Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 50

Morgunblaðið - 18.03.1998, Page 50
 50 MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Bílavörubúðin jjöDRirj SILFURBÖÐIN Þessi fyrirtæki veita ölium sem greiða með VISA kreditkorti rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt FRIÐINDAKLUBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is Rafrænn afsláttur! KOLAPORTIÐ skipar orðið ákveð- inn sess í daglegu lífí Reykvíkinga, en þó aðallega um helgar þegar fólk flykkist þangað til að gera góð kaup og/eða selja ólíklegasta vaming. Inn á milli tekur portið þó stakkaskipt- um eins og eitt fímmtudagskvöld þegar haldnir voru tónleikar og tískusýning í húsnæðinu. USK Entertainment stóð fyrir fjörinu sem var sérstaklega sniðið að smekk unglinga. Hápunktur kvöldsins vora tónleikar bandaríska plötusnúðsins DJ Ace sem ku hafa getið sér gott orð sem tónlistarmað- ur heimafyrir. Aðrir sem skemmtu voru hljómsveitirnar Subterranean, Bounce Brothers, Real Flavez og Nod Ya Head Crew auk plötusnúð- anna DJ Rampage, DJ Fingerprint og D J B-Ruff. Tískusýningin var af- rakstur samvinnu nokkurra reyk- vískra tískuverslana. Pað var nokkuð breiður aldurs- hópur sem mættur var á tónleikana og ekki laust við að blaðamaður upplifði þar ákveðin menningarleg landamæri milli kynslóðanna. Drun- ur frá veggjum Kolaportsins bárust langt frá húsinu, sem hristist í takt við öflugar bylgjur bassans. Þegar inn var komið sáust fíngerðari áhrif tónlistarinnar, þar sem ungir áheyr- endur hreyfðust í takt, vel með á nótunum. Nokkrir þeirra fómuðu dýrmætum mínútum til að svara fá- einum spumingum. Davíð Þór Sævarsson Davíð er tólf ára nemandi í sjö- Morgunblaðið/Halldór DJ Ace kom frá New York og spilaði fyrir gesti Kolaportsins. unda bekk Smáraskóla í Kópavogi. Hann var í Kolaportinu ásamt nokkrum félögum sínum sem „fíl- uðu“ tónlistina í botn. „Þetta er al- veg frábært, nákvæmlega mín teg- und af tónlist. Eg fer oft á tónleika, eiginlega alltaf þegar aðgangur er ekki bannaður fyrir minn aldurs- hóp. Tónleikar eru alltaf haldnir annað slagið, á mismunandi stöðum út um allan bæ, og maður mætir bara þangað sem þeir eru í hvert sinn. Stundum eru þeir í félagsmið- stöðvum en annars í ýmsum sölum út um allt. Ég hef þó sennilega oft- ast komið á tónleika hingað í Kola- portið." Smári Valgeirsson Smári er ellefu ára töffari úr Breiðholtsskóla. „Þessi danstónlist er alveg frábær,“ segir hann. „Það eru fínir tónlistarmenn sem spila hér í kvöld. Þessir gaurar eru bestu plötusnúðar sem ég hef heyrt í og rappararnir eru ágætir líka. Wu- h;Lmt V JÓHANNA Viðarsdóttir BJÖRK Kristinsdóttir og Heiða Haraldsdóttir SMÁRI Valgeirsson DANIEL Þór Tónlist og tísk i Kolaportinu DAVIÐÞórSævarsson BJÖRK Pálsdóttir Tang og Subteraanean eru uppá- haldshljómsveitir mínar núna. Ég hef farið á eina Subterranean tón- leika áður og fýlgist vel með því sem er að gerast. Ég hef mikinn áhuga á þessari tegund tónlistar og hef jafnvel hugsað mér að byrja að spila sjálfur þegar ég verð aðeins eldri.“ Daníel Þór Daníel er sérlegur aðstoðarmað- ur Marteins hljóðmanns auk þess að vera ellefu ára nemandi í sjöunda bekk Kársnesskóla. „Ég er búinn að vera hér frá því skömmu eftir að tónleikarnir byrjuðu og þeir eru búnir að vera mjög góðir hingað til og alveg stanslaust fjör. Þótt dans- tónlist sé í mestu uppáhaldi hjá mér fínnst mér þessi tólist mjög skemmtileg. Það verður örugglega gaman að sjá tískusýninguna líka og ég hlakka bara til. Ég verð sennilega hér eins lengi og ég má, eða til ellefu í kvöld þegar húsinu verður lokað fyrir yngstu hlustend- unum.“ Björk Pálsdóttir Björk er fjórtán ára níundabekk- ingur úr Hamraskóla í Grafarvogi. „Þetta er mjög gaman“, segir hún. „Ég hef rosalega gaman af tónleik- um eins og þessum og reyni að komast eins oft og þeir eru haldnir. Tískusýningin er áhugaverð út af fyrir sig, en ég kem þó aðallega út af tónlistinni. Hún er mjög góð í kvöld og tónlistarmennirnir sem þegar hafa spilað eru frábærir. Reyndar er þessi tónlistartegund ekki í sérstöku eftirlæti hjá mér heldur ein gerð af mörgum sem ég hlusta á.“ Jóhanna Viðarsdóttir Jóhanna er vinkona Bjarkar, jafnaldra og skólafélagi. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem á tónleika í Kolaportið, þótt ég fari almennt eins mikið á tónleikla og ég get. Þetta er mjög góð hljómsveit sem er að spila núna og ég hlakka til að sjá tískusýninguna og þá sem koma á eftir. Ég held að það verði mjög gaman að sjá þessa tískusýningu, því fötin eru frá búðum sem ung- lingar versla við. Ég er mikill „hip- hop“ aðdáandi, svo tónlistin hér er mín uppáhalds tónlist. Annars hlusta ég líka mikið á R&B. Mér fínnst allt of lítið um tónleikahald með þessari mússík. Það vantar ákveðinn stað fyrir unglinga frá 14-16 ára, þar sem spiluð væri tón- list fyrir þá. Félagsmiðstöðvarnar eiga að sinna þessum aldurshópi, en það er bara svo leiðinlegt þar.“ Björk Kristinsdóttir og Heiða Haraldsdóttir Björk og Heiða „eru að verða sautján ára“ og sögðust vera óað- skiljanlegar. Þær væru hvort sem er alltaf sammála og því hægt að tala við þær sem eina manneskju. „Við kynntumst þegar við byrjuðum í Brautarholtsskóla í haust, en höf- um verið stanslaust saman síðan þá. Þetta er reyndar í fyrsta skipti sem við fijrum saman á tónleika. Þetta er búið að vera mjög gaman og hljómsveitir og plötusnúðar alveg frábær. Þetta er eftirlætis tónlistin okkar. Við erum spenntar fyrir tískusýningunni, en tónlistin er að- alatriðið. Það vantar sérstakan stað fyrir fólk frá 16 ára og upp úr, þar sem megináhersla væri lögð á tón- list.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.