Morgunblaðið - 16.04.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1998
AÐSENDAR GREINAR
Meinatæknar, menntun og störf
HÉR á eftir verður í stuttu máli
gerð grein fyrir menntun og störf-
um meinatækna og framtíðarhorf-
um þeirra.
Meinatæknar eru sérmenntaðir til
að vinna að rannsóknum á rann-
sóknastofum sjúkrahúsa og annarra
heilbrigðisstofnana, sem nauðsyn-
legar eru til að hjálpa til við sjúk-
dómsgreiningu og/eða fylgjast með
meðferð. Til þess að meinatæknar
geti sinnt þessum störfum, verður
menntun þeirra að vera vel upp-
byggð og ná yfir alla þætti rann-
sóknastarfsins. Til rannsóknastof-
anna berast sýni frá sjúklingum.
Sýnin geta t.d. verið blóð, þvag og
aðrir vökvar, hálsstrok og fleira, allt
Fyrstu meinatæknarnir
útskrifuðust hér á
landi fyrir 32 árum.
Brynja R. Guðmunds-
dóttir fjallar í þessari
grein um menntun
þeirra, störf og
framtíðarhorfur.
eftir því hvað verður að gagni til að
fá rétta sjúkdómsgreiningu. Læknar
ákveða hvaða rannsóknir skuli gera.
Rannsóknimar geta verið fólgnar í
því að mæla ýmis efni í blóði og lík-
amsvökvum, greina frumur í blóði,
prófa viðbrögð storkukerfisins, und-
irbúa vefjahluta til smásjárskoðunar,
greina bakteríur og aðra sýkla sem
eru ræktaðir úr líkamsvökvum,
greina mótefni, finna erfðagalla,
rækta frumur og greina arfgenga
sjúkdóma með erfðatækni ásamt
grunnrannsóknum.
Nám meinatækna er á háskóla-
stigi og fer fram við Tækniskóla ís-
lands við heilbrigðisdeild ásamt
röntgentækni. Fyi’stu meinatækn-
arnir útskrifuðust hér á landi fyrir
32 árum. Síðan hafa orðið stórstígar
framfarir í rannsóknartækni og
þarfir rannsóknastofanna breyst.
Menntunin hefur ætíð tekið mið af
þörfum lækna og sjúklinga. Þess er
gætt að fylgjast vel með nýjungum í
rannsóknaaðferðum sem notaðar
eru á rannsóknastofunum. Kennar-
ar við meinatæknideild eru lektorar
við Tækniskóla Islands, meina-
tæknar sem vinna jafnframt á rann-
sóknastofum spítalanna, læknar
sem eru sérfræðingar í rannsókna-
stofugreinum, ásamt öðru háskóla-
menntuðu fólki í ýmsum hliðar-
greinum. Það er mikilvægt að allir
Vögg ussBngur,
vöggusett,
Póstsenduffl
b ujr-Cii ini *
ShdlwartlMdgll Súni55! 4050 Rtykj«vUL
iA(œrfatna&UT
LífstykfgaBúðin,
Laugavegi 4, s. 551 4473
fagkennaramir séu í
nánum tengslum við
rannsóknavinnuna.
Námið er allyfir-
gripsmikið og felst í
því að öðlast staðgóða
þekkingu í greinum
eins og efnafræði, eðl-
isfræði, tækjaeðlis-
fræði, líffæra- og lífeðl-
isfræði. Ofan á þetta
eru byggðar greinar
sem má telja til fag-
greina sem koma nær
vinnunni á rannsókna-
stofunum svo sem
meinefnafræði, blóð-
fræði, sýklafræði og
líffærameinafræði.
Brynja R.
Guðmundsdóttir
Auk þess er góð þekking í sjúk-
dómafræði nauðsynleg, sérstaklega
á þeim sjúkdómum sem tengjast
þeim mælingum sem
verið er að fást við.
í náminu er mikið
lagt upp úr verkefna-
vinnu og vinna nem-
endur mörg stærri og
minni verkefni allan
námstímann. A síðasta
misseri vinna nemend-
ur að lokaverkefni, sem
tekur 10 vikur. Loka-
verkefnið felur að jafn-
aði í sér rannsóknar-
vinnu sem getur verið
prófun á nýjum aðferð-
um eða einhvers konar
samanburður milli að-
ferða o.fl. og verða
nemendur að leggja
mat á niðurstöður og setja þær
fram í ritgerð sem er síðan varin.
Námið er 7 missera nám á há-
skólastigi og lýkur með B.Sc. gráðu.
Meinatæknar geta haldið áfram og
tekið mastersgráðu við Háskóla Is-
lands og eru nú þegar nokkrir
meinatæknar í því námi. Einnig er
hægt að fara til annarra landa í
framhaldsnám og er þá möguleiki
að taka mastersgráðu og doktors-
gráðu. Vegna sérmenntunar sinnar
á sviði sjúkdóma og rannsókna
tengdum þeim eru meinatæknar
góður starfskraftur á rannsókna-
stofum bæði innan og utan heil-
brigðiskerfisins og því líklegt að
starfsvettvangur þeirra verði æ víð-
feðmari eftir því sem rannsóknar-
vinna verður fjölþættari á fleiri
sviðum atvinnulífsins.
Höfundur er deildarstjóri nieina-
tæknibrautur Tækniskóla íslands.
m
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
t HFY R (iii Rrini
„ncv n IIU UUlll ■
7
N Ú SJÁLFi (vn
Þl G TAKI“
Hrokafull gömul frænka Lætur fólk hafa það óþvegið. Reykir ekki
Við vitrnn bvað er erfitt að bætta að reykja
Fólk sem aldrei hefur reykt á eldci gott með að skilja hve
þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem
hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar
sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda
oft að það að hætta sé einungis spuming um að taka sjálfan
sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja
hefur ekki bara með viljastyrk að gera.
"H er edfiteg s&ýTÍmrmþsíxfksaým erfitt ermi hrSSm
Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil
ffáhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins
sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með
sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk.
Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf
líkamans á nikótmi smám saman og komast þannig yfir
erfiðustu vikumar eftir að reykingum er hætt.
Nikótínlyf innihalda nikótín í ákveðnum
skömmtum sem nægja til þess að minnka
nikótínþörfina og þú ert laus við tjöm og
kolmónoxíð úr sígarettureyknum. Nikótín er ekki krabba-
meinsvaldandi efhi og þú munt ekki verða háður nikótíni
með því að nota nikótínlyf; sem reykingamaður ert þú
þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf vom þróuð til
að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta
að reykja.
Aimmmrmm^i
Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi
með því að nota Nicorette®, leiðandi vömmerki um allan
heim fyrir nikótínlyf, allt firá því Nicorette® nikótíntyggi-
gúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett.
í dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggi-
gúmmí, forðaplástur og innsogslyf án lyf-
seðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað
viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú
ákveður að hætta að reykja.
sssss
NtCOHEXTE.
Tfc
Við stöndum meðþér
Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem f er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlað til aö auðvelda fólki aö hætta aö reykja.
Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag í a.m.k. 3 mánuöi og venjulega ekki lengur en 6 mánuöi. Nicorette® innsogslyf getur valdið
aukaverkunum eins og hósta, ertingu I munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviöi, ógleði, hiksti, uppköst, óþægindi í hálsi, nefstífla og blöðrur í munni geta einnig komiö
fram. Viö samtimis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og viö reykingar, verið aukin hætta á blóðtappa. Nikótfn getur valdið bráöum eitrunum hjá börnum og
er efnið þvi alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráöi viö lækni. Gæta skal varúöar hjá þeim sem hafa hjarta- og æöasjúkdóma. Þungaöar konur og
konur meö barn á brjósti ættu ekki að nota lyfiö nema í samráöi viö lækni.
Lesiö vandlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins.
Markaösleyflshafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær.