Morgunblaðið - 05.04.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998 27
Við prestsstarfi hér í Hallgríms-
kirkju tók ég þann 1. febrúar sl.
Hér geng ég inn í mjög mótað
kirkjustarf, hér er mikið safnaðar-
starf fyrir börn og unglinga, tón-
listarstarf er hér til mikillar fyrir-
myndar og ýmis konar listgreina-
starf sem tekur alvarlega sitt hlut-
verk, inn í þetta finnst mér spenn-
andi að ganga. Eg kem hingað með
margvislegar hugmyndir í tengsl-
um við reynslu mína ytra. Ég fór
oft í messur í sænsku kirkjunni, en
þótt margt sé þar vel gert og tals-
verð kirkjusókn þá hefur þessi
reynsla gert mig að mörgu leyti
ánægðari með íslensku kirkjuna,
mér finnst við hér ekki þurfa að
biðja afsökunar á okkar starfi. Hér
er unnið af miklum krafti og það er
duglegt fólk í kirkjustarfi á íslandi.
Alla daga vikunnar er iðandi líf í
kirkjum landsins, í gangi er barna-
starf, fullorðinsfræðsla, starf með
öldruðum og þannig mætti lengi
telja. Enn eru þó ýmsir möguleikar
ónýttir til þess að mæta fólki á for-
sendum kirkjunnar. Ég sé fyrir
mér ýmsa hluti sem gera má, kirkj-
an á mikla möguleika til starfa í
Reykjavík."
Sé fyrir mér íslenskan
götuprest
„Hið hefðbundna starf er gott og
gilt og það nær til ákveðins fjölda
fólks. En ég trúi því að kirkjan eigi
miklu meiri möguleika til að ná
með sinn boðskap út til fólks. Ég
sá t.d. í Svíþjóð götupresta, það eru
prestar sem eru í fullu starfi við að
mæta fólki á fómum vegi og svara
spurningum þess og ræða við það,
einnig sá ég svokallaða kráar-
presta, það eru prestar sem fara á
krámar á kvöldin til þess að ræða
við fólk þar og eiga samtal við það í
því umhverfi sem því líður vel og er
öruggt í. Mér finnst fyllilega kom-
inn tími til að við í Reykjavík eign-
umst götuprest sem væri í því hlut-
verki að vera úti á götu og mæta
fólki þar. Við höfum reynt að fara
út með guðsþjónustuna, t.d. í Fjöl-
skyldugarðinn og inn í Kringlu, en
það mætti gera meira af þessu.
Svona götumessur sér maður á
Norðurlöndum. Fólk hér tók þessu
vel þótt það væri kannski svolítið
feimið að koma nálægt því há-
heilaga á þessum stað. Einnig
mætti kirkjan vera í meira sam-
bandi við t.d. íþróttafélögin og jafn-
vel fyrirtæki. Ég sé fyrir mér að
hægt væri að bjóða upp á viðræður
á vinnustöðum um siðfræði og trú.
í Gautaborg er t.d. prestur starf-
andi hjá Volvo, og hjá öllum stór-
um flugvöllum. Ég var skólaprest-
ur, það er í átt við þessa starfsemi.
Nú eru starfandi fjórtán pestar í
sérþjónustu í Reykjavík, sá hópur
á vafalaust líka eftir að stækka og
þjónusta götupresta er í ætt við
þetta. Möguleikarnir eru miklir.
Sjálfur er ég svo nýkominn til
starfa í Hallgrímskirkju að ég
hugsa fyrst og fremst um starfið
þar, en sem prófastur er mér þó í
mun að horfa út til allrar borgar-
innar og reyna að sjá fyrir mér
hvað hægt er að gera til að vekja
athygli á boðskap kirkjunnar. Eg
hef flutt synoduserindi um þessi
efni í útvarp í tengslum við Presta-
stefnu. Ég heyri ekki betur en aðr-
ir prestar hafi áhuga á þessu efni
og það er ýmislegt í gerjun, það er
t.d. verið að gera tilraunir með ný
messuform, svo sem kvöldmessur."
Að lokum spm-ði blaðamaður
séra Jón Dalbú Hróbjartsson hvert
væri skemmtilegasta prestverk
sem hapn ynni.
„Þér finnst það kannski ein-
kennilegt, en skemmtilegasta
prestverkið er í mínum augum
messan sjálf,“ var svarið. Og ekki
ÍSETNINGARÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐI
Bílavörubúðin Fjöðrin selur pústkerfi,
dráttarbeisli og höggdeyfa í miklu úrvali.
Á verkstæði okkar er boðið upp á sérsmíði á
pústkerfum og ísetningu á höggdeyfum og
dráttarbeislum.
BílavörubúSin
ífararbroddi
SÉRSMÍÐAVERKSTÆÐI, GRENSÁSVEGI5, SÍMI588 2555.
er annað sýnna en góður tími sé
framimdan, því nú fara páskar í
hönd og miklar messugjörðir. Með
tilliti til staðar og tíma er við hæfi
að enda viðtal þetta á öðru erindi
úr snilldarkveðskap Hallgríms Pét-
urssonar, 6. erindi úr viðauka
Passíusálma.
Menn vaða’ í villu og svúna
veit einginn neitt um það
hveminn, á hvaða tíma,
eða hvar hann kemur að.
Einn vegur öllum greiðir
inngang í heimsins rann;
margbreyttar lízt mér leiðir
liggi þó út þaðan.
BUIÐ OG STARFIÐ
í BANDARÍKJUNUM
55.000 innflytjendoáritanir (Green Card) eru í boði í nýju
Ríkishappdrætti "U.S. Government Lottery".
Möguleiki á bandarískum ríkisborgararétti.
Opinbert happdrætli, ókeypis þáttaka.
Upplýsingor: Sendið einungis póstkort með eigin nafni og heimilisfangi til:
NflTIONflLÍSf
VISA SERVICL
01997 IMMlGRATtON SERVtCES
4200 WISCONSIN AVENUE N.W.
WASHINGTON, D.C - 20016 U.S.A.
FAX 00 1 202 298-5601 - Sírni 00 1 202 298-S600
www.nationalvisacenter.com
ORVALffl UKKAR
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
rétta tóninn í umferðinni
Fullkomiö hljómflutningskerfi með geislaspilara,
6 hátölurum og fjarstýringu i stýrinu.
Samlitir stuðarar * Álfelgur » Rafdrifnar rúður
Vökva- og veltistýri > Fjarstýrðar samlæsingar
Litað gler ♦ Þjðfavöm ♦ Tölvustýrður
oliuhæðarmælir » Öryggisbeltastrekkjarar
með dempara
komdo og
RKNSIUAXTU
mnauii mégane OPERA
- gefur
JHÁjQ£UI£. @laAAÍa
kostar frá
1.398.000 kr.
$
RENAULT
■ netfang bl@bl.is
B&L • Ármúla 13 • söludeitd 575 1220 • skiptiborð 575 1200 • fax 568 3818
- HLJ0MLEIKAH0LL A HJ0LUM
MEGANE 0PERA