Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
M.
Tjörnes-brotabeltið
Jarðskjálfti:
Nákvæm
staðsetning
ókunn
Grímsey r\
Raufarhöfn
Ölafsfjörður I
yy
Húsavík
Grenivík
Hofsós n
Skagaströná,
‘: o ' \
Sauðá'rkrókur
Blönduós
Akureyr.
50 km
Hvernig verða
jarðskjálftar?
Stórir skjálftar á íslandi verða yfírleitt
við lárétt misgengi, segir Ragnar
Stefánsson, - sniðgengishreyfíngu á
lóðréttum brotfleti.
JARÐSKJÁLFTAR verða
alltaf við einhvers konar
brotahreyfingu í jarðskorp-
unni, bergið brotnar undan
spennu.
Vegna þrýstingsástandsins
þarna niðri verða stórir skjálftar
íyrst og fremst við mismunahreyf-
ingu, eða sniðgengi, þ.e.a.s.
sprungubarmarnir færast hvor
fram með öðrum, en ekki t.d. hvor
frá öðrum, sem mundi þýða að rúm-
málið yrði að aukast. Þ.e.a.s. brotið
verður með þeim hætti sem er auð-
veldast fyrir jarðskorpuna til að
losa sig við spennu. Rúmmálsaukn-
ing eða rúmmálsrýrnun mundi
tengjast því að efni bærist inn í
sprunguna eða færi út úr henni,
sem hvort tveggja er yfirleitt miklu
hæggengara ferli en brot í jarð-
skjálfta. Slíkt tengist þó oft jarð-
skjálftum, er hluti af heildarferlinu,
eins og ég hef áður komið að í þess-
um greinum.
Stórir skjálftar á Islandi verða
yfirleitt við lárétt misgengi - snið-
gengishreyfingu á lóðréttum brot-
fleti. I skjálftum af stærðinni 7 er
líklegt að þessir brotfletir séu
^30-40 km langir, og 10 km breiðir,
þ.e.a.s. ná 10 km niður (Mynd 1).
Þetta fer þá nokkuð eftir því hvað
brotgjarna skorpan er þykk. Sjálf
spennuupphleðslan fýrir slíkan
skjálfta er frá 1-2 km dýpi og niður
á e.t.v 7-9 km dýpi, og þar verður
tiltölulega hrein misgengishreyf-
ing. Við svo stóran skjálfta má bú-
ast við að misgengishreyfingin sé
fáeinir metrar. Efsti kílómetri jarð-
skorpunnar er svo laus í sér að hún
nær ekki að hlaða upp mikilli
spennuorku. Hins vegar fylgir efsti
hluti sprunguflatarins með þegar
brot verða neðar. Þegar brotahreyf-
ingin fyrir neðan verður nógu mikii
ganga berg og laus jarðlög nálægt
, yfirborði svo mikið til og snúast að
þar koma í ljós opnar sprungur og
jarðrask. Við botn sprungunnar er
bergið orðið svo mjúkt, m.a. vegna
hita, að það heldur ekki heldur í sér
spennuorku til lengdar en færist
líka með þegar skjálftar verða.
Þama er líka oft basaltkvika, vatn
o.fl undir háþrýstingi, sem sætir
S Yfirborð
Jarðskorpa
Seigfljótandi undirstaða
Yfirborð
færis að skjótast inn í glufur sem
myndast við mismunaspennur í
berginu fyrir ofan. Vökvamir taka
líka þátt í að mynda slíkar glufur,
með „vökvasprengingum", og geta
ýtt stómm skjálftum af stað eins og
áður hefur verið vikið að.
Minni skjálftar hafa minni brot-
flöt. Brotflötur í skjálfta af stærð-
inni 6 gæti verið 5-10 km á kant og
færsla u.þ.b. metri. Það er í sjálfú
sér engin takmörk fyrir því hvað
skjálftar geta verið smáir. I SIL-
kerfinu íslenska greinum við og not-
um upplýsingar frá skjálftum þar
sem brotflöturinn gæti verið aðeins
um tugur metra.
Við landrek eða við vaxandi
þrýsting, t.d. frá kvikuinnskoti uppi
á hálendinu, skælist jarðskoi'pan
eða aflagast og spennur hlaðast upp
í henni, eins og í spenntum boga
(mynd 1). Á þessu upphleðsluskeiði
verða gjaman smáskjálftar þar sem
mest spenna hleðst upp, þar sem
veikleikar em fyrir hendi. Það verð-
ur líka oft hæg skriðhreyfing á viss-
um hlutum jarðskjálftaspmngunnar
sjálfrar, sem leysir út hluta orkunn-
ar. Við þetta slaknar lítillega á
heildarspennunni, en jafnframt
verður tiltölulega þyngra álag á
sterkasta hluta misgengisspmng-
unnar. Heiidarspennan vex hins
vegar með tímanum. Að lokum er
hún orðin of mikil fyrir styrk
sterkasta hluta bergsins á spmngu-
flötunum og spmnguhreyfingin þar
leysist út í jarðskjálfta.
Jarðskjálfti sem verður á einum
stað á langri misgengisspmngu
myndar sérstaka spennu út frá sér
sem getur ýtt undir misgengis-
spennu á öðmm stað á hinni löngu
spmngu. Dæmi um þetta er hvemig
má hugsa sér að skjálftar leysist úr
læðingi á og umhverfis 150 km
langa misgengisspmngu fyi-ir
Norðurlandi (mynd 2).
Séð að ofan
Langsnið eftir sprungunni
HÆTTUR AF VÖLDUM JARÐSKJÁLFTA - GREIN 8
MYND 1 sýnir táknrænt
spennuupphleðslu kringum
gamla sniðgengissprungu.
a) Orvar sýna mestu þrýsti- og
togspennu á svæðinu, séð frá yf-
irborði. Þær aflaga eða skæla
svæðið kringum sprunguna. Mis-
munandi eiginleikar skorpunnar
valda því að norðurhluti svæðis-
ins skælist minna kringum
sprunguna en suðurhlutinn. Á
myndinni til hiiðar er horft þvert
á sprunguflötinn. Rauði liturinn
(það sem er skyggt) táknar að
hreyfing er byrjuð á vissum hlut-
um sprunguflatarins þótt mestur
hlutinn sé enn nógu sterkur til að
standast spennuna.
b) Nú hefur orðið sniðgengis-
skjálfti á suðurhluta sprungunnar
og þar hafa hliðar brotflatarins
gengið til. Við þetta dregur úr
heildarspennu á svæðinu, en
hreyfingin á suðurhlutanum
íþyngir norðurhlutanum, og til-
töluleg aukning á spennu verður
þar. Á þversniðinu sjáum við að
sniðgengishreyfing hefur orðið á
öllum suðurhlutanum og hún
berst yfír á veikari svæði norður-
hlutans, sem þó heldur um skeið
og brotnar kannski ekki fyrr en
mörgum árum síðar.
cnaaa FLESTIR stóru jarð-
skjálftarnir fyrir Norðurlandi
hafa verið á svo kölluðu Tjörnes-
brotabelti. I heild er þetta
þvergengis- eða sniðgengisbelti,
sem tengir saman gliðnun á
nyrðra gosbeltinu og gliðnun á
Kolbeinseyjarhrygg sem gengur
til norðurs meira en hundrað km
vestar. Mest verður sniðgengis-
færslan um sprungu sem liggur
frá Tjörnesi og vestur fyrir
mynni Skagafjarðar og á henni
verða líklega stærstu skjálftarnir
þarna. Ut frá mismunandi góðum
heimildum hafa stærðir skjálfta
og lengdir brotflata í mismunandi
skjálftum verið áætlaðar eins og
sjá má í lengd kassanna á mynd-
inni. Síðan 1755 hefur verið
færsla á mcginhluta sprungunn-
ar. Þótt hreyfingin um sprung-
una leysist út með nokkuð stórum
skjálftum á stórum hluta hennar,
er ekki ólíklegt að á öðrum hlut-
um hennar leysist spenna úr læð-
ingi með minni skjálftum og
hægri skriðhreyfingu. Þetta gæti
verið tilfeliið á svæðinu beint
norður af Eyjafirði. Hugsanlegt
er að mikil mergð smáskjálfta á
þessu svæði (reyndar rúmlega 5
sumir) frá því í ársbyijun 1994
komi í veg fyrir að á þessum
hluta meginsprungunnar geti
orðið virkilega stórir skjálftar á
næstunni.
Falleg oggagnleg férmingargjöf
Fæst hjá öllum bóksölum
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
fslensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 3.990
Gagnleg og glæsiieg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Orðabókaútgáfan
Ásmundur
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða
leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og
lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Mán. og mið. kl.20.00. Hefst 6. apríl.
Hugleiðslunámskeið
Hugleiðsla er þekkt frá fornu fari sem leið til að komast í
snertingu við æðri mátt. Hún stuðlar einnig að heilsu, jafnvægi
og einbeitingu. Kennd verða undirstöðuatriði hugleiðslu.
Undirbúingur * mismunandi aðferðir
* orkustjórn (pranayama) * um mataræði
* hljóðformúlur (mantra).
Námskeiðið er sambland af fyrirlestri og upplifun.
Reynsla af jógaástundun er hjálpleg, en ekki nauðsynleg.
Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson.
Hefst 14. apríl. Þri. og fim. frá kl. 20—21.15.
Jógatímar, tækjasalur og pólunarmeðferð.
Y06A#>
STUDIO
Hátúni 6a,
sími 511 3100
verslun fyrir
líkama og sál