Morgunblaðið - 19.05.1998, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
_ * S * m * #• I
Sjálfstæðisflokkurinn íReykjavfk óskar eftir sjálfboðaliðum
til margvfslegra starfa á kjördag, laugardaginn 23. maí.
Þeir sem eru reidubúnir að hjálpa til eru hvattir til að hafa samband við
hverfaskrifstofurnar eða skrifstofu Sjálfstæðisflokksins fsíma 515 1700.
Morgunblaðið/Sturla Páll
Á MYNDINNI er nokkur hluti sex og sjö ára barna á Suðureyri með
nýju reiðhjólahjálmana sína ásamt stjórnarmönnum úr Björg, þeim
Vali Sæþóri Valgeirssyni, Elíasi Guðmundssyni og Einari Ómars-
syni. Einnig eru lögreglumennirnir Unnar Már Ástþórsson og Jónas
Ottósson á myndinni.
Börnum á Suðureyri
gefnir reiðhjólahjálmar
Suðureyri - í tilefni 70 ára afmælis þætti í öryggismálum reiðhjóla-
Slysavamafélags íslands ákvað barna og notkun hjálmanna var
björgunarsveitin Björg á Suður- sýnd. Þá var einnig boðið upp á
eyri að gefa öllum bömum á „kók og prins“ upp á gamla
Suðureyri á aldrinum sex og sjö móðinn. Það em því brosmild börn
ára reiðhjólahjálma. Bömin fengu með gljáfægða hjálma sem hjóla
hjálmana afhenta við formlega at- um bæinn þessa dagana, að
höfn í Félagsheimilinu á Suðureyri sjálfsögðu eftir öllum umferðar-
þar sem lögreglan fór yfir helstu reglum.
- getur þú verið á bíl?
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
GUMMI gröfumaður var
ánægður með regnið
9 metra há-
ar aspir fá
nýtt heimili
Selfossi - Það var Iíf í tuskunum
hjá starfsmönnum Garðyrkju-
deiidar Selfossbæjar á dögunum.
Þeir voru önnum kafnir við að
grafa upp og flytja níu metra há-
ar aspir. Tilgangurinn var sá að
eigandi aspanna, Örn Óskarsson
líffræðingur, sá ekki lengur til-
gang fyrir þær í garði sínum og
vildi færa Selfossbæ þær að gjöf.
Alls fluttu starfsmennirnir tíu
aspir úr garðinum.
Gummi gröfumaður var
ánægður með gang mála. „Rign-
ingin á Suðurlandi kemur sér vel
í verkum sem þessum, enda dafn-
ar gróðurinn vel á Selfossi,"
sagði Gummi og benti brosandi á
níu metra háar aspirnar sem
hann gróf upp úr jörðinni með
aðstoð félaga sinna.
Ferðalag aspanna var farsælt,
þær fengu nýtt heimili á leikvall-
arsvæði við Heiðarveg á Selfossi,
þar sem börnin geta leikið sér í
skjóli þeirra á nýrri öld.
Gáfu Sjúkrahúsi
Þingeyinga smásjá
Húsavík - Kvenfélag Aðaldæla, sem
ekki er fjölmennt félag, minntist 80
ára afmælis síns með því að færa
Sjúkrahúsi Þingeyinga smásjá að
gjöf. Er það staðfesting á því að
kvenfélögin starfa enn og fullyrða
má að sjúkrahúsin í landinu og
kirkjurnar væru verr búin tækjum
og gripum ef starf kvenfélaganna
væri ekki eins öflugt og það er.
Forstjóri Heilsugæslustöðvar-
innar á Húsavík, Friðfinnur Her-
mannsson, þakkaði kvenfélagskon-
um gjöfina. Hann sagði að auðvitað
hefði sjúkrahúsið átt smásjá og það
fleiri en eina, en þróun tækninnar
væri svo ör að ávallt væri kærkom-
ið að fá tæki af nýjustu gerð.
Hann sagði að gott sjúkrahús
þyrfti að hafa góða lækna, gott
starfsfólk og vera vel tækjum búið.
Kvaðst hann telja að það ætti við
um Sjúkrahús Þingeyinga. En þar
sem því væri frá æðri stöðum
skammtað ákveðið risnufé gæti
slíkt ekki átt sér stað nema fólk
stæði vel að þeim, eins og þessi gjöf
sýndi.
Morgunblaðið/Silli
KVENFÉLAGSKONUR og starfsfólk Sjúkrahúss Þingeyinga.
Jómfrúarferð Flakkferöa til Ibiza!
Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í fyrstu
Rakkferö sumarsins til Ibiza 26. maí til 2. júní.
Flakkferðir Jafningjafræðslunnar
eru vímulausar feröir þar sem
þátttakendur skemmta sér alls-
gáðir og njóta lífsins á framandi staö. Sam-
vinnuferðir-Landsýn, Eurocard Atlas, Flugfélagið
Atlanta og Flakkferðir Jafningjafræðslunnar
standa að þessari fyrstu Flakkferö sumarsins -
til sælueyjarinnar Ibiza!
Ibiza er staður unga fólksins í ár þar sem nóttin
er síung og dagarnir fullir af fjöri. Strendurnar,
næturlífið, náttúrufegurðin og marglitt mannlífið
valda ekki vonbrigöum!
Verðiö kemur þér skemmtilega
á óvart - ATLAS ávisunin gildir
sem 8.000 kr. afsláttur!
Haföu samband sem fyrst
í síma 569 1000
-ferðir án
GSP