Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 16

Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ EHÉÐINN SMIÐJA hf.= Úr reikningum ársins 1997 Rekstrarreikningur MHijónir króna 1997 1996 Breyting Rekstrartekjur 797 886 -10,0% Rekstrarqjöld 707 836 -15,4% Hagnaöur fyrir afskriftir og fjárm.liði 90 50 +80,0% Afskriftir -15 -9 +66,7% Fjármagnskostnaöur nettó 1 6 -83,3% Tekju- og eignarskattar -27 -16 +68,6% Hagnaður ársins 49 31 +58,1% Efnahagsreikningur 3i.des.: 1997 1996 Breyting | Eignir: \ Milljónir króna Fastatjármunir 131 65 +101,5% Veltufjármunir 184 205 -10,2% Eignir samtals 315 270 +16,7% I Skuidir og eig id té : | Eigið fé 137 89 +53,9% Langtímaskuldir 23 20 +15,0% Skammtímaskuldir 155 161 -3,7% Skuldir og eigið fé samtals 315 270 +16,7% Sjóðstreymi og kennitölur 1997 1996 Breyting Veltufé frá rekstri Milijónir króna 69 44 +56,8% Eiginfjárhlutfall 0,43 0,33 Veltufjárhlutfall 1,2 1,3 Hagnaður Héðins-Smiðju nam 49 milljónum króna á síðastliðnu ári Betri afkoma þrátt fyrir minni veltu 107 milljóna kr. tap af Afurðasölunni Borgarnesi hf. Staðfest skipting í þtjú rekstrarfélög Afurðasalan Borgarnesi hf. Úr ársreikningum 1997 1. september-31. ágúst Rekstrarreikningur 1997 1996 Breyt. Rekstrartekjur Miiijónir króna 542,1 526,6 3% Rekstrarqjöld 598,5 561,8 7% Rekstrartap án fjármagnskostn. (56,4) (35,2) 60% Fjármagnskostnaður (34,2) (18,2) 88% Aðrar tekjur og gjöld (16,4) 9,6 Tap ársins (107,0) (43,7) 145% Efnahagsreikningur 3l.ágúst 1997 1996 Breyt. | Eignir: | Veltufjármunir Milljónir króna 175,0 205,5 -15% Fastaf jármunir 309,1 310,7 0% Eignir samtals 484,1 516,2 -6% I Skuldir og eigid fé: I Skammtímaskuldir 350,1 273,9 28% Langtímaskuldir 194,8 201,7 -3% Eigið fé (60,7) 40,7 Skuldir og eigið fé samtals 484,1 516,2 -6% Kennitölur Veltufé frá rekstri (68,3) (22,2) 208% félög, Borgames kjötvörur ehf. um HAGNAÐUR Héðins-Smiðju nam 49 miiljónum króna á síðasta ári, samanborið við 31 milljónar króna hagnað árið 1996, og nemur aukn- ingin 58%. Heildarvelta fyrirtæk- isins dróst hins vegar saman um 10%, úr 887 milljónum árið 1996 í 797 milljónir í fyrra. Aukinn hagn- aður skýrist að miklu leyti vegna þess að engar viðskiptakröfur voru afskrifaðar á síðastliðnu ári en árið áður voru um 20 milljóna króna kröfur afskrifaðar. Sérhæft þjónustu- fyrirtæki Héðinn-Smiðja er sérhæft þjón- ustufyrirtæki fyrir vélbúnað fiski- skipa, fiskimjölsiðnað og hvers konar stálsmíði. Á síðasta ári ein- kenndist starfsemi fyrirtækisins af verkefnum fyrir fiskimjölsiðnað- inn, t.d. smíði vélkerfis fyrir SR- Mjöl hf. á Seyðisfirði, Snæfell hf. í Sandgerði, Harald Böðvarsson hf. á Akranesi og Faxamjöl í Reykja- vík. Fyrirtækið fjárfesti verulega í vélum, framleiðslubúnaði, húsnæði og innréttingum á síðastliðnu ári en fyrirtækið hefur nú að fullu flutt starfsemi sína í eigið húsnæði í Garðabæ. Fjárfesting í fasteign nam 30 milljónum króna, en í vél- um og innréttingum 47 milljónum. Guðmundur Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Héðins-Smiðju, seg- ir að velta fyrirtækisins á síðast- liðnu ári hafi verið í samræmi við áætlanir. „1996 var óvenjulega gott ár vegna mikilla umframverk- efna, m.a. vegna mikilla verkefna fyrir HB. Við áttum því von á nokkrum samdrætti í fyrra og það stóðst. Segja má að síðastliðið ár hafi einnig verið óvenjulega gott vegna umfangsmikilla verkefna fyrir fiskimjölsiðnaðinn.“ Næg verkefni fyrirliggjandi Guðmundur býst við að velta fyrirtækisins verði í kringum 800 milljónir króna á þessu ári og hagnaðurinn ekki minni en í fyrra. „Afkoma okkar ræðst að miklu leyti af gengi sjávarútvegsins og ekki síst fiskimjölsiðnaðarins. Horfurnar eru góðar þar og því er einnig bjart framundan hjá okkur. Á meðal núverandi verkefna má nefna uppsetningu á 600 þúsund tonna mjölkerfi fyrir Síldarvinnsl- una hf. í Neskaupstað, uppsetn- ingu á þurrkara, eimingartækjum o.fl. í Hraðfrystistöð Þórshafnar, og sölu á þurrkurum, pressum, sjóðurum og flutningsbúnaði til ís- félagsins. Það er einnig nóg að gera í reglubundnum verkefnum fyrir útgerðina vegna viðhalds vél- búnaðar á fiskiskipum. Þá erum við sem vélsmiðja í margvíslegum öðrum verkefnum t.d. sjáum við um upptekt véla Landsvirkjunar í Búrfellsvirkjun. Þetta ár lítur því vel út og fyrirtækið hefur næg fyr- irliggjandi verkefni frarn á næsta ár,“ segir Guðmundur. Ilagnaður hjá Héðni- Verslun og Garðastáli Héðinn-Smiðja er stærst þriggja sjálfstæðra fyrirtækja sem urðu til þegar Vélsmiðjunni Héðni var skipt í þrjú sjálfstæð hlutafé- lög í ársbyrjun 1995. Héðinn- Smiðja er á Vaxtarlista VÞÍ en hin, Héðinn-Verslun og Garðastál, eru skráð á Opna tilboðsmarkaðn- um. Héðinn-Verslun selur m.a. hita- stýribúnað fyrir hvers konar at- vinnustarfsemi og er með þekkt umboð fyrir erlenda framleiðend- ur. Velta fyrirtækisins nam 372 milljónum á síðastliðnu ári og var svipuð á milli ára. Hagnaður nam 20 milljónum ára sem er 8% aukn- ing frá 1996. Garðastál framleiðir bárujám og stálklæðningar á þök og veggi fyrir nýbyggingar og viðhald hús- næðis. Velta fyrirtækisins nam tæpum 130 milljónum króna á síð- astliðnu ári, samanborið við 148,6 milljónir árið áður. Hagnaður fyr- irtækisins nam 7,6 milljónum í fyrra, samanborið við 6,1 milljón 1996, sem er 24% aukning á milli ára. AFURÐASALAN Borgamesi hf. var rekin með 107 milljóna króna halla á síðasta rekstrarári sem lauk 31. ágúst. Árið áður var tæplega 44 milljóna kr. tap á rekstrinum. Eigið fé Áfurðasölunnar var neikvætt um rúmar 60 milljónir við lok reikn- ingsársins. Kom þetta fram á aðal- fundi félagsins sem haldinn var í fyrradag. Afurðasalan Borgamesi hf. rekur sláturhús, kjötvinnslu og kjötmjöls- verksmiðju. Félagið er í eigu Kaup- félags Borgfirðinga sem á tæp 43% hlutafjár, bæjarsjóðs Borgarbyggð- ar sem á rúm 18%, bænda og ann- arra fjárfesta. Hluthafar eru 362 talsins. Félagið var stofnað 1. janú- ar 1994 upp úr kjötvinnslu og slát- urhúsi Kaupfélags Borgfirðinga. Tap hefur verið á rekstrinum frá upphafi. Þórir Páll Guðjónsson, kaupfé- lagsstjóri KB, segir að tap Afurða- sölunnar megi rekja til ýmissa þátta. Nefnir m.a. háar afskriftir vegna mikilla fjárfestinga, mikinn og vaxandi fjármagnskostnað, mik- inn kostnað við sölu- og markaðs- starfsemi og versnandi afkomu sauðfjárslátrunar sem meðal annars megi rekja til fækkunar sláturfjár. Á síðasta rekstrarári bætist við tap af meðhöndlun umsýslukjöts en það þýðir að ekki hefur fengist nógu hátt verð við útflutning lambakjöts til að standa undir greiðslum til framleiðenda. Heildarskuldir Afurðasölunnar voru orðnar 545 milljónir kr. í lok rekstrarársins. Fram hefur komið í samtali við kaupfélagsstjórann að Kaupfélagið hefði tekið á sig ábyrgð á rekstri Afurðasölunnar, meðal annars með því að tryggja greiðslur til bænda í sláturtíðinni. KB hafi lánað félaginu háar fjárhæðir og af- drif Afurðasölunnar hefðu því mikil áhrif á framtíð kaupfélagsins. Eigið fé Afurðasölunnar var neikvætt um 61 milljón tæpa. Hlutafé var 116 milljónir en annað eigið fé neikvætt um rúmar 180 milljónir. Afurðasalan er einn af stærstu vinnustöðunum í Borgarnesi. Þar ATVINNUÞRÓUNARSJÓÐUR Suðurlands, Kjötvinnslan Höfn hf. á Selfossi og Borgames-kjötvörur ehf. hafa gert samkomulag um að vinna að sameiningu Kjötvinnslunn- ar Hafnar og Borgarnes-kjötvara. Fyrst verður gerð athugun á hag- kvæmni stofnunar þannig matvæla- fyrirtækis og ef hún verður jákvæð munu fyrirtækin væntanlega sam- einast í sumar. Kjötvinnslan Höfn hf. á Selfossi varð til í vetur með sameiningu kjötvinnslu Kaupfélags Ámesinga og kjötvinnsluhluta Hafnar-Þrí- hymings hf. Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands undirbjó sameininguna og tók að sér að tryggja sölu viðbót- arhlutafjár. B orgarnes-kj ötvörur ehf. er aftur á móti kjötvinnsluhluti Afurðastöðvarinnar Borgamesi hf. Um tíma hefur verið rætt um sameiningu og samstarf Afurðasöl- unnar við önnur fyrirtæki og leiddi það til umrædds samkomulags við Höfn. Óli Rúnar Ástþórsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands, segir að settur verði á unnu að meðaltali 103 starfsmenn á reikningsárinu og heil stöðugildi við lok þess vom 71. Á aðalfundi Aftirðasölunnar settu einstakir hluthafar fram harða gagnrýni á stjómun og rekstur fé- lagsins. Beindist hún meðal annars að framkvæmdastjóra fyrirtækisins og kaupfélagsstjóranum og tveir forystumenn úr bændastétt beinlín- is kröfðust afsagnar þeirra. Áfram tap Uppgjör Afurðasölunnar miðast við september 1996 til ágúst 1997. Síðan er liðið meira en hálft ár. Þór- ir Páll segir að þótt tekist hafi með ýmsum ráðstöfunum að draga úr taprekstrinum hafi hann haldið áfram. Tiltölulega lltið tap hafi verið frá september og fram til áramóta. Á aðalfundi Afurðasölunnar Borg- amesi hf. í fyrradag var samþykkt að skipta félaginu í þrjú einkahluta- fót verkefnahópur um hagkvæmni- athugun og stefnt að því að hann ljúki störfum í maí. Ef niðurstöður athugunarinnar verði jákvæðar muni fyrirtækin væntanlga renna saman. Telur hann að mikill áhugi sé hjá báðum aðilum að skoða málið en niðurstöðumar leiði í ljós hvort af sameiningu verði. Óli Rúnar seg- ir að með sameiningu verði hægt að koma við verkaskiptingu og nýta betur fastafjármuni. Fyrirtækið verði eftir sem áður með starfsemi á Selfossi og í Borgamesi og við hagkvæmniathugun komi í ljós hvort óhagræði vegna fjarlægðar- innar á milli fyrirtækjanna eyði hagræði af sameiningunni. Þórir Páll Guðjónsson, kaupfé- lagsstjóri í Borgarnesi og stjómar- maður í Afurðasölunni, segir að markmið sameiningarinnar sé að koma á fót öflugri kjötvinnslu sem hefði burði til að þjóna hlutverld sínu. Áætlað er að heildarvelta nýs fyrirtækis verði 900 til 1.000 millj- ónir kr. og starfsmenn allt að hundrað. kjötvinnsluna, Sláturfélag Vestur- lands ehf. um sláturhúsið og AB mjöl ehf. um kjötmjölsverksmiðju félagsins. Afurðasalan á fasteignim- ar áfram og mun leigja hinum ný- stofnuðu rekstrarfélögum þær. Tilgangur skipulagsbreytingar- innar er að sögn Þóris Páls, sá að auðvelda fjárhagslega endurskipu- lagningu og að gera félaginu fært um að taka upp samstarf eða sam- einast öðrum félögum á þessum um- ræddu sviðum. Þórir Páll segir að hugmyndin sé að selja rekstrarfé- lögin og liggi fyrir tilboð frá Kaup- félagi Borgfirðinga um að kaupa öll hlutabréfin í þeim öllum með því að breyta viðskiptaskuldum í hlutafé. Ekki hefur verið gengið frá sölunni, meðal annars vegna þess að bæjar- stjórn Borgarbyggðar hefur ekki viljað samþykkja hana að svo stöddu. Vantar 35 milljónir Stefnt er að því að hlutafé nýs kjötvinnslufyrirtækis verði um 180 milljónir kr. og er samkomulag um að það skiptist til helminga milli hluthafa Kjötvinnslunnar Hafnar hf. og Borgarnes-kjötvara ehf. Eignir Borgames-kjötvara eru metnar á 54 milljónir kr. að sögn kaupfélagsstjórans og vantar því 36 milljónir upp á hlut Borgnesinga í félaginu. Kaupfélagið hefur óskað eftir því við bæjarstjóm Borgar- byggðar að hún leggi fram 30 millj- óna kr. hlutafé í þetta fyrirtæki. Bæjarstjórnin hefur ekki svarað er- indinu og telur Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri að áður en afstaða verði tekin til málsins þurfi að liggja fyrir gögn um framtíðarmöguleika fyrir- tældsins. í fréttatilkynningu um samein- ingarvinnuna kemur fram að samn- ingsaðilar vilji leita eftir samstarfi, samvinnu og/eða samrana við aðra aðila í skyldum eða sambærilegum rekstri, innanlands og utan. Samið um sameiningu Hafnar og Borgarnes-kjötvara Stefnt að myndun öflugs matvælafyrirtækis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.