Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
__________________LISTIR
Bókasöfn á íslandi
Guðrún Sigrún Klara
Pálsdtíttir Hannesdtíttir
BÆKUR
Fræðirit
SÁL ALDANNA
íslensk bdkasöfn í fortíð og nútíð.
Ritstj.: Guðrún Pálsdtíttir og
Sigrún Klara Hannesdtíttir.
Félagsvísindastofnun Hásktíla
íslands, Hásktílaútgáfan, 1997,
448 bls.
BÓK þessi er gefin út í tilefni af
því að árið 1996 voru fjörutíu ár lið-
in frá því að dr. Björn Sigfússon
háskólabókavörður hóf að kenna
bókasafnsfræði í Háskóla Islands.
Eitthvað hefur því útkoma bókar-
innar dregist meira en ætlað var.
Efni þessarar þykku bókar er
raðað í sex flokka eftir efni. í
fyrsta flokki greinir frá sögu bóka-
útgáfu, lestrarfélögum og handrita-
söfnum. í öðrum flokki eru ritgerð-
ir um rannsóknar- og sérfræði-
bókasöfn. Þá koma ritgerðir um
skjalasöfn og skjalastjóm. Næst
eru það almennings- og skólasöfn,
síðan er ein ritgerð um safnaþjón-
ustu við sérhópa og loks er flokkur
sem nefnist Menntun og þjónustu-
aðilar.
Alls eru í bókinni 33 ritgerðir
auk inngangs. Höfundar eru 34. Að
nokkrum greinum eru fleiri en einn
höfundur og í öðrum tilvikum á
sami höfundur tvær
greinar.
Rit þetta er hin
mesta náma fróðleiks
um flest það er lýtur
að bókasöfnum, hand-
ritasöfnum, menntun,
stjómun og þjónustu.
Nær það bæði yfir for-
tíð og nútíð, vöxt og
viðgang þessarar
margþættu starfsemi
og einkum og sér í lagi
þær geysimiklu breyt-
ingar sem orðið hafa á
síðustu árum. Er tæp-
lega að bókasafnsheit-
ið eigi alls kostar við
lengur. Fremur er um
að ræða upplýsingamiðstöðvar.
Yfirleitt em greinamar vel ritaðar,
sumar ágætlega. Fáeinar era þó
fremur þumar og rislitlar.
Varla er við því að búast að allra
safna á íslandi sé getið. Það hefði
orðið stór bók (gaman hefði þó ver-
ið að sjá lista yfir söfn, t.a.m. með
stofnári, bókafjölda og fáeinum
öðram upplýsingum). En eðlilegt
hefði mér þótt að greint hefði verið
frá því í inngangi hvemig söfn vora
valin til umfjöllunar. Hvað réð
t.a.m. vali þriggja almennings-
safna? Af hverju urðu hin stór-
merku söfn á Húsavík og Sauðár-
króki útundan? Hvað með héraðs-
skjalasöfnin? Og var ekki ástæða
til að nefna nema eitt safn undir
titlinum Safnaþjónusta við sér-
hópa? A eftir hverri ritgerð er skrá
yfir heimildir og er það eðlilegur
háttur. En vel hefði ég kunnað því
að sjá nafna- og atriðisorðaskrá í
akademísku riti.
Myndir af höfundum fylgja
hverri grein auk allmargra ann-
arra mynda. þá er hér nokkuð af
línuritum, töflum og innfelldum
textum. Prófarkir hafa verið vel
lesnar að því er ég best fæ séð og
frágangur allur er prýðilegur.
Sigurjón Björnsson
Barnagælur og
barkabrjótar
TðNLIST
Listasafn Kðpavogs
SÖNGTÓNLEIKAR
Lög eftir Jtín Asgeirsson, Jtín Þtírar-
insson, Fjölni Stefánsson, Emii
Thoroddsen, Atla Heimi Sveinsson,
Schumann, Grieg, Sjöberg, Sibelius
og Adam-Schmidt. Sigrún Hjálmtýs-
dtíttir stípran, Anna Guðný Guð-
mundsdtíttir pfantí; Martial Nardeau
flauta. Listasafni Ktípavogs, mánu-
daginn 16. marz kl. 20.30.
BLÍÐAN sem brosti við tón-
leikagestum Gerðarsafns á mánu-
daginn var - eða hitt þó heldur -
náði ekki að setja svip sinn á
verkavalið, þar sem sveif ljúfur
vorhugur og bamsleg sumarhlýja
yfir vötnum. Þau Diddú (hverrar
borgaralegt nafn myndi njóta sín
með afbrigðum vel á óperaplakati í
titilhlutverki Die Walkiire) og
Anna Guðný fluttu fyrst tvö yndis-
leg lög eftir Jón Asgeirsson við
texta þjóðskáldsins heitna að
Gljúfrasteini, Hjá lygnri móðu og
Vorvísu, og lögðu þegar í stað sal-
inn undir sig með afburðasam-
stilltri túlkun, þar sem ekki bara
textinn heldur líka sjálft inntak
kveðskaparins skilaði sér lengst
inn í hjartarætur. Sama gilti um
perlu Jóns Þórarinssonar, Islenskt
vögguljóð á hörpu (einnig við Ijóð
HKL) og um Lítið bam með lokk-
inn bjarta eftir Fjölni Stefánsson,
og söngur Sigrúnar í Litfríð og
ljóshærð Emils Thoroddsens, þar
sem hún hélt aftur af sér á hárrétt-
um stöðum, bar ásamt fínstilltum
undirleiknum vott um, að innlifun-
in ein dugir ekki listafólki á þessu
plani; henni er komið til skila með
þeim hnitmiðaða hætti sem bezt
dugir.
Eftir spriklandi fjöraga túlkun á
míníatúrabálki Atla Heimis Sveins-
sonar, Ljóð fyrir böm (Matthías
Johannessen), sem hljómaði líkt og
verið hefði sérsaminn fyrir þær
stöllur, var óneitanlega hætt við, að
settlegra tónmál Schumanns í
Frauenliebe und Leben kæmi út
sem hálfgerður andklímax, enda
var sem hið fjarlægara umhverfi
sönglaganna átta kæmi manni ekki
eins mikið við og íslenzku lögin.
Spuming er hvort ekki hefði verið
betra að byrja á Schumann, því í
samanburði við frábæran undan-
genginn hluta dagsltrár var nú sem
dofnaði aðeins yfir flutningnum, þó
að margt væri ágætlega sungið og
leikið, t.d. Ich kann’s nicht fassen,
nicht glauben, eða síðasta lagið,
Nun hast du mir den ersten Sch-
merz getan, þar sem eftirspilið var
leikið af mýkt sem maður hélt til
skamms tíma að Jónas Ingimund-
arson hefði einkaleyfi á. Til að
jafna töfra íslenzku laganna hefði
trúlega þurft að draga betur fram
texta von Chamisos en hér tókst,
en til þess þarf m.a. snarpari
þýzkuframburð en gerist og geng-
ur meðal íslenzkra úrvalssöngvara.
Norræn frændþjóðalýrík var í
fyrirrúmi eftir hlé, og náðu þær
Sigrún sér þar aftur á strik og vel
það. Söngur Sólveigar var, eins og
nánast allt sem Sigrún syngur,
klukkuhreinn og heillandi, og varð
manni hugsað til misjafnrar inn-
tónunar hjá jafnvel frægum er-
lendum stórstjömum og til þess
hvað þetta „litla“ atriði er í raun fá-
gætt og auðvelt að vanmeta. Stend-
ur þar Sigrún Hjálmtýsdóttir feti
framar flestum íslenzkum kolleg-
um sínum. Hin Grieglögin, En
Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri
Ráðinn til fíi-
harmóníusveitar-
innar í Rígu
GUÐMUNDUR Emilsson hefur
verið ráðinn aðalhljómsveitarstjóri
og tónlistarstjóri Lettnesku fílharm-
óníusveitarinnar í Rígu. Hefur hann
þegar tekið við starfinu en fyrstu
tónleikamir sem hann stjórnar verða
haldnir í Wagner-salnum í Rígu 12.
júní næstkomandi.
Hljómsveitin hét upphaflega Lat-
vian Philharmonic Chamber
Orchestra og var sett á laggimar fyr-
ir rúmum þremur áratugum. Var hún
lengst af ríkisrekin, eða þar til lett-
neska ríkið dró sig að verulegu leyti
út úr rekstrinum síðastliðið haust í
kjölfar niðurskurðar á fjárlögum.
Segir Guðmundur hljómsveitina þá
hafa staðið á krossgötum og tveir
kostir hafi komið til greina - að rifa
seglin eða halda ótrauð áfram. Varð
síðamefndi kosturinn fyrir valinu.
Komu hljóðfæraleikararnir þá á
fót sjálfseignarstofnun, sem annast
nú reksturinn, en eitt af fyrstu verk-
um hennar var að fá Guðmund til liðs
við sig. „Mér var fyrst boðið utan í
október síðastliðnum til að stjóma
hljómsveitinni á alþjóðlegri hátíð
samtímatónlistar og í kjölfarið bauð
Dröm og Med en vandlilje tókust
ekki síður vel, og bronsklingjandi
sópranröddin naut sín til fullnustu í
Tonema Sjöbergs og Svarta rosor
Sibeliusar.
Það sem .Tólkið vildi“ (fyrir utan
sem hæsta tóna og sem mestan
styrk, sem manni finnst stundum
vera pínlega á kostnað fíngerðari
meðala) kom svo með barkabrjót
Adam-Schmidts, söngtilbrigði við
ABCD eða ,Ah, vous dirai-je,
Maman“, þar sem Sigrún tók á öll-
um kverkakúnstum sínum með al-
kunnum bravúr, og sem auk píanó-
leiks Önnu Guðnýjar skartaði lipr-
um fylgiraddarblæstri Martials
Nardeau á þverflautu. Þó að
glæsitilbrigði þessi séu ekki tónlist
af dýpri sortinni og jafnist engan
veginn á við meistaratilbrigði Moz-
arts fyrir píanó um sama lag, var
hægt að hafa gaman af þeim og
undrast hvað hægt er að bjóða
mannsröddinni.
Hafi áður leikið minnstur vafi,
þá varð lýðum ljóst á þessum frá-
bæra tónleikum, að Anna Guðný er
komin í hóp slyngustu undirleikara
landsins, og Sigrún Hjálmtýsdóttir
sló enn einu sinni föstu með
sjötommunöglum, að engin hérlend
söngkona stendur henni á sporði,
hvort heldur á óperasviði eða á
Ijóðasöngpalli.
Ríkarður Ö. Pálsson
hljómsveitin mér
að taka við starfi
aðalhljómsveitar-
stjóra og tónlist-
arstjóra. Þáði ég
það ágæta boð á
30 ára afmælishá-
tíð hljómsveitar-
innar í desem-
ber.“
Að sögn Guð-
mundar hefur
hljómsveitin á að
skipa mjög fáguðum og velmenntuð-
um tónlistarmönnum. „Þetta er nyög
góð hljómsveit sem lotið hefur stjóm
margra frábærra stjómenda og gert
ótal hljóðritanir fyrir hin ýmsu fyrir-
tæki.“
Glaður og hrærður
Samningur Guðmundar er til
þriggja ára og segir hann alla starf-
semi hljómsveitarinnar heyra beint
undir sig, svo sem verkefnaval, val á
gestastjómendum, einleikurum og
fleira. „Ég get í raun átt lokaorðið í
öllum málum ef ég kæri mig um
það.“
En hvemig leggst verkefnið í
hann? „Þetta er einstakt tækifæri.
Það er í einu orði sagt stórkostlegt
að heil hljómsveit skuli skyndilega
fljúga upp í fangið á manni, ekki síst
þegar maður veit að það eru margir
um hituna. Ég er því bæði glaður og
hrærður.“
Guðmundur hyggst ekki flytja til
Rígu en gerir ráð fyrir að dveljast
þar í allt að fimmtán vikur á ári, auk
þess sem hann eigi örugglega eftir að
fara með hljómsveitinni í einhverjar
tónleikaferðir. „Það standa fyrir dyr-
um þrjár tónleikaferðir til Evrópu í
júní, meðal annars til Frakklands og
Ítalíu, og hljómsveitin á án efa eftir
að verða mikið á faraldsfæti á næst-
unni. Á íslandi mun ég hins vegar
búa áfram - hér er fjölskylda mín,
kona og böm, heimili og fjöll."
Guðmundur er reyndar vanur því
að vera með annan fótinn erlendis.
„Mér var beinlínis gert að segja mig
úr „eldhafi íslensks tónlistarlífs" þau
ár sem ég var tónlistarstjóri Ríkisút-
varpsins, 1989-97. Ég fór þá
ósjálfrátt að leita að tækifæram í út-
löndum til að stjóma og var svo
heppinn að finna fljótt frábæran um-
boðsmann sem sá til þess að orlofs-
dagar mínir frá útvarpinu ár hvert
fóru í tónleikaferðir. Þannig hef ég
stjómað hljómsveitum um víða ver-
öld síðastliðin átta ár og er til að
mynda nýkominn úr sex vikna ferð
til Bandaríkjanna. Þetta er ástæðan
fyrir því að ég stend í þessum spor-
um í dag.“
KRAFAN ER EINFOLD *
ÞAU VERÐA AÐ VIRKA
f Kr. j5.900,-
UMBOÐSMENN
ykjavfk Ellingsen^ Verbúöin, Hafnarfiröi Vesturland: Málningarbjónustan, Akranesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrimsson, Grundarfiröi. Asubúö, Búöardal. VestflrAlr: Geirseyjarbúöin
Isafiröi. Noröurland: Kf. Húnvetnini .........................
Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, Isafiröi. Noröurlam
IÞingeyinga, Húsavlk. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Verslunin Vlk, Neskaupstal
Vestmannaeyjum, Beykjanes: Stapafell, Keflavlk. Rafborg, Grindavlk.
a, Blönduósi. Skagfiröingabúö Byggingav. Sauöárkróki. KEA, Akureyri. KEA, Dalvlk. KEA, Ólafsfiröi. KEA, Siglufiröi. Kf.
Kf. Vopnfiröinga. KASK, Djúpavogi. KASK, Hðfn. SuAurland: Árvakinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Klakkur, Vlk. Brimnes,