Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Garðar Vignir FJÖLMENNI var á fundi sjómanna í Grindavík i gærkvöldi þar sem miðlunartillaga ríkissáttasemjara var til umræðu. Fundahöld og atkvæða- greiðslur hjá deiluaðilum ATKVÆÐAGREIÐSLUR á vegum deiluaðila í sjómannadeilunni um miðlunartillögurnar fjór- ar, sem ríkissáttasemjari lagði fram í fyrradag til lausnar sjómannaverkfallinu, standa nú yfir og á þeim að vera lokið fyrir klukkan 22 í kvöld. Fundahöld fóru fram á vegum deiluaðila vítt og breitt um landið í gær og verður framhald á í dag. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasam- bandsins, var á fundum á Austfjörðum og Suð- urnesjum í gær. I dag halda sjómenn m.a. fund í Reykjavík, á Akureyri og víðar. Fundurinn í Reykjavík hefst klukkan 14 í Laugarásbíói. Sævar sagði í samtali við Morgunblaðið, að miðlunartillagan hefði fengið misgóðar undir- tektir sjómanna en sjálfur hefur hann lýst því yfir að hann telji skárri kost að samþykkja hana en fella, einkum vegna ákvæða í frum- vörpum sjávarútvegsráðerra. Samninganefnd ákveður framhald eftir atkvæðagreiðslu Sævar vildi í gær engu spá um hvert framhald mála verður felli t.d. útgerðarmenn miðlunartil- Morgunblaðið/Þorkell ATKVÆÐAGREIÐSLA hófst hjá sjómönn- um í Sjómannafélagi Reykjavíkur í gær. lögumar. „Það verður skoðað í samninganefnd- inni þegar úrslit liggja fyrir,“ sagði Sævar. Hann sagði að staðan gæti vissulega orðið erfið ef útvegsmenn fella. M.a. gæti þá komið upp sú staða að nauðsynlegt væri að sjómenn frestuðu verkfalli. Hann áréttaði að slíkar ákvarðanir væru á valdi samninganefndar og yrðu ekki teknar fyrir fyrr en eftir að úrslit liggja fyrir. Einn bátur, eitt atkvæði Útvegsmannafélögin víða um land annast framkvæmd kosninganna en atkvæðarétti út- vegsmanna er þannig háttað að hverju skipi fylgir eitt atkvæði. Því hefur útgerð frystitog- ara jafnmikið vægi og útgerð 20 tonna báts. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir að þennan hátt hafi útvegsmenn ávallt haft á. „Við tejjum jafnmikla hagsmuni í húfi fyrir þann sem á netabát og þann sem á stórt skip hvemig kjarasamningar em í gildi,“ segir Kristján. Talning atkvæða beggja fylkinga fer svo fram á morgun, fimmtudag, og hefst klukkan 18 í húsakynnum ríkissáttasemjara. Handritin á stafrænt form STOFNUN Áma Magnússonar vinnur nú að því, í samvinnu við erlendar stoftianir og háskóla, að koma myndum af handritum á stafrænt form þannig að þau geti orðið aðgengileg á Netinu. Þetta kemur fram á heimasíðu stofnunarinnar. Stofnunin vinnur að því í samvinnu við Ámastofnun í Kaupmannahöfn, Nordisk institutt í Björgvin og Institutionen for svenska sproket í Gautaborg að koma upp samræmdri aðferð til að koma stafréttum textum vest- norrænna handrita og myndum af þeim á stafrænt form þannig að margbreytileg stafsetning handritanna komist þar til skila. Einnig tekur Stofnunin þátt í Söguneti, verkefni Landsbóka- safns íslands, Háskólabóka- safns og Comell háskóla í íþöku í Bandaríkjunum, um stafræna myndatöku handrita íslendingasagna og annarra fombókmennta. Þá tekur hún þátt í sam- vinnuverkefni, með Ámastofn- un í Kaupmannahöfn, um að skrá og mynda handrit stofnan- anna á stafrænu formi. Þetta verkefni er stutt á veg komið en rafræn handritaskráning er hafín í samvinnu við stofnun í Oxford og hefur hún hlotið styrk Rafaels-átaks Evrópu- bandalagsins. Heimasíðu Stofnunar Áma Magnússonar er að finna á slóð- inni: http://www.hi.is/HI/Ranns /SAM Aðeins 35 skip á sjó í gærkvöld MILLI 50 og 60 skip og bátar voru á sjó í gær þegar mest var en um tíu- leytið í gærkvöld hafði þeim fækkað í 35. Voru það örfáir togarar og loðnu- skip, fraktskip og nokkrir smábátar. Samkvaimt upplýsingum frá Til- kynningaskyldunni rem allmargir smábátar í gær, m.a. frá Vestfjarða- höfnum og Faxaflóa. Fjórir togarar voru á veiðum en togarar, sem tóku þátt í togararalli Hafrannsókna- stofnunar, höfðu undanþágu. Fimm eða sex loðnuskip sigldu í gær heim eftir löndun fjarri heimahöfn og síð- an voru fraktskip og olíuskip á ferð- inni. Mikið eig’natjón í sex bfla árekstri MIKIÐ eignatjón varð þegar sex bílar lentu í árekstri á Reykjanes- braut um klukkan hálftíu í gær- morgun. Tildrög óhappsins voru með þeim hætti að bifreið á leið til Reykjavíkur ók fram úr annarri á sömu leið, skall á bíl sem kom á móti og kastaðist á bifreiðina sem ökumaðurinn hafði tekið fram úr. Bifreiðin sem var á leið til Kefla- vikur snerist á veginum við árekst- urinn og lá þvert á akreinina, en hinar bifreiðimar tvær lokuðu akreininni til Reykjavíkur. Aðstæður slæmar á slysstað Nokkrar bifreiðar komu að árekstrinum og gekk erfiðlega að stöðva þær vegna hálku, en það tókst þó að stöðva þær nema rútu sem lenti á kyrrstæðum bíl sem kastaðist á aðra bifreið, sem einnig var kyrrstæð í vegarkantinum, með þeim afleiðingum að hún hafn- aði utan vegar. Rútan endaði síðan fór sína á bifreið úr fyrri hluta árekstursins, þeirri sem verið hafði á leið til Keflavíkur. Hraði ökutækja er ekki talinn hafa verið mikill samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni í Kefla- vík, en aðstæður hafi hins vegar verið slæmar þegar áreksturinn varð, mikil hálka, hvasst og skyggni slæmt. Þrjú ökutæki voru fjarlægð með kranabifreið og eru talin gjörónýt, að sögn lögreglu, en skemmdir á öðrum ökutækjum voru minni. Meiðsli á mönnum voru smá- vægileg og þurfti ekki að flytja neinn á slysadeild. Reykjanesbraut lokaðist í um hálfan annan tíma vegna árekstursins en ekki urðu teljandi tafir á umferð, þar sem henni var beint um Vatnsleysu- strandarveg. Rannsóknir á gosvirkni Geysis Gos á klukkustundar fresti yrði vatnsborðið lækkað EF VATNSBORÐ í Geysi yrði lækkað um hálfan metra gæti hann gosið einu sinni til tvisvar á sól- arhring og yrði það lækkað um tvo metra gæti hann gosið á hálftíma til klukku- tíma fresti, átta til tíu metra í loft upp. Þetta er niður- staða Helga Torfa- sonar, jarðfræðings á Orkustofnun, sem hefur að undanförnu unnið að rannsóknum á Geysi fyrir Náttúruvernd ríkisins, fyrir styrk frá Landsbanka fs- lands. Úrvinnsla rannsóknanna er á frumstigi en fjár- magn skortir til frekari rannsókna á svæðinu. Köldu vatni var dælt í gegnum hver- inn og vatnsborðið lækkað. „Með þessu vildum við athuga hvort hægt væri að lækka vatnsborð Geysis og fá hann til að gjósa án þess að bora eða setja í hann sápu og einnig að sjá hvort hann hefði áhrif á aðra hveri,“ segir Helgi og bætir við að Morgunblaðið/Snorri Snorrason þessar aðgerðir hafi ekki haft sjáanleg áhrif á Strokk. Ámi Bragason, forsljóri Náttúruveradar ríkisins, segir mjög brýnt að frekari rann- sóknir verði gerðar á Geysis- svæðinu. Mikill áhugi „Það er mikill áhugi meðal heimamanna á því að byggja meira og nýta jarðhitann á svæðinu og við verðum að geta svarað þeim hvort það sé óhætt,“ segir Árni. Til þess að geta tekið ákvarðanir um nýt- ingu og hugsanleg inngrip sé þekking á hegðun hveranna al- gert skilyrði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.