Morgunblaðið - 18.03.1998, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Óþolinmóðir bflstjórar
á Öxnadalsheiðinni
„Það upphófst
hálfgerður
kappakstura
FÆRÐ um Öxnadalsheiði var
með skásta móti í gær og þar var
þokkalegt veður og skyggni um
miðjan daginn, þótt gengi á með
éljum, að sögn Jóns Péturssonar
bifreiðastjóra, sem sér um snjó-
mokstur á heiðinni. Bakkasels-
brekka var ófær á sunnudag og
fram undir kvöld á mánudag og
eins og komið hefur fram biðu
um 100 bílar eftir að komast upp
Bakkaselsbrekku á mánudag og
um 40 bflar biðu eftir því að
komast niður brekkuna á sama
tíma.
Ragnar Karlsson bflstjóri, sem
var á ferð um Öxnadalsheiðina á
mánudag, sagði að eftir að búið
var að leysa úr flækjunni við
Bakkaselsbrekkuna hefðu marg-
ir bflstjórar þurft að flýta sér
heldur mikið. „Það upphófst hálf-
gerður kappakstur og voru
margir bflstjórar að reyna fram-
úrakstur við ansi misjafnar að-
stæður.“
Jón sagði að eftir að Vega-
gerðin gaf út að mokstur væri
hafínn á heiðinni um miðjan dag
á mánudag hefðu bflar af öllum
stærðum og gerðum safnast sam-
an ofan og neðan Bakkasels-
brekku. Þá skall saman aftur að
sögn Jóns og gerði leiðindaveður
og urðu snjómokstursmenn frá
að hverfa um tíma.
Allir í símanum
„Okkur tókst að ná póstbflnum
niður á mánudag, en hann hafði
setið fastur í brekkunni frá nótt-
inni áður. Það komst hefill upp
að póstbflnum og áfram upp
brekkuna við mjög erfíðar að-
stæður. Þá hafði mikið af bflum
safnast saman við brekkuna, allir
að nota síma og allar rásir upp-
teknar. Ég var neðan við brekk-
una en hefill og snjóblásari ofan
við, en ég náði ekki sambandi við
þá og þannig var ástandið í um
tvær klukkustundir."
Morgunblaðið/Ragnar Karlsson
UM eitt hundrað bflar biðu eftir að komast upp á Öxnadalsheiði á mánudag og um 40 bflar biðu þess að kom-
ast niður af heiðinni. Mikil bflalest myndaðist því á heiðinni, eins og sést á myndinni og voru margir bflstjór-
ar orðnir ansi óþolinmóðir.
Jón sagði að hugmyndin hefði
verið að aðstoða þá bfla sem
safnast höfðu við brekkuna við
að komast leiðar sinnar þrátt fyr-
ir leiðindaveður en útilokað hefði
verið að ná sambandi við snjó-
ruðningsmennina sem voru uppi í
brekkunni, livort heldur var í
síma eða talstöð. Hann sagði að
töluverður snjór hefði verið í
brekkunni og alltaf safnaðist
mikill snjór í kringum vegriðin í
suðvestanáttinni. Okumenn eiga
það til að verða heldur æstir og
halda af stað áður en búið er að
opna snjóþungar heiðar og sagði
Jón að atvinnubflstjórar væru
ekki barnanna bestir hvað þetta
varðaði.
„Það getur verið mjög erfítt að
fá vinnufrið þegar íjöldi fólks er
kominn á bflum á svæðið, nema
þá helst að loka fyrir umferð, en
þá verða menn oft misjafnlega
æstir,“ sagði Jón. Snjóruðnings-
menn voru á heiðinni fram eftir
mánudagskvöldi og hélst hún op-
in í fyrrinótt. Þeir voru svo
mættir á vaktina aftur snemma í
gærmorgun.
Morgunblaðið/Kristján
Aksjón
Miðvikudagur
18. mars
20:30 ►Sjón-
varpskringlan á
Akureyri
21:00 ► Framboðsmálin á Ak-
ureyri Viðbrögð við skoðana-
könnun bæjarsjónvarpsins og
Dags.
UVIin 21:10 ►Niubíó Hefnd
“ I •*U (Sunset Grill) Drykk-
felldur einkaspæjari ákveður að
leggja frá sér flöskuna og leita
hefnda þegar kona hans finnst
myrt á hrottalegan hátt. Hann
leggur líf sitt að veði þegar hann
kemst á slóð glæpagengis og
uppgjör er óumflýjanlegt. Aðal-
hlutverk: Peter Wellerog Lorí
Singer. 1992. Myndin er bönn-
uð börnum.
Aflaverð-
mæti Guð-
bjargar 85
milljónir
GUÐBJÖRG, fiystitogari Sam-
heija hf. hélt til veiða í Barents-
hafíð á ný fyrir helgina, eftir að
hafa landað um 300 tonnum af
frosnum físki, aðallega þorski,
ufsa og ýsu og um 60 tonnum af
fiskimjöli á Akureyri.
Guðbjörgin, sem siglir undir
þýskum fána, landaði á Akur-
eyri eftir tveggja mánaða túr í
Barentshafið og var aflaverð-
mæti skipsins um 85 milljónir
króna. Guðbjörgin er eina skip
Samheija sem er á sjó en það er
í leigu hjá þýskum útgerðarað-
ila. Önnur skip félagsins eru
bundin við bryggju, flest á
Akureyri, vegna verkfalls sjó-
manna.
Starfsmaður Flutningamið-
stöðvar Norðurlands, sem vann
við löndun úr Guðbjörgu á
Akureyri á dögunum var held-
ur kuldalegur að sjá, enda beit
frostið vel í kinnar.
Húsfriðunarnefnd vill
skoða Lækjargötu 6
Beðið með
niðurrif
JAKOB Björnsson bæjarstjóri lagði
til á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í
gær að afgreiðslu samþykktar bæj-
arráðs frá því I síðustu viku um að
rífa húsið við Lækjargötu 6 yrði
frestað og bæjarráð fengi málið að
nýju til umfjöllunar. Tillaga bæjar-
stjóra var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum
Magnús Skúlason hjá húsfriðunar-
nefnd óskaði eftir því við bæjarstjóra
á mánudag að bæjarstjórn frestaði af-
greiðslu málsins þar til nefndai-menn
hefðu átt þess kost að koma á vettr
vang, skoða húsið og ræða við fulltrúa
í bæjarráði. Stefnt er að því að sá
fundur verði 2. apríl næstkomandi.
Oddur Halldórsson, Framsóknar-
flokki, varpaði fram þeiiri hugmynd
að Akureyrarbær sem ætti húsið
myndi selja það á þúsund krónur
einhverjum þeim sem metnað hefði
til að gera það upp svo sómi væri að.
NYJAR VORUR
FRÁ
I VERSLUNUM OKKAR
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Sími 551 8519
SP
Ioppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg
Sími 5521212
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Sími 568 9212 V'
Hvað er Hjálpræðisherinn?
HVAÐ er Hjálpræðisherinn? er yf-
irskrift íyrirlesturs sem fluttur
verður á sal Hjálpræðishersins á
Akureyri, Hvannavöllum 10, í kvöld,
miðvikudagskvöldið 18. mars kl.
20.30.
Skoðað verður m.a. hvernig hreyf-
ingin varð til, útreiðsla hennar,
helstu trúarkenningar og staða
hennar nú um stundir. Óhætt er að
fullyrða að margt kemur á óvart
þegar skyggnst er á bak við hið ein-
kennisklædda herskipulag, eins og
umfangsmikið hjálparstarf sem her-
inn sinnir víða um heim og hefur frá
upphafi verið órjúfanlegur hluti af
boðunarstarfi hans. Allir eru vel-
komnir og er aðgangur ókeypis.
Starf skálavarðar
í Laugafelli
Laust er til umsóknar starf skálavarðar í Laugafelli frá 3. júlí til
30. ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Ingvar Teitsson,
formaður stjórnar í síma 462 7866, og Kristinn Jón Jónsson,
gjaldkeri í síma 4624171 eftir kl. 19.00.
Umsóknir sendist Ferðafélagi Akureyrar, pósthólf 48,602 Akureyri.
Frestur til að skila umsóknum er til 30. mars nk.