Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 25
MORGUNB L AÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 25
Herferð hægriöfga-
manna í Kólumbíu
Allt að 30
drepnir
Bogota. Reuters.
TALIÐ er að vopnaður hópur
hægriöfgamanna hafi myrt allt að
30 manns í árás í Barrancabermeja,
helstu olíuborg Kólumbíu, á
sunndag.
Lögreglan í borginni sagði að
hópurinn hefði myrt tíu menn á
aldrinum 20-25 ára og numið um 20
til viðbótar á brott. Ottast er að þeir
hafi allir verið drepnir.
Stjómmálaskýrendur telja að
drápin séu liður í herferð hægri-
öfgamanna sem vilji valda skelfingu
meðal kjósenda fyrir forsetakosn-
ingar í landinu 31. þessa mánaðar.
Talið er að dauðasveitimar hafi
vegið rúmlega 80 manns á einum
mánuði í hverfum þar sem ólögleg
hreyfing marxískra uppreisnar-
manna, Þjóðfrelsisherinn (ELN),
nýtur mikils stuðnings.
Alþjóðlegar mannréttindahreyf-
ingar hafa sakað her Kólumbíu um
að hafa stutt dauðasveitir hægri-
öfgamanna og dráp þeirra á vinstri-
sinnuðum uppreisnarmönnum og
borgurum sem grunaðir era um
stuðning við þá.
Femando Landazabal hers-
höfðingi, fyrrverandi vamarmál-
aráðherra, var ráðinn af dögum í
Bogota í vikunni sem leið. Heimild-
armenn í hemum sökuðu ELN um
drápið en virt dagblað, E1 Especta-
dor, hafði á sunnudag eftir ónafn-
greindum heimildarmönnum að
hægriöfgamenn hefðu verið að
verki. Blaðið bætti við að gmnur
léki á að liðsmenn í leyniþjónustu
hersins væra viðriðnir morðið.
ERLENT
S-Asia helsta efm G-8 fundar
Birmingham. Reuters.
KJARNORKUSPRENGINGAR Indverja og
óeirðir í Indónesíu skyggðu á leiðtogafund helstu
iðnríkja heims (G-8), sem fram fór í Birmingham
á Englandi, en honum lauk á sunnudag. Leiðtog-
amir lýstu áhyggjum sínum vegna spennunnar
sem hlaupin er í samskipti Indverja og
Pakistana, vegna kjamorkusprenginga þeirra
fyrmefndu, en Bill Clinton, Bandaríkjaforseti,
kvaðst vongóður um að geta talið stjómvöld í
Pakistan á að fylgja ekki fordæmi Indverja.
Chnton varaði við því að hætta væri á að vakinn
yrði upp að nýju draugur kalda stríðsins ef það
tækist ekki. Clinton hitti Boris Jeltsín, forseta
Rússlands, að fundi iðnríkja loknum en þar átti
að ræða eftirlit og eyðingu kjamavopna.
I lokayfirlýsingu fundar G-8-hópsins sagði að
leiðtogamir væra sammála um að vinna að því að
minnka skuldahala nokkurra fátækustu landa
jarðar og jafnframt að þeir tryðu því að nú sæi
fyrir endann á efnahagsvandræðum Asíu. Þeir
sögðu mikilvægt að til að bæta efnahagsástand í
Asíu yrði að fara í einu og öllu eftir tilmælum
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og að leggja
yrði mikla áherslu á að halda opnum öllum
mörkuðum, einangrunarstefha gæti haft slæmar
afleiðingar fyrir úrbætur á efnahag Asíuríkjanna.
Niðurstaða fundarins í málefnum fátækustu
ríkja jarðar ollu nokkram vonbrigðum enda höfðu
þrýstihópar barist fyrir afskriftum á skuldahala
fátækra þriðjaheims landa. Leiðtogafundurinn
vildi ekki ganga lengra en lofa fjárhagsaðstoð ef
ríkisstjómir viðkomandi landa legðu sitt af mörk-
um með skynsamlegri hagstjóm.
A afmæli Þjóðfrelsishersins
DANSARAR af Núbaættbálknum í Súdan stigxi
hefðbundin spor þegar þeir héldu upp á að um
þessar mundir eru 15 ár liðin frá því Þjóðfrelsisher-
inn í Súdan var stofnaður. Herinn háir harða
baráttu við múshmsk sljórnvöld í landinu. Mann-
réttindasamtök segja að stjómin hafi beitt her sín-
um gegn Núbaættbálknum með þeim afleiðingum
að um helmingur hans hafi orðið að leggja á fiótta.
Stórárás
Talebana
Islamabad. Reuters.
SVEITIR Talebana í Afganistan
gerðu í gær sprengjuárás á bæinn
Taloqan, sem er í höndum and-
stæðinga hersins, og sagði frétta-
stofan Afghan Islamic Press að 31
hefði týnt lífi í árásinni.
Fréttastofan, sem hefur aðsetur
í pakistanska landamærabænum
Peshawar, hefði eftir bæði
hermönnum Talebana og and-
stæðingum þeirra að árásin hefði
verið gerð. Talið er að þetta hafí
verið ein sú mesta sem gerð hefur
verið frá því friðarviðræður, fyrir
milligöngu Bandaríkjamanna, fóra
út um þúfur í síðasta mánuði.
Rúmlega 40 manns særðust í
árásinni. Her Talebana hefur yfir
að ráða gömlum herþotum frá tím-
um Sovétríkjanna og nokkram
þyrlum. Hreyfing Talebana ræður
nú meirihluta Afghanistans og
stefnir að því að stofna þar
múslímskt ríki. Bandalag þjóðar-
brota í norðurhluta landsins veitir
þeim mótspymu.
DiJJ/j l! byi 11
iiiiJiJjjjJjjJjJjjj
iJ^JjJJJ
Nú eru 50 ár liðin frá því að
fyrsti Land Roverinn var
framleiddur. Af því tilefni bjóðum
við nú í 50 daga, 50% afslátt af
Land Rover aukahlutum og
búnaði þegar þú kaupir þér
nýjan Land Rover
Discovery eða
Defender.
II m ;| (
-<-J—I —_l_j
Suðurlandsbraut 14 • Skiptiborð: 575 1200
Söludeild Land Rover: 575 1210 • bl@bl.is
5ÉRSTAKT
TILBOD
í 50 DAGA