Morgunblaðið - 19.05.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Alexander Lebed kjörinn héraðsstjóri Krasnojarsk í Síberíu
Heitir því að einbeita sér
að viðreisn héraðsins
Segir framboð til embættis forseta háð frammistöðu sinni í Krasnojarsk
Krasnojarsk. Reuters.
ALEXANDER Lebed, fyrrverandi
yfírmaður Öryggisráðs Rússlands,
var kjörinn héraðsstjóri
Krasnojarsk í Síberíu á sunnudag
og kvaðst í gær ætla að einbeita sér
að því að tryggja stöðugleika og
hagsæld í héraðinu.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
fékk Lebed 57,33% atkvæðanna og
Valerí Zubov, fráfarandi héraðs-
stjóri, 38,16%. Kjörsóknin var um
64%.
„Ég ætla nú að undirbúa reglur
sem geta gert héraðið áhugaverð-
ara fyrir erlenda fjárfesta," sagði
Lebed í sjónvarpsviðtali. „Ég
hyggst einnig stuðla að aukinni
valddreifingu," bætti hann við og
vísaði til valdatogstreitu milli
héraðsstjóra og héraðsráða i Rúss-
landi og krafna um að héruðin fái
meiri völd á kostnað stjórnarinnar í
Moskvu.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
vék Lebed úr embætti yfirmanns
Öryggisráðs Rússlands fyrir 18
mánuðum. Embættismenn í Krem!
og kommúnistar reyndu að koma í
veg fyrir að Lebed færi með sigur
af hólmi í kosningunum á sunnudag
þar sem þeir óttast að hann geti
notað héraðsstjóraembættið sem
stökkpall í embætti forseta Rúss-
lands í kosningunum árið 2000.
„Áfall“ fyrir Rússland
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði í gær að sigur
Lebeds væri „áfal!“ fyrir Rússland
og gæti reynst afdrifaríkur fyrir
Jeltsín forseta. „Ale.xander Lebed
stefnir í að komast til valda á sama
hátt og Borís Jeltsín gerði [í lok
síðasta áratugar] þegar Míkhafi
Gorbatsjov átti undir högg að sækja
vegna öldu mótmæla í landinu,“
sagði Zjúganov.
Margir íbúar Krasnojarsk óttast
að Lebed hafi lítinn áhuga á
vandamálum héraðsins og láti sér
aðeins umhugað um að komast til
Kremlar. Lebed kvaðst hins vegar
ekki ætla að gefa kost á sér í for-
setakosningunum nema sér tækist
að rétta efnahag héraðsins við. „Ég
veit ekki hvort ég vil verða forseti,"
sagði hann við fréttamenn í gær.
„Það ræðst af því hvemig mér tekst
upp hérna.“
Margir fréttaskýrendur telja
ólíklegt að Lebed geti rétt efnahag
Krasnojarsk við á aðeins tveimur
árum og spá því að vinsældir hans
dvíni á næstu mánuðum. Ekki sé
því víst að sigur hans í héraðinu
styrki stöðu hans í forsetakosning-
unum.
Lebed varð í þriðja sæti í fyrri
umferð forsetakosninganna 1996 og
studdi Jeltsín í síðari umferðinni
gegn Zjúganov. Fyrir þann stuðn-
ing fékk hann embætti yfirmanns
Öryggisráðsins en Jeltsín rak hann
fjórum mánuðum síðar og sakaði
hann um að stefna leynt og ljóst að
því að komast til valda í Kreml.
Héraðsstjóraembættið gerir
Lebed kleift að afla sér fjárhagslegs
stuðnings íyrirtækja í Krasnojarsk
og halda sér í sviðsljósinu fyrir for-
setakosningarnar. Hann fær einnig
sjálfkrafa sæti í Sambandsráðinu,
efri deild rússneska þingsins.
Lebed er 48 ára, barðist í stríðinu
í Afganistan og varð landsþekktur í
Rússlandi þegar hersveitir hans
bundu enda á blóðsúthellingar í
Dnestr-héraði í Moldovu árið 1992
þegar stjómarher landsins barðist
við aðsldlnaðarsinna. Þegar hann
fór fyrir Öryggisráðinu átti hann
stóran þátt í friðarsamningi við
aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju.
Kambódfa
Hóta að snið-
ganga kosn-
ingarnar
Phnom Penh. Reuters.
BANDALAG fjögurra stjórnarand-
stöðuflokka í Kambódíu kvaðst í gær
ætla að sniðganga kosningarnar,
sem ráðgerðar eru 26. júlí, verði
þeim ekki ffestað.
„Það er orðið of seint að tryggja
frjálsar, sanngjarnar og trúverðugar
kosningar 26. júlí,“ sagði í yfirlýs-
ingu frá Sameinuðu þjóðfylkingunni
(NUF), bandalagi flokka Norodoms
Ranariddhs prins og bandamanns
hans, Sams Rainsys, auk tveggja
smáflokka. Bandalagið sakar stjórn-
ina um að hafa beitt stjórnarand-
stöðuna þvingunum og neitað henni
um sanngjarnan aðgang að fjölmiðl-
um.
Flokkar Ranariddhs og Rainsys
sögðust þó ætla að halda áfram að
undirbúa þátttöku í kosningunum í
von um að þeim yrði frestað.
Hun Sen, leiðtogi stjórnarinnar,
sem vék Ranariddh úr embætti for-
sætisráðherra í júlí eftir að þeir
höfðu deilt með sér völdunum, sagði
að ekki kæmi til greina að fresta
kosningunum. „Lögin kveða á um að
kosið verði 26. júlí og enginn getur
breytt því,“ sagði hann.
Hun Sen kvaðst efast um að Evr-
ópusambandið og ríki, sem hafa veitt
fjárhagsaðstoð til að undirbúa kosn-
ingamar, hætti stuðningi sínum
vegna yfirlýsingar bandalagsins.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, heimsækir Belfast á
morgun í þeim tilgangi að tryggja
samþykkt friðarsamkomulagsins á
N-írlandi í þjóðaratkvæðagreiðslu
á föstudag. Heimsókn Blairs kem-
ur í kjölfar fregna þess efnis að
stuðningur meðal sambandssinna
við samninginn hafi mjög dvínað á
síðustu vikum. Stuðningur meðal
þjóðernissinna, sem eru um 40%
íbúa N-írlands, er hins vegar tal-
inn öruggur og að um 90% þeirra
muni samþykkja samninginn.
Blair og David Trimble, leiðtogi
Sambandsflokks Ulsters (UUP),
vonast báðir eftir um 65% fylgi við
samninginn í heildina en ef svo fer
sem horfir, að sambandssinnar
skiptast alveg í tvær fylkingar í af-
stöðunni til samningsins, mun
heildarhlutfall þeiiTa sem
samþykkja samninginn varla verða
nema tæplega 60%. Flestir eru
sammála um að svo lítill stuðning-
ur geri það verkefni að hrinda
ákvæðum samningsins í fram-
kvæmd afar erfitt og nánast
ómögulegt ef fylgið reynist enn
minna.
Blair og Bill Clinton, Band-
aríkjaforseti, snéru bökum saman
á fundi 8 helstu iðnríkja heims í
Birmingham um helgina og komu á
sunnudag fram saman í sjónvarps-
þætti David Frosts í þeim tilgangi
að hvetja kjósendur á N-írlandi til
að „fylkja liði á bak við skynsemi
og von“ í stað þess að láta „ótta
sinn og tilfinningar“ ráða för. A
fundinum í Birmingham lýstu leið-
togar iðnríkjanna stuðningi sínum
við samkomulagið og lofuðu aðstoð
í leitinni að efnahagslegum og
pólitískum stöðugleika.
ráða sínum málum.
Skoðanakannanir sýna að hæst
hlutfall óákveðinna er í aldurshópn-
um 18-24 ára og í kvöld mun
Trimble koma fram ásamt John
Hume leiðtoga SDLP, stærsta
flokks þjóðemissinna, á rokktónleik-
um í Belfast í viðleitni til að höfða til
þessa hóps. Tónleikarnir eru haldnir
að undirlagi írsku rokkhljómsveitar-
innar U2, sem leika mun og spila
ásamt n-írsku sveitinni Ash.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um samkomulagið á N-írlandi
Fylgi meðal sambands-
sinna á niðurleið
London. The Daily Telegraph.
Rokktónleikar
til stuðnings
samningnum
David Trimble hefur
átt nokkuð á brattann
að sækja á síðustu
dögum en í gær ritaði
hann grein í The Irish
Times og reyndi að
sannfæra sambands-
sinna um að staða N-
írlands innan Breta-
veldis væri trygg en
andstæðingar samn-
ingsins hafa haft uppi
„hræðsluáróður" í
baráttu sinni og spurt
sambandssinna hvort
þeir vilji láta stjórnvöld í Dublin
Lyf gegn
brjósta-
krabba-
meini
TVÖ ný lyf eru nú talin geta
nýst í baráttunni gegn
brjóstakrabbameini. Annað
þeirra, tamoxifen, er krabba-
meinslyf og reyndist minnka
líkumar á brjóstakrabbameini
um 45% í rannsóknum, en
hitt, raloxifene, var uppmna-
lega ætlað gegn beingisnun
kvenna en reyndist minnka
líkur kvenna sem gengið hafa
í gegnum tíðahvörf og þjást af
beingisnun um 70% á að fá
brjóstakrabbamein. I bígerð
er nú samanburðarrannsókn á
lyfjunum tveimur.
EMU vinsælla
í Danmörku
en áður
ANDSTAÐA gegn aðild að
Efnahags- og myntbandalagi
Evrópu (EMU) hefur minnk-
að í Danmörku ef marka má
nýja skoðanakönnun. 40,8%
sögðust nú telja að Danmörk
ætti ekki að gerast aðili að
EMU en í sambærilegri könn-
un í febrúar voru 42,1%
andsnúin EMU. Stuðningur
við EMU meðal danskra kjó-
senda er nú 38,2% en var
32,2% í febrúar.
Bob Hope
sleginn
til riddara
SKEMMTIKRAFTURINN
Bob Hope, sem verður 95 ára
eftir tíu daga, var um helgina
sleginn til riddara af breska
sendiherranum í Washington.
Hope var fæddur í Bretlandi
en íluttist ungur til Band-
aríkjanna þar sem hann varð
vinsæll skemmtikraftur. Hope
kvaðst yfir sig hissa en afar
ánægður með upphefðina.
Sandline
ekki sótt
til saka
BRESK stjórnvöld hafa
ákveðið að sækja breska fyrir-
tækið Sandline ekki til saka
vegna Sierra Leone-vopna-
hneykslisins sem upp komst í
síðustu viku en staða Robins
Cooks, utanríkisráðherra, er
talin hafa veikst mjög vegna
þessa máls. Akvörðunin um að
sækja Sandline ekki til saka
gerir Cook nú kleift að hefja
rannsókn innan ráðuneytisins
um hvort fullyrðingar Sand-
line þess efnis að það hafi haft
samþykki aðila þar um vopna-
söluna eigi við rök að styðjast.
Með hníf
í innyflunum
NÍTJÁN ára gömul bresk
stúlka, sem dó af hjartaslagi á
eyjunni Korfú um helgina,
reyndist hafa skurðhníf eftir
nýlegan læknisuppskurð fast-
an í görninni. Aðskotahlutur-
inn olli blæðingum og stíflum í
meltingarveginum og loks
dauða stúlkunnar.