Morgunblaðið - 18.03.1998, Side 56
Drögum næst
JKL happdkætti
HASKÓLA ÍSLANDS
ISLANDSFLUG
gorir fíeirum fœrt að fíjúga
570 8090
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN J, 103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Dregur úr
innflutn-
ingi á not-
uðum bflum
VERULEGA hefur dregið úr
innflutningi á notuðum fólksbílum
til landsins fyrstu tvo mánuði
þessa árs miðað við sama tíma í
fyrra. Fluttir voru inn 229 notaðir
fólksbílar í janúar og febrúar í
fyrra en 139 bílar þessa sömu tvo
mánuði þessa árs.
Fyrstu tvo mánuði ársins í fyrra
var mest flutt inn af notuðum
Chrysler bílum eða um fjórðungur
alls innflutningsins. Hlutdeild
Mercedes-Benz var þá 12,6% og
GM 10,5%.
Fyrstu tvo mánuði þessa árs
var hlutdeild Chrysler enn mest í
innflutningi notaðra bíla, 19,4%,
Mercedes-Benz 13,7% og Ford
8,6%. Af alls 139 bílum var mest
flutt inn af bílum með 3.000
rúmsentímetra vélar eða stærri.
---------------
Gefa tölvu-
vanda árið
2000 lít-
inn gaum
KÖNNUN Ríkiskaupa í stofnun-
um ríkisins á því hvernig forráða-
menn hyggjast leysa vandamál í
tölvukerfum sem upp koma vegna
ártalsins 2000 sýnir að þeir hafa
ekki gefið því nægan gaum og lagt
í litla sem enga vinnu til að ráðast
að þessum vanda. Kom þetta fram
á ráðstefnunni „2000 vandamálið"
sem haldin var í Reykjavík í gær.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Rík-
iskaupa, kynnti könnunina og kom
fram í máli hans að um 80%
stjórnenda ríkisstofnana telja að
ekki verið erfitt að leysa þennan
vanda í sinni stofnun. Þá kom
fram að einungis um 40% for-
stöðumannanna telja sig fróða um
vandamálið og spurði Júlíus í
framhaldi af því hvernig menn
gætu þá metið vandann.
Fram kom í máli manna á ráð-
stefnunni að brýnt væri að hefja
greiningu á vandanum, prófun
tækjabúnaðar og að leggja fram
áætlanir um úrlausnir.
■ Sinnuleysi/ll
j Morgunblaðið/Tryggvi Konráðsson
Olgandi brim við Arnarstapa
BRIMIÐ við Arnarstapa á Snæfellsnesi getur verið illúðiegt en kröftum sem þessum og eins gott að virða sjónarspilið fyrir sér
Iíka stórfenglegt tilsýndar. Hér skellur aldan inn í eina af þremur úr hæfilegri Qarlægð. Hætt er við að brimi um helgina, því spáð
gjám og þeytir löðrinu upp. Maðurinn má sín ekki mikils fyrir er hvössum suðlægum áttum.
Stjórnarfundur fslenska járnblendifélagsins á morgun
Afráðið að bæta við þriðja
ofninum á Grundartanga
EIGENDUR íslenska járnblendifé-
lagsins, sem rekur kísiljámverk-
smiðjuna á Grundartanga, munu á
stjórnarfundi á morgun ákveða að
ráðast skuli í stækkun verksmiðj-
unnar með því að setja upp þriðja
ofninn. Eykur það afkastagetu
verksmiðjunnar úr um 70 þúsund
tonnum í 110 þúsund tonn. Stefnt er
að gangsetningu haustið 1999.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru eigendur nú tilbúnir að
ráðast í stækkun verksmiðjunnar,
sem var í raun ákveðin í fyrra í
framhaldi af því er ríkið seldi hlut
sinn og Elkem í Noregi og
Sumitomo í Japan juku eignarhlut
sinn. Stækkunin var þá ekki tíma-
sett nákvæmlega.
Talið er að þrátt fyrir að seinkað
hafi nokkuð ákvörðun um hvort
bætt verður við þriðja ofninum sé
enn tæknilega mögulegt að koma
honum í gagnið haustið 1999 miðað
við að ákveðið verði að hefjast
handa í þessum eða næsta mánuði.
Einnig er talið ljóst að eftir
stækkun muni verksmiðjan á
Grundartanga vera ein sú hag-
kvæmasta sinnar tegundar. Þegar
hefur verið samið við Landsvirkjun
um kaup á raforku frá 1. október
1999. Engir fyrirvarar eru í þeim
samningi og er því Jámblendiverk-
smiðjunni skylt að hefja þá orku-
kaup þegar Landsvirkjun á sam-
kvæmt samningnum að vera tilbúin
að afhenda umsamda raforku.
Nærri þriggja milljarða
króna fjárfesting
Sérfræðingar Járnblendiverk-
smiðjunnar hafa unnið að tæknileg-
um útreikningum, þ.e. hönnun og
áætlanagerð um kostnað stækkun-
arinnar og fjármögnunarleiðir
ásamt sérfræðingum Elkem í Nor-
egi og Sumitomo í Japan, en fjár-
festingin er talin vera nálægt þrem-
ur milljörðum króna. Hefur þessi
vinna reynst tímafrekari en ráð var
fyrir gert, enda leitað allra leiða til
að framkvæmdin mætti verða sem
hagkvæmust, en forsendur liggja
nú fyrir og því mögulegt að taka
ákvörðun.
Á stjórnarfundinum á morgun
verða einnig kynntar niðurstöður
um afkomu fyrirtækisins á liðnu
ári.
Sjófuglar éta býsn
af sjávarfangi
ÁÆTLAÐ heildarát langvíu, stuttnefju,
lunda, álku, ritu og fýls á varptíma við ísland
er 184 þúsund tonn af sfli, 171 þúsund tonn af
loðnu, 34 þúsund tonn af Ijósátu og 52 þúsund
tonn af annarri fæðu.
Lundi étur tæp 150.000 tonn af sjávarfangi
og langvía étur næstmest, eða ríflega 100.000
tonn. Hálfdrættingar á við lunda eru síðan
stuttnefja og fýll, en álka og rita éta minna.
Af sfli hverfur langmest í lundann, en einnig
virðast langvía og fýll stórtæk.
A sama hátt eru langvía og stuttneíja þær
tegundir sem mest éta af loðnu, en át hinna
tegundanna íjögurra er talsvert minna.
Ljósáta er mest étin af stuttnefju, en þar á
eftir koma lundi, langvía og fýll.
■ Sjófuglar éta/C8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landföst spöng
við Stigahlíð
HAFÍSJAÐARINN milli íslands og
Grænlands hefur færst nær landinu
undanfama daga vegna þrálátra
vestanátta. Hann var næst landi við
Kögur rúmar 10 sjómílur frá landi,
samkvæmt upplýsingum tveggja
togara sem voru á svæðinu í gær.
Þá voru einnig fregnir af stökum
jökum á reki við mynni ísafjarðar-
djúps sem gætu reynst sjófarendum
hættulegir og í gærkvöld bárust
fregnir af því að landföst spöng væri
við Stigahlíð í mynni Isafjarðar-
djúps.
Þór Jakobsson, deildarstjóri hafís-
deildar Veðurstofu íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að spáð
væri suðlægum og vestlægum áttum
næstu daga og því væri hætt við að
hafísjaðarinn ætti eftir að færast enn
nær landinu. Hann sagði að siglinga-
leiðin væri greið en varasöm vegna
stakra jaka á reki sem sæjust illa í
myrkri og vondu skyggni og því væri
full ástæða fyrir sjófarendur að hafa
andvara á sér.
Landhelgisgæslan hefur ekki get-
að farið í ískönnunarflug síðustu
daga vegna veðurs og slæms
skyggnis, en Þór sagði að farið yrði
í ískönnunarflug strax og veður
leyfði.