Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 35
I I MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 35 € MINNINGAR 1 1 i I I I j I í \ i I J I I J 3 I ! EINAR ALBERTSSON + Einar Magnús Albertsson fædd- ist á Búðarnesi í Súðavík 12. júlí 1923. Hann lést á Sjúkra- húsi SigluQarðar 9. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Siglufjarðar- kirkju 17. mars. Fréttin um fráfall Einars M. Albertsson- ar, fyrrv. póstfulltrúa á Siglufirði, kom flest- um á óvart. Hann hafði alla ævi ástundað hófsemi og holla lifnaðarhætti og virst heilsu- hraustur. Hann hafði að vísu kennt heilsubrests síðustu mánuði, en samt bjuggust fáir við að úrslitin réðust svo fljótt sem raun varð á. Á kreppuárunum gafst fáum unglingum úr alþýðustétt tækifæri til langskólanáms og mikil heppni þótti að komast í iðnnám. Einar lærði skósmíði, vann nokkur ár í greininni, gerðist síðan starfsmað- ur á pósthúsinu á Siglufirði í fáein ár, þá starfsmaður Sósíalista- flokksins og Alþýðubandalagsins í mörg ár, réðst svo aftur til póstsins og vann þar til starfslokaaldurs. Meðal þeirra fýrstu sem ég kynntist á Siglufirði þegar ég sett- ist þar að 1944 voru bræðumir Ás- grímur og Einar Albertssynir, sem báðir voru miklir áhugamenn um verkalýðsmál og stjórnmál á vinstri kantinum. Ásgrímur fluttist burtu nokkrum árum síðar. Einar bjó áfram á Siglufirði og vann þar að viðgangi áhugamála sinna í hálfa öld. Þar ber ef til vill hæst rekstur hans á skrif- stofu Sósíalistafélags- ins og störf hans fyrir blaðið Mjölni. Þetta voru þreytandi störf, sífelld barátta fyrir að halda fjárhagnum í horfinu svo hægt væri að halda áfram. Þegar ekki náðust saman peningar til að borga honum skilvíslega lága kaupið sem hann lét sér nægja hjá flokknum útveg- aði hann sér aukastörf til að halda heimili sínu á floti. I því sambandi kemur líka til álita hlutur eigin- konu hans, Þórunnar Guðmunds- dóttur, einstæður dugnaður henn- ar og myndarskapur. Verður sjálf- sagt aldrei metið eins og sann- gjamt væri það umburðarlyndi sem hún sýndi gagnvart þeim óþægindum sem fjárskortur og vanskil á kaupgreiðslum til eigin- manns hennar hljóta að hafa valdið heimili þeirra, svo ekki sé minnst á öll þau störf sem hún vann líka fyr- ir sósíalistahreyfinguna og verka- lýðssamtökin. Einar Albertsson var greindur maður, ágætlega máli farinn og vel ritfær, og vann öll sín verk af und- anbragðalausum heiðarleika. Hann átti talsvert safn góðra bóka, hafði mætur á tónlist og lék á hfjóðfæri í lúðrasveit um árabil. Hann var fé- lagslyndur, starfaði í mörgum fé- lögum sem honum þóttu horfa til mannfélagsbóta, og gegndi mörg- um trúnaðarstörfum, síðustu árin mun hann hafa verið ein helsta driffjöðrin í Félagi eldri borgara á Siglufirði. Hann skorti þó eitt, sem stund- um ber sæmilega gefna og starfs- hæfa menn drjúgt: metnað til að afla sjálfum sér frama, græða fé eða halda sér til mannvirðinga. Fyrir honum voru allir jafnir, hvaða stöðu sem þeir gegndu, og öll störf jöfn að því leyti að hægt var að vinna þau bæði vel og illa, en það sem máli skipti væri að leysa verk sín vel af hendi. í það varði hann metnaði sínum, ef það tækist væri vitneskjan um það besta umbunin. Ég hef ekki unnið lengur eða nánar með neinum en Einari Al- bertssyni, og enginn hefur reynst mér betri samstarfsmaður, enda var maðurinn fágætlega réttsýnn, orðheldinn og fómfús. Flestir hafa bresti, sem gerir samstarf við þá misjafnlega skemmtilegt. En ég fann aldrei neinn slíkan brest hjá Einari. Enda bar aldrei skugga á margra áratuga samstarf okkar, amk. ekki fyrir hans atgerðir. Þeim fækkar nú óðum, gömlu fé- lögunum, sem tóku út þroska sinn í umbrotum kreppunnar milli heims- styrjaldanna. I hvert sinn sem ein- hver þeirra kveður er eins og heimur okkar sem enn stöndum uppi skreppi saman um spönn. Þannig hygg ég að flestum vinum og félögum Einars Albertssonar sé innanbrjósts nú, þegar hann kveð- ur félagssystkini sín að loknu far- sælu ævistarfi. Við Fríða vottum Dúddu, Albert, Siggu Dísu og öðru vandafólki Ein- ars innilega samúð, með þakklæti fyrir vináttuna, samstarfið og sálu- félagið. Benedikt Sigurðsson. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. GUÐMUNDA VIGFÚSDÓTTIR + Guðmunda Vig- fúsdóttir fæddist í Tungu f Nauteyrar- hreppi 1. júlí 1909. Hún andaðist á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 8. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskapellu 17. mars. Hmlangaþrauterliðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjórt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Þessar línur koma upp í hugann er við minnumst Guðmundu ömmu. Því nú era þrautir hennar að baki og við vitum að henni líður vel. Stundum hef- ur verið erfitt að heim- sækja hana því að hún vildi segja manni svo margt en gat það ekki. En oft sóttum við vel að henni, og sat hún þá og spjallaði við okkur um Mfið í sveitinni hér áður fyrr. í síðustu heimsókn okkar áður en við fórum vestur í jólafrí, var hún mjög kát og tók vel á móti okkur. En eftir ára- mótin fór að draga af henni og sáum við því hvert stefndi. Elsku amma, við vitum að þér líð- ur vel núna, og þið Hemmi afi erað komin saman á ný. Hvíl í friði. Haukur og Dagný. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, EYJÓLFS SIGURÐSSONAR, Skipasundi 75, Reykjavfk. Inga Magnúsdóttir og fjölskylda. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG BERGSTEINSDÓTTIR, Hraunkambi 6, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalanum Reykjavík, laugar- daginn 14. mars. Lárus Kr. Lárusson, Stefán Lárusson, Sigrfður Lárusdóttir, Guðný Lárusdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN GUÐMUNDSSON múrari, frá Raufarhöfn, Hörgsholti 23b, Hafnarfirði, lést á heimili dóttur sinnar, aðfaranótt þriðju- dagsins 17. mars. Útförin auglýst síðar. Sigurbjörg Björnsdóttir, Sofffa Björnsdóttir, Hreiðar Bjömsson, Guðmundur Björnsson, Ingi Bjömsson, Guðjón Snæbjömsson, Bozena Wolowitch, Arnhildur Arnbjörnsdóttir, Freydís Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar og tengdafaðir, GUNNLAUGUR JÓNSSON veggfóðrarameistari, áður Snekkjuvogi 23, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt mánudagsins 16. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. mars kl. 10.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Anna S. Gunnlaugsdóttir, Rúnar Sveinbjörnsson, Þorleifur Gunnlaugsson, Hjálmdfs Hafsteinsdóttir, Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir, Sigurður E. Rósarsson, Sigurborg Gunnlaugsdóttir, Baldvin Einarsson, Kristján Gunnlaugsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SKARPHÉÐINN HARALDSSON, Rauðalæk 11, Reykjavfk, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurlína Ingimundardóttir, Sigrún Skarphéðinsdóttir, Hilmar Skarphéðinsson, Helga Ólafsdóttir, Ann Sigurlfn Lönnblad Ingi Valsson, Skarphéðinn Sæmundsson. + Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, HARALDUR B. BJARNASON múrarameistari, Vesturgötu 7, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 11. mars, verður jarðsunginn frá Frt- kirkjunni í Reykjavík föstudaginn 20. mars kl. 13.30. Sigrfður Bjarnadóttir, Erlendur Arens, Elfn Bjarnadóttir, Eyjólfur Thoroddsen, Thelma Grfmsdóttir, Bjami Dagbjartsson, Hjálmtýr Dagbjartsson, Jón Dagbjartsson, Hróbjartur Hróbjartsson, Skúli Hróbjartsson, Ingibjörg Jóhanna Erlendsdóttir, Bjami Thoroddsen, Ólafur Öm Thoroddsen, Jóhann Thoroddsen, Ólfna Elfn Thoroddsen og makar þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.