Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 66

Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 66
': 66 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ db ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sóiSið kt. 20.00: HAMLET — William Shakespeare Þýðing: Helgi Hálfdanarson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Leikmynd: Vytautas Narbutas. Búningar: Vytatas Narbutas og Filippía Elíasdóttir. Leikstjóm: Baltasar Kormákur. Leikendur: Hilmir Snær Guönason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Erlingur Gíslason, Stefán Jónsson, Sveinn Geirsson, Þór H. Tuliníus, Steinn Ármann Magnússon, Siguröur Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðsson, Gunnar Hansson, Randver Þorláksson og Valdimar Örn Flygenring. Frumsýning á annan í jólum 26/12 uppselt — 2. sýn. lau. 27/12 uppselt — 3. sýn. sun. 28/12 örfá sæti laus — 4. sýn. sun. 4/1 nokkur sæti laus — 5. sýn. fim. 8/1 nokkur sæti laus — 6. sýn. fös. 9/1 nokkur sæti laus. GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Þri. 30/12 uppselt — lau. 3/1 — sun. 11/1. FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick Fös. 2/1 40. sýning, nokkur sæti laus — lau. 10/1. Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00: LISTAVERKIÐ — Yasmina Reza Lau. 3/1 — lau. 10/1. .....GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR----- Miðasalan verður lokuð á aðfangadag en annan dag jóla verður opið frá kl. 13.00—20.00. % LEIKFELAG REYKJAVÍKUR 1897- 1997 BORGARLEIKHUSIÐ GJAFAKORT LEIKFÉLAGSINS KÆRKOMIN JÓLAGJÖF Stóra svið kl. 14.00 eftir Frank Baum/John Kane lau. 27/12 uppselt, sun 28/12 upp- selt, AUKASÝNING sun. 28/12 kl. 17, sun. 4/1, lau. 10/1, sun. 11/1 laus sæti. Munið ósóttar miðapantanir. GJAFAKORTÁ GALDRAKARUNN ER TILVALIN JÓLAGJÖF! Stóra svið kl. 20.30 Tónlist og textar Jónasar og Jóns Múla. Ljósaljós og Ijúffengir drykkir i anddyrinu frá kl. 20.00. AUKASÝNING lau. 27/12. Örfá sæti laus og sun 4/1 laus sæti. Kortagestir ath. valmiðar gilda. Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði: Lau. 10/1 kl. 20.00, fös. 16/1 kl. 22.00 Nótt & dagur sýnir á Litla sviði kl. 20.30: NIALA eftir Hlín Agnarsdóttur Fös. 9/1, lau. 10/1.__ Miðasalan er opin aðfangadag frá kl. 10—12 og annan dag jóla frá kl. 13 — 18. Símapantanir virka daga frá kl. 10 Greiðslukortaþjónusta Sími 568 8000 fax 568 0383 FJÖGUR HJÖRTU eftir Ólaf Jóhann Ólafsson Forsýning 29. des. kl. 20 Frumsýning 30.des. kl. 20 — uppselt fös. 2. jan. kl. 20 örfá sæti laus sun. 11. jan. kl. 20 LISTAVERKIÐ Sýning Þjóðleikhússins lau. 3. jan. kl. 20 lau. 10. jan. kl. 20. VEÐMÁLIÐ Næstu sýningar verða í janúar Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI fös. 9. jan, kl. 20 Ath. örfáar sýningar. GJAFAKORT - GÓÐ GJÖF Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775 Miðasala opin 10-18, lokað lau. og sun. Leikfélag Akureyrar Jólafrumsxning A ferð með frú Daisv eftir Alfred Uhry Daisy: Sigurveig Jónsdóttir Hoke: Þráinn Karlsson Boolie: Aðalsteinn Bergdal Þýðing: Elísabet Snorradóttir Lýsing: Ingvar Björnsson Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir Leikstjórn: Asdís Skúladóttir Frumsýning á Renniverkstæðinu á annan í jólum, 26.12 kl. 20.30, uppselt, 2. sýn. 27/12 örfá sæti laus, 28/12, 30/12. Miðasölusími 462 1400 Gleðileg jól! liðfiilúhhúsíd I HLA0VARPANUM Vesturgötu 3 RÚSSIBANA- DANSLEIKUR GAMLÁRSKVÖLD frá 00.30-04.00 Miðapantanir í síma 551 9055 Miðasala gamlársdag milli 14—17. ífr Dansandi áramót ílBfr í Kaffileikhúsinu!!! ílííff Morgunblaðið/Þorkell Sólargeisli í skammdeginu ÓHÆTT er að segja að starfsfólk miðvikudag þegar drengjakór Morgunblaðsins hafi fengið sólar- Laugarneskirkju kom í heimsókn geisla í skammdeginu síðastliðinn og söng nokkur vel valin lög. FÓLK í FRÉTTUM JÓLADAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA BÁTSKEL á eilífðarútsæ. Áhöfnin íslenskt þjóðfélag í hnotskurn; leiguliðar og bátseigandi - frelsi og helsi. Islands þúsund ár Stöð 2 ►19.50 Heimildarmyndin hans Erlends Sveinssonar (leik- stýrir, skrií'ar handrit og klippir), Islands þúsund ár, stendur uppúr íslenskri kvikmyndagerð 1997. Hann bregður upp snjallri lýs- ingu á árabátaútgerðinni sem stunduð var í gegnum tíðina fram á þessa öld, með því að fara með áhorfandann í verið einn venju- legan, langan og strangan vinnu- dag í lífi dæmigerðrai- áhafnar á árum áður. Hvert atriði, stórt sem smátt, er unnið af þekkingu, samkvæmt bestu heimildum og virðingu fyrir viðfangsefninu. Myndin er því ómetanleg heimild þegar fram líða stundir um ís- lenska sjávarhætti. Kvikmynda- taka Sigurðar Sverris Pálssonar er í sama gæðaflokki, hann hefur unnið af listfengi erfitt starf við hrikalegar aðstæður, takið t.d. eftir tökunum úti á rúmsjó. Einnig er gerð grein fyrir bak- grunni áhafnarinnar, innsýn í stéttaskiptinguna sem löngum ríkti í þjóðfélaginu. í lokin glittir í nýja tíma með sínum byltingar- kenndu breytingum. Nýir hættir eru að banka uppá. Islands þúsund ár er í þeim gæðaflokki að hún á að vera kennslugagn í skólakerfinu. Hér sjáum við hvar liggja rætur til- veru okkar, sögu og menningar. Stöð 2 ►12.40 Sverðaglamui' og seið- skrattar í miðaldaævintýri sem gam- an er að horfa á en skilur lítið eftir. Fálkamærin (Ladyhawke) er gerð 1985, meðan Rutger Hauer var enn á toppnum. Þau eru vörpulegt par, hann og Michelle Pfeiffer. Hauer leikur vígamann sem breytist í úlf á nóttunni, Pfeiffer er stúlkan hans sem álögin breyta í hauk á daginn, svo þau geti ekki ást. Matthew Broderick sér um gamnið sem ungur þjófur sem hjálpar þeim úr helsinu. Leikstjóri Richard Donner. -k-kV.í Stöð 2 ►14.40 Bjargvættir (Mixed Nuts, ‘95) k, er ósmekkleg og kauðs- leg gamanmynd um náunga (Steve Martin), sem rekur neyðarlínu fyrir fólk í sjálfsmorðshugleiðingum. Með fínum aukaleikurum eins og Ma- deline Kahn, Anthony LaPaglia, Rob Reiner og Adam Sandler en leikstýr- an og handritshöfundurinn Nora Ephron er, kurteislega orðað, mis- tæk brandarakerling. Stöð 2 ►19.50 íslands þúsund ár Sjá umfjöllun í ramma. Sýn ►20.00 Það stendur fríður hóp- ur manna að baki Leikföngum (Toys,’92). Leikstjórinn Barry Levin- son, hafði gert óslitna röð finna mynda uns kom að þessum hrikalegu mistökum. Sömu sögu var að segja um Robin Williams, einn allra besta gamanleikara samtímans. Allir reiknuðu með rosasmefli, en þessari undarlegu mynd um átök í leikfanga- verksmiðju er best lýst sem tíma- sóun. Michaef Gambon fær k Stöð 2 ►20.50 Myndin Benjamín dúfa, (‘95) er gerð af Gísla Snæ Erl- ingssyni eftir verðlaunaðri barnabók Friðriks Erlingssonar um hóp stráklinga, 10 til 12 ára. Þeir stofna riddarareglu til að berjast gegn óréttlæti en öfund og ósætti koma upp í hópnum og leiða til hörmulegra endaloka. Virkilega vönduð og góð mynd í alla staði, en hlaut ekki þá að- sókn sem henni bar. Nú er tækifærið til að sjá úrvalsmynd sem hefur að líkindum verið full átakanleg fyrir hinn almenna kvikmyndahúsagest, auk þess sem efnið gerir hana illrek- anlega í staðlaðan aldurshóp áhorf- enda. Hún er á óskýrum mörkum barna- og fullorðinsmynda en flokk- ast þó varla undir hefðbundna skil- greiningu fjölskyldumyndarinn- ar.kkk'A Sýn ►22.00 Stálfuglinn 2 (Iron Eagle II., ‘88), er eins og nafnið bendir til, framhaldsmynd. Gallinn er sá að undanfarinn var „aðeins" B- mynd, sem náði nokkrum vinsæld- um. Framhaldsmyndirnar urðu ein- ar þrjár. Þótt þessi sé skárst er hún ein allsherjar lumma um Banda- ríkja- og Sovétmenn í bræðralagi við að berja á arabaskömmunum. Louis Gossett, Jr. er þó ásjálegur að vanda og tökurnar í háloftunum flottar. k'A Stöð 2 ►22.25 Enginn annar en harðjaxfinn Clint Eastwood leikstýr- ir og fer með aðalhlutverkið í Brún- um í Madisonsýslu (The Bridges of Madison County, ‘95). Hlutverkaval- ið kom flestum sem höfðu lesið sam- nefnda metsölubók í opna skjöldu. Að óséðu vai' Eastwood gamli hæp- inn sem bóhem og ljósmyndari sem heillar ítalskættaða bóndakonu upp úr fjósagallanum er hann fæst við myndatökur í afskekktri sveit. Enn meiri undrun vakti að hin ljóshærða, engilsaxneska Meryl Streep var val- in í hlutverk frúarinnar. Það fór eins og búast mátti við, stórstjörnurnar stóðust prófið, myndin er næstum því jafn fallegt ástarævintýri og bók- in, en gæti þetta ekki verið síðasta Rómeóhlutverk Eastwoods? kkk Sjónvarpið ►22.55 Ungur að eih'fu (Forever Young, ‘92) kkVi Flug- maðurinn Mel Gibson, sem var snöggfrystur í vísindatilraun á tím- um síðari heimsstyrjaldar, „þiðnar til lífsins“, fyrir tilviljun og lendir í rómantískum kringumstæðum hálfri öld síðar. Ljúfsár mjög og Gibson og Jamie Lee Curtis gera efninu góð skil undir stjórn fagmannsins Steve Miner. Sýn ►23.55 Dagskráin hér endar á mynd sem einhverntímann hefði þótt óguðleg dægrastytting á jóla- dagskveldi. Hvarfið (The Vanishing, ‘93) er vissulega í ljótari kantinum en hún er líka spennandi, vel skrifuð og leikin með dágóðri sögufléttu. Kiefer Sutherland leikur mann sem týnir konu sinni um hábjartan dag. Hann gefur ekki upp vonina um að finna hana aftur og eftir þrjú ár hringir síminn... James Bridges er firna góður í hlutverki þrjótsins og myndin síst verri en hollenska myndin Spoorloos, sem hún er gerð eftir. George Sluizer leikstýrði þeim báðum og fékk frjálsar hendur við endurgerðina Stöð 2 ►0.45 Stórvestrinn Síðasti Móhíkaninn (The Last of the Mohicans, ‘92), er löng og mikil veisla fyrir augað sem endurvekur, á mjög viðunandi hátt, minningar frá lestri bókarinnar hans James Feni- mores Cooper á æskuárunum. Dani- el Day Lewis fer myndarlega með aðalhlutverkið, hvítan pilt sem ólst upp hjá frumbyggjum Norður-Am- eríku og lendir í því að bjarga breskrum systrum úr höndum óvin- veitts indjánaættbálks. Það er reisn yfir þessari framleiðslu hvar sem á hana er litið. Wes Studi er minnis- stæður sem eiirauður stríðsmaður og Madeleine Stowe er undurfögur. Stöð 2 ►2.35 Menn hafa ekki mikið uppúr krafsinu ef þeir leggja það á sig að vaka til að sjá kvikmyndagerð metsölubókar Johns Grisham, Pelik- an-skjalið (The Pelican Brief, ‘93). Julia Roberts er ótrúverðug sem laganemi sem verður skotmark leigumorðingja er hún rambar á lausn morðgátu. Denzel Washington er ekki heldur í essinu sínu, sama má segja um leikstjóra All The President’s Men, Alan J. PakulaA* Sæbjörn Valdimarsson. LAUGARDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA Stöð 2 ►13.15 Nýliðarnir (Blue Chips, 94), kk, er fyrir körfu- boltafíkla, ekki síst Lakers aðdáend- ur, en sjálfur snillingurinn Shaquille O’Neill fer með aðalhlutverkið ásamt Nick Nolte. Sá síðarnefndi þolir hvorki svindl né að tapa. Best á meðan atburðarásin fer fram útá vellinum og dagljóst að kempan Shaq mun seint ná sama árangri á tjaldinu og undir körfunni. Leik- stjórinn enginn annar en William Friedkin (The Exorcist). Stöð 2 ►15.00 Töfrakristallinn (The Dark Crystal, 83) er brúðumynd gerð af höfundi Prúðuleikaranna, Jim Henson. Hann skapar fjölskrúð- ugan og skemmtilegan hóp ómennskra persóna, sem verða að finna brot úr Töfrakristalinum, ann- ars er voðinn vís og illu öflin taka völdin. Hálfsígilt barnagaman. kk'/i Sjónvarpið ►20.50 Ráðskonan (Cor- inna, Corinna, ‘94). Whoopi Gold- berg leikur húshjálpina Corinnu sem tekur að sér heimili Ray Liotta og ungrar dóttur hans (Tina Majorino). Sú stutta reynir að koma þeim sam- an. Því miður full væmin fyrir minn smekk og Liotta hálf vandræðaleg- ur, byssur klæða hann betur en bros. Tina litla Majorino hirðir leik- listarverðlaunin hér. ★★ Sýn ►21.00 Bjarndýramaðurinn (Jonathan of the Bears, ‘94) er und- arlegt fyrh'brigði; Rússnesk/ítölsk um hálfgerðan villidreng, hvítan, sem elst upp á meðal Dakota indjána á sléttunum miklu í Norður- Ameríku. Engin furða þó allar kvik- myndalegar kirkjubækur þar um þegi. Með Franco Nero og David Hess. Stöð 2 ►21.05 Blóðbragð (From Dusk til Dawn) Tveir af erfðaprins- um Hollywood, Robert Rodriguez (leikstýrir) og Quentin Tarantino (handrit og eitt aðalhlutverkið) lögðu hönd á plóginn við gerð Blóð- bragðs (From Dusk til Dawn, ‘95). Framan af fjallar hún um flótta tveggja óbótamanna (Tarantino og George Clooney) niður til Mexíkó með trúboða (Harvey Keitel) og dóttur hans (Juliette Lewis) í gísl- ingu. Er hópurinn nær suður fyrir landamærin brestur á sannkölluð gjörningaþoka, áhorfandinn veit ekki fyrri til en hann er undir miðri nútímablóðsugumynd. Handritshöf- undinum Tarantino tekst bærilega upp í fyrri hlutanum, en þegar vam- pírurnar taka völdin hættir Blóð- bragð að vera skemmtileg, aðeins blóðidrifin B-mynd. Hún er engu að síður harla sérstæð og firna kraft- mikil þegar Rodriguez stígur á pinn- ann. Forvitnileg, ljót og léttgeggjuð. Þessir prinsar geta gert mikið betur. Stöð 2 ►0.35 Vélahjólagengið (Dirt Gang) hefur ekki verið sýnd hér- lendis áður og að því er virðist óvíða annars staðar. Illræmt bifhjólagengi fer um Bandaríkin með rupli og rán- um. Virðist mega missa sig. Stöð 2 ►2.05 Sjónvarpsmyndin Dauðaþögn (Dead Silence, ‘91) fjall- ar um nýútskrifaðar vinkonur sem verða fyrir því að taka vafasaman puttaling upp af götunni. Með bölv- anlegum afleiðingum, sjálfsagt. Frumsýning. Fær 7,4 hjá IMDb, ég veldi rúmið. Sæbjörn Valdimarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.