Morgunblaðið - 18.03.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
YFIRLITSMYND yfír íþróttasalinn.
Nýtt
íþrótta-
hús tekið
í notkun
Skagastrðnd - Fjölmenni var við
vígslu nýs íþróttahúss á Skaga-
strönd sunnudaginn 15. mars.
Mun það gjörbreyta allri aðstöðu
til íþróttaiðkunar á staðnum auk
þess sem í húsinu eru þrjár
kennslustofur. Tilkoma þeirra
verður til þess að næsta haust
verður hægt að einsetja skóiann í
fyrsta sinn í 50 ár.
Segja má að með vígslu húss-
ins verði langþráður draumur
margra að veruleika. Meðal ann-
ars hafa unglingar á staðnum
verið iðnir við að safna fé til
byggingarinnar á undanförnum
árum með margs konar uppá-
komum og áheitasöfnunum. Varð
áhugi unglinganna meðal annars
til þess að hinn 17. september
1996 voru opnuð tilboð í bygg-
ingu hússins. í framhaldi af því
var síðan samið við Trésmiðju
Helga Gunnarssonar ehf. á
Skagaströnd um að sjá um bygg-
ingu hússins. Fyrsta
skóflustunga var tekin 22. sept-
ember ‘96 og hefur því bygging
hússins tekið rúma 17 mánuði.
Nýja íþróttahúsið er byggt úr
lúntrésbogum sem klæddir eru
með stáli. Það er á þremur hæð-
um 1219 fm að flatarmáli en þar
af er íþróttasalurinn 559 fm. Sal-
urinn er 15,7x32 m nettó og er
því löglegur körfuboltavöllur. í
húsinu eru auk búningsherbergja
og annarrar aðstöðu til íþrótta-
iðkunar þijár kennslustofur.
Verða kennslustofurnar teknar í
gagnið næsta haust og þá verður
Höfðaskóli einsetinn. Hönnuðir
hússins eru þeir Jóhannes Ingi-
bjartsson og Jón Runólfsson sem
starfa hjá ATV ehf. á Akranesi
og raflagnateikningar eru unnar
af Braga Þór Sigurdórssyni
einnig á Akranesi. AHmargir
undirverktakar komu að smíði
hússins undir yfirstjórn Helga
Gunnarssonar og eru þeir flestir
frá Skagaströnd, Blönduósi og
Sauðárkróki.
Kostnaður við byggingu húss-
ins er um 108 milljónir og er
byggingin langdýrasta fram-
kvæmd sem Höfðahreppur hefur
farið út í. Verkið er fjármagnað
með 30 milljóna króna framlagi
úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
með sölu hlutabréfa sem hrepp-
urinn átti í Skagstrendingi hf. og
með lántökum. Til gamans má
geta þess að kostnaður við bygg-
inguna samsvarar um það bil
öllu framkvæmdafé hreppsins í
10 ár.
Allmörg ávörp voru flutt við
vígslu hússins þar sem Helgi
Gunnarsson afhenti Adolf H.
Berndsen, oddvita Höfðahrepps,
húsið formlega. Adolf þakkaði
siðan Helga og hans mönnum og
öllum undirverktökum þeirra
vinnu, sem hann sagði vera til
fyrirmyndar. Einnig þakkaði Ad-
olf fjölmargar góðar gjafír og
stuðning frá ýmsum aðilum.
Sagði hann sfðan að það væri von
sín og trú að tilkoma íþróttahúss-
ins með öllum sfnum möguleikum
til fþróttaiðkana af ýmsum toga
yrði góð vörn gegn vaxandi
vandamálum f þjóðfélaginu sem
tengjast ofbeldi og vfmuefnum.
Að lokum bauð Adolf velkominn
til starfa nýráðinn umsjónar-
mann hússins, Ragnar Ingvars-
son.
Að máli Adolfs loknu fluttu
nokkrir fuiltrúar gefenda stutt
ávörp og hamingjuóskir. Þar
vakti sérstaka athygli gjöf frá
áhöfninni á frystitogaranum
Arnari HU 1 en hún gaf fullkom-
ið hljóðkerfi í húsið. Fyrrverandi
og núverandi skólasljórar Höfða-
skóla fluttu báðir ávörp og ung
stúika, Geirþrúður Guðmunds-
dóttir úr 10. bekk, flutti kveðju
frá nemendum og félögum í ung-
mennafélaginu Fram á Skaga-
strönd. Þá talaði Valgarður
Hilmarsson, oddviti héraðsnefnd-
ar, sem fulltrúi jöfnunarsjóðs
sveitarfélaganna. Auk þess flutti
Hjálmar Jónsson alþingismaður
kveðju frá þingmönnum kjör-
dæmisins en vegna veðurs
komust sumir þeir gestir sem
boðað höfðu komu sína ekki til
vígslunnar.
Við vígsluna blessaði sr. Gísli
Kolbeins, starfandi sóknarprest-
ur, húsið, kirkjukórinn söng tvö
lög, og tónlistarmennirnir Skarp-
héðinn Einarsson og Mike Jones
fluttu tvö lög. Þar á eftir sýndu
nemendur úr yngstu bekkjum
skólans flmleika undir stjórn
kennara síns, Garðars Geirfínns-
sonar. Að þessu loknu var boðið
til kaffisamsætis í félagsheimil-
inu. Að loknu kaffinu var undan-
úrslitaleikur í bikarkeppni í
körfuknattleik stúlkna á milli
Keflavíkur og USAH. Keflavíkur-
stúlkur unnu góðan sigur á liði
USAH og komast því áfram í úr-
slit.
Reykjanesbær
Framboðs-
listi sam-
þykktur
FÉ L AGSFUNDUR bæjar-
málafélags jafnaðar- og fé-
lagshyggjufólks í Reykjanes-
bæ sem haldinn var 16. mars
samþykkti einróma tillögu
kjömefndar um framboðs-
lista félagsins til næstu bæj-
arstjórnarkosninga 23. maí
næstkomandi.
Listann skipa eftírfarandi:
1. Jóhann Geirdal bæjarfull-
trúi, 2. Kristmundur Ás-
mundsson yfirlæknir, 3. Kri-
stján Gunnarsson bæjarfull-
trúi, 4. Ólafur Thordersen
framkvæmdastjóri, 5. Svein-
dís Valdimarsdóttir kennari,
6. Guðbjörg Glóð Logadóttir
sjávarútvegsfræðingur, 7.
Eðvarð Þór Eðvarðsson,
kennari og sundþjálfari, 8.
Hulda Ólafsdóttir leikskóla-
stjóri, 9. Valur Armann
Gunnarsson lögregluflokks-
stjóri, 10. Agnar Breiðfjörð
Þorkelsson verkstjóri, 11.
Guðbrandur Einarsson versl-
unarstjóri, 12. Eysteinn Eyj-
ólfsson húsfaðir, 13. Brynja
Magnúsdóttir, nemi og for-
maður NFS, 14. Kamilla
Ingibergsdóttir, nemi og
varaformaður NFS, 15. Valur
Ketilsson skrifstofumaður,
16. Jenný Magnúsdóttir
starfsleiðbeinandi, 17. Ægir
Sigurðsson kennari, 18.
Andrea Gunnarsdóttir flug-
afgreiðslumaður, 19. Friðrik
Irtgi Rúnarsson körfuknatt-
leiksþjálfari, 20. Margrét
Soffía Bjömsdóttir myndlist-
armaður, 21. Theodór Magn-
ússon kerfisfræðingur, 22.
Guðfinnur Sigurvinsson skrif-
stofustjóri.
Guðfinnur Sigurvinsson
sem skipar 22. sætið er bæj-
arstjóraefni listans.
Efþú ert með tilbreytingu í huga skaltu muna eftir ostunum!
Þeir eru þægilegir ogfljótlegur kostur og bjóða upp á ótal
spennancLi tilbrigði og útfærslur.
Gráðaostur
bragðmikill mygluostur
spennandi í matargerð
Hvítlauksbrie
með finum keim
DJmon
Hvítur Kastali
þroskast skemmtilega
Ijúfur Ivvítmygluostur
Dalabrie
Hvítur Kastali
Gráðaostur
Maribo
JSIj'
Hvítlauksbrie Smurostar