Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bíddu bara, það getur farið að styttast í að þú hættir að glotta og gamli höfuðverkurinn
verði aftur rúmlægur hjá þér á kvöldin, góða.
Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 60)
Útvarp: FM/AM, 24 stööva minni
Geislaspilari: Þriggja diska
Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
Hátalarar: T vrskiptir 70w (DJN)
la 8 • Sími 533 2800
Pionecr markaÖ
Samkvæmt skoðanakönnyn Hagvangs f desember
1996 eru 26,2% heimila á Islandi meoFíoneer
hljómflutningstæki. Fjórir næst stærstu keppinautarnir
samanlagt eru minni enPfameer,
Hvað segir þetta þér um gæðiPkmeer tækja?
...vinsœldir
Pioneer hJjómtœkja
eru ótvírœðar.
N -770
Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 8£í) •
Utvarp: FM/AM, 24 stööva minni*
Geislaspilari: Tekur 26 diska •
Segulbandstæki: Tvöfalt Dolbv B •
Hátalarar: Þrískiptir 100w (DIN) •
di PIOIMEER
The Art of Entertainment
na hefur
írburði á Islandi?
ibÐ gra-juriicir
og afl foro saman
N -170
Magnari: 2x25w (RMS, 1kHz, 6U)
Utvarp: FM/AM, 30 stööva minni
Geisíaspiiari: Þrlggja diska
Segulbandstæki: Tvöfalt
Hátalarar: Tviskiptir 30w (DIN)
pouer
ÖÖ
The Art of Entertamment
Utsölustaðir: Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Vestfiröir: Geirseyrarbuðm,
Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, fsafirði. Noröurland: Kf. V-Hún, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA, Lónsbakka, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lóniö.Þórshöfn.
Suöurland: Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þoriákshöfn. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. Rafborg, Grindavík. ,
Vestnorræn æskulýðsráðstefna
Grundvöllur
fyrir samstarfí
framtíðarinnar
Páll Brynjarsson
SKULÝÐS- ráð-
stefna Vestnor-
ræna ráðsins
verður haldin í Reykjavík
10.-12. júlí í sumar. Vest-
norræna ráðið hefur haldið
ráðstefnu einu sinni áður, í
Færeyjum árið 1992. Ráðið
var stofnað árið 1985 og er
samstarfsaðih milli þjóð-
þinga aðildarlandanna
þriggja, Islands, Færeyja
og Grænlands. Formaður
Vestnorræna ráðsins er
Anders Andreassen forseti
Grænleska landsþingsins.
Formaður íslandsdeildar
Vestnorræna ráðsins er
Svavar Gestsson alþingis-
maður.
- Hvert er markmiðið
með ráðstefnunni?
„Markmiðið er auðvitað
fyrst og fremst að skapa
vettvang fyrir ungt fólk á
Vestur-Norðurlöndum til þess að
hittast og ræða sameiginleg mál-
efni. Á slíkri ráðstefnu aflar fólk
sér þekkingar um hin löndin og
við reiknum ekki síst með því að
hún renni styrkari stoðum undir
vestnorrænt samstarf í framtíð-
inni. Vestnorræna ráðið er að fara
af stað með lífsgildakönnun meðal
ungs fólks í þessum löndum sem
Félagsvísindastofnun mun sjá um
framkvæmdina á. Úrtakið verður
300 18 ára ungmenni í hverju
landanna þriggja sem spurð verða
um líðan, pólitískt lífsmynstur,
trúmál, siðferði, framtíðarsýn og
virkni og vonandi verða niðurstöð-
ur tilbúnar til kynningar þegar
ráðstefnan fer fram.“
- Hvemig miðar undirbúningi?
„Við boðuðum fulltrúa æsku-
lýðs- og ungmennafélaga á ís-
landi til fundar og skipuðum í
kjölfarið undirbúningshóp sem
hefur verið okkur innan handar. I
þessum hópi sitja fimm manns,
það er Sigvarður Ari formaður
Æskulýðssambands íslands, Sig-
rún Jónsdóttir frá Norræna fé-
laginu, Kristbjörg Kristinsdóttir
frá Kvennalista, Sigmundur Sig-
urgeirsson frá Sambandi ungra
sjálfstæðismanna og Árdís Sig-
urðardóttir frá Norræna húsinu.
Pessi hópur hefur verið okkur
mjög innan handar um gerð dag-
skrár fyrir ráðstefnuna.“
- Hvað verður á dagskrá?
„Við höfum skipt dagskránni í
femt. I fyrsta lagi verður fjallað
um vestnorrænu tungumálin ann-
ars vegar og dönskuna hins vegar
sem samskiptamálið á þessu
svæði. í öðru lagi fjöllum við um
menningu og munum meðal ann-
ars bera saman menningu land-
anna þriggja; hvað er
sameiginlegt og hvað
skilur að, skoða menn-
ingu ungu kynslóðar-
innar, hvað einkennir
hana og hvernig hún
fellur inn í þessa norrænu menn-
ingu.
I þriðja lagi ætlum við að beina
athygli að nýrri samskiptatækni
og möguleikunum sem hún býður
og fjalla um samkennd og það á
hverju samstarf þessara þjóða
byggist. í fjórða lagi verður síðan
talað um náttúru- og umhverfis-
vemd. Fluttir verða fyrirlestrar
um þessi efni og að því þúnu verð-
ur þátttakendum skipt í umræðu-
hópa. Fjórir fyrirlesaranna verða
frá íslandi, tveir frá Grænlandi
og tveir frá Færeyjum, og miðað
við að hluti þeirra verði ungir
fræðimenn."
► Páll Brynjarsson fæddist á
Sauðárkróki árið 1965. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið
1985, BA-prófi í stjórnmála-
fræði frá Háskóla íslands árið
1991 og cand. scient. pol. frá
Árósa-háskóla árið 1995. Fjall-
aði lokaritgerðin meðal annars
um norrænt samstarf. Að námi
loknu starfaði Páll sem ritari
hægrimanna í Norðurlandaráði
í tvö ár og var líka fram-
kvæmdastjóri afmælis-
ársins á Sauðárkróki. Hann
hefur verið í fullu starfi hjá
Vest-norræna ráðinu frá 1. jan-
úar síðastliðnum. Sambýlis-
kona hans er Inga Dóra Hall-
dórsdóttir háskólanemi.
Hún á eina dóttur.
- Hvað má búast við mörgum
þáttta kendum?
„Við reiknum með því að þátt-
takendur verði um 150, það er 50
frá hverju landanna þriggja en
ráðstefnan verður haldin í Odda.
Við vonumst til að fá fólk sem víð-
ast að, úr alls kyns félögum,
þannig að fjölbreytnin verði mikil
og umræðan skemmtileg. Við
göngum út frá þvi að þátttakendur
verði á aldrinum 18 til 24 eða 25
ára, fólk í menntaskóla eða að
klára háskólanám, og efumst ekki
um að þeir hafi skoðanir á flestum
hlutum og að umræðan verði frjó.“
- Hvernig hafa tengslin verið
milli ungs fólks íþessum löndum?
„Það hefur skort vettvang fyrir
unga fólkið þar. Vestnorræna
blaðið Oson, sem gefið er út í
tengslum við Norræna húsið, hef-
ur að vísu skapað ákveðin tengsl
og aukið þekkingu
yngri kynslóðarinnar á
þessum löndum. Áhug-
inn er töluverður og
við verðum mjög varir
við það í Vestnorræna
ráðinu að íþróttafélög vilji eiga
samskipti við félög í hinum lönd-
unum.“
- Hverju skilar ráðstefna á
borð viðþessa?
„Þarna kemur saman ungt fólk
frá vestnorrænu löndunum sem
hefur komið að alls kyns félags-
starfsemi í heimalandinu. Það
hittist og ræðir saman og ég held
að þetta skapi grundvöll íyrir
vestnorrænt samstarf. Við erum
fyrst og fremst að hugsa um það
að kynna okkur, tengjast þessu
unga fólki og reyna að sýna því
fram á hvað hvað það á mikið
sameiginlegt hvert með öðru.“
„Gildakönnun
ungs fólks
verður kynnt“