Morgunblaðið - 18.03.1998, Side 10

Morgunblaðið - 18.03.1998, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Forsætisráðherra mælir fyrir frum- varpi um breytt vaxtabótakerfí „Farvegur fyrir aukinn stuðning rfkisins við íbúðakaupendur“ fyrirframgreiðsla vaxtabóta myndi hafa í fór með sér tímabundna út- gjaldaaukningu. „Samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkisskattstjóra fengu um 9.300 einstaklingar, þar sem hjón eru talin sem tveir einstaklingar, greiddar vaxtabætur við álagningu opinberra gjalda árið 1997 sem ekki höfðu fengið greiddar vaxtabætur árið 1996. Samtals námu greiðslur vaxtabóta til þessa hóps um 500 milljónir króna árið 1997.“ Ráð- herra sagði að væri gert ráð fyrir svipuðum upphæðum við gildistöku frumvarpsins myndi fyrirfram- greiðslan til nýrra bótaþega auka árleg útgjöld ríkissjóð um allt að 500 milljónir króna næstu fímm til DAVIÐ Oddsson, forsætisráðherra og starfandi fjár- málaráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt, en í frumvarpinu eru lagðar til þær breytingar á vaxtabótakerfínu sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til laga um húsnæðismál. í frumvarp- inu sem forsætisráðherra mælti fyr- ir er m.a. áformað að flýta útborgun vaxtabóta þannig að þær eigi sér stað ársfjórðungslega og geti hafíst þegar á kaupári íbúðarhúsnæðis. Samkvæmt gildandi reglum eru vaxtabætur greiddar út einu sinni á ári og greiðast fyrst út ári eftir kaup á íbúð. Stjórnarandstæðingar gagn- rýndu ýmsa þætti frumvarpsins og töldu sem fyrr að með því ásamt frumvarpi félagsmálaráðherra um húsnæðismál væri verið að fella úr lögum fé- lagslega aðstoð til íbúðarkaupa. í framsögu- ræðu sinni sagði forsætisráðherra m.a. að í frum- varpinu væri gert ráð fyrir að þeir sem uppfylltu skilyrði til vaxta- bóta vegna íbúðarhúsnæðis sem afl- að væri frá og með árinu 1999 gætu sótt um að fá bætumar greiddar á kaupári húsnæðisins. „Fyrirframgreiðsla vaxtabóta á tekjuárinu er bráðabirgðagreiðsla og miðast við vaxtagjöld af veðlán- inu. Að tekjuárinu liðnu verður síð- an endanleg vaxtabótaupphæð hvers bótaþega ákvörðuð í tengsl- um við álagningu opinberra gjalda og koma þá vaxtagjöld vegna allra lána sem tekin eru vegna íbúðar- húsnæðisins til útreiknings,“ sagði ráðherra. Hann sagði ennfremur að ALÞINGI Reuters HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra heimsótti beigíska þinghúsið ásamt Guy Moens, varaforseta þingsins. Morgunblaðið/ TÉKKNESKU gestimir hittu fulltrúa í utanríkismálanefnd Aiþingis í gær. átta árin. Sagði hann að í fjárlögum fyrir árið 1998 væri gert ráð fyrir að greiðslur rikissjóðs vegna vaxtabóta yrðu um 3.800 milljónir króna. Stuðningurinn markvissari í lok framsögu sinnar sagði for- sætisráðhen-a að með nýjum hús- næðislögum og stofnun íbúðalána- sjóðs yrði horfið frá beinni vaxta- niðurgreiðslu í íbúðalánakerfínu. „Þess í stað verður vaxtabótakerfið farvegur fyrir aukinn stuðning rík- isins við íbúðakaupendur. Stuðning- urinn verður þar með markvissari en áður og fleirum gert kleift að eignast þak yfir höfuðið á viðráðan- legum kjörum. Með fráhvarfí frá margbrotnu miðstýrðu aðstoðar- kerfi verður valfrelsi einstakling- anna aukið og sjálfseignarstefnan í húsnæðismálum styrkt í sessi,“ sagði hann. I umræðum á eftir ítrekuðu stjómarandstæðingar fyi-ri gagn- rýni sína um að þetta frumvarp ásamt fmmvarpi félagsmálaráð- herra um húsnæðismál væri til þess fallið að fella úr lögum félagslega aðstoð til íbúðarkaupa. Með sam- þykki frumvarpanna tveggja myndi sá hópur stækka í landinu sem ekki gæti eignast sitt eigið húsnæði. í ljósi þessa skoruðu þingmenn stjórnarandstöðunnar á forsætis- ráðherra að fresta afgreiðslu frum- varpanna, vinna betur að þeim í sumar og leggja þau fram endur- bætt á hausti komanda. Forsætis- ráðherra tók ekki undir þá áskorun og taldi að sá tími sem eftir væri á vorþingi myndi nægja til að fjalla um frumvörpin. Þá töldu nokkrir þingmenn stjómarandstöðu að vaxtabótakerfið sem forsætisráðhen-a mælti fyrir væri óhagstæðara en núverandi nið- urgeiðslukerfi og Jóhanna Sigurðar- dóttir, þingmaður þingflokks jafnað- armanna, spurði m.a. hvort ekki þyrfti að hækka hámark vaxtabót- anna þannig að allir sætu við sama Tékknesk sendinefnd heimsækir S Island FULLTRÚAR utanríkismála- nefndar tékkneska þingsins eru staddir hér á landi um þessar mundir. Sendinefndin ræðir við Ólaf G. Einarsson forseta Alþing- is, utanríkismálanefnd Alþingis, embættismenn í utanríkisráðu- neytinu og fleiri. Sendinefndin óskaði sérstak- lega eftir að hitta að máli yfír- menn varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli sem þeir hitta í dag áð- ur en þeir halda af landi brott. Alls eru Tékkarnir sextán, að meðtöldu fylgdarliði og blaða- mönnum. borð eftir breytinguna. Hvorki for- sætisráðhen’a né félagsmálaráð- herra töldu ástæðu til að hækka það hámark. „Ég tel að ef fólk rekur sig upp í þetta þak þá séu íbúðirnar í fé- lagslega kerfínu orðnar of dýrar," sagði félagsmálaráðherra, Páll Pét- ursson, meðal annars. Rannveig Guðmundsdóttir, þing- maður þingflokks jafnaðarmanna, kvaðst fagna samtímagreiðslu á vaxtabótum en gagmýndi það að þeir sem þegar væru komnir „inn í kerfið," eins og hún orðaði það nytu ekki slíkra samtímagreiðslna heldur héldu eftir sem áður áfram að fá vaxtabæturnar ári síðar, eins og nú- gildandi lög gerðu ráð fyrir. Fleiri þingmenn stjórnarandstöðu tóku undir þá gagnrýni og töldu að það fyrirkomulag ætti eftir að valda mikilli óánægju meðal þeirra íbúða- kaupenda sem ættu kost á vaxta- bótum. Einbýli óskast — staógreiósla Óskum eftir einbýli eða raðhúsi á Reykjavíkursvæðinu fyrir fjársterkan kaupanda. Verðhugmynd 15—22 millj. Sérhæó óskast Óskum eftir sérhæð eða stórum íbúðum í fjölbýli, mið- svæðis í Reykjavík eða víðar. Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. 3ja-4ra herb. íbúóir í Foldum eóa Hömrum Bráðvantar 3ja-4ra herb. íbúðir í Folda- eða Hamra- hverfi. Góðar greiðslur í boði. Hafið samband við sölumenn okkar; Ingólf, Bárð, Þórarin eða Boga. Skoðum og verðmetum samdægurs. Valhöll, fasteignasala, sími 588 4477. Rætt um samnorræna stefnumótun HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra sat í gærmorgun fund samstarfsráðherra Norðurlanda og fund ráðherranna með sendi- herrum norrænu landanna í Brussel. Samkvæmt upplýsingum Norðurlandaskrifstofu forsætis- ráðuneytisins var rætt um sam- norræna stefnumótun og sam- starf Norðurlandanna við grann- svæðin við Eystrasalt á fundi ráðherranna. Á fundi ráðherr- anna með sendiherrum kynntu Svíar formennskuáætlun sína í Evrópusambandinu. Þá var rætt um þau mál sem eru efst á baugi í Evrópusamstarfinu. Utanríkisráðherra heimsótti einnig belgíska þinghúsið áður en tveggja daga heimsókn hans til Brussel lauk. Fimm keppa um Frakklandsferð KEPPT var nýlega í frönskulestri meðal 17-20 ára mennta- skólanema á vegum Alliance Franeaise. Er það liður í alþjóð- legri keppni sem köll- uð er „Förum til Frakklands ‘98“. Keppni þessi fer fram í 120 löndum og verða alls 600 nem- endur boðnir til Frakklands. Frá Is- landi er boðið einum nemanda með kenn- ara. Fimm hafa verið valdir í úrslitakeppni og verður tilkynnt um niðurstöður á fímmtu- dag. Morgunbíaðið/Jón Svavarsson ÞAU keppa til úrslita, frá vinstri: Bryn- hildur Þórðardóttir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Svanhildur Þorvaldsdóttir, Verzlunarskóla fslands, Hrefna Sigur- jónsdóttir, Menntaskólanum í Reykjavík, Gunnhildur Þórðardóttir, Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, og Burkni Helgason, Menntaskólanum í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.