Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
T-
>
Fjöldinn er
raunveru-
legt fólk
„Hugsanlegur áhorfendahópur er hver
einasti mabur, kona og barn í samfé-
laginu sem hefur aðgang að sjónvarps-
tœki og tíma og löngun til að horfa. “
NSKI leikritahöf-
undurinn Trevor
Griffiths er einn
fárra leikritahöfunda
sem hafa yfírgefið
leikhúsið og snúið sér alfarið að
leikritaskrifum fyrir sjónvarp.
Giiffiths bætti um betur og setti
fram á hreinskilinn og skýran
hátt ástæður sínar fyrir þessari
ákvörðun; hann taldi sig einfald-
lega ná betur til fjöldans í gegn-
um sjónvarpið en leikhúsið. I því
efni hafði hann vissulega margt
til síns máls og tók upp þráðinn
frá leikhús- og fjölmiðlafræðingn-
um Raymond
VIÐHORF Willams sem
------ var einn þeirra
Eftir Hávar fyrstu sem
Sigurjónsson hafnaði kenn-
ingunni um
hinn nafnlausa fjölda sem sæti
dofinn yflr sjónvarpinu án nokk-
urrar sjálfstæðrar hugsunar.
Williams skrifaði árum saman
um sjónvarp í tímaritið The
Listener og dró saman reynslu
sína í gagnmerkri bók Television
and Cultural form. Þar segir
hann m.a.: „Hinn „sjónvarpssjúki
fjöldi“ er ekki til nema í hugum
annars flokks félagsfræðinga.
Fjöldinn er raunverulegt fólk,
menn og konur, sem leysir dag-
lega úr alls kyns vandamálum og
erfíðleikum, og er fyllilega fært
um að læra og draga ályktanir af
því sem fyrir það er borið."
Griffíths greip þetta á lofti og
sá í hendi sér að leikrit sem sýnt
er í bresku sjónvarpi nær að
meðaltali til 3-12 milljóna manna
ef útsending er fyrri hluta kvölds
á virkum degi. Til samanburðar
nær leikrit sem sýnt er (fyrir
fullu húsi) í 500 manna leikhúsi á
hverju kvöldi árið um kring til
180 þúsund áhorfenda. Möguleik-
inn að ná til heillar þjóðar í gegn-
um sjónvarp er einnig fullkom-
lega raunhæfur. „Hugsanlegur
áhorfendahópur er hver einasti
maður, kona ogbarn ísamfélag-
inu sem hefur aðgang að sjón-
varpstæki og tíma og löngun til
að horfa. Það er því ekkert skrýt-
ið að yfírvöld telji nauðsynlegt að
stjórna af festu fjölmiðli sem náð
getur til svo margra. Að „upp-
lýs a“ og „fræða" er kannski á
stefnuskránni ásamt því að
„skemmta" áhorfendum, en upp-
lýsingar sem vekja reiði og
fræðsla sem umturnar viðteknum
skoðunum, valda því að höfund-
um og framleiðendum er vísað á
dyr og samningum viðþá rift.“
Griffiths er hér að vísa til ákveð-
inna atburða sem áttu sér stað
innan breska ríkissjónvarpsins
BBC í lok áttunda áratugarins
eftir að ákveðið var að sýna ekki
sjónvarpsleikrit Dennis Potters,
Brimstone and Treacle.
Umrætt leikrit var svo leikið
víða á næstu árum í breskum
leikhúsum sem undirstrikar í
rauninni tvennt; annars vegar að
leikhúsheimurinn er á vissan hátt
frjálslyndari en sjónvarpið og
hins vegar að í nútímaleikhúsi er
engin ógnun fólgin, gildi þess sem
áróðurstækis heyrir sögunni til;
það gegnir fyrst og fremst há-
menningarlegu afþreyingarhlut-
verki. Griffiths lýsir þessu með
eftirfarandi orðum: „Leikhúsið
veitir höfundinum mesta stjórn á
framleiðslu á verki sínu en sem
samfélagslegt fyrirbæri er það a 1-
gjörlega ófært um að ná til, svo
ekki sé sagt hafa áhrif á, mark-
tæks hluta almennings. Vel-
gengni í leikhúsinu getur fært
höfundi frægð, (svolitla) peninga,
aðdáun gagnrýnenda og sess í
bókmenntunum en verkið er um
leið súrsað til frambúðar íyfír-
fullu menningarbúri hámenning-
arneytandans.“
I ljósi þessa má t.d. skoða þá
staðreynd að ritskoðun leikrita
var felld niður í Bretlandi á sjö-
unda áratugnum; það var reynd-
ar löngu orðin hlægileg tíma-
skekkja en er engu að síður til
marks um að yfirvöld sáu enga
ástæðu lengur til að skipta sér af
því sem fram fór í leikhúsunum.
Hins vegar er enn haldið uppi
öflugri ritskoðun gagnvart því
hvaða efni er sent út í sjónvarpi.
í daglegu tali er ritskoðun sjón-
varps kölluð dagskrárstýring og
þar ráða markaðssjónarmið
mestu, siðferðileg sjónarmið ein-
hverju, svo og hin meinta hlut-
leysisstefna ef um ríkisfjölmiðil
er að ræða. Hugtök eins og sið-
ferði og hlutleysi eru reyndar
hreyfanleg og endalaust umdeil-
anleg. Grynnra verður á siðferð-
issjónarmiðunum þegar horft er
til hinna „frjálsu" sjónvarps-
stöðva, þar sem markaðurinn
ræður ferðinni, þ.e. lægsti sam-
nefnarinn er fundinn í sífellu og
kallaður „smekkur meirihlut-
ans“. Þess er einnig í flestum til-
fellum vandlega gætt að sýna
ekkert efni sem gæti talist um-
deilt, að ekki sé minnst á aðgát-
ina sem frelsið krefst að viðhöfð
sé í nærveru kostenda og aug-
lýsenda.
Sjónvarpið er íhaldssamur mið-
ill og höfundurinn verður að
vinna innan þeirra forma sem
fyrir eru í stað þess að reyna að
skapa ný form. Líkurnar á að
formbyltandi leikrit komist að í
sjónvaipi eru hverfandi. Griffiths
bendir samt á að þegar stofnun á
borð við ríkissjónvarpsstöð hefur
náð ákveðinni stærð þá hættir
miðstýrt eftirlit að virka og snjall
höfundur sem vill koma hug-
myndum sínum að getur notfært
sér „götin“ sem myndast. „Mikil-
vægi sjónvarpsins við að móta og
viðhalda viðteknum skoðunum á
þjóðfélagslegum fyrirbærum,
kemur einmitt skýrast fram í því
hversu mikil áhersla er lögð á að
stýra því hvaða efni er sýnt og
hvað ekki.“
Burtséð frá pólitísku inntakinu
í máli Griffiths geta íslenskir leik-
ritahöfundar gert málstað hans
að sínum gagnvart íslensku sjón-
varpi. Höfundar sem taka hlut-
verk sitt alvarlega og hafa á ann-
að borð eitthvað fram að færa
eiga að grípa tækifærið og ganga
ekki að því sem gefnu að sjón-
varpið bjóði ekki aðra efnislega
kosti en sápulega tilfinningasemi,
innihaldslausa spennu og bitlausa
gamansemi. „Nafnlaus fjöldinn"
er til staðar með sjónvarpstæki í
stofunni og vit í kollinum.
Uppsagriirnar
voru óhæfa
„SVONA gera menn
ekki,“ sagði forsætis-
ráðherra á dögunum,
og varð það fleyg setn-
ing, sem menn hafa
margoft vísað til síðan,
þegar þeim hefur gjör-
samlega blöskrað eitt-
hvað.
Einnig mér kom
þessi setning í hug,
fyrst er ég frétti af ný-
afstöðnum uppsögnum
starfsfólks hjá Flugfé-
lagi íslands. Allt í sam-
bandi við það mál er
með slíkum endemum
að engu tali tekur.
Ekki er nóg með að
þarna hafi verið rekið úr starfi
reyndasta fólkið í starfsgreininni,
heldur var allur aðdragandi og að-
ferð við málið með sh'kum hætti að
óhæfa verður að teljast. Fólki, sem
hafði af alúð og áhuga stundað sitt
starf árum saman, áratugum sam-
an sumir, er skyndilega og fyrir-
varalaust tilkynnt, að nú sé þess
ekki þörf lengur, það geti bara far-
ið, hypjað sig strax, já, burt með
þig strax í dag (þannig var þetta
gert). Svona framkoma við fólk er
ekki aðeins ruddaleg, ekki aðeins
tOlitslaus og særandi, heldur
einnig vanhugsuð og varasöm fyrir
sérhvert fyrirtæki og ekki ætlandi
neinum sæmOega skynsömum
stjómanda.
Úti að aka
Sá stjórnandi fyrirtækisins á ís-
landi, sem hefur enn ekki lært að
dýrmætasti fjársjóður hvers fyrir-
tækis er starfsfólkið sjálft hefur
ekkert lært, ekkert skilið; hann
gerir sig sekan um óleyfilega fá-
kunnáttu í stjómun, er úti á þekju,
og alls ekki starfi sínu vaxinn.
Oteljandi blaðagreinar, tímarits-
greinar, heilu bækumar eru nú
skrifaðar og fyrirlestrar haldnar úti
í hinum harða heimi viðskiptalífs-
ins, þar sem því er haldið fram sem
staðreynd, að hvert það fyrirtæki,
sem er stjómað af mönnum, sem
ekki hafa að leiðarljósi að koma vel
fram við starfsfólkið, sem ekki sýna
að þeir kunni að meta hæfileika og
hollustu starfsfólksins, reyna ekki
að skapa góðan vinnumóral (staff-
moral), er dæmt tO að farast í sí-
harðnandi samkeppninni.
Forsvarsmaður fyrirtækis, sem
ekki skilur þetta, þekkir ekki sinn
vitjunartíma, og ætti að leita fyrir
sér um annað en að reyna að
stjóma fólki. Geri hann það ekki
verða hluthafar, fjármagnseigend-
urnir sjálfir, sem leggja gmnninn
að fyrirtækinu að víkja manninum
frá (að sjálfsögðu með tdlitssöm-
um hætti), ellegar tapast beinharð-
ir peningar og að lokum fer fyrir-
tækið í rúst.
Mannasiðir
Auðvitað getur málum verið svo
komið, vegna adskonar aðstæðna
(stundum sjálfskapaðra) að íýrir-
tæki neyðist til að draga saman
seglin og þar með talið að segja
upp starfsfólki, en þá
er aðalatriði en ekki
aukakatriði, hvernig
það er gert, hvernig
er að því staðið á allan
hátt. Lágmarkskrafa
er að sýna fólki al-
menna mannasiði, það
hjálpar alveg ótrúlega
mikið. Það á að halda
fund með starfsfólk-
inu áður en til upp-
sagna kemur og
leggja spilin á borið.
Það á að ræða málin
við trúnaðarmenn og
starfsfólkið sjálft. Það
á að reyna að milda
þetta eins og frekast
er kostur, athuga með fólkinu
hvort einhver önnur lausn en upp-
sögn sé möguleg. Athuga hvort
viðkomandi starfsmaður eigi hugs-
anlega innkomu hjá öðru skyldu
fyrirtæki, segjum í þessu tilfelli
Flugleiðum t.d. Það ber að kanna
aðstæður hjá hverjum einstökum
Hafi stjórnandi fyrir-
tækis ekki lært að dýr-
mætasti fjársjóður þess
er starfsfólkið sjálft,
hefur hann ekkert lært.
Kjartan Norðdahl
gagnrýnir nýafstaðnar
uppsagnir hjá Flugfé-
lagi Islands.
starfsmanni, því þær geta verið
mjög mismunandi. Kona á miðjum
aldri, sem hefur unnið allan sinn
starfsaldur hjá sama fyrirtækinu,
á aUs ekki auðvelt með að komast í
annað starf. Og veit ég um dæmi
þess að starfsmaður, sem varð fyr-
ir álíka uppsagnaaraðferð og hér
um ræðir og starfaði hjá þekktu
fyrirtæki hér í borg, rétt komst
hjá því að fremja sjálfsvíg vegna
áfallsins, sem hann varð fyrir.
Honum fannst óþolandi að fá ekki
að vita hvers vegna honum var vik-
ið frá, því ef það var vegna sam-
dráttar, hvernig stóð á því að fljót-
lega var ráðinn annar maður í
stöðuna, sem hann hafði gegnt!
Það var aðeins vegna ítarlegrar
sérfræðiaðstoðar sálfræðings og
geðlæknis að tókst að bjarga við-
komandi. Menn, sem standa fyrir
uppsögnum starfsfólks með langan
starfsaldur að baki, verða að gera
sér grein fyrir ábyrgðinni sem
slíku fylgir og haga sér ekki eins
og einhverjir bjálfar. Það á að gefa
út fréttatilkynningu þar sem út-
skýrt er alveg kristalklárt, hvers
vegna þessi ákvörðun er óhjá-
kvæmileg, að hún sé tekin vegna
rekstrarörðugleika en ekki vegna
óhæfni þess starfsfólks, sem í upp-
sögninni lendir. Ef það er ekki
gert getur viðkomandi starfsmað-
ur fengið á sig alveg óverðskuldað-
Kjartan
Norðdahl
■ ■
SLIM-LINE Vöggusængur,
dömubuxur vöggusett.
frá gardeur* ÖÓunrv Póstsendum jl "ig Zfáj&trúði*'
tískuverslun
B V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 B SkóUvöröustíg 21 SámiSS! 4050 Reyk|avik
an viðloðandi grun um einhvers
konar vanhæfni í starfi, sem getur
skaðað hann um alla framtíð, og
beinlínis orðið til þess að hvergi
fæst önnur vinna. Starfsmaður,
sem hefur stundað sitt starf af
kostgæfni árum og áratugum sam-
an á annað og betra skilið af hálfu
fyrirtækisins.
Hellisbúarnir
Þetta hafa menn skilið í útlönd-
um þótt langt virðist í sama skiln-
ing hér á landi. í nágrannalöndum
okkar, og einnig í fjarlægari lönd-
um, hafa verið sett lög eða alþjóða-
samþykktir verið fullgiltar, sem
veita starfsfólki miklu ríkari
vinnuvernd en tíðkast hér landi.
Vinnuvernd á Islandi er nánast
eins og hjá einhverjum hellisbúum.
„Löglegt en siðlaust," sagði ann-
ar merkur Islendingur eigi íyrir
löngu, og finnst mörgum að sú
setning eigi svo sannarlega við í
því dæmi um uppsagnfrj sem hér
er tekið til umfjöllunar. Eg er hins
vegar alls ekki sannfærður um að
uppsagnaraðferðirnar standist
ákvæði laga um hópuppsagnir,
þótt svo virðist sem VR ætli sér
ekkert að aðhafast hvað það atriði
snertir. Og er það óskiljanlegt.
Gungurnar
Öll aðferðin við uppsagnir þessa
fólks, sem margir hafa bókstaflega
litið á sem innanlandsflugið sjálft,
klettinn sem allt hitt byggðist á,
var með slíkum hætti að óverjandi
er með öllu. Ekki var nóg með að
engin þeirra atriða, sem ég nefndi
hér á undan væru virt, heldur voru
sumir í stjóm fyrirtækisins svo
aumir, svo ég segi ekki hreint út -
slíkar gungur - að þeir flúðu land
meðan ósköpin gengu yfir. Hvílík-
ur hetjuskapur!
Ráðamennimir
Nei, það er alveg rétt hjá þér
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
sumt gera menn einfaldlega ekki.
Og það hefðir þú átt að vita, Páll
Halldórsson, framkvæmdastjóri.
En við ykkur alþingismenn segi ég
þetta - flýtið ykkur að fullgilda
samþykkt nr. 158 hjá ILO um
vinnuvernd, eða semjið áþekk lög,
eins og gert hefur verið í Dan-
mörku og Noregi, áður en launa-
fólk nágrannalanda okkar afskrif-
ar ykkur sem alþjóðleg flón, sem
séuð landi ykkar og þjóð til
skammar, fyrrir að vera ekki löngu
búnir að þessu.
Gott starfsfólk
Og við ykkur, starfsmenn góðir,
sem hafið fengið reisupassann hjá
Flugfélagi íslands, segi ég þetta -
haldið fullri reisn, það efast enginn
um hæfni ykkar og verðleika, sem
ykkur hefur kynnst í starfi og leik,
og við ykkur, óþekktir atvinnurek-
endur, sem ráðið þetta fólk til
starfa, segi ég þetta - það verður
ykkar gæfuspor.
Höfundur er flugstjóri og
lögfræðingur.
Eyrnalokkagöt
Nú einnig
Nýjung - gull í gegn
100 gerðir af eyrnalokkum
3 stœrðir