Morgunblaðið - 16.04.1998, Page 40
MORGUNB LAÐIÐ
40 FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1998
AÐSENDAR GREINAR
Nýtt félag - nýtt
afl - nýtt nafn
Á UNDANFÖRNUM
mánuðum hafa staðið
yfír viðræður um sam-
einingu nokkurra stétt-
arfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu þ.e. Starfs-
mannafélagsins Sókn-
ar, Dagsbrúnar-Fram-
sóknar stéttarfélags og
Félags starfsfólks í
veitingahúsum.
~y Viðræðurnar hafa nú
leitt til þess að félags-
menn allra félaganna
eru að greiða atkvæði
um sameiningarmálin
þessa dagana. Margar
ástæður liggja að baki
slíkri ákvörðun og vel
ígrunduð afstaða
stjórna félaganna liggur að baki
þessum undirbúningi. Pegar sömu
félög ákváðu að sameina lífeyris-
sjóði félaganna þótti það merkilegt
skref og fæstir trúðu fyrirfrarn að
svo vel færi sem raun er á.
Samstaða þessara félaga á þar
drjúgan þátt í farsælli niðurstöðu.
Þá þegar veltum við því fyrir okkur
'• hvort við ættum ekki einnig samleið
félagslega. Umræða um slíkt Iá
niðri um tíma m.a. vegna mikillar
vinnu við undirbúning og gerð síð-
ustu kjarasamninga sem tók lengri
tíma vegna nýrra laga um stéttarfé-
lög og vinnudeilur.
Síðla árs 1997 tók stjórn Sóknar
ákvörðun um að fara í formlegar
viðræður um sameiningarmál við
Dagsbrún-Framsókn stéttarfélag
og hófust þær viðræður í desember
sl. eftir óformlegan undirbúning. Á
etrarmánuðum hafa síðan átt sér
stað viðræður milli félaganna um
stofnun nýs stéttarfélags sem geti
orðið annað stærsta stéttarfélagið á
landinu ef af verður. Eftir að hafa
haldið félags- og trúnaðarráðsfundi
um sameininguna hefur verið
ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu
um sameininguna og stendur hún
nú yfír.
Sú spuming hefur komið fram í
aðdraganda þessa máls hvort fé-
lagsmenn eigi samleið í einu stóru
félagi þar sem starfssviðin séu svo
mörg og ólík. Því hefur verið svarað
á þann veg að í mörgum starfs-
greinum liggi störfín saman. Má þar
nefna að starfsmenn í eldhúsum og í
. , ræstingu má finna í Sókn, Fram-
sókn og FSV. Munurinn er ein-
göngu sá að sumir eru að elda fyrir
sjúklinga, aðrir fyrir starfsfólk og
ferðamenn. Sama á við um ræsting-
arstörfin. Því má segja
að þessum starfsgrein-
um hafí verið sundrað
og kominn sé tími til að
sameina þá sem vinni
sambærileg störf. En
vitanlega verður starfs-
greinafjöldinn meiri en
nú þegar margir og
mismunandi kjara-
samningar eru til og
mun svo verða áfram
enda er verið að semja
við marga atvinnurek-
endur sem fara ekki
endilega sömu leið í
kjaraviðræðum frekar
en stéttarfélögin sjálf.
Þá mun verða fjölg-
un á vinnustaðasamn-
ingum á næstu árum, nýrri leið sem
hefur verið mikið hampað. Sú leið
verður íslensku verkafólki erfið
nema hægt sé að efla verulega trún:
aðarmannakerfi stéttarfélaganna. í
siðustu kjarasamningum tókst sem
betur fer að semja um viðbótar viku
í fræðslu fyrir trúnaðarmenn. Mörg
félög hafa farið af stað með fræðslu
um vinnustaðasamninga meðal
í mörgum
starfsgreinum, segir
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir,
liggja störfin saman.
sinna trúnaðarmanna. Stórt stéttar-
félag mun geta staðið mun betur við
bakið á sínum trúnaðarmönnum og
aukið fræðslu þeiiTa og þjálfun
verulega. Nýtt öflugt félag er svar
okkar við kröfum framtíðarinnar
um öflugra og nútímalegra starf
fyrir féiagsmenn.
Nýtt afl - til hvers?
Ef meirihluti verður fyrir sam-
einingu þarf strax að setja saman
skipurit fyrir nýtt stéttarfélag sem
mun í framtíðinni geta betur staðið
að ýmsum málum fyrir félagsmenn
sína. Má þar helst nefna: Stærra fé-
lag - öflugra félag.
Stærra félag getur mætt viðsemj-
endum af meiri styrk en áður.
Stærra félag verður einnig sterkara
innan verkalýðshreyfmgarinnar.
Allir sjóðir nýs félags eflast við
sameiningu. Má þar nefna sjúkra-
sjóð, orlofssjóð, verkfallssjóð og
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir
fræðslusjóð. Sterkari sjóðir efla
möguleika fólks bæði til réttinda og
til sterkari baráttu.
Öll vinna að starfs- og símenntun
getur orðið mun öflugri og mark-
vissari með sameiginlegum fræðslu-
sjóði félaganna. I nútímasamfélagi
þarf öflugri starfs- og endurmennt-
un þar sem flestir skipta um störf
mun oftar á ævinni en áður var. Þá
krefst vinnumarkaðurinn sveigjan-
legi’a vinnuafls sem þarf staðgóða
símenntun til að geta tekist á við ör-
ar breytingar bæði í tækni og gæða-
málum.
Stéttarfélag af þessari stærð
verður að vera deildarskipt en af
því hefur Starfsmannafélagið Sókn
talsverða reynslu þar sem félagið
hefur verið deildarskipt í nokkur ár
og hefur það gefíð góða raun sér-
staklega þegar verið er að undirbúa
samningagerð. Þá er boðað til funda
í hverri deild - starfsgrein sem þá
fjallar um sín innri mál og leggur
fram tillögur að gerð kjarasamn-
inga. Síðan eru félagsfundir sameig-
inlegir fyrir alla félagsmenn þar
sem lokaákvarðanir eru samþykkt-
ar. Ef vel tekst til við deildarskipt-
ingu mun hún þýða virkara félags-
starf og aukið sjálfstæði tiltekinna
starfsgreinadeilda eftir virkni og
dugnaði þein-a sem stjórna þeim.
Nýtt nafn - ný framtíð
Ef félagsmenn ákveða að hefja
sameiningarferil mun fara af stað
atburðarás sem kallar á mikla vinnu
við samræmingu á lögum, reglum
og skipulagi nýs félags. Eitt af því
sem þá mun gerast er að kosið verð-
ur um nýtt nafn á haustmánuðum
fyrir hið fyrirhugaða félag. Félag af
þessari stærð mun geta nýtt starfs-
mannahópinn mun markvissar og
einnig geta ráðið til sín þá sérfræð-
inga sem mest er dagleg þörf fyrir
en þar ber fyrst að nefna lögfræði-
og félagsfræðiþáttinn.
Við einkavæðingarframkvæmdir
og tilflutning verkefna milli ríkis og
sveitarfélaga á síðustu árum hefur
berlega komið í ljós að verkalýðs-
hreyfíngin hefur ekki verið nægjan-
lega undir þær breytingar búin og
þar af leiðandi oft tekist á um
hvernig starfsmannahópar ættu að
skiptast í félög.
I framtíðinni mun verða æ meira
tekist á um tilvist verkalýðshreyf-
ingarinnar sem leiðir af sér að stór
og sterk félög munu eiga auðveld-
ara með að standa af sér þær hrær-
ingar. Nýtt sameinað stéttarfélag
mun geta staðið betur vörð um fé-
lagsleg og kjaraleg réttindi félags-
manna sinna auk þess að byggja
upp öflugt félagsstarf félagsmönn-
unum til góðs, bæði á sviði starfs-
menntunar og félagslegra réttinda.
Höfundur er fornmður Sóknar i
Reykjavík.
éara
Bankastræti 8, sími 551 3140.
Sendum í póstkröfu.
*Meðan birgðir endast.
Vorsprengja
í versluninni Söru
lliniqul
Allt þetta fylgir kaupum
fyrir 3.500 kr. eða meira
Gjöfin inniheldur:
Rinse-Off Foaming Cleanser 30 ml.
Freyðandi farðahreinsir.
Clarifying Lotion 2 60 ml.
Andlitsvatn.
rlly Different Moisturizing
ml. Rakakrem
á Clinique snyrtivörum
dagana 15.-18. apríl.*
Superbalanced Makeup 15 ml.
Andlitsfarði nr. 05
Lip-shaping Pencil 8 gr.
Varalitablýantur, Perfect amber, 08.
Long Last Soft Shine Lipstick 4 gr.
Varalitur, Creamy nude, 03.
Glosswear SPF 82,8 gr.
Varagloss, Honey bee, 01.
Varalitabursti.
Varalitahulstur.
Urskurður
ráðuneytis
hafður að engu
Nánast sama teikning samþykkt
aftur hjá Reykjavíkurborg
Byggingarleyfi fyrir Þórsgötu 2
var fellt úr gildi af æðra yfirvaldi,
þ.e. umhverfisráðu-
neyti, í lok nóvember
sl. vegna þess að bygg-
ingin var of stór. En
hvað gera borgaryfir-
völd? Jú, þau sam-
þykkja nýtt byggingar-
leyfí fyrir teikningu,
sem kallast ný, en er
sama teikningin með
svo litlum breytingum
að við fyrstu sýn mætti
ætla að þetta ætti að
vera brandari.
Breytingarnar eru
yfirklór - vandamálið
óbreytt
Augljóst er, þegar
teikningarnar eru skoð-
aðar, að breytingarnar eru ekki
annað en yfirklór. Byggingarmagni
hefur ekki verið breytt nema svo
lítið að um algjöran skrípaleik er að
ræða og byggingin hefur ekki verið
lækkuð. Akveðinn veggur hefur
Svo má sannleikann
teygja, segir Jóhanna
Bogadóttir, að hann
breytist í ósannindi.
verið sveigður örlítið til og stærð
grunnflatar hverrar íbúðarhæðar
minnkar við það um 1 fermetra,
heildarbotnflötur sem var 788,3 m2
minnkar í 785,3 m2 (nánast innan
við skekkjumörk). Einnig á nú að
taka handrið af bílageymsluþaki
sem jafnframt á að vera útivistar-
svæði fyi-ir íbúa hússins en því
hljótum við að mótmæla af öryggis-
ástæðum. Báknið fer því áfram í
fullri stærð inn í reitinn og veldur
þar sömu röskun og áður. Vanda-
málið er óbreytt.
Ótrúleg vanvirðing
gagnvart fólki
Frá upphafi málsins hefur fólk
hér á reitnum mótmælt stærð fyrir-
hugaðrar byggingar en svörin frá
borgaryfirvöldum eru vægast sagt
furðuleg. Þau eru enn öll í sama
anda og kom í ljós í fyrrasumar
þegar Guðiún Ágústsdóttir, for-
maður skipulagsnefndar, sagði frá
því í fjölmiðlum að búið væri að
lækka bygginguna og að komið
hefði verið til móts við íbúana. Við
skildum ekki að þetta átti að vera
brandari fyrr en farið var að rýna í
teikningar, jú, lofthæð í bílakjallara
hafði verið minnkuð sem lækkaði
þá bygginguna um heila 10 senti-
metra!
Svo má sannleikann teygja að
hann breytist í ósannindi. í fyn-a-
sumar var einnig gerð önnur smá-
breyting, sneitt var af þakbrún
bflageymslu við lóðamörk Óðins-
götu 9 (þakbrún látin halla niður úr
2m í 1,30 á smáhluta), en þetta var
síðan kallað á fundum að hæð bíla-
geymslu væri bara l,30m á lóða-
mörkum. Hvað eiga þessar aðferðir
eiginlega að þýða? Þetta eru ekkert
annað en útúrsnúningar og rang-
færslur. Við hér á reitnum erum
furðu lostin.
Yfirlýsing G.Á. í vikunni
fyrir prófkjör
Aðferðirnar eru ótrúlegar. Ekki
síst þegar haft er í huga að í vik-
unni fyrir prófkjör R-lista var birt
mikilvæg yfirlýsing frá formanni
skipulagsnefndar, Guðrúnu Ágústs-
dóttur, sem jafnframt er forseti
borgarstjórnar (Mbl. 27. jan. 1998):
„Borgaryfírvöld í Reykjavík hafa
tekið þá ákvörðun að heimila ekki
nýbyggingar í grónum hverfum
fyrr en búið er að
samþykkja deiliskipu-
lag fyrir viðkomandi
hverfi." Síðan er talað
um fyrirhugaða „sam-
vinnu“ við íbúa.
Fyrsta virkan dag eft-
ir prófkjör samþykkir
skipulagsnefnd að
setja í grenndarkynn-
ingu þessa svokölluðu
„nýju“ teikningu fyrir
Þórsgötu 2, auðvitað
án nokkurrar sam-
vinnu við íbúa á svæð-
inu. Hvar voru nú hin-
ar nýlega kynntu
samþykktir borgaryf-
irvalda um ný vinnu-
brögð? Ætla mætti að
samþykktir borgaryfirvalda um
nýjar reglur væru gjörsamlega
ómerkar. Hvar erum við eiginlega
stödd, ef til vill í einhvers konar
fjarstæðuskáldsögu? Nú kærum við
aftur nánast sömu teikningu og
hugsanlega ber sú kæra þann ár-
angur að hið nýja byggingarleyfi
verði fellt úr gildi. Hvað tekur þá
við, verður enn „ný“ teikning sam-
þykkt hjá borginni með kannski
nokkurra sentimetra tilfærslu ein-
hvers staðar? Ekki er útilokað að
leyft sé að byggja á meðan kærur
eru til umfjöllunar og þannig hægt
að koma upp byggingunni. Því
vaknar sú spurning óhjákvæmilega
hvort gagn sé í skipulagslögum
þegar almennir borgarar þurfa að
leita réttar síns.
Röksemdir ráðuneytisins og
fólksins á svæðinu
Við höfum í höndunum úrskurð
umhverfisráðuneytis með skýrum
röksemdum um það að byggingin
sé of stór, gangi of langt inn í reit-
inn, dragi of mikið úr dagsbirtu
fyrir nágranna með nálægð og
stærð og að með stærð og gerð
skerði þessi bygging rétt þeirra
sem fyrir eru. Þarna hefði verið
þörf að deiliskipuleggja, segir
einnig í úrskurðinum, vegna breyt-
inga sem svo stór nýbygging hafi í
för með sér fyrir nágrennið, en um
er að ræða fimm íbúða hús í stað
einbýlishúss sem var þar fyrir.
Þessar röksemdir eru allar í sam-
ræmi við röksemdir okkar
kærendanna og í samræmi við rök-
semdir íbúa og húseigenda á svæð-
inu. í viðbót við mótmæli íbúa
næsta nágrennis strax í fyrrasum-
ar sendu 75 íbúar Þingholtanna
bréf í desember ‘97 til borgar-
stjóra með áskorun um að
deiliskipulag yrði gert strax og að
engar breytingar yi-ðu gerðar í
hverfinu fyrr en það lægi fyrir.
Um leið fögnuðu þeir úrskurði
ráðuneytisins um Þórsgötu 2.
Einnig sendu 40 húseigendur
næsta nágrennis bréf í mars til
skipulagsnefndar þar sem hinni
„nýju“ teikningu var mótmælt.
Nokkur orð að lokum um nýting-
artölur: Umfjöllun um nýtingartöl-
ur í úrskurði umhverfisráðuneytis-
ins er í fullu samræmi við það sem
okkur hér þykir eðlilegt, þ.e. að
taka beri tillit til ýmissa annarra
hluta en nýtingar þegar byggt er
nýtt í gömlum hverfum. Við hér á
svæðinu viljum ekki fleiri skipu-
lagsslys í hverfið og viljum ekki sjá
þau verða að fordæmum fyrir fram-
tíðina.
Höfundnr er myndlistarmaður.
Jóhanna
Bogadóttir