Morgunblaðið - 19.05.1998, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
skorts hafí ekki reynst unnt að fram-
kvæma heildstæða athugun á þess-
um kostnaði bankans en janframt
áréttað að athugun á þessum
kostnaðarlið sé ekki lokið. Á þessari
stundu vill umbj. minn hins vegar
taka fram, að þegar hann kom til
starfa í bankanum árið 1988 voru
honum kynnt þau starfskjör banka-
stjóra að þeir gætu siglt utan tvisvar
á ári með maka og greiddur yrði
ferðakostnaður fyrh’ bæði og auk
þess hálfír dagpeningar fyrir maka.
Umbj. minn telur að hann hafí á
þeim tæpu tiu ái-um, sem hann
gegndi bankastjórastarfinu fai’ið
átján slíkar ferðir. Vegna engra
þessara ferða kveðst umbj. minn
hafa krafið bankann um greiðslu
risnu fyrir sig og konu sína en það
hafi hann aftur á móti gert fyrir mat-
arboð ýmisleg vegna erlendra fjár-
málasambanda og annarra gesta,
enda máttu bankastjórar gera öðr-
um slík boð að vild án allra útskýr-
inga.
Um þetta efni er til bréf Við-
skiptaráðherra dags. 10. janúar 1992
til Landsbanka íslands og Búnaðar-
banka Islands, sem ritað var í kjölfar
samþykktar ríkisstjórnarinnar frá 3.
desember 1991 er utanferðir ráða-
manna voru í brennidepli.
III. G. Upplýsingagjöf til við-
skiptaráðuneytis:
Varðandi með hvaða hætti banka-
stjórn Landsbanka íslands og
Landsbanka Islands hf. setti fram
svar við erindi Iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytisins frá 4. desember
1997 vegna fyrirspurnar á Aiþingi á
þingskjali nr. 400, vill umbj. minn
taka eftirfarandi fram:
Þegai’ fyi’irspuniin kom fram þótti
umbj. mínum, sem fyrrverandi
Alþingisforseta, hún vera óþingleg í
hæsta máta. Þess vegna var hann
andvígur því að henni yrði svarað
með hefðbundnum hætti. Umbj.
minn gerði tilraun til þess að snúa
málið af sér með því að senda ráðu-
neytinu svar um kostnað bankans
vegna laxveiða á árinu 1997 éin-
göngu. I því augnamiði sneri umbj.
minn sér til reikningshaldara bank-
ans og bað hann um heildartölu fyrir
árið 1997. Þegar fjárhæðin lá fyrir,
innti umbj. minn eftir því, hvort með
vissu mætti telja að þetta væri tala,
sem gæfí góða mynd af árlegum
kostnaði bankans vegna laxveiði-
ferða og kvað reikningshaldari svo
vera. Vildi umbj. minn láta reyna á,
hvort ráðuneytið myndi sætta sig við
svar, sem gæfí upp kostnað vegna
ársins 1997 eingöngu, en upplýst
yrði um leið að þetta væri
allnákvæm vísbending um árlegan
kostnað. Taldi umbj. minn að Alþingi
ætti ekki neina heimtingu á öðrum
upplýsingum en sem lutu að
kostnaði. Leiddi umbj. minn ekki
hugann að því að uppgefin fjárhæð
reikningshaldarans væri ein-
vörðungu fyrir bankann beran en
ekki dótturfyrirtæki, enda flögraði
ekki að honum að verið væri jafn-
framt að spyrja um hliðaríyrirtæki.
Gekk umbj. minn þannig út frá því
að uppgefin fjárhæð kr.
2.724.048,00.- væri nærri lagi. Hafði
hann þá 1 huga kaup veiðileyfa í
Hrútafjarðará, kaup veiðileyfa í Víði-
dalsá í ágúst, ásamt tilheyrandi gisti-
og fæðiskostnaði og að önnur veiði-
leyfakaup næmu þá mismuninum
enda var umbj. mínum með öllu
ókunnugt um veiðiferðir í Selá og
Straumfjarðará og að meginkostnað-
urinn vegná júlíveiða í Víðidalsá væri
á vegum Landsbankans þar sem
hann taldi ávallt að sú veiðiför hafi á
síðustu árum verið alfarið á vegum
Landsbréfa hf.
Þegar viðskiptaráðuneytið vildi
ekki sætta sig við svar það sem
þannig var gefið 22. janúar sl. gerði
umbj. minn uppkast að nýju svar-
bréfi, sem dagsett er 16. febrúar en
aldrei var sent. Aðrir bankastjórar
Landsbankans vildu ekki sætta sig
við svar með þeim hætti og var nið-
urstaða þeirra bréfið frá 3. mars sl.
en umbj. minn vildi þar hvergi koma
nærri.
Áskilnaður
Umbj. minn áskilur sér allan rétt
til þess að reifa mál þetta nánar,
leggja fram gögn og krefjast frekari
rannsókna ef tilefni verður til.
Virðingarfyllst,
Ásgeir Þór Árnason hrl.“
Stærsta verkefni sveitarstjórna
Flutningur málefna fatlaðra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
METÚSALEM Þórisson, Helgi Hjörvar, Árni Sigftísson og Haukur Þórðarson með
bæklinginn Stærsta verkefni sveitarstjórna á kjörtímabilinu.
METÚSALEM Þórisson, efsti
maður á lista Húmanistaflokksins í
Reykjavík, hefur áhyggjur af fyrir-
huguðum flutningi málefna
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Reykjavíkurlista segjast hins veg-
ar ætla að leggja sig fram um að
vel megi til takast. Þetta kom fram
á blaðamannafundi sem Lands-
samtökin Þroskahjálp og Öryrkja-
bandalag Islands boðuðu til með
efstu frambjóðendum í Reykjavík í
gær.
Ákveðið var með breytingum á
lögum um málefni fatlaðra árið
1996 að yfirfærsla málefna fatlaðra
frá ríki til sveitarfélaga ætti sér
stað 1. janúar 1999. Vegna um-
fangs verkefnisins afréð félagsmál-
aráðherra hins vegar að víkja frá
upphaflegi’i áætlun og fresta yfir-
færslunni ótímabundið.
Á fundinum afhentu Þroskahjálp
og Öryrkjabandalagið fram-
bjóðendunum bæklinginn Stærsta
verkefni sveitarstjórna á kjörtíma-
bilinu, en í honum kemur m.a. fram
að hagsmunasamtök fatlaðra vilji
vekja athygli á því hve umfangs-
mikill sá málaflokkur sé sem sveit-
arfélögin muni taka við, enda telji
þau að ekkert stæira eða vand-
meðfamara verkefni muni komast í
framkvæmd á næsta kjörtímabili.
Haukur Þórðarson, formaður
Öryrkjabandalags Islands, sagðist
ekld vera í vafa um að flutningur-
inn yrði stærsta verkefni sem
sveitarstjórnir myndu standa
frammi fyrir á komandi kjörtíma-
bili, enda varðaði hann alla þætti
mannlegs lífs.
Guðmundur Ragnarsson, for-
maður Þroskahjálpar, sagði að það
hefði komið mönnum á óvart
hversu litla umfjöllun fyi’irhugaður
flutningur málefna fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga hefði fengið í sveit-
arstjórnarumræðu undanfarinna
vikna og því hefði verið ráðist í út-
gáfu bæklingsins.
Fólki ekki borgið
Árni Sigfússon, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokks, sagðist taka
undir það að full ástæða væri til að
hefja umræðu um þetta mál þrátt
fyrir að umræða um flutning
grunnskólanna hefði ekki hafist
fyrr en ákveðin tímasetning frá
Alþingi hefði legið fyrir. „Fullui’
vilji er til þess innan Sjálfstæðis-
flokksins að stíga hai’t fram og
standa myndarlega að þessu máli,“
sagði hann. „Enda vantai’ kannski
helst upp á varðandi málefni sér-
skóla eftir flutning grunnskól-
anna.“
Helgi Hjörvar, frambjóðandi R-
lista, sagði fundinn góða áminn-
ingu við upphaf kjörtímabilsins,
enda brýnt að hefja undirbúning að
þessu máli. „I Reykjavík bíður
kannski ekki stæira verkefni þai’
sem Reykjavík hefur í þessum
málaflokki, sem og öðrum, átt það
til að sitja eftir í meðförum ríkis-
ins,“ sagði hann.
Metúsalem Þórisson sagðist
hins vegar hafa áhyggjur af þess-
um flutningi þar sem svo gæti
farið að fjarlægð frá fjárveitinga-
valdinu minnkaði ábyrgðartilfinn-
ingu þeirra sem með það færu.
„Mennirnir eru ekki allir færir um
að slást í þeim frumskógi sem við
búum í bæði í Reykjavíkurborg og
heiminum öllum,“ sagði hann. „Og
við teljum fólki ekki borgið innan
þeirrar stefnu sem rekin er.“
Kosninga-
barátta háð
á Netinu
KOSNINGABARÁTTAN fyrir
komandi sveitarstjórnakosningar
er háð að hluta til á Netinu í
mörgum sveitarfélögum. Mörg
framboð hafa opnað heimasíður
undanfarna daga og er nú svo
komið að a.m.k. 41 framboð
kynnir frambjóðendur sína og
stefnumál á Veraldarvefnum.
Heimasíður framboðslistanna
er hægt að nálgast af Kosninga-
vef Morgunblaðsins, með því að
velja „tengingar“ efst til vinstri á
forsíðu vefjarins.
Af 41 heimasíðu eru 14 á veg-
um framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins, sjö á vegum framsókn-
armanna, ein á vegum Alþýðu-
flokksins og nítján á vegum sam-
eiginlegra framboða vinstri-
manna eða framboðslista, sem
ekki kenna sig við stjórnmála-
flokka.
Forsvarsmenn framboða fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar,
sem enn hafa ekki komið upplýs-
ingum um heimasíður sínar til
Kosningavefjarins, eni hvattir til
að senda slóðina á netfangið
kosning@mbl.is.
Samstarfsráð fyrir málefni Kjalarness
Þrír fulltrúar kosn-
ir og tveir skipaðir
af borgarstjórn
SAMSTARFSRÁÐ fyrir Kjalar-
nes, sem taka mun til starfa eftir
kosningarnar næstkomandi laug-
ardag, hefur það hlutverk að vera
ráðgefandi fyrir borgarstjórn um
málefni Kjalarness og sérhags-
muni þess borgarhluta. Þrír full-
trúai’ verða kosnir hlutfallskosn-
ingu og borgarstjórn skipar tvo.
I kjörinu um fulltrúana þrjá sem
kosnir verða á laugardag í beinni
kosningu eru í framboði fulltrúai’
af tveimur listum, Esjulistanum og
Kjalarneslistanum. Greitt verður
fyrir setu í ráðinu eins og fyrir
hliðstæð nefndastörf hjá borginni.
Hlutverk ráðsins verður ýmiss
konar samráð eins og fyrr segir.
Ráðið skal vera ráðgefandi fyi'h’
borgarstjórn um málefni Kjalar-
ness og sérhagsmuni þess borgar-
hluta og skulu fundargerðir lagðar
fyi’ir borgarráð og í framhaldi af
því borgarstjórn. Einn fulltrúa í
samstarfsráðinu skal jafnframt
eiga seturétt með málfrelsi og til-
lögurétti á fundum skipulags og
23. MAI
umferðarnefndar þegar hún fjallar
um aðalskipulagsmál Reykjavíkur
og deiliskipulagsmál Kjalarness á
næsta kjörtímabili.
Þá er hugmyndin að skipa sér-
staka skólanefnd er sinni málefn-
um grunnskólans og leikskólans á
Kjalarnesi. Ekki hefur verið geng-
ið frá samþykktum fyrir ráðið en
gert er ráð fyrir að það verði strax
að kosningum loknum.
Kannanir Gallup
R-listi 54,6%
og D-listi
43,6%
REYKJAVÍKURLISTINN fengi
54,6 prósent en D-listinn 43,6 pró-
sent skv. skoðanakönnun Gallups
sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið.
Fylgi L-listans mældist 0,4% og
fylgi H-listans 1,5% í könnuninni,
sem gerð var 15.-17. maí. Skv.
henni hefur fylgi Reykjavíkurlist-
ans meðal kvenna minnkað frá
fyrri könnunum.
Úrtakið í könnuninni var 1.000
manns á aldrinum 18 ára og eldri.
Svarhlutfall var 73,7% en 20,1%
sögðust vera óákveðnir eða neituðu
að svara.
Gallup hefur einnig gert
fylgiskönnun meðal Hafnfirðinga
vegna syeitarstjómarkosninganna
fyrir RÚV. Skv. henni tapar
Álþýðuflokkurinn allt að þriðjungi
fylgis síns, fengi 26.1% ef kosið yrði
nú. B-listi framsóknarmanna fengi
9,7%, skv. könnuninni, D-listi sjálf-
stæðismanna 33,8%, Fjarðarlistinn
fengi 15,6%, H-listinn 8,0% og T-
listinn (Tónlistinn) 6,8%. Úrtakið í
könnuninni var 800 manns, svar-
hlutfall var 72,4% og óákveðnir
voru 24,3%.
72 tonn á
vagni
ET flutningafyrirtækið annast
flutning á 72 tonna þungri ttír-
bínu í Nesjavallavirkjun. Innflytj-
andi ttírbínunnar, Hekla hf., fékk
til landsins sérstakan flutninga-
vagn til að koma ferlikinu á sinn
stað. Þurfti sérstakt leyfí til
flutninganna hjá lögreglu og
vegagerð. Á myndinni sést að
ttírbínan er komin á vagninn og
til stóð að ferðalagið hæfist kl.
sex í morgun. Áætlað var að hún
yrði kominn á sinn stað þegar
halla færi degi.
Morgunblaðið/Þorkell
Heimsókn utan-
ríkisráðherra Svía
UTANRÍKISRÁÐHERRA Svíþjóð-
ar, Lena Hjelm-Wallén, og eiginmað-
ur hennar, Ingvar Wallén, koma
hingað til lands í opinbera heimsókn
síðdegis í dag og verða fram á fóstu-
dag.
I kvöld mun ráðherrann ásamt eig-
inmanni snæða kvöldverð í Viðeyjar-
stofu í boði Halldórs Ásgii'mssonar
utanríkisráðherra og eiginkonu hans,
Sigurjónu Sigurðardóttur. Á morgun
mun Lena Hjelm-Wallén svo eiga
viðræður við Halldór Ásgrímsson,
heimsækja Alþingi og eiga fund með
utanríkismálanefnd. Þá mun ráðherr-
ann eiga fund með Davíð Oddssyni
forsætisráðheiTa og Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Islands.
f
,1
1
t.
I
I
I
í:
i
i
t
I
i
i:
I
i
i
t