Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 17
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 17
Japanir velja
seðlabankastjóra
Tókýó. Reuters.
JAPANIR hafa skipað íyrrverandi
seðlabankamann með 50 ára reynslu
af japönsku fjármálalífi í stöðu yfir-
manns japanska seðlabankans.
Tilkynnt var eftir fund Ryutaro
Hashimoto forsætisráðherra og
Hikaru Matsunaga fjármálaráð-
herra að Hashimoto mundi skipa
Masaru Hayami í stöðuna.
„Ég ákvað að taka að mér starfið
vegna þess að ég þekki nokkuð til
starfs seðlabankans og taldi að ég
gæti orðið bankanum að liði á þess-
um erfiða tíma,“ sagði Hayami.
Hayami hóf störf í seðlabankan-
um 1947. Hann var seinna forstöðu-
maður Nissho Iwai-verzlunarfélags-
ins og sambands japanskra for-
stjóra.
Fráfarandi seðlabankastjóri, Ya-
suo Matsushita, baðst lausnar þegar
háttsettur starfsmaður bankans var
handtekinn fyrir að hafa þegið mút-
ur. Handtakan var sú fyrsta í sögu
seðlabankans og kom í kjölfar svip-
aðra ásakana gegn nokkrum hátt-
settum starfsmönnum japanska
fjármálaráðuneytisins.
*
Avöxtunar-
krafa spari-
skírteina
lækkar
ÁVÖXTUNARKRAFA markflokka
húsbréfa lækkaði um 6 punkta á
Verðbréfaþingi íslands í gær og
endaði í 4,87%. Vestir á 11 mánaða
víxlum lækkuðu í útboði ríkisvíxla
þjá Lánasýslu ríkisins.
Með útboði ríkisvíxla skuldbatt
ríkissjóður sig til að taka tilboðum á
bilinu 300 til 5.000 milljónir kr. Alls
bárust 17 gild tilboð í ríkisvíxla að
fjárhæð 3.826 milljónir kr. Tekið var
tilboðum fyrir 2.936 miHjónir. Með-
alávöxtun þriggja mánaða víxla
reyndist 7,36%, á fimm mánaða víxl-
um 7,41% og á eilefu mánaða víxlum
7,56%. Er þetta í samræmi við
ávöxtunarkröfu á Verðbréfaþingi ís-
lands, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Næsta útboð ríkisverðbréfa er á
75 daga ríkisvíxlum 1. aprfl kl. 11 og
útboð til endurfjármögnunar spari-
skírteina og rfldsbréfa 2. aprfl kl. 14.
Endurhverfír samningar
Á vegum Seðlabankans fór í gær
fram uppboð á endurhverfum verð-
bréfasamningum, í samræmi við
reglur um viðskipti Seðlabanka ís-
lands við lánastofnanir. Lánstiminn,
það er að segja sá tími sem líður þar
til bréfin hverfa til fyrri eigenda á
ný, er 14 dagar.
Notuð var fastverðsaðferð því
Seðlabankinn bauðst til að kaupa
verðbréf á tiltekinni ávöxtunar-
kröfu, 7,2%. Engin fjárhæðarmörk
voru í uppboðinu. Niðurstaðan varð
sú að samtals bárust tilboð að fjár-
hæð 4,3 milljarðar kr. Næsta upp-
boð af þessu taki er fyrirhugað að
viku liðinni.
SAMSKIP: HLUTHAFAR í mars 1998
Hluthafar
Nordatlantic T. Gmbh.
Mastur hf.
Sund hf.
Samherji
Ehf. Alþýðubankans
Flutningar hf.
Lurssen Wirft
Baldur Guðnason
Samvinnulífeyrissj.
Hlutafé
milljónir kr.
Hlutfall (%)
36,0
Sæmundur Guðlaugsson * >' 7,7 0,9 0
Guðmundur P. Davíðsson 7,7 ö 0,9 0 / I I mmam
SAMTALS
900,0 100,0
Kort þetta sem birtist með frétt um Samskip í gær er hér endurbirt
vegna mistaka við frágang. Þýska fyrirtækið Lurssen Wirft er sjöundi
stærsti hluthafinn eftir kaup á eignarhlut BM flutninga hf.
10
EIMSKIPS
stærstu eignarhlutar
í félögum á hlutabréfamarkaði
FélÖg Mllljónir kr. 31.des. 1996 l31.des. 1997 I
Bókf. verð Markaðsv. Bókf. verð Markaðsv.
Flugleiðir 1.077,4 2.324,9 1.099,2 2.371,1
Útgerðarf. Akureyringa 940,6 897,3 960,2 735,8
Haraldur Böðvarsson 175,8 437,2 249,6 488,8
Skeljungur 221,1 459,6 225,6 447,4
íslandsbanki 220,8 404,4 225,3 757,4
Marel 93,8 668,8 202,1 1.357,5
Sjóvá-Almennar 156,5 454,7 159,7 841,2
Síldarvinnslan 75,0 307,1 111,8 343,5
Skagstrendingur 87,3 191,4 89,1 170,9
Grandi 53,4 81,8 54,5 85,3
Önnur 8 félög á markaði 179,8 308,6 156,0 289,7
;—m=É=L Samtals 3.281,6 6.535,8 3.533,0 7.888,5
—I
Marka ðs virðið
jókst um 21 %
MARKAÐSVIRÐI hlutabréfa
Burðaráss hf., eignarhaldsfélags
Eimskips, í félögum á hlutabréfa-
markaði jókst um 1.352 milljónir kr.
á árinu 1997, úr 6.536 milljónum í
7.888 milljónir kr. Hækkunin sam-
svarar tæplega 21%. Meginbreyt-
ingin stafar af gengishækkun hluta-
bréfa en Eimskip jók einnig hlut
sinn í mörgum fyrirtækjum.
Bókfært verð, það er að segja
nafnverð, eignarhluta Eimskips í
hlutafélögum á markaði var 3.533
milljónir í lok síðasta árs og hafði
aukist um 250 milljónir kr. Félagið
hafði bætt lítillega við sig í nokkrum
félögum og meira í öðrum. Þannig
tvöfaldaðist nafnverð hlutabréfa
Eimskips í Marel. Markaðsvirði
hlutabréfa félagsins var 4.355 millj-
ónum kr. hærra en bókfært verð.
Frá áramótum hefur gengi ein-
stakra félaga breyst, bæði til hækk-
unar og lækkunar. Hlutabréfaeign-
in í hefld hefur þó heldur lækkað að
markaðsvirði,
ý fiölliða fiöðrun É Forstrekkiarar
aá aftan og framan X 6 öllum 3)a ftstu bcltum
rífnar rúðuvindur&Ryðvöm
I framhurðum
& w AB5 hemfalæsivörn É Fjórlr llknarbelgir
'jj
HEKIA
Volkswagen
Oruggur á alla vegu!