköll-
uðum boxum með eikarklæðningu
að neðanverðum innréttingunum en
galvaniseruðum járngrindum að of-
an. Veggir eru einnig eikarklæddir.
■ OLAFUR hefur nú alfarið snúið
sér að hestamennskunni en hann er
tölvufræðingur að mennt og hefur
starfað við það fram að þessu. Um-
setningin í hestamennskunni hefur
aukist ár frá ári hjá honum og hefur
hann haft einn til tvo menn í vinnu.
■ BENEDIKT Þorbjörnsson er
nú kominn heim að Stað í Borgar-
firði eftir tæplega ársdvöl við störf á
Hólum í Hjaltadal. Verður Benedikt
þar við tamningu og þjálfun í vetur.
■ BENEDIKT hefur tekið að sér
endurmenntun félaga í Félagi tamn-
ingamanna á Vesturlandi. Auk þess
mun hann bjóða upp á helgarnám-
skeið á Stað.
■ SIGURÐUR Sigurðarson ís-
landsmeistari í tölti verður með Kr-
inglu frá Kringlumýri á húsi í vetur
en hún var ekki leidd undir stóðhest
í sumar. Stefnir Sigurður með hana í
gæðingakeppni landsmótsins næsta
sumar.
■ SIGURÐUR verður einnig með
aðra gráa hiyssu Dögg frá Hjalta-
stöðum í þjálfun og þykir hún gefa
Kringlu lítið eftir. Þá verður hann
einnig með gæðinginn Prins frá
Hörgshóli en þeir voru sigursælir í
fímmgangi á árinu. Af þessu má sjá
að Sigurður ætti að mæta sterkur til
leiks næsta sumar.
■ ATLI Guðmundsson verður
eins og undanfarin ár að Dallandi í
Mosfellsbæ og er kominn með fullt
hús. Meðal þeirra hrossa sem í hús-
inu eru má nefna ellefu stóðhesta,
hvorki meira né minna.
■ MEÐAL stóðhestanna má
nefna Hjálmar frá Vatnsleysu sem
er frægastur fyrir það að um hann
var stofnað félag þar sem hann var
metinn á þrjár milljónir króna lítið
taminn. Þá er einnig að nefna lit
Hjálmars sem þykir mjög sérstakur,
slettuskjóttur.
■ AÐ HJÁLMARI HEFUR AÐ
ÖÐRU LEYTI LÍTIÐ KVEÐIÐ ENN
SEM KOMIÐ ER NEMA EF VERA
SKYLDI AÐ HANN GEFUR MIKIÐ
AF BLESÖTTUM AFKVÆMUM.
Þrautakóngnrinn
Sam Loyd
SKAK
JÓLASKÁKÞRAUTIR
Bandarikjamaðurinn Samuel Loyd
(1841-1910) var bráðsnjall og af-
kastamikill skákdæmahöfundur.
Jólaþrautimar í ár eru allar eftir
hann.
LOYD var einnig höfundur
gestaþrauta ýmiss konar og stærð-
fræðiþrauta. Slík dægradvöl naut
mikilla vinsælda á árum áður og
síðustu áratugi nítjándu aldar var
hann sannkallaður þrautakóngur
Bandaríkjanna.
Auk þess sem
Loyd var leiftr-
andi hugvitsmað-
ur, var hann mik-
ill húmoristi og
hafði gaman af
að skemmta fólki
með ýmsum
glettum. Þetta
rak hann áfram
við þrautasmíð-
arnar. Árið 1913,
þremur árum eft-
ir lát hans, gaf Alain C. White út
bókina „Sam Loyd and his Chess
Problems", sem hefur m.a. að
geyma 744 þrautir, þar af eru
nokkrar eftir bræður hans tvo, sem
einnig lögðu nokkra stund á þessa
listgrein. Þetta er gagnmerkt rit
sem nú er orðið fágætt. Undirrit-
aður fékk það léð fyrir nokkru hjá
Leifi Jósteinssyni, bankaútibús-
stjóra og skákmeistara.
Nokkuð er fjallað um ísland í
bókinni fyrir þá sök að þeir Sam
Loyd og Daníel Willard Fiske
(1831-1904), velgjörðamaður okk-
ar íslendinga, voru samstarfsmenn
og aldavinir. Þegar Sam Loyd var
innan við tvítugt samdi hann dæmi
í skákblað sem Fiske gaf út. Eftir
þá tvo eru til óborganlegar sögur,
þar sem skákdæmi koma alls stað-
ar við sögu. Fiske átti mest af sög-
1. Saturday Press 1857
Hvítur mátar í öðrum leik
unum, en Loyd samdi dæmin við.
í ritinu „í Uppnámi" sem Fiske
gaf íslendingum má líta nokkrar í
íslenskri þýðingu.
En snúum okkur að jólaþraut-
unum. Lengra komnir áhugamenn
um skákdæmi kannast líklega við
þær flestar, en ég hreinlega öf-
unda þá sem ekki hafa séð þær
áður. Það var ávallt stutt í húmor-
inn hjá Sam Loyd. Hann vildi hafa
lausnarleikinn sem allra óvæntast-
an eða fáránlegastan og láta stöð-
una á borðinu mynda laglegt
mynstur, t.d. stafamynstur.
Fyrstu tvær þrautirnar eru
nokkuð dæmi-
gerðar fyrir Sam
Loyd, en ættu ekki
að vefjast lengi
fyrir lesandanum.
I þeirri þriðju nær
höfundurinn sér
heldur betur á
strik. Bæði mynst-
ur og ijórföld
þraut! Hann kall-
aði dæmið „hring-
ur innan hrings".
Mátin tvö á hvítt
og svart og sjálfsmátin tvö eru
ekki sérlega erfið.
Fjórða dæmið er eitt þeirra
fyrstu sem Sam Loyd samdi. Hálfri
öld síðar tók hann sig til og lag-
færði það lítillega. Það er hér í
endanlegu útgáfunni.
Fimmta dæmið er mjög magn-
að. Sam Loyd sagðist hafa samið
það á leið sinni í vinnuna einn
morguninn í New York, en margir
hafa dregið það í efa. Alain C.
White, höfundur bókarinnar um
Loyd, telur þetta þó geta verið
rétt. Það sjötta er að mínu viti
besta sönnunin um snilligáfu Lo-
yds. Meistarinn þarf ekki mikinn
efnivið til að búa til listaverk!
Lausnirnar birtast fljótlega eftir
jólin.
Gleðileg jól.
Margeir Pétursson.
4. Saturday Courier 1855
Sam Loyd
2. Baltimore Dispatch 180
Hvítur mátar í öðrum leik
3. American Chess Journal 1878
5. Checkmate Novelty 1903, 1.
verðlaun
Hvítur mátar í þriðja leik
pi
i
wMWX
m m ...
ip ii§ & §Hí Wik
§§
m m
i
A 1 &
m
wM wÆ
t.L-2
'///
6. American Chess Nuts 1868
Fjórar þrautir í einni: Bæði hvít-
ur og svartur geta mátað í öðr-
um leik og báðir geta líka þving-
að fram sjálfsmát í öðrum leik!
Hvítur mátar í fimmta leik