Morgunblaðið - 24.12.1997, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 24.12.1997, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 63 I I i I I I I I I I I I I < I I < I I _______BRÉF TIL BLAÐSINS_ Hjálp - Neyðarástand í málefnum fatlaðra Frá Ólöfu Björnsdóttur: HINN 25. september 1996 fór ég á fund fjármálaráðherra og vildi ræða við hann um málefni fatlaðra en það sem út úr því kom var að „enginn málaflokkur hækkaði meira en málaflokkur fatlaðra, heilar 60 milljónir" var það sem kom út úr þeim fundi fyrir utan sögu um konu sem treysti sér ekki til að hafa mömmu sína lengur hjá sér og fékk það svar „farðu heim og hugsaðu um hana móður þína, þú berð sömu ábyrgð á foreldrum þínum og börnum þínum“ sem sagt, farðu heim og hugsaðu um „barn“ þitt. En þessar 60 milljónir eru greiðsla frá heilbrigðisráðu- neyti með einstaklingum sem fóru af fyrrum Kópavogshæli yfir á sambýli. I grein sem ég fékk birta í Mbl. 15. maí 1997 beindi ég spurn- ingum til félagsmálaráðherra, menntamálaráðherra og yfirlæknis á endurhæfingar- og hæfingar- deildar Landspítalans, áður Kópa- vogshæli. Það er skemmst frá því að segja að ég fékk 1 svar og það var frá Gísla Einarssyni sem birti skoðun sína í Mbl. 29. júní 1997 og þar fékk ég staðfestingu á því sem ég hélt að það varð ekki hækk- un á málaflokki fatlaðra heldur tilfærsla á fjármunum. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra, ég beindi spurningum til þín í grein, sem kom í Mbl. 15. maí 1997, en þú hefur ekki svarað þeim svo ég ætla að reyna að fræða þig og biðja þig svo um að svara og segja mér hvernig ráðuneytið þitt ætlar að bregðast við vandan- um. En það sem mér finnst mjög alvarlegt mál og vil benda þér á og það er að fræða hæstvirtan fjár- málaráðherra betur um hvernig þessar 60 milljónir eru tilkomnar, þær ættu að vera þér minnisstæð- ar því eftir því sem Gísli skrifar gekk illa að ná til baka rekstrar- peningum einstaklinga sem ekki yfirgáfu Kópavogshælið. Erfðafjárskatturinn, peningur fatlaðra Veistu að erfðafjárskatturinn á að renna óskiptur í framkvæmda- sjóð fatlaðra og var á síðasta ári um 400 milljónir en eingöngu um 200 milljónir fóru í framkvæmda- sjóðinn og er það illskiljanlegt og vil ég fá greinargóða lýsingu á hvers vegna, því að veistu: að það eru 135 manns á biðlista eftir sambýli á Reykjanesi, að af þeim eru 24 á neyðarlista, að af þeim eru 8 börn, að 1 vistheimili er til fyrir börn yngri en 16 ára, ætlað 4, en þar er aðeins 1 einstaklingur yngri en 16 ára, að 1 barn er í neyðarvistun á skammtímavistunarheimili, að neyðarvistun er fyrir 2 ein- staklinga að Tjaldanesi, að 42 einstaklingar eru á bið- lista eftir skammtímavistun, að engin dagvistunarúrræði eru til fyrir þá sem þurfa á því að halda, að mjög mikil þörf er á hæf- ingarstöðvum fyrir fatlaða. Að baki þessum 135 einstakling- um eru fjölskyldur, misjafnlega þreyttar og með misjafna einstakl- inga. Það er ekki auðvelt að kom- ast á þennan neyðarlista, um það get ég vitnað. Það eru eflaust fleiri sem ættu að vera á þessum lista, það eiga margir erfitt með að segja „ég get ekki meir“ því það er ver- ið að tala um afkvæmi manns og ekki gefumst við svo auðveldlega upp á þeim en oft eru t.d. systkini til staðar sem verða útundan. Er bandormur ríkisstjórnarinnar í hnút? Ég heyrði að í bandorminum hefði verið lagt til, að til málefna fatlaðra færi minni upphæð en í fyrra og vil fá svör við því hvernig það dæmi á að ganga upp. Ef við lítum á Svæðisskrifstofuna sem fyrirtæki sem þarf vissan mann- afla til að geta gengið, rekið sam- býlin ofl., hvernig er þá hægt að lækka upphæðina milli ára án þess að það komi sér verulega illa fýrir þessa fötluðu einstaklinga? A að fækka stöðugildum? Leggja niður sambýlin og henda þeim sem þar búa í ættingjana? Læsa þau inni þegar ekki eru til peningar til að borga aukavakt þegar starfsfólk er veikt? Gefa þeim svefnlyf fýrir nóttina og spara næturvakt? Hver eru rökin fyrir þessari upphæð sem þeir í bandorminum leggja til að fari í málaflokk fatl- aðra? ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR, bankastarfsmaður, Selbrekku 16, Kópavogi. Áfellisdómur Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur: RÍKISENDURSKOÐUN hefur nú lokið skoðun sinni á starfsháttum Tryggingastofnunar ríkisins, sem tilkomin er vegna gagnrýni Lífs- vogar á þau atriði og umbeðinnar athugunar af hálfu forstjóra TR, í kjölfar gagnrýni Lífsvogar sl. sumar, er átti að „hreinsa stofnun- ina“ vegna „ásakana" Lífsvogar. Lífsvog afhenti Ríkisendur- skoðun greinargerð og dæmi máli sínu til stuðnings, þann 16. ágúst sl., en þá hafði Ríkisendurskoðun farið þess á leit við Lífsvog að samtökin kæmu inn athugasemd- um sínum, og í kjölfar þeirra ósk- að eftir skýringum TR, er fram koma í bréfi forstjóra dags. þann 16. október sl. Hinni faglegu vinnu Ríkis- endurskoðunar á máli þessu fögn- um við sérstaklega hjá Lífsvog, en hingað til höfum við ekki getað hrósað málsmeðferð í málum ein- staklinganna, hvort sem er hjá Tryggingastofnun ríkisins eða Landlæknisembættinu. Vönduð vinnubrögð við athugun þessa eru svo sannarlega til þess fallin að vekja traust almennings og sýna að þörf þess að standa vörð um lög þau er gilda í landinu hveiju sinni veltur ekki hvað síst á al- menningi og hinum ýmsu hags- munahópum fólksins, í þessu til- viki sjúklinga, er lent hafa í læknamistökum er stofnuðu sam- tökin Lífsvog fyrir tæpum þremur árum. Niðurstaða Ríkisendurskoðun- ar, og álit á ýmsu í starfsháttum TR, verður að teljast áfellisdómur yfir stofnun þessari, en þar kemur fram að Tryggingastofnun hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni til handa sjúklingum, til að mynda í læknamistakamálum, samhæf- ingu skorti í upplýsingaráðgjöf til sjúklinga, hvað framkvæmd ör- orkumata varðar, er valdi aftur misskilningi. Forstjóri stofnunarinnar hafi ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi hvað varðar að leyfa einka- örorkumatsgerð lækna stofnunar- innar samhliða störfum hjá Tryggingastofnun, en skoðun þessi hefur nú þegar leitt til þess að frá 1. desember sl. er læknum TR ekki lengur heimilt að sinna slíku ásamt störfum sínum hjá ríkinu, vegna hugsanlegra hags- munaárekstra, samkvæmt ákvörðun forstjóra. Innra eftirlit stofnunarinnar er í lamasessi, einkum á læknadeild. Má þar nefna mætingar einstakra lækna í vinnu sem og viðtalstíma þeirra við sjúklinga, sem fundið er að í skýrslunni af hálfu Ríkis- endurskoðunar. Verklagsreglur skortir við matsgerð lífeyristrygginga, hvað varðar helstu matsþætti þeirra. Engar slíkar reglur eru nú til. Ríkisendurskoðun vekur einnig athygli á mismunandi réttarstöðu sjúklinga við Alþingi, en sjúkling- ur í aðgerð á einkastofu læknis á ekki rétt á greiðslum úr sjúklinga- tryggingu, þótt sjúklingur er gengst undir aðgerð á sjúkrahúsi eigi rétt á slíku, jafnvel þótt sami læknir hafi sinnt slíku ferliverki. „Sjúklingar búa ekki við jafnræði vegna einkaverka lækna,“ segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ýmislegt fleira er að finna í skýrslu þessari sem verður eins og áður sagði að teljast vægast sagt verulegur áfellisdómur yfir Tryggingastofnun ríkisins og skipulagi mála sem eru fyrst og síðast á ábyrgð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis á hverj- um tíma. Lífsvog mun eftir föngum fylgja því eftir að ábending og álit Ríkisendurskoðunar á máli þessu verði að veruleika til handa sjúklingum er þurfa á þjónustu þessari að halda í framtíðinni og hvetja önnur sjúklingasamtök að gera slíkt hið sama. F.h. Lífsvogar, GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, formaður. Til ríkisskattstj óra Frá Stefáni Jónssyni: Svolítið ég sendi blað svona til að minna á það við kærum, sem ég sendi þér, svör ei hafa borist mér. Þótt liðið sé á annað ár ertu heldur sagnafár biðin fínnst mér löng og leið á langinn dragast svörin greið. Bíð ég eftir bréfum þeim er birta svör við kærum tveim úr því skorið ég vil fá hvers af þér ég vænta má. Það ég vona, þess ég bið að þarna sigri réttlætið og fréttir góðar færi mér fyrr en varir, bréf frá þér. Á að bíða eftir því að ennþá berist kæra ný? Því skammt er þar til skattstjórinn skammtar mér í þriðja sinn. Vissulega vænta skal að verði afgreitt þetta skjal en því eigi stungið undir stól. STEFÁN JÓNSSON, Sjónarhól. FLUGELDAMARKAÐIR fý LANDSBJARGAR ^4 Kópavogur Toyota, Nýbýlavegi 8 Hjálparsveitarskemman Bakkabraut 1 Hvellur, Smiðjuvegi 4c Við Sorpu, Dalvegi. Carðabær Hjálparsveitarhúsið við Bæjarbraut Sómi, Gilsbúð 9 Við Frigg, Lyngási Álftanes Við verslunina. ísafjörður Bílatangi við Suðurgötu Ljóninu, Skeiði. Blönduós Hjálparsveitarhúsið, Efstubraut 3 Varmahlíð Flugbjörgunarsveitarhúsið við Sauðárkróksbraut Dalvík Hjálparsveitarhúsið, Gunnarsbraut 4 Akureyri Stórmarkaður Hjálparsveitarhúsinu Lundi við Skógarlund Stórmarkaður Bílasölunni Stórholti Stórmarkaður Bílasölu Akureyrar við Fjölnisgötu Eyjafjarðarsveit Hjálparsveitin Dalbjörg Steinhólaskála Aðaldalur og nágrenni Hjálparsveitarhúsið Aðaldal Egilsstaðir Lyngás 5 Vestmannaeyjar Skátaheimilið við Faxastíg 38 Hella Flugbjörgunarsveitarhúsið Flúðir Hjálparsveitarhúsið Smiðjustíg 8 Selfoss og nágrenni Austurvegur 21 Hveragerði Hjálparsveitarhús, Austurmörk 9 Reykjanesbær Björgunarsveitarhúsið, Holtsgötu 51 Söluskúr við Kaskó Söluskúr við Sparisjóð Keflavíkur Bílasalan Bílanes FLUGELDAMARKAÐIR UM ALLT LAND Reykjavík Risaflugeldamarkaðurinn Hjálparsveitarhúsinu Malarhöfða Skátabúðin, Snorrabraut 60 Mörkin 6, Ferðafélag íslands NóatúnJL Húsinu, Hringbraut 121 Landsbjargarhúsið, Stangarhyl 1 Bílabúð Benna, Vagnhöfða 23, Við Verslunarmiðstöðina Mjódd Skátaheimili Skjöldunga, Sólheimum 21A Síðumúli 28 Flugbjörgunarsveitarhúsið Flugvallarvegi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.