Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
EINAR SNÆBJÖRNSSON
SNÆBJÖRN EINARSSON
+ Einar Snæ-
björnsson var
fæddur á Hell-
issandi 20. nóvem-
ber 1921. Hann lést
á hjartadeild Land-
spitalans 10. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Snæbjörn Einarsson
frá Hellissandi, f.
11. des. 1897, d. 26.
des. 1990, og Stein-
unn Bjarnadóttir frá
Garði á Reykjanesi,
f. 28. okt. 1895, d.
11. nóv. 1925. Þau
eignuðust tvö börn,
Einar og Svanhildi, sem er fædd
1922, giftist síðar Kristófer Snæ-
björnssyni á Hellu á Hellissandi,
en hann lést sl. haust. Eftir lát
móður sinnar 1925 ólst Einar upp
hjá ömmu sinni, Jónínu Sigfríði
Jónsdóttur, og föður í Klettsbúð á
Hellissandi.
Einar kvæntist 1953 Magneu
Sörensdóttur frá Hellissandi (f. 7.
jan. 1921), starfsmanni hjá Lands-
síma Islands. Þau bjuggu lengst á
Seltjarnarnesi, en á efri árum á
Keilugranda 8 og síðast á Hrafn-
Einar gekk í barnaskóla á Hell-
issandi og hóf seinna nám í Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík en
lauk því ekki. Hann fór ungur til
sjós. Fyrst var hann með föður
sínum á fískiskipum frá ísafírði,
bæði vetrarvertíðir og eins á sfld
fyrir Norðurlandi. Systir Snæ-
bjamar, Guðrún, bjó á Isafirði, gift
Sigurjóni Sigurbjömssyni, og hjá
því myndarfólki ólst Svanhildur,
systir Einars, upp og þar áttu þeir
feðgar jafnan gott athvarf. Þeir
feðgar vom nokkur ár á Richard, á
istu. Magnea lést 7. júlí 1995. Barn
þeirra var Snæbjörn, sem er nýlát-
inn. Hjá þeim ólst upp dóttir
Magneu, Gerður Guðmundsdóttir,
f. 9. mars 1948. Hún er gift Helga
Bemódussyni, aðstoðarskrifstofú-
stjóra Alþingis, og eiga þau tvo
syni, Árna, f. 25. júlí 1981, og Krist-
in, f. 27. júní 1988.
Einar fór ungur til sjós með föð-
ur sínum. Hann var fyrst á fiski-
skipum, síðar á millilandaskipum,
allt þar til hann slasaðist við störf í
Keflavíkurhöfn 1967. Nokkru síðar
útvegi Björgvins Bjarnasonar á
Isafirði. Síðar fór Einar í milli-
landasiglingar á skipum Eimskipa-
félagsins, m.a. á Selfossi og Goða-
fossi, lengst hjá Jónasi Böðvars-
syni skipstjóra, var bátsmaður hjá
honum. Hann sigldi víða um fram-
andi staði og var duglegur við að
kaupa hluti til heimilisins á þeim
tíma þegar skammtað var og höft
á innflutningi hér heima. Árið 1967
slasaðist Einar illa. Þeir voru að
fara frá bryggju í Keflavíkurhöfn
þegar springur slitnaði og hjó í
hóf hann störf hjá SKF-kúIulegu-
sölunni í Reykjavík og vann þar
meðan kraftar entust.
Snæbjöm Einarsson var fædd-
ur 27. október 1953. Hann varð
bráðkvaddur við heimili sitt 11.
febrúar síðastliðinn.
Snæbjörn kvæntist Jean Quick.
Snæbjöm og Jean bjuggu lengst í
borginni Kingston en siðast í
bænum Leeds í New York. Þau
vom barnlaus. Snæbjörn starfaði
við kennslu.
Snæbjörn gekk í Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi og siðar i
Verslunarskóla Islands og lauk
þaðan stúdentsprófi 1973. Hann
hóf nám í ensku við Háskóla Is-
lands en fór síðar til Bandaríkj-
anna og lauk meistaraprófi í
ensku frá háskólanum í New-
Paltz í New York-fylki.
Utför Snæbjörns fór fram frá
Zion Lutheran Church i borginni
Athens og hann var jarðsettur í
Kingston.
Utför Einars verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30. Minningarathöfn
um Snæbjörn Einarsson verður
samtimis útför föður hans í Nes-
kirkju í dag.
annan fót hans. Sárið og brotið
hélst illa við og varð Einar aldrei
samur eftir. Hann hætti til sjós og
eftir langar sjúkralegur fékk hann
starf hjá þeim feðgum Jóni og
Arna Fannberg við afgreiðslu í
SKF-kúlulegusölunni í Reykjavík
og þar vann hann þangað til hann
varð að hætta þegar fætur hans
þoldu ekki meira. I versluninni lík-
aði Einari vel og ekki síður við
vinnuveitendur sína sem reyndust
honum þá og síðar afar vel.
Árið 1953 kvæntist Einar jafn-
öldru sinni frá Hellissandi,
Magneu Sörensdóttur. Þau bjuggu
fyrst við Hallveigarstíg í Reykja-
vík, en síðar á Seltjarnarnesi,
Nýju-Klöpp og Melabraut 51. Síð-
ustu árin voru þau á Keilugranda 8
þangað til heilsu Magneu var svo
komið að þau gátu ekki ein haldið
heimili. Þá fluttust þau á Hrafn-
istu, vorið 1995, en stuttu síðar lést
Maggý. Eftir það fór smám saman
að draga af Einari. Hann lést á
hjartadeild Landspítalans 10.
mars sl. eftir stutta legu þar.
Einar Snæbjörnsson var í tæpu
meðallagi á vöxt, rauðbirkinn og
líkur sínum breiðfirsku forfeðrum.
Hann var dulur í skapi og lét til-
finningar sínar sjaldan í ljós. Hann
undi sér vel heima við ýmiss konar
sýsl, lestur og sjónvarp. Á vinnu-
stað var hann hins vegar reifur og
glaðbeittur, gjaman með spaugs-
yrði á vör. Honum var vandvirkni
og samviskusemi í blóð borin, var
einkar laginn við alls kyns við-
haldsvinnu. Og greiðvikinn var
hann. Hann var nægjusamur og
sparsamur, fór vel með alla hluti,
hófsmaður og snyrtimenni hið
mesta.
Einkasonur Einars og Magneu,
Snæbjörn, fluttist ungur til Banda-
ríkjanna. Þau fóru allmargar ferð-
ir til að heimsækja hann þangað,
allt þar til heilsa þeirra bannaði.
Það varð Einari mikil raun að
fregna um óvænt andlát Snæ-
bjamar fyrir nokkrum vikum.
Synir mínir, afabörn hans, nutu
hins vegar samvista við Einar og
þeim var hann mikill vinur. Eink-
um naut Árni, eldri sonur okkar,
þess á yngri ámm og á hlýjar
minningar um natinn og þægileg-
an mann.
Við kveðjum Einar Snæbjöms-
son með þakklæti fyrir tryggð og
vináttu.
Fyrir röskum mánuði, 11. febrú-
ar, bárust þær óvæntu fregnir að
Snæbjöm Einarsson, mágur minn,
+
STEFÁN VALGEIRSSON
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 23. mars kl. 13.30.
Fjóla Guðmundsdóttir og fjölskylda.
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýnt hafa okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna fráfalls elsku-
legrar móður okkar,
VALGERÐAR STEFÁNSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
(áður Efstaleiti 14).
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
Hrafnistu — Hafnarfirði 4. hæð.
Stefán Gunnarsson, Agla Marta Marteinsdóttir,
Guðlaug Konráðsdóttir,
Þórhildur Gunnarsdóttir, Magnús Jónsson,
Gunnar Gunnarsson,
Valgerður Gunnarsdóttir, Stefán Ólafsson,
Árni Gunnarsson, Guðrún Dís Jónatansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda hluttekningu við andlát og
útför
BJARNA ÞÓRÐARSONAR
frá Reykjum á Skeiðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Suðurlands.
Guð veri með ykkur.
Sigurlaug Sigurjónsdóttir,
Magnea Bjarnadóttir, Böðvar Guðmundsson,
Guðrún Bjarnadóttir, Árni Svavarsson,
Þórdís Bjarnadóttir, Ari Einarsson,
Sigrún Á. Bjarnadóttir, Haukur Haraldsson,
Rúnar Þ. Bjarnason, Ingibjörg Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
LÝDÍA
GUÐJÓNSDÓTTIR
+ Lýdía Guðjóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 25. maí
1921. Hún lést á
Borgarspítalanum 10.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guðjón
Bjarnason, söngsljóri
Sólskinsdeildarinnar
og sfðar múrara-
meistari, og Guðrún
Sveinsdóttir. Guðrún
dó eftir langvarandi
veikindi 14.4. 1942 en
Guðjón lést 11.9.
1983. Lýdía var elst
þriggja alsystkina en hin eru
Kjartan Sveinn, f. 2.9. 1925, og
Bjarndis Kristrún, f. 20.11. 1926.
Hálfsystkin Lýdíu eru Lilly Erla,
f. 6.3. 1930, Sigurður Rúnar, f.
8.8. 1949, og Hulda Kolbrún, f.
21.9. 1952.
Lýdfa giftist Guðjóni Theodórs-
syni, bónda og vélamanni, 18. maí
1940. Þau eignuðust sex böm: 1)
Rúnar Guðjón, f. 16.9. 1940,
prentari í Reykjavík, kvæntur
Bimu Valgeirsdóttur, þau eiga
tvo syni, tvær dætur og sex
bamabörn. 2) Óskírt meybam, f.
11.4. 1942, dó þriggja mánaða. 3)
Theódór Helgi, f.
24.7. 1943, sjómaður.
Hann dmkknaði
28.2. 1973 og lét eftir
sig eina dóttur. 4) Jó-
hann Sveinn, f. 27.6.
1948, smíðakennari á
Hvammstanga, en
hann dó langt um
aldur fram í nóvem-
ber 1994. Jóhann var
kvæntur Elísabetu
Bjarnadóttur og áttu
þau fjórar dætur og
Qögur barnabörn. 5)
Guðbjörg, f. 6.7.
1950, húsmóðir í
Kópavogi, sem á þrjú böm.
Sambýlismaður hennar er Hall-
dór Halldórsson. 6) Kjartan
Sveinn, f. 10.12. 1958, bifvéla-
virki. Hann á tvö böm með sam-
býliskonu sinni, Bám Samúels.
Lýdía ólst upp hjá foreldrum
sfnum í Reykjavík og ferðaðist
sem barn mikið með föður sfnum
og tók virkan þátt í söng með
barnakórnum Sólskinsdeildinni.
Seinna söng hún um árabil með
hljómsveit Bjama Böðvarssonar.
Útför Lýdíu fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Þau Lydía og Guðjón bjuggu
fyrstu 10 árin á nokkrum stöðum í
Reykjavík en árið 1950 flytja þau
að Stíflisdal í Þingvallasveit og
hefja þar búskap. Guðjón hafði
enda lokið góðu prófi frá Búnað-
arskólanum á Hólum í Hjaltadal
1937. Þá var þannig ástatt í Þing-
vallasveit að allt fé hafði verið
skorið niður haustið áður vegna
riðuveiki og varð að byggja bú-
skapinn á nautgripum. Þessi bú-
skapartíð þeirra hjóna í Stíflisdal
var því erfiður tími, enda erfitt
með aðdrætti á vetrum. Jafnan
hvíldi þó einhver ljómi minninga
yfir þessu tímabili, því aðrir og
vaxandi erfiðleikar voru þá
framundan. Dvölin í sveitinni var
þó aðeins tvö og hálft ár, því þá
urðu þau að bregða búi þegar
Lydía veikist svo alvarlega að
henni var lengi vart hugað líf.
Vegna þessara veikinda Lydíu,
sem stóðu í mörg ár, varð að
koma yngri börnunum í fóstur en
Guðjón og eisti sonurinn Rúnar
héldu þó ávallt heimili saman.
Smátt og smátt komst Lydía til
sæmilegrar heilsu á ný og sótti
hefði orðið bráðkvaddur við heimili
sitt, aðeins 44 ára gamall. Hann
hafði farið að heiman í bfl stuttra
erinda og var á heimleið en stöðvað
bílinn skammt frá húsi sínu og
fannst þar látinn.
Snæbjörn var fæddur í Reykja-
vík og ólst upp hjá foreldrum sín-
um, Einari Snæbjörnssyni og
Magneu Sörensdóttur. Hann var
tápmikill strákur í uppvexti, tefldi
mikið og spilaði á gítar. Hann var
snotur og vel vaxinn, snyrtimenni,
en gerðist dulur og nokkur einfari
þegar hann komst á fullorðinsár.
Á unglingsárum vann hann al-
menn störf sumarmánuðina með
námi, lengst á pósthúsinu.
Snæbjörn lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskólanum og hélt
skömmu síðar til Bandaríkjanna
til frekara náms í háskólanum í
New-Paltz í New York. Hann
ílentist þar en miklu réð að hann
kynntist og kvæntist Jean Quick,
ungri stúlku sem er ættuð af þeim
slóðum. Snæbjörn og Jean bjuggu
lengi í borginni Kingston. Fyrir
nokkrum árum festu þau kaup á
húsi í litlum bæ þar skammt frá
sem heitir Leeds.
Snæbjöm starfaði við kennslu,
aðallega það skólastig sem sinnir
eldri unglingum. Hann fékkst
einnig við ýms önnur störf.
Utfór Snæbjarnar fór fram frá
þeirri kirkju sem þau hjónin
sóttu, Zion Lutheran Church, í
Athens, 16. febr. og hann var
jarðsettur í Kingston, þeim bæ
þar sem kona hans hefur unnið,
hjá Metropolitan tryggingarfélag-
inu. Þar hyggst Jean búa eftir
fráfall Snæbjarnar.
Snæbjöm var hægur maður og
fáskiptinn. Mjög kært var með
þeim hjónum. Hún syrgir mann
sinn og saknar góðs félaga.
Blessuð veri minning feðganna
Einars Snæbjörnssonar og Snæ-
bjarnar Einarssonar.
Helgi Bernódusson.
börnin sín eitt af öðru. Utan
Reykjavíkur bjuggu þau Lydía á
Vatnsleysuströnd og nokkur ár í
Grindavík, þar sem fjölskyldan
sameinaðist öll á ný. Fjölskyldan
bjó svo á ýmsum stöðum í Reykja-
vík.
Sérstaklega minnisstæðar eru
mér jólaheimsóknir til þeirra á
Hringbrautina, en einnig í lítið
hús við kirkju Oháða safnaðarins
við Laugaveg og svo í gamla ein-
býlishúsið við Hitaveitutorg 1 í
Smálöndum, þar sem þau hjónin
bjuggu þar til Guðjón lést. Síðustu
árin bjó Lydía í Austurbrún 6 og
líkaði vel.
Lydía var skarpgreind kona og
skemmtileg. Hún var mikill lestr-
arhestur alla tíð og hafði yndi af
tónlist. Því miður missti hún
heyrnina á efri árum, en stundum
fannst manni eins og hún heyrði,
vegna þess að hún las af vörum
manns. Ávallt var grunnt á glettn-
inni og ég man ekki eftir heim-
sókn til hennar öðru vísi en að
bros og glens væri til staðar, oft
þrátt fyrir mikil veikindi hennar.
Lydía var líka hlý og einlæg og
mér hlýnaði alltaf um hjartaræt-
urnar eftir að hafa komið til henn-
ar. Það var um árabil hluti af
mínu jólahaldi á aðfangadag að
heimsækja hana með einhverja
smá skreytingu og spjalla og grín-
ast.
Það eru ekki nema um fimm ár
síðan Lydía gladdist með okkur á
ættarmóti austur í Biskupstungum
og söng af hjartans lyst við undir-
spil Rúnars sonar síns gamalt upp-
áhaldslag sitt. Ég veit að ég á eftir
að sakna fárra en elskulegra sam-
verustunda með henni, en minning-
amar lifa. Ég minnist Lydíu systur
minnar, ekki sem sjúklings, heldur
sem glaðlyndrar, gáskafullrar og
greindrar konu sem gaman var
heimsækja.
Blessuð sé minning þín.
Ég votta bömum Lydíu, og öðr-
um aðstandendum, innilega hlut-
tekningu.
Sigurður R. Guðjónsson.