Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Cook tókst að móðga alla ROBIN Cook virðist hafa tekist að móðga alla deiluaðila með Mið-Austur- landaför sinni og angra Bandaríkin, helsta sáttasemjarann á svæðinu. London. Reuters. BRETAR eru nú í forsæti Evrópusambandsins (ESB), og Robin Cook, utanríkis- ráðherra Breta, sagði að markmið- ið með heimsókn sinni til land- náms gyðinga í Austur-Jerúsalem væri að sýna fram á að sambandið óttaðist að útfærsla landnámsins græfí undan friðarumleitunum því hún drægi úr trausti Palestínu- manna. „Ég vil láta í ijósi áhyggjur okk- ar af útfærslu landnámsins. Ég var ákveðinn í að þetta yrði á dag- skránni,“ sagði Cook. „Hefði ég ekki farið þangað hefðu arabar álitið það til marks um að við vær- um sátt við útfærsluna." Friðar- umleitanir Palestínumanna og ísraela fóru út um þúfur fyrir ári er ísraelsk stjómvöld leyfðu bygg- ingarframkvæmdir í landnáminu, sem heitir á hebresku Har Homa. Á arabísku heitir það Djabal Abu Gneim. ísraelar hertóku Austur-Jer- úsalem í sexdagastríðinu 1967 og innlimuðu hana nokkru síðar. Inn- limunin hefur aldrei verið sam- þykkt á alþjóðavettvangi, en ísra- elar álíta Jerúsalem óskipta vera höfuðborg ríkis síns. Palestínu- menn, hins vegar, ætla Austur- Jerúsalem í framtíðinni að verða höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns. Misheppnuð tilraun Fréttaskýrandi Reuters bendir á að sem tilraun til að senda diplómatísk skilaboð hafi för Cooks á vegum ESB til landnáms- ins í A-Jerúsalem mistekist hrapallega. Jafnvel áður en hann hafí komist nærri staðnum hafi honum tekist að reita ísraela til reiði, gera Palestínumenn æfa og angra Bandaríkjamenn, helstu bandamenn Breta. Vandræða- gangurinn muni áreiðanlega grafa undan möguleikum ESB á að taka meiri þátt í friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs, sem hafi þó átt að vera tilgangur farar Cooks. Cook ætlaði sér að skoða Djabal Abu Gneim í íylgd palestínska ráð- herrans Faisal al-Husseini og senda þannig þau skilaboð að ESB liti svo á að Austur-Jerúsalem væri arabískt land, hersetið af ísraelum.'En ekki varð af þessu. í staðinn horfði Cook á Har Homa úr fjarlægð í fylgd með israelska ráðherranum Danny Naveh og sendir þannig þveröfug skilaboð. Heimsóknin sem aldrei varð? Benjamjn Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, ásakaði ESB um að taka málstað Palestínumanna, og sagði að ekki kæmi til greina að Cook færi til Har Homa. Naveh fagnaði sinnaskiptum Cooks með niðrandi hætti og sagði: „Það virð- ist nú sem þessari heimsókn muni ljúka líkt og hún hafi aldrei orðið.“ Evrópskir sérfræðingar í mál- efnum Mið-Austurlanda voru óá- nægðir með að Cook virtist hafa látið undan þrýstingi ísraela. „Evrópumenn hafa með þessu sýnt Netanyahu að hann getur með hávaða og látum fengið þá til að samþykkja viðhorf ísraels- stjómar og samþykkja skilning hennar á skiptingu lands,“ sagði Yezid Sayigh, Mið-Austurlanda- sérfræðingur við rannsóknarstofn- un í alþjóðastjómmálum við Ox- fordháskóla. „Það hlutverk sem [Evrópu- ÞAÐ var úrhellisrigning er Cook skoðaði landnám gyðinga í Aust- ur-Jerúsalem í gær. menn] taka að sér með þessum hætti er í raun og veru ekkert hlutverk vegna þess að þeir hafa í raun og veru sýnt að það er hægt að ráðskast með þá.“ Sayigh sagði að ESB ætti heldur að taka að sér - öndvert við Bandaríkin - að sýna ísraelum og arabaheiminum fram á, að Netanyahu geti ekki komist upp með hvað sem er. Stjómarerindreki ESB velti því fyrir sér hvort breytingin á heim- sókn Cooks myndi ekki óvart senda þau skilaboð að „samnefnar- inn í Mið-Austurlandastefnu Evr- ópu hafi lækkað og nú sé gengist við tilteknum skilningi ísraela á skiptingu lands í Jerúsalem". Stefnan skyldi verða raunhæfari Bretar vildu ekkert hafa með að gera það uppátæki Jacques Chiracs Frakklandsforseta að hefja hávaðarifrildi við ísraelska öryggisverði í Gömlu borginni í Austur-Jerúsalem 1996. Frakkar skipuðu utanríkisráðherra sínum að heimsækja ekki ísrael fremur en láta undan þeirri kröfu Net- anyahus að fara ekki á skrifstofu Husseinis í Austur-Jerúsalem. Breskir embættismenn höfðu hátt um það að á því hálfa ári sem þeir sætu í forsæti ESB myndi stefna þess í Mið-Austurlöndum ekld verða jafn tilgerðarleg heldur einkennast af raunsæi og auknum áhrifum með því að vinna með Bandaríkjamönnum, sem eru helsti milligönguaðilinn í þessum heimshluta. James Rubin, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði hins vegar í fyrradag að Banda- ríkjamenn efuðust um að for Cooks til landnámsins í A-Jerúsal- em myndi verða til þess að draga úr spennu fyrir botni Miðjarðar- hafs. Adams von- góður eftir fund með Clinton Washington. Reuters. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hóf í fyrrakvöld röð funda með öllum deiluaðilum á Norður- Irlandi. I fyrrinótt, að íslenskum tíma, átti Clinton fund með Gerry Adams, leitoga Sinn Fein, og að fundinum loknum kvaðst Adams vongóður um að samkomulag gæti náðst. Clinton, sem sjálfur er af írskum ættum, benti á að fulltrúar allra deiluaðila á N-írlandi væru nú í Bandaríkjunum í tilefni af degi heilags Patreks, sem var haldinn hátíðlegur í gær. Kvaðst forsetinn vilja nýta byrinn til þess að þoka friðarumleitunum áfram. David Trimble, leiðtogi flokks sambandssinna Ulsters (UUP), sagði í gær að þótt segja mætti að samkomulag væri í augsýn hefði það enn ekld náðst, og enn bæri al- varleg ágreiningsefni í milli. Mo Mowlam, N-írlandsmálaráð- herra Bretlands, sagði í gær að drög að samkomulagi lægju fyrir þótt enn væri ósamið um mörg út- færsluatriði. Jim Steinberg, aðstoðaröryggis- ráðgjafi forsetans, sagði að Clinton hygðist gera deiluaðilum og bresk- um og írskum stjórnvöldum grein fyrir því viðhorfi Bandaríkjamanna að tími væri kominn til þess að „líta upp úr skammtímavangaveltum" og huga að „bjartari framtíð". Adams sagði eftir klukkustundar langan fund með Clinton: „Ég held að það sé kostur á að komast að samkomulagi. Ég vona að það fari ekkert úrskeiðis, en fari svo má það ekki slá okkur út af laginu.“ í gær átti Clinton fund með Bertie Ahem, forsætisráðherra Ir- lands og einnig leiðtogum flokka mótmælenda og kaþólikka sem eiga aðild að friðarviðræðum á N- Irlandi. Fyrir helgi sagði Clinton að til greina kæmi að hann héldi til Belfast ef viðræðumar í Banda- ríkjunum skiluðu árangri. Zhu Rongji tekur við stj órnartaumunum ZHU Rongji, nýr forsætisráðherra Kína, hefur fengíð það erfíða verkefni að stjórna róttækustu úrbótunum tíl þessa á kín- verskum ríkisfyrirtækjum og afstýra hættunni á mikilli þjóðfélagsólgu vegna vaxandi atvinnuleysis. Niels Peter Arskog, fréttaritari Morgunblaðsins í Peking, fjall- ar um nýja forsætisráðherrann og helstu úrlausnarefni hans. Zhu Rongji, aðstoðarforsætisráð- herra Kína, var kjörinn forsætisráð- herra landsins með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á kínverska þinginu í gær. 2.890 þingmenn greiddu atkvæði með Zhu, 29 á móti og 31 sat hjá. Hann tekur við emb- ættinu af Li Peng, sem varð að víkja samkvæmt stjómarskránni eftir tíu ára setu. Zhu fæddist í Hunan-héraði 1. október 1928 og er af fátæku fólki kominn. Faðir hans lést af völdum berkla skömmu áður en Zhu fædd- ist og móðir hans dó þrítug. Zhu var þá tíu ára og ólst síðan upp hjá fá- tækum frænda sínum. Fljótlega kom í ljós að Zhu var vel gefinn og frændi hans sá til þess að hann fengi tækifæri til að stunda nám í virtasta háskóla Kína, Qing- hua í Peking. Þar lauk hann námi í rafverkfræði árið 1951. Féllídnáð Zhu gekk þar einnig í ungliða- hreyfingu kommúnistaflokksins ár- ið 1947 og varð félagi í flokknum tveimur áram síðar. Hann var þó aldrei viðurkenndur sem „sannur kommúnisti" og var rekinn úr flokknum í lok sjötta áratugarins, sakaður um að aðhyllast endur- skoðunarstefnu. I menningarbylt- ingunni á árunum 1966-76 var hon- um gert að starfa úti á landsbyggð- inni, m.a. við að fóðra svín og hreinsa salemi. Zhu fékk þó uppreisn æru 1978, gekk aftur í kommúnistaflokkinn og fékk starf í ráðuneyti í Peking. Ári síðar fékk hann sæti í efnahags- ráði ríkisins og var varaformaður þess á áranum 1985-87. Deng Xiaoping, þáverandi leið- togi Kína, kynntist Zhu á þessum tíma og hafði mikla trú á honum vegna þekkingar hans á hagfræði, sem fáir leiðtoga landsins skildu. Deng gerði Zhu að borgarstjóra Shanghai í stað Jiangs Zemins, sem hélt embætti flokksleiðtoga í borg- inni og varð seinna forseti Kína. Zhu og Jiang unnu saman að því að gera Shanghai að viðskiptamiðstöð Kína að nýju eftir 40 ára hnignun- arskeið borgarinnar. Það tókst og er Zhu talinn hafa átt mestan heiðurinn af því. Þegar Jiang Zemin var sendur til Peking og gerður að leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins eftir blóðsút- hellingamar á Torgi hins himneska friðar 1989 var hann sannfærður Reuters JIANG Zemin, forseti Kína (t.v.), óskar Zhu Rongji til ham- ingju eftir að hann var kjörinn forsætisráðherra landsins á þinginu í gær. um að Zhu væri ómissandi ef rétta ætti efnahag landsins við. Deng Xiaoping var sömu skoðun- ar og gerði Zhu að aðstoðarforsæt- isráðherra árið 1991. Hann fór í fyrstu með utanríkisviðskipti í stjóminni en tveimur áram síðar var honum falið að hafa umsjón með efnahagsumbótunum. Zhu tókst að hafa hemil á verð- bólgunni, sem var 21% á þessum tíma, og tryggja stöðugan hagvöxt, sem hefur verið um 15% á ári. Tónvís enskumaður Eiginkona Zhus, Lao An, er einnig verkfræðingur og þau eiga dóttur, sem hefur flutt búferlum til Kanada, og son, sem hefur stundað háskólanám í Bandaríkjunum. Nýi forsætisráðherrann talar ensku reiprennandi og á auðvelt með að ræða við erlenda kaupsýslu- og stjómmálamenn. Þótt Zhu sjáist sjaldan brosa á opinberam vettvangi þyldr hann hafa kímnigáfu og hann hefur mikið yndi af tónlist, bókmenntum og Peking-óperunni. Hann hefur sjálf- ur stundað tónsmíðar og færist sjaldan undan því að syngja þekkt- ar aríur þegar leitað er eftir því. Milljónum manna sagt upp Búist er við að nýi forsætisráð- herrann ráði herskara ungra tæknikrata og hagfræðinga á skrif- stofur stjómarinnar. Hann fær að- eins fimm ár til að takast á við það gríðarstóra verkefni að gera úrbætur á 100.000 ríkisfyrirtækjum landsins, sem era mörg rekin með miklu tapi. Stefiit er að því að sameina fyrir- tæki í um þúsund stórar samsteypur, líkt og í Suður-Kóreu, en mörg önnur fyrirtæki verða seld eða lögð niður. 7,9 milljónir Kínverja era nú þegar án atvinnu og gert er ráð fyrir að 3,5 milljónum iðnverkamanna verði sagt upp á árinu, sem skapar hættu á mik- illi ólgu í þjóðfélaginu. Eitt af erfiðustu úrlausnarefhum nýja forsætisráðherrans verður því að stemma stigu við atvinnuleysi og bæta kjör fátækra Kínveija. Auk þess þarf hann að tryggja frekari fjárfestingar útlendinga í atvinnulíf- inu, afstýra því að fjármálakreppan í nágrannaríkjunum skaði eftiahag Kína, leggja grunninn að sameiningu Tævans og Kína - og stýra 1,23 millj- örðum Kínveija inn í nýtt árþúsund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.