Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 1
112 SÍÐUR B/C/D/E/F
STOFNAÐ 1913
80. TBL. 86. ÁKG.
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dauðarefsing
fordæmd
MANNRÉTTINDARÁÐ Sameinuðu
þjóðanna samþykkti á föstudag ályktun,
þar sem dauðarefsing er fordæmd og all-
ar aðildarþjóðir samtakanna eru beðnar
um að stöðva allar aftökur, til að undir-
búa algjört afnám þessa refsingarforms
um allan heim. Bandaríkin greiddu at-
kvæði á móti ályktuninni, eins og alræð-
isríkin Kína og íran.
Fulltrúar Ítalíu báru tillöguna fram í
samstarfi við fulltrúa 64 annarra ríkja,
sem er 18 fleiri en stóðu að hliðstæðri
ályktun í fyrra. I atkvæðagreiðsiunni í
mannréttindaráðinu, sem fulitrúar 53
ríkja eiga sæti í, féllu atkvæði þannig, að
26 greiddu atkvæði með ályktuninni en
13 á móti. 12 sátu hjá. Ályktanir Mann-
réttindaráðsins, sem hefur aðsetur í
Genf, eru ekki lagalega bindandi fyrir
aðildarríki SÞ, en eru álitnar skuldbind-
andi í pólitísku og siðferðilegu tilliti.
Papon greiði
málskostnað
MAURICE Papon, fyrrverandi ráðherra
í ríkisstjórn Frakklands, sem á fímmtu-
dag var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir
aðild að giæpum gegn mannkyninu sem
fólust í því að hjálpa til við að smala sam-
an frönskum gyðingum á stríðsárunum,
sem siðan voru sendir i dauðabúðir
þýzkra nazista, var á föstudag gert að
greiða 4,6 milljónir franka, um 54 millj-
ónir króna, í máls- og lögfræðikostnað
þeirra óopinberu aðila sem stóðu að mál-
sókninni gegn honum.
Lögmenn ættingja þeirra frönsku gyð-
inga sem urðu fórnarlömb nazista höfðu
krafizt sem svarar 146 milljóna í skaða-
bætur og vexti og til að standa straum af
öðrum útgjöldum vegna réttarhaldanna,
sem tóku hálft ár og voru þau lengstu í
sögu Frakklands.
Garðálfaþjófa
leitað í Hollandi
LÖGREGLA í hollenzku borginni
Utrecht greindi frá því á föstudag að
hún hefði hrint af stað víðtækri leit að
þjófagengi, sem hefði rænt um 100 garð-
álfum úr einkagörðum í borginni. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar eru
garðálfarnir á bilinu 10 cm til einn metri
á hæð og vega allt að 50 kg stykkið.
Engar bitastæðar vísbendingar hafa, að
sögn lögreglunnar, ennþá komið fram í
Ieitinni að hinum horfnu garðálfum, sem
eru gerðir úr steini og sementi og
íklæddir fjölbreyttum búningum. Á liðn-
um misserum hefur alloft verið tilkynnt
um garðálfaþjófnað í Hollandi, Belgíu og
Norður-Frakklandi.
Morgunblaðið/Golli
S
I snú-snú í vorblíðunni
VIÐ Melaskólann í vesturbæ Reykjavíkur nutu þessar glaðbeittu stúlkur frímínútna í vorblíðunni með því að skella sér í snú-snú.
Leiðtogafundi 25 Evrópu- og Asíuríkja lokið
Trausti lýst á efna-
hagsstyrk Asíu
Lundúnum. Reuters.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsríkjanna
fimmtán hétu því við lok leiðtogafundar ESB
og tíu Asíuríkja í Lundúnum í gær að Evrópa
myndi ekki loka sig af í viðskiptalegu tilliti og
lofuðu Asíu ennfremur stuðningi í þeim þreng-
ingum sem ríki álfunnar ættu við að etja um
þessar mundir.
Lögðu ESB-leiðtogamir áherzlu á það
traust sem þeir bæru til Asíulandanna með því
að ákveða að senda sérstakar viðskiptasendi-
nefndir þangað til að ýta undir frekari fjár-
festingu, en sögðust ætlast til þess að þessi
lönd tækju sér sjálf tak til að koma lagi á
óreiðuna í fjármálakerfi sínu.
„Það varð Ijóst að Evrópa ber traust til þess
styrks sem í efnahagi Asíuríkjanna býr og að
þau munu ná sér út úr þrengingunum," sagði
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í lok
leiðtogafundarins sem var annar svokallaði
Asíu-Evrópu-fundurinn (ASEM), sem haldinn
hefur verið. Blair lýsti því yfir að fundurinn
hefði skapað andrúmsloft náinnar samvinnu,
sem vísaði veginn inn í 21. öldina.
Chirac andmælir Clinton um Japan
Fjármálakreppan í Asíu setti mark sitt á
dagskrá fundarins. Jacques Chirac Frakk-
landsforseti lýsti því yfir við lok fundarins - í
óbeinu svari við yfirlýsingum Clintons Banda-
ríkjaforseta - að Japansstjórn ætti að fá frið
til að finna þá leið út úr efnahagsörðugleikum
Japans sem hún teldi rétta, án afskipta eða
íhlutunar annarra.
„Það er ekki hlutverk annarra að segja
Japönum fyrh- verkum um hvernig þeir eigi að
bera sig að,“ tjáði Chirac Ryutaro Hashimoto,
forsætisráðherra Japans. Þessi orð Chiracs
stinga mjög í stúf við endurnýjaðar yfirlýsing-
ar Clintons frá því á föstudag um að Japanir
verði að taka sig á til að rífa sig, og önnur As-
íuríki í leiðinni, út úr því kreppuástandi sem
nú ríkir þar eystra.
Reuters
Hindúar laugast
ÞÚSUNDIR karla og kvenna af trúflokki
hindúa í Bangladesh laugast 1 einni af
þverám Brahmaputra-fljóts við Langal-
bandh nærri höfuðborginni Dhaka í gær, í
því skyni að þvo af sér syndir sínar.
m.
Heilsubót á
landi og í sjó
■ ■
Or-
magna
og
átta-
villtir
12