Morgunblaðið - 18.03.1998, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
64. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR18. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Utanrfkisráðherra Breta til landnemabyggðar í A-Jerúsalem
Israelar æfir og
saka Cook um svik
Gaza, Jerúsalem. Reuters.
Reuters
UFFE Ellemann-Jensen, leiðtogi Venstre, var umkringdur fréttamönn-
um er hann tilkynnti afsögn sína seinnipartinn í gær.
Ellemann-Jenseii dregur sig í hlé
Ekki að öðru
starfí að hverfa
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, reitti ísraela í gær til
reiði er hann skoðaði landnáms-
svæði gyðinga í Austur-Jerúsalem
á hæð sem heitir Har Homa á
hebresku og Djabal Abu Gneim á
arabísku. Ekkert varð úr að hann
færi þangað í fylgd palestínsks
ráðamanns, eins og upphaflega
hafði verið ráðgert, heldur virti
hann hæðina íyrir sér frá nálægum
sjónarhóli ásamt ísraelskum ráð-
herra. Skoðunarferðin tók um tíu
mínútur.
Israelar sökuðu Cook um að
hafa svikið loforð sem hann hefði
gefíð þeim með því að ræða við
palestínskan embættismann í
skoðunarferðinni. Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Israels,
aflýsti fyrirhuguðum kvöldverði
með Cook og sagði embættismað-
Fundum
Jeltsíns
aflýst út
vikuna
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseta Rússlands,
var ráðlagt í gær að aflýsa öllum
fundum og hvfla sig út vikuna. Vinir
hans og aðstoðarmenn segja hann
engu að síður „iða í skinninu" eftir að
hefja störf og hann sé „kátur og vel
á sig kominn". Jeltsín hefur ekkert
sést opinberlega síðustu daga og er
sýkingu í öndunarvegi kennt um.
Talsmaður Jeltsíns sagði á mánu-
dag, að hann yrði kominn á skrif-
stofu sína í Kreml þá síðar um dag-
inn en af því varð ekki. Hefur þetta
valdið óvissu og vangaveltum um
heflsufar Jeltsíns þótt fæstir búist
við, að hann sé alvarlega sjúkur.
Aður fyrr var farið með sjúkleika
sovétleiðtoganna sem ríkisleyndar-
mál og stjórnvöld hafa átt í basli með
að taka upp nýja siðu hvað það varð-
ar. Blaðafulltrúi forsetans, Sergei
Jastrzhembskí, hét því þó þegar
hann tók við starfinu að segja satt og
rétt frá heilsufari forsetans og við
það hefur hann staðið þar til nú.
Pólitískur sjúkleiki?
Sumir geta sér til, að vandræða-
gangurinn nú stafi af því, að 10. mars
sl. sagði Jeltsín, að hann væri svo
hraustur, að menn gætu sleppt öllum
getgátum um líðan hans. Þremur
dögum síðar var hann lagstur í rúmið.
Nokkrir fréttaskýrendur hafa líka
látið sér detta í hug, að veikindi
Jeltsíns nú séu af pólitískum rótum
runnin. Að hann noti þau sem yfir-
varp til að fá leiðtogafundi Samveldis
sjálfstæðra ríkja frestað. Rússneska
stjórnin hafi ekki talið sig vera undir
hann búinn auk þess sem margt
benti til, að sumir leiðtoganna ætl-
uðu ekki að sækja hann.
Segist ekki hafa
lofað að hunsa
Palestínumenn
ur í forsætisráðuneytinu að ástæð-
an væri samningsrof utanríkisráð-
herrans.
Arafat hrósar Cook
Cook vísaði því á bug að hann
hefði svikið gefin loforð. Sagðist
hann ekki hafa heitið því að eiga
ekki fundi með Palestínumönnum
og kvaðst ekki harma að hafa misst
af kvöldverðinum. Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, styður för Cooks, að sögn
talsmanns hennar, Jamie Rubin,
en hann tók þó fram að ferðaáætl-
RÚSSAR vísuðu í gær tveimur
norskum sendifulltrúum úr landi
sem svar við brottvísun fimm
rússneskra sendiráðsstarfs-
manna frá Noregi í síðustu viku.
Rússunum var vikið úr landi fyr-
ir njósnir og Norðmennirnir
voru sömuleiðis sagðir sekir um
„athæfi sem samræmdist ekki
stöðu þeirra“. Hafa norsk
sljórnvöld mótmælt þessu, Knut
Vollebæk utanríkisráðherra vís-
aði því á bug að Norðmennirnir
un Cooks hefði ekki verið borin
undir Bandaríkjamenn.
Israelar höfðu hótað að útiloka
Evrópusambandið (ESB), sem
Bretar eru nú í forsæti fyrir, frá
þátttöku í friðarumleitunum fyrir
botni Miðjarðarhafs ef Cook færi
til Har Homa. I fyrradag náðist
samkomulag um fyrirkomulag at-
hugunar Cooks á hinu umdeilda
landnámi.
Cook heimsótti einnig heima-
stjómarsvæði Palestínumanna og
Israelsmanna í gær. Yasser Arafat,
forseti heimastjómar Palestínu-
manna, hrósaði áætlun Cooks um
að líta á Djabal Abu Gneim. Það
myndi senda Israelum þau skila-
boð að Evrópumenn hygðust ekki
líða útfærslu landnámsins.
■ Óreyndur/20
hefðu stundað njósnir og sagðist
ekki sætta sig við brottvikning-
una. Hann kvaðst hins vegar
vona að hún yrði til þess að endi
væri bundinn á deilur ríkjanna
vegna njósnamálsins. Sagði ráð-
herrann að vissulega mætti
túlka brottvikningu tveggja
manna sem svo að Rússar hefðu
ekki brugðist mjög hart við en
viðbrögð þeirra eru þó sögð
mun harðari en raunin var á
Sovéttímanum.
„EG ákvað strax í haust að ef hægri-
vængurinn kæmist ekki tfl valda ætl-
aði ég að draga mig í hlé sem for-
maður Venstre.“ Þetta var skýring
Uffe Ellemann-Jensen þegai- hann
tilkynnti síðdegis í gær að hann
Norðmennimir sem vísað er
úr landi em fiskveiðifulltrúi
sendiráðsins í Moskvu og konsúll
Noregs í Múrmansk. Er fullyrt
að brottvikning þess síðarnefnda
muni hafa áhrif á samstarf þjóð-
anna í Barentshafsráðinu. Hins
vegar verður ekki hætt við ferð
Vollebæks til Murmansk í lok
mars, ferð norska orkumálaráð-
herrans til Moskvu eða Rúss-
landsheimsókn norsku konungs-
hjónanna eftir tvo mánuði.
hygðist láta af formannsembættinu í
vor. Hann sagðist eiga um tvo kosti
að velja. Annars vegar að halda
áfram og verða í raun of gamall til að
leiða flokkinn í næstu kosningum,
sem líklega yrðu að fjórum árum
liðnum, en jafnframt væri hann of
ungur til að láta af störfum nú 56 ára
að aldri. Af tvennu illu kysi hann þó
heldur að hætta meðan einhverjum
þætti missir að honum frekar en að
bíða þar tfl fólk gleddist yfir því að
hann hætti.
Aðspurður um kosningabaráttuna
vitnaði hann í Njálu er hann sagði að
Venstre væri dæmdur harðar en
jafnaðarmenn, sem gætu leyft sér að
halda uppi óheiðarlegum áróðri, eins
og þeir hefðu að sínu mati gert nú.
Uffe Ellemann-Jensen margítrek-
aði að hann hefði ekki að neinu öðru
starfi að hverfa. Hann hygðist sitja
áfram sem þingmaður Árósa, þar
sem hann hefur gríðarlegt persónu-
fylgi, auk þess sem hann hlakkaði til
að sinna frekar starfi sínu sem leið-
togi evrópska frjálslynda flokksins. í
því starfi væri að miklu að huga, þar
sem verið væri að efla sambandið við
frjálslynda flokka í Austur-Evrópu
og um leið verið að styrkja lýðræðið
þar.
Venstre mun kjósa nýjan formann
18. aprfl. Búist er við að Anders
Fogh Rasmussen varaformaður
verði kosinn og núverandi formaður
leynir því ekki að hann styður hann.
Kría á
kaffihúsi
Tókýó. The Daily Telegraph.
TÓKÝÓ hefur upp á margt að
bjóða og nú geta þreyttir borg-
arbúar brugðið sér á kaffihús
til að fá sér hænublund. Japan-
ir þykja kunna þá list öðrum
fremur að dotta og nú geta
þeir fullkomnað hana á Jurta-
vetrarbrautar-kaffihúsinu.
Viðskiptavinir eru leiddir
inn í rökkvað, hljóðeinangrað
herbergi, þar sem hæginda-
stólum hefur verið komið fyrir
á milli skilrúma. Boðið er upp
á ýmiss konar blund; „Svanur-
inn“ er hálftími og kostar tæp-
ar 300 ísl. kr., „Suðurkrossinn“
er hálfur annar tími og
„Himnahlið" er tveir tímar og
kostar um 800 kr.
Reuters
PER Tresselt, sendiherra Norðmanna í Moskvu, kemur af fundi í rússneska utanríkisráðuneytinu í gær.
Norðmönnum vísað úr landi
Ósló. Morgunblaðið.