Morgunblaðið - 18.03.1998, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
GRANSÖNGVARI
Flækingar
við Klaustur
RÉTT fyrir áramót fannst
svölugleða á Síðu. Þetta er fugl
af ránfuglaætt og mun þetta vra
í fyrsta sinn sem þessi tegund
finnst hérlendis. Þar sem þessi
fugl er vængmerktur er vitað um
ferðir hans frá því hann skreið
úr egginu sumarið 1997 í In-
vemess í Skotlandi.
Þar er verið að flytja inn
svölugleður á ný eftir að þeim
var útrýmt á þessari öld. Þetta er
lengsta ferðalag sem vitað er til
að bresk svölugleða hafí farið.
Af öðram flækingum á þessu
landshorni má nefna gransöngv-
ara sem sást á Kirkjubæjar-
klaustri. Þetta er tíður gestur
hér á landi á haustin, hann kem-
ur frá Evrópu en þetta er senni-
lega í fyrsta sinn sem gransöngv-
ari lifir hérlendis fram í mars.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
SVÓLUGLEÐA
Umhverfísáhrif
Vatnsfells-
virkjunar metin
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
hafið frumathugun á umhverfisá-
hrifum fyrirhugaðrar Vatnsfells-
virkjunar ofan Sigölduvirkjunar á
milli Þórisvatns og Krókslóns.
Tilgangur framkvæmdarinnar er
að mæta aukinni eftirspurn eftir
raforku en samkvæmt frummats-
skýrslu er þetta nú einn álitlegasti
virkjunarkosturinn hérlendis. Gert
er ráð fyrir að um of'anjarðarstöð
með opnum skurðum og þrýstipíp-
um úr stáli verði að ræða og fram-
kvæmdin hefjist fljótlega upp úr
aldamótum.
Þá er gert ráð fyrir að rask
vegna framkvæmdanna verði í lág-
marki þar sem miðlunarlón verður
lítið og vatnsfarvegur, sem gerður
var fyrir Vatnsfellsveitu á árunum
1970-72, verður nýttur.
Efnisnám og
efnisflutningar
Helstu breytingar svæðisins verða
vegna lands sem fer undir lón,
hækkunar grunnvatnsborðs í ná-
grenni þess, raflínu- og vegalagn-
ingar. Lítill gróður er hins vegar á
svæðinu og gert er ráð fyrir að um-
hverfisáhrif framkvæmdanna felist
helst í efnisnámi í stíflur og efnis-
flutningum innan virkjunarsvæðis-
ins.
Frummatsskýrslan liggur
frammi og athugasemdir þurfa að
berast Skipulagsstofnun fyrir 17.
apríl 1998.
BESTA BÓKIN umgetnað,
; meðgöngu og fæðingu
O'""“‘TéT
RÁBNSg
\t
f iilil lvSU
l’TÍ’n*04"'
n,r-<’S
•35*
flTS01
• Áreiðanleg, nútímaleg og
auðskilin bók um fæðingu
barns og umönnun á fyrsta
æviskeiði. • Fjallað er um efnið
bæði frá sjónarhóli móður og
barns. • Ljósmyndir. teikningar,
ómsjármyndir og línurit
— samtals yfir 500 litmyndir.
• 350 bls. I stóru broti.
XyíMJRQð'Tiffifð ððsiliS*
3Mkr.
4>
FORLAGIÐ
Laugavegl 18 • Sími 515 2500 • Sfðumúla 7 • Síml 510 2500
FRÉTTIR
Stefnumörkun og forgangsröðun Náttúruverndar ríkisins
Gjaldtaka fyrir þjónustu
á friðlýstum svæðum
NÁTTÚRUVERND ríkisins
hyggst leita eftir styrkjum frá fyr-
irtækjum og einstaklingum til þess
að kosta rannsóknir og vemdar-
áætlanir á einstökum náttúru-
verndarsvæðum og stuðla að upp-
byggingu og fræðslu. Ráðgert er að
breyta áherslum í rekstri þjóðgarð-
anna, m.a. með því að bæta aðstöðu
fyrir daggesti og er þar sérstaklega
rætt um uppbyggingu á gestastof-
um. Þá stefnir Náttúruvemd ríkis-
ins að gjaldtöku fyrir veitta þjón-
ustu á friðlýstum svæðum í þeim
tilgangi að standa straum af upp-
byggingu svæðanna.
Þetta kom m.a. fram í máli Árna
Bragasonar á blaðamannafundi í
gær þar sem stefna stjómar Nátt-
úruvemdar ríkisins og verkefnin
framundan vom kynnt, en þar var
einnig sagt frá rannsóknum á gos-
virkni Geysis í Haukadal. Ámi tók
við stöðu forstjóra stofnunarinnar
1. mars sl. af Aðalheiði Jóhanns-
dóttur.
Aukið samstarf við
sveitarstjórnir
Auk ofannefndra forgangsverk-
efna era náttúraminjaskráning,
friðlýsingar og vemdaráætlanir of-
arlega á blaði hjá stofnuninni.
Stefnt er að því að ljúka fyrir alda-
mót gagnasafni á tölvutæku formi
fyrir öll friðlýst svæði og önnur
svæði á náttúraminjaskrá. Halda á
áfram friðlýsingu svæða í samræmi
við stefnu umhverfisráðherra og
hlúa betur að þeim svæðum sem
þegar hafa verið friðlýst. Þá stefnir
Náttúravemd ríkisins að auknu
samstarfi og samráði við sveitar-
stjómir á hverjum stað, náttúra-
vemdar- og umhverfisnefndir.
Náttúravemd ríkisins hyggst
styðja við fræðslu- og náttúra-
mennt í skólum og efla almenna
náttúrafræðslu og í þeim tilgangi
er ráðgert að koma upp sérstakri
vefsíðu. Stofnunin leggur ennfrem-
ur áherslu á að lagareglum um al-
mannarétt verði breytt og réttur
almennings rýmkaður frá því sem
nú er samkvæmt gildandi lögum
um náttúravernd. Einnig er talið
brýnt að endurskoða lög um
vinnslu jarðefna þannig að þau
tryggi aðhald í nýtingu þessara
takmörkuðu auðlinda.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
MAGNÚS Jón Árnason, Kristján Bersi Ólafsson og Lúðvík Geirsson stinga saman nefjum fynr fundinn.
Kristján Bersi Ólafsson á fundi nýrrar hreyfíngar í Hafnarfírði
Vonast til að fram-
boðslistum fjölgi ekki
STOFNFUNDUR Samfylkingar
þeirra sem aðhyllast félagshyggju
og jafnrétti í reynd var haldinn í
Hraunholti í Hafnarfirði í gær-
kvöld og vora rúmlega 50 manns á
fundinum. Samtökin era sprottin
úr tilraunum til sameiningar
vinstri manna í Hafnarfirði og
hyggjast bjóða fram við sveitar-
stjómarkosningar í vor.
Við setningu fundarinns kom
fram í máli Kristjáns Bersa Ólafs-
sonar að það hefði orðið mörgum
vinstrimönnum í Hafnarfirði mikil
vonbrigði hvernig staðið var að
sameiningartilraun vinstri manna
fyrr á þessu ári og að stofnun sam-
takanna væri í raun svar þeirra
sem vildu ekki láta stjómmála-
menn ráðskast með sig.
Ætla að fylgjast
grannt með
Þá sagði hann aðstandendur
samtakanna vonast til þess að til-
vist hinna nýju samtaka yrði ekki
til þess að framboðslistum í bæn-
um fjölgaði en á fundinum vora
fulltrúar Alþýðubandaiags og
Kvennalista sem kváðust ætla að
fylgjast grannt með þróun samtak-
anna.
Þá kvaddi Óskar Vigfússon sér
hljóðs á fundinum og ítrekaði að
stofnun samtakanna væri einungis
fyrsta skrefið. Nú yrðu menn að
vinna ötullega að því að ná árangri.
Undirbúningsnefnd hefur verið
starfandi frá því 28. febrúar og
setti hún fram tillögu að stofnyfir-
lýsingu samtakanna. Einnig setti
hún fram tillögur að skipan stjóm-
ar, vara- og kjörstjóma og voru
þær samþykktar athugasemda-
laust. í stjóm voru kosin Dóra
Hansen, Guðríður Einarsdóttir,
Guðrún Ámadóttir, Hörður Þor-
steinsson og Kristján Bersi Ólafs-
son. í varastjórn vora kosin Ámi
Bjöm Ómarsson, Ásta María
Bjömsdóttir, Sigurgeir Ólafsson
og Valgerður Halldórsdóttir og í
kjörstjóm vora kosin Erlingur
Kristensen, Guðrún Margrét
Ólafsdóttir, Haraldur Eggertsson,
Ingibjörg Jónsdóttir og Símon Jón
Jóhannsson.
Kjörstjóm mun nú hefja undir-
búning að framkvæmd könnunar
og uppsetningu framboðslista sem
síðan verður lagður fyrir félags-
fúnd. Fundarstjóri var Reynir
Ingibjartsson og fundarritari Val-
gerður Halldórsdóttir.
-----------------
Reykingar
ræstu aðvör-
unarkerfí
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík fór
út á Hótel Loftleiðir skömmu fyrir
miðnættið í gærkvöld vegna þess að
aðvörunarkerfi þar fór í gang.
Fljótlega skýrðist þó að hætta
var ekki á ferðum því í Ijós kom að
pípureykingar á einu herbergja hót-
elsins höfðu gert það að verkum að
aðvöranarkerfið fór í gang.