Morgunblaðið - 16.04.1998, Page 6

Morgunblaðið - 16.04.1998, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NEMENDUR Mýrarhúsaskdla stóðu fyrir utan skdlann og veifuðu ís- lenskum fánum þegar forsetahjdnin bar að garði. Morgunblaðið/Ásdís FORSETAHJÓNIN skoðuðu hannyrðir, spjölluðu við fdlkið og þáðu kaffí og með því hjá eldri borgurum við Skólabraut. Seltirningar tóku vel á móti gömlum grönnum HÆ, FORSETI, gall við hjá ung- um leikskólapilti á Mánabrekku á Seltjarnarnesi, þegar forseta- hjdnin og fylgdarlið þeirra gengu inn á deildina hans. Það var að vísu Jdn Hákon Magnús- son, forseti bæjarstjórnar, sem ávarpaður var með þessum orð- um en hann leiðrétti umsvifa- laust misskilninginn og vísaði drengnum til forseta lýðveldis- ins, Olafs Ragnars Grímssonar, sem heilsaði honum með virkt- um. Ólafur Ragnar og eiginkona hans, Guðrún Katrín Þorbergs- dóttir, tóku daginn snemma og voru mætt á Eiðistorg klukkan níu, þar sem þau drukku morg- unkaffí í boði bæjarstjórnar ásamt hópi Seltirninga, sem komnir voru til að heilsa upp á forsetahjónin og granna sína til margra ára. Þau bjuggu sem kunnugt er á Seltjarnamesinu um árabil áður en þau fluttu á Bessastaði á Álftanesi og Guðrún Katrín sat í bæjarstjórn Selljarn- arness í fjögur kjörtímabil. Líka afmæli í október! Af Eiðistorginu lá leiðin á leik- skólana Sólbrekku og Mána- brekku, sem standa hlið við hlið á Suðurströnd. Þar gengu þau milli deilda, spjölluðu við börain og fylgdust með líflegri listsköp- un þeirra. Þegar þau gengu út hélt forsetinn á stafla af myndum sem börnin höfðu teiknað og gef- ið honum. Ekki varð sönglistin heldur útundan, því börnin sungu m.a. um lóuna sem er komin og krumma sem svaf í klettagjá. Á leikskólunum voru þónokkur börn með litskrúðugar kórónur á höfði, en þau áttu afmæli í gær. Þegar forsetinn hafði orð á því hve skemmtileg tilviljun það væri að svo mörg börn á Nesinu ættu afmæli á þessum merkisdegi, heyrðist hvell rödd utan úr sal: „Það verður nú líka afmæli í október!" Ný heimasíða Mýrarhúsaskóla Fyrir utan Mýrarhúsaskóla stóðu allir nemendur skólans með íslenska fána og fögnuðu forsetahjónunum þegar þau bar að garði. Þar gengu þau um, litu inn í kennslustofurnar og frædd- ust um skólastarfíð, auk þess sem forsetinn opnaði formlega nýja heimasíðu skólans. I stuttu ávarpi sagði Ólafur Ragnar að sér þætti gaman að sjá hve vel hefði tekist til við uppbyggingu skólanna á Selljarnaraesi og sagði að þó að einungis væru lið- in tæp tvö ár siðan þau fluttu þaðan hefði ýmislegt breyst á þeim tíma. Frá Mýrarhúsaskóla var haldið í Valhúsaskóla, þar sem forseta- hjónunum var vel tekið sem fyrr og að þeirri heimsókn lokinni bauð bæjarstjórn til hádegisverð- ar í Nesi. Þar voru ennfremur skoðuð Lyfjafræðisafn og Nes- stofusafn. „ Morgunblaðið/Kristinn BÖRNIN í Eikarlundi á Ieikskdlanum Sdlbrekku sátu í hring og voru að mála mynd af heljarstdru tré þegar forsetahjdnin litu þar inn í gær- morgun. Drengirnir tveir sem hér sjást útskýrðu sinn hluta myndar- innar fyrir Guðrúnu Katrínu. Eftir hádegið var haldið í heimsókn í ný húsakynni björg- unarsveitarinnar Alberts í Bakkavör, í Bókasafn Seltjaraar- ness og í Tónlistarskólann, þar sem nemendur léku á hljóðfæri til heiðurs gestunum. Þá voru eldri borgarar í íbúðum við Skólabraut sóttir heim og kaffiveitingar þegnar og loks skoðuðu forseta- hjónin myndlistarsýningu í Sel- tjarnaraeskirkju, þar sem sókn- arpresturinn, séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, flutti ávarp. Hinni opinberu heimsókn lauk svo með kvöldkaffi bæjarbúa með forsetahjónunum í Félags- heimili Seltjaraaraess, en þar söng Selkórinn, hjónin Guðný Guðmundsdóttir fíðluleikari og Gunnar Kvaran, sellóleikari og bæjarlistamaður Seltjaraarness 1997, fluttu íslenskt tónverk og hljómsveit Tónlistarskólans lék. Húmanistar bjóða fram í borginni HÚMANISTAFLOKKURINN ætlar að bjóða fram lista í borgar- stjómarkosningunum í vor undir kjörorðinu „Hingað og ekki lengra - við viljum mennska borg“. I fréttatilkynningu segir að Húmanistaflokkurinn, sem áður hafi verið nefndur Flokkur manns- ins, hafi boðið fyrst fram árið 1984. Flokkurinn hafi tvisvar tekið þátt í alþingiskosningum og tvisvar í borgarstjómarkosningum, auk þess að hafa beitt sér fyrir fram- boði gegn sitjandi forseta árið 1989. Meðal stefnumála flokksins í kosningunum má nefna ókeypis heilbrigðisþjónustu fyrir alla og eru tannlækningar ekki undan- skildar, ókeypis menntun á öllum skólastigum, þar með töldum leik- skólum, allir borgarbúar 16 ára og eldri hafi kosningarétt og komið verði á beinum atkvæðagreiðslum um einstök mikilvæg málefni og borgin sjái til þess að á hverjum tíma sé nægilegur fjöldi leiguíbúða með niðurgreiddri leigu fyrir tekjulága og þá sem ekki hafa í önnur hús að venda. Átta efstu sætin á framboðslista Húmanistaflokksins eru þannig skipuð: 1. Methúsalem Þórisson, ráðgjafi, 2. Sigmar B. Hilmarsson, atvinnulaus, 3. Jón Kjartansson frá Pálmholti, formaður Leigjenda- samtakanna, 4. Jón Tryggvi Sveinsson, háskólanemi, 5. Mar- grét Hansen, nemi, 6. Júlíus Valdi- marsson, verkefnastjóri, 7. Sigrún Reynisdóttir, rithöfundur, 8. Þor- geir Óðinsson, graffitilistamaður. Morgunblaðið/Ásdís FRÁ kynningarfundi Húmanistaflokksins í gær, efstu menn Iistans kynna helstu baráttumálin fyrir kosningarnar í vor. Afríku- heimsókn biskups Islands BISKUP íslands, herra Karl Sigur- bjömsson, heimsækir nú tvö Afríku- lönd, Eþíópíu og Kenýa, til að kynna sér starf Sambands íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) og Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Með í för verður Jónas Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, en hann var kristniboði í Eþíópíu í rúman áratug og þekkir vel til allra aðstæðna þar. „Þetta er fyrsta vísitasía biskups og jafnframt í fyrsta sinn sem bisk- up Islands vísiterar dótturkirkjur okkar í þessum löndum. í áratugi hafa íslenskir kristniboðar starfað í Afríku á vegum SÍK eða frá árinu 1953 er starfið hófst í Eþíópíu og kristniboðsstöð var reist í Konsó. Nú starfa sjö íslenskir kristniboðar í Eþíópíu og tveir í Kenýa. I heimsókn sinni mun biskup Is- lands kynnast af eigin raun hjálpar- starfi á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar sem þar er unnið í sam- starfi við innlenda aðila. Þá mun hann predika í Addis, í Konsó og Kenýa og taka þar þátt í skírnarat- höfn á kristniboðsakrinum. Þessi för er til áréttingar þeirri stefnu sem biskup Islands hefur markað að þjóðkirkjan beiti sér enn meir að kristniboði, hjálparstarfi og líknarþjónustu. Verði það ríkari þáttur í lífi og starfi safnaðanna hér á landi. Biskup kemur aftur til landsins 2. maí, segir í fréttatilkynn- ingu frá Biskupsstofu. ------------- Náttúruverndar- samtök íslands Akvörðun um- hverfisráð- herra ófarsæl NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK íslands segja að ákvörðun umhverf- isráðherra um að leyfa lagningu Búrfellslínu 3A á svonefndri 01- kelduhálsleið sé mjög ófarsæl. Hilm- ar Malmquist, sem er í stjórn sam- takanna, segir að með ákvörðun sinni ómerki umhverfisráðherra úr- skurð skipulagsstjóra sem byggi á mjög faglegum forsendum. Hilmar segir augljóst að umhverf- isráðherra hafí ekki hugað að rökum skipulagsstjóra. „Úrskurður skipu- lagsstjóra byggist annars vegar á því að Landsvirkjun hafi brotið reglugerðarákvæði sem snýst um að kynna fleiri kosti en einn og hins vegar að það hafi skort nægilega ít- arlega náttúrufarslega úttekt á þeirri leið sem þeir eru byrjaðir á. Samtökin hafa bent á það að ákvörð- un um línustæðið er tekin fyrir rúm- um sjö árum. Á þeim tíma var um- fjöllun um umhverfismál ekki komin af stað eins og hún hefur þróast síð- an. Málið fékk ekki þá umfjöllun sem krafist er í dag samkvæmt lög- um. Þó svo að Landsvirkjun hafí leyfi iðnaðarráðherra til að leggja 220 kV línu teljum við að fyrirtækið þurfi að hugsa meira um umhverf- ið,“ segir Hilmar Malmquist. Hann segir að samtökin hafi bent á svokallaða Ölfusleið sem Lands- virkjun hafi í upphafi viljað fara. „Einnig bendum við á að það þarf að leggja aðra 400 kV línu, ein dugir ekki. Það kemur fram í svari Lands- virkjunar við fyrh-spurn frá samtök- unum. Spurningin er hvar hún eigi að vera. Vilji Hvergerðingar ekki fá línu fyrir sunnan sig á þá að leggja aðra 400 kV línu eftir Ólfusleiðinni? Málið er þvi greinilega opið ennþá. Ég hef grun um að til standi að næsta h'na verði lögð sunnan Hvera- gerðis. Þess vegna spyr maður sig hvers vegna þessi lína, sem nú hefúr verið tekin ákvörðun um, geti ekki verið þar einnig," segir Hilmar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.