Morgunblaðið - 05.04.1998, Page 54
54 SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
STEVE McQueen, Richard Attenborough
og Gordon Jackson í The Great Escape.
jOHNSWflSj^s.
JOHN STURGES
ÞEGAR framleiðanda vantaði ör-
uggan leikstjóra til að stýra vestra
eða átakamynd á sjötta, sjöunda
og áttunda áratugnum, var ekki
ósjaldan kallað á John Sturges
sem á fjölmargar firnagóðar
myndir frá þessum tíma og nokkr-
ar framúrskarandi.
Fleiri þekkja nöfn myndanna en
leikstjórans, það fór aldrei mikið
fyrir Sturges sem var hæglátur
fagmaður og vann sín störf fjarri
forsíðum glanstímaritanna. Ef
þeir eru á annað borð ekki lag-
lausir og kunna að telja upp að
^rjö, þá trúi ég því að hver og einn
einasti kvikmyndahúsagestur af
minni kynslóð geti enn í dag talið
velflesta, ef ekki alla kappana sem
léku Sjö hetjurog raulað þemað
hans Bernsteins. Hún var ein af
myndum sjöunda áratugarins, líkt
og Flóttinn mikli með Steve
McQueen á mótorhjólinu í einu
frægasta spennumyndaratriði
aUra tímíi
John Sturges (1911-1992) hóf
störf sem klippari hjá RKO á
fjórða áratugnum og jók við kunn-
áttu sína á árum síðari heimsstyrj-
aldarinnar, leikstýrði í herþjón-
ustunni nokkrum, frægum heim-
ildarmyndum, m.a. Thunderbolt,
með aðstoð Williams Wyler.
Hollywood beið hans við stríðslok,
hann fór beint til Columbia, þar
sem hann stýrði B-myndum um
sinn. Þá þegar kom í ljós einstök
hæfni hans í vestragerð því besta
mynd hans frá þessum tíma er
The Walking Hills (‘49), með klass-
ískum vestraleikurum eins og
Randolph Scott, Edgar Buchanan,
John Ireland og Arthur Kennedy.
Öflugur leikhópur var æ síðan eitt
af vörumerkjum leikstjórans.
Um miðja öldina lá leiðin frá
Columbia í A-myndagerð MGM.
Þar þurftu menn ekki að bíða
lengi eftir fyrsta meistaraverkinu,
Bad Day at Black Rock (‘55). Nú
komu ofurvestrar á færibandi.
The Gunfíght at the O.K. Corral
(‘57), sögufræg mynd um sögu-
fræga vini og byssubófa - Wyatt
Earp (Burt Lancaster) og lækninn
berklaveika, Doc Holliday (Kirk
Douglas). Það er því miður erfitt
að verða sér úti um þessa
ómissandi mynd, en öllum hollt að
bera hana saman við vestraglans-
myndir samtímans, eins og Wyatt
Earp (‘94) eftir Lawrence Kasdan.
Last Train From Gun HiII með
Kirk Douglas og Anthony Quinn,
kom ‘59, hin klassíska Sjö hetjur -
The Magnifícent Seven ‘61, og hin
gamansama Sergeants 3 (‘62),
frægasta og skemmtilegasta mynd
„The Rat Pack“, gengisins fræga
með Frank Sinatra, Dean Martin,
Sammy Davis Jr. og Peter Law-
ford. Inn á milli kom kvikmynd-
gerð hinnar frægu bókar Hem-
ingways, Gamli maðurinn og hafíð
(‘58), sem fékk góða dóma, ekki
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Símbréf: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Auglýsingatexta og fullunnum
auglýsingum, sem eiga að birtast á skírdag,
fimmtudaginn 9. apríl, þarf að skila fyrir
kl. 16.00 þriðjudaginn 7. apríl nk.
Atvinnu-, rað- og smáauglýsingar
SPENCER Tracy, Robert Ryan, Walter Brennan, Lee Marvin
og Dean Jagger í Bad Day at Black Rock.
síst Spencer Tracy í titilhlutverk-
inu.
Ein langbesta spennumynd sem
gerð hefur verið, Flóttinn mikli -
The Great Escape, kom 1964. Enn
einn stórvestrinn, fyndnasta og
vinsælasta mynd leikstjórans, The
Halelujah Trail, var frumsýnd ‘67,
með urmul stórleikara og sjálfan
Burt Lancaster í broddi fylkingar.
Hour of the Gun (‘68), var firna-
góður vestri, framhald skotbar-
dagans við O.K. réttina, með
James Garner og Jason Robards.
Nokkrar stórmyndir fylgdu í kjöl-
farið, vestrar með Eastwood og
Wayne, en lokamyndin var kvik-
myndgerð metsölubókarinnar
Örninn er sestur (‘76), stjömum
prýdd og spennandi.
PLAKAT ur „The Magnificent
8even“.
Sígild myndbönd
BAD DAY AT BLACK ROCK
irkirk
Nútímalegur, sígildur vestri, sem
gerist á sólarhring í litlum námubæ.
Hann hefst á því að einhentur far-
þegi (Spencer Tracy) yfirgefur þar
lestina. Hér kynnumst við fyrst þem-
anu um „synduga bæinn“, sem átti
eftir að verða síðar alkunn klisja.
Bæjarbúum stendur ógn af honum,
hann á eitthvað inni hjá þessu litla
og lokaða samfélagi. Hér fléttast
saman dramatík og átök í einstak-
lega vel skrifaðri og leikstýrðri
mynd með úrvalsleikurum í öllum
hlutverkum. Auk Tracy koma við
sögu Robert Ryan, Dean Jagger, Er-
nest Borgnine (eftirminnilega góð-
ur), Lee Marvin, Walter Brennan og
John Ericson. Tónlist og stórfengleg
kvikmyndataka sitja einnig eftir í
minningunni. Myndin er í alla staði
úrvalsdæmi um frábæra kvikmynda-
gerð. Skynsamleg, nokkuð orðmörg,
en engu að síður spennuþrungin
skemmtun eins og hún gerist best.
SJÖ HETJUR - THE
MAGNIFICENT SEVEN (1960)
Einn magnaðasti og fegursti
vestri fyrir auga og eyru, og ein af
þeim myndum sem gaf sjöunda ára-
tugnum tóninn, er byggð á meistara-
verki Akira Kurosawa, Sjö samúræj-
ar (‘54). Atburðarásin er flutt í villta
vestrið. Fátækir íbúar smábæjar í
Mexíkó eru mergsognir reglulega af
bófaflokki undir stjóm Eli Wallach.
Bæjarbúar ráða skyttuna Yul
Brynner til að verja eigur sínar.
Hann safnar liði byssubófa sem
bjarga heiðri smælingjanna. Þvílíkt
og annað eins gengi hefur ekki sést á
hvíta tjaldinu og dráparamir hans
Yul Brynner. Þeir voru Steve McQu-
een, Charles Bronson og James
Coburn (í sínum fyrstu, bitastæðu
hlutverkum), Robert Vaugh og Brad
Dexter. Sá sjöundi var svo spor-
göngumaðurinn Horst Buchholz.
Það hefur heldur aldrei heyrst önnur
eins tónlist í nokki-um vestra og hinir
hrífandi og minnisstæðu tónleikar
Elmers Bernstein. Þeir eiga ríkan
þátt í að skapa það rafmagnaða og
heillandi andrúmsloft sem ríkir út
myndina og þemað sjálft er gullfal-
legt og ógleymanlegt. Ef maður
heyrir það óskar maður þess eins að
vera aftur orðinn bergnuminn, blá-
eygður bíógestur í gamla, góða
Tónabíó. Myndin er (a.m.k. í minn-
ingunni) hreinir töfrar.
FLÓTTINN MIKLI -
THE GREAT ESCAPE (1963)
kirkk
Tímamótamynd í spennumynda-
gerð. Hópur fanga í Þýskalandi síð-
ari heimsstyrjaldarinnar leggur á
ráðin um að komast út í frelsið, og
tekst hið ómögulega í annai-ri til-
raun. Sturges byrjar á að kynna til
sögunnar mislita hjörð fanganna,
undantekningarlaust leikna af hár-
réttum skapgerðarleikurum. Steve
McQueen leikur Kanann ódrepandi,
James Garner, Charles Bronson og
James Cobum þrjá sauðþráa landa
hans. Fyrir bresku fóngunum fer
Richard Attenborough, af sínum
kunna skörungsskap. Þetta er löng
mynd en heldur alltaf spennu í loft-
inu. Frábær kvikmyndataka gerir
hana að veislu fyrir augað og tónlist
Elmers Bemstein er bæði stórfeng-
leg og viðeigandi. Yfir öllu vakir St-
urges, heldur fast um alla enda og
útkoman sígild afþreying í hæsta
gæðaflokki.
Sæbjörn Valdimarsson
112 Reykjavík
Bíldshöfða 14
Fyrsta sendingin af pallhús-
um frá Starcraft kemur I maí.
Getum boðið mikið úrval fyrir
allbílaeigendur af einum
insælustu pallhúsum frá USA.
insamlegast staðfestið
pantanir hið fyrsta.
. IÓNSSON ehf
S. 587 6644