Morgunblaðið - 05.04.1998, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
*-----------------------
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu
ÖNNU SÆMUNDSDÓTTUR,
sem lést fimmtudaginn 26. mars sl. á um-
önnunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli, fer fram
frá Áskirkju mánudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Guðrún Margrét Guðjónsdóttir,
Kristján Kaj Garðarsson, Snjólaug Kristjánsdóttir,
Björn Leósson,
Anna J. Kristjánsdóttir,
Friðrik Kristjánsson, Kristín Ragnarsdóttir,
Kristján Brooks, Ragnar Rúnar,
Gabríel Bergmann og Anna Stella.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HALLBJÖRG TEITSDÓTTIR,
Bjarkargrund 3,
Akranesi,
er lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn
30. mars, verður jarðsungin frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 8. apríl kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir.
Helgi Jónsson,
Áslaug Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson,
Jón Helgason, Sigríður K. Valdimarsdóttir,
Sigríður Helgadóttir, Ólafur Þorsteinsson,
Helgi Teitur Helgason, Guðrún Hildur Pétursdóttir
og barnabörn.
+
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÖNNU MARÍU VALDIMARSDÓTTUR,
Landamótsseli.
Þórhallur Bragason, Helga Erlingsdóttir,
Valdimar Bragason, Rósa Þorgilsdóttir,
Benedikt Bragason, Guðrún Sigurðardóttir,
Klara Bragadóttir, Guðjón Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, amma, tengdaamma og
langamma,
HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vesturgötu 50A,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 6. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er
bent á Alzheimerfélagið.
Þórunn Gestsdóttir,
Elíza Guðmundsdóttir,
Ari Guðmundsson, Jóhanna Jóhannsdóttir,
Gestur Ben Guðmundsson, Ásthildur E. Guðmundsdóttir,
Ingi Þór Guðmundsson, Kristín I. Hákonardóttir,
Hjördís Guðmundsdóttir, Björgvin Finnsson,
1 Þórunn Hekla Ingadóttir, Viktor Ben Gestsson.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
skipamiðlari,
Eskihlíð 26,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 8. apríl kl. 13.30.
«■
Gróa Ólafsdóttir,
Þorbjörg Guðmundsdóttir, Sigtryggur R. Eyþórsson,
Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur Ágúst Þorsteinsson,
Sigríður Björg Guðmundsdóttir, Baldvin M. Guðmundsson,
barnabörn og langafabarn.
+ Sigrún Péturs-
dóttir fæddist á
Akureyri 28. ágúst
1911. Hún lést í
Reykjavík 27. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Sig-
urjóna Steinunn Jó-
hannsdóttir, f. 3. okt.
1886, d. 3. nóv. 1934,
og Pétur Gunnlaugs-
son, f. 27. okt. 1878,
d. 10. des. 1926. Þau
bjuggu í Svarfaðar-
dal. Systkini Sigrún-
ar voru: Víglundur,
f. 9. des. 1908, látinn,
Jóhann Kristinn (Svarfdæling-
ur), f. 9. febr. 1913, látinn, sr.
Trausti, f. 19. júlí 1914, látinn,
Anna, f. 17. jan. 1917, Gunnlaug-
ur Maron, f. 9. des 1919, Frið-
björg, f. 5. ágúst 1922, Steinunn,
f. 31. des. 1923, og Þóra, f. 10.
des. 1925.
Hinn 26. maí 1934 giftist Sig-
rún Agnari Guðlaugssyni, f. 9.
okt. 1903, d. 25. des 1939, full-
trúa hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
Foreldrar hans voru Guðlaugur
Pálsson og Ingilína Jónasdóttir.
Dóttir Sigrúnar og Agnars er
Unnur, f. 10. júní 1935, starfs-
maður í Seðlabanka Islands,
Elsku amma okkar er dáin eftir
þriggja mánaða erfið veikindi. Eft-
ir eigum við ljúfar minningar um
konu sem við mátum svo mikils.
Amma bjó í Helgamagrastræti 5
á Akureyri þegar við vorum börn
og hjá henni áttum við góðar
stundir. I minningunni var alitaf
sól á Akureyri. Garðurinn hennar
ömmu í Helgamagrastrætinu var
yndislegur. Hvílíkur gróður. Þarna
voru há tré sem gaman var að
klifra í, grasflöt til að leika sér á og
rólur sem héngu á snúrustaurun-
um og í garðinum hennar voru fal-
legustu blóm sem við munum eftir.
Það voru byggð hús í garðinum úr
spýtum og plasti og slegið upp
stórveislum. Amma taldi það ekki
eftir sér að skríða inn í lágreistan
kofann til að koma í kaffi. Hún
maki Óskar H.
Gunnarsson, f. 31.
okt. 1932, forstjóri
Osta- og smjörsöl-
unnar. Börn þeirra
eru 1) Gunnhildur, f.
25. okt. 1959, lektor
við Kennaraháskóla
íslands, maki dr.
Arnór Þ. Sigfússon,
fuglafræðingur á
Náttúrufræðistofn-
un íslands, börn
þeirra: Óskar Örn, f.
9. mars 1982, Ragn-
hildur Erna, f. 23.
ágúst 1986, og
Snorri Már, f. 10. mars 1993. 2)
Agnar, f. 12. maí 1963, deildar-
fulltrúi hjá Vátryggingafélagi
íslands, maki Margrét Asgeirs-
dóttir, f. 15. nóv. 1966, kennari,
börn þeirra: Gunnar Smári, f.
29. júlí 1992, og Eiríkur Orri, f.
l.júní 1996.
Eftir lát Agnars vann Sigrún
lengst af hjá Amaró á Akureyri
við saumaskap. Hún fluttist til
Reykjavíkur árið 1977 og bjó
þar til dauðadags.
Útfór Sigrúnar fer fram frá
Akureyrarkirkju á morgun,
mánudaginn 6. apríl, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
naut þess að dekra við okkur og við
nutum samvistanna.
Amma missti manninn sinn,
Agnar Guðlaugsson afa okkar, þeg-
ar hún var aðeins tuttugu og átta
ára gömul. Þá var móðir okkar að-
eins fjögurra ára. Oft höfum við
hugsað til þess hversu erfitt það
hefur verið fyrir ömmu að takast á
við lífið eftir fráfall hans. Enda
sagði hún alltaf við okkur ef við
kvörtuðum yfir einhverju að ef
heilsan væri í lagi þá væru allir
vegir færir.
Amma fluttist til Reykjavíkur
árið 1977. Það var erfitt fyrir hana
að kveðja Akureyri og byrja nýtt
líf í Reykjavík en hún var nú komin
til að vera nær fjölskyldunni sinni
og við nutum góðs af nærveru
hennar.
Hér í Reykjavík kom hún sér
upp fallegu heimili og á sumrin var
unun að sjá blómahafið fyrir utan
eldhúsgluggann hennar í Stóra-
gerðinu.
Hún naut þess að hafa eitthvað
fyrir stafni og var alltaf sívinnandi.
Það var hennar yndi, eins og hún
sagði alltaf sjálf, að geta unnið og
gert eitthvað að gagni. Hún var
alltaf með handavinnu og mörg eru
listaverkin sem við eigum eftir
hana, heklaðar gardínur, dúka og
sængurfatnað með fallegum milli-
verkum, að við tölum ekki um alla
ullarsokkana og vettlingana sem
vermt hafa hendur og fætur okkar
og barna okkar. Hjá ömmu var
stundum eins og enginn tími væii
til. Hún minnti okkur oft á hversu
mikilvægt það væri að gefa sér
tíma í hlutina og kasta ekki til
hendinni. Hún kunni að njóta
augnabliksins og fannst allir alltaf
vera að flýta sér. Hún fylgdist vel
með, hlustaði mikið á útvarp, var
víðlesin og naut þess að hafa fólk í
kringum sig. Ofáar eru stundir
okkar með henni í eldhúskróknum
í Stóragerðinu þar sem við drukk-
um kaffi og ræddum allt milli him-
ins og jarðar við kertaljós. Amma
gat kallað fram stórveislu á svip-
stundu, sérstaklega ef hún átti
rjóma. Það var alltaf gestkvæmt í
Stóragerðinu enda var hún höfð-
ingi heim að sækja.
Börnin okkar nutu þess að koma
til hennar og hún gleymdi stund og
stað þegar þau vora nálægt. Hugur
hennar var alltaf hjá þeim og hún
fylgdist vel með öllu sem þau tóku
sér fyrir hendur. Hún naut þess að
stjana við þau og hélt með þeim
litlu jólin og afmælisboð fyrir
dúkkur þar sem bornar voru fram
góðar veitingar og drukkið úr litl-
um kaffibpllum og auðvitað við
kertaljós. I þriðju skúffu í eldhús-
inu náðu þau sér í suðusúkkulaði-
bita rétt eins og við systkinin gerð-
um í Helgamagrastrætinu forðum.
Við kveðjum ömmu okkar með sár-
um söknuði en þakklæti fyrir að
hafa fengið að njóta samvista við
hana svo lengi.
Guð blessi minningu hennar.
Gunnhildur og Agnar.
Mig langar að kveðja hana Sig-
rúnu með nokkrum orðum. Það eru
bráðum 12 ár síðan ég kynntist
henni og síðan þá hefur hún skipað
afar stóran sess í mínu lífi. Þegar
ég fór að vera með Agnari, dóttur-
syni hennar, fann ég fljótt hvað
samband þeirra var náið. Hún tók
mér ákaflega vel strax í byrjun og
mér líkaði afstaða hennar til lífsins.
Hún var alltaf mjög blátt áfram í
tali og talaði aldrei í kringum hlut-
ina.
Fjölskyldan var henni allt og
flutti hún suður á sínum tíma til að
geta verið nálægt sínum nánustu.
Þetta fann ég líka þegar við eign-
uðumst Gunnar Smára og síðar Ei-
rík Orra. Myndirnar sem við gáf-
um henni, þar sem hún heldur á
þeim nokkurra vikna gömlum, bera
þess glöggt merki hvað henni þótti
vænt um þessi litlu kríli. Það var
alltaf gott að koma í Stóragerðið. A
sumrin gengum við oft úr Kópa-
voginum yfir til langömmu og var
þá jafnvel breitt úr teppi á grasinu
og þar lék Eiríkur sér meðan
Gunnar skottaðist í kringum okk-
ur. Hún var alltaf jafn glöð að sjá
okkur og hafði ætíð á orði hvað við
væram nú hress og dugleg að
ganga alla þessa leið! Eitt var það
sem gerði heimsóknir til hennar af-
ar spennandi í augum barnanna og
það var súkkulaðiskúffan! Eftir að
hún hafði verið uppgötvuð, fyrir til-
stuðlan pabbans sem gjörþekkti
skúffuna að sjálfsögðu, var stefnan
alltaf tekin á skúffuna og beðið þar
til langamma kom og deildi út dá-
semdunum. Oftar en ekki vora það
miklir súkkulaðimunnar sem
kvöddu hana með kossi í lok heim-
sókna. Synir mínir hafa mikið
misst en margs að minnast.
Mér þótti mjög gott að tala við
Sigrúnu. Hún kunni að hlusta ef
+
Ástkær faðir minn,
GÍSLI MAGNÚSSON
Brekku,
Hvalfjarðarströnd
lést (Sjúkrahúsi Akraness 2. apríl.
Kristfn Bass.
+
Bróðir okkar,
HALLDÓR JÓHANN JÓNSSON
fyrrverandi bóndi
á Víðivöllum og
Stað í Steingrímsfirði,
Breiðagerði 10,
Reykajvfk,
lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 2. apríl.
Katrín, Svanborg og Laufey Jónsdætur.
+
Ástkær bróðir okkar og mágur,
GRÍMUR JÓNSSON
stýrimaður,
sem andaðist sunnudaginn 29. mars sl.,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn
7. apríl kl. 13.30.
Högni Jónsson, Árný Guðmundsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir, Sigurjón Stefánsson.
SIGRUN
PÉTURSDÓTTIR