Morgunblaðið - 19.05.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 27
ERLENT
Utanríkisráðherra bjartsýnn
um þjóðaratkvæðagreiðsluna
1% o i q ,1 r s t i o r n o r k ö s n i n <4 n i
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÉG FÆ spuminguna á hverjum
degi, en verð að viðurkenna að ég
hef ekki gáfur til að gera mér í
hugarlund hvað við gerum ef niður-
staðan verður „nei“ í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni um Amsterdam-
sáttmálann 28. maí,“ sagði Niels
Helveg Petersen, utanríkisráðherra
Dana, er hann ræddi við erlenda
fréttamenn. Hann sagðist vera hóf-
lega bjartsýnn, enda bentu
skoðanakannanir eindregið til að
, já“ yrði ofan á. Skoðanakannanir
sýna hins vegar að þótt meirihluti
þeirra, sem afstöðu hafa tekið, segi
já, þá eru hinir jákvæðu óákveðnari
í sinni sök en hinir neikvæðu, auk
þess sem fjöldi óákveðinna er í
kringum tuttugu prósent. Skoðana-
kaimanir benda einnig til að sú
hálfa milljón Dana, sem var í verk-
falli, muni ekki nota atkvæði sitt til
að lýsa gremju sinni með lögin, er
bundu enda á verkfallið. Hins vegar
kunna ýmsir atvinnurekendur þá
sögu að segja að margir starfsmenn
hyggi á hefndir í atkvæðagreiðsl-
unni.
Um viðbrögð við því að sáttmál-
inn verði felldur sagði utanríkis-
ráðherra ómögulegt að segja til um
afleiðingar þess. Þegar Danir höfn-
uðu Maastricht 1992 hefði verið
hægt að átta sig á hverju þeir höfn-
uðu og fá undanþágur frá þvi'. Nú
rækju hins vegar öfl bæði á vinstri
og hægri væng áróður fyrir því að
hafna sáttmálanum, hvor á sínum
forsendum og því væri erfitt að
ráða í hvað höfnun þýddi. Hins veg-
ar þyrftu hin löndin fjórtán að gera
upp hug sinn og með svo marga
óvissuþætti treysti hann sér á eng-
an hátt til að spá í nei og afleiðing-
ar þess. „Ég hef áhyggjur af að
höfhun í Danmörku verði til að ýta
undir þau öfl í Evrópu, sem ekki
vilja stækkun ESB og sama ótta
finn ég fyrir í Eystrasaltslöndun-
um,“ sagði Helveg Petersen.
Einn vandinn, sem við dönsku
stjórninni blasir, ef Amsterdam-
sáttmálanum verður hafnað, er
aðildin að Schengen, sem sáttmál-
inn nær yfir. Helveg Petersen segir
að höfnun muni valda fáránlegum
vanda varðandi umferð til og frá
Danmörku ef sáttmálanum og þar
með Schengen verði hafnað. „Það
væri hjákátleg staða að um leið og
Eyrarsundsbrúin yfir til Svíþjóðar
yrði opnuð árið 2000 þyrfti einnig
að koma fyrir hertri gæslu við
hana, þar sem Danmörk væri utan
Schengen." En ráðherrann
margendurtók einnig að hann
kærði sig ekki um að velta höfnun
mikið fyrir sér. „Fyrir atkvæða-
greiðsluna 1992 bentu skoðana-
kannanir til að Maastricht yrði
hafnað og sú varð raunin. Nú bend-
ir ekki ein einasta skoðanakönnun
til höfnunar, svo ég er fremur
bjartsýnn,“ sagði ráðherrann.
Hinir jákvæðu óvissir
Danskir fjölmiðlar stunda
skoðanakannanir af miklum móð. I
síðustu viku birti Berlingske
Tidende niðurstöður könnunar sem
sýndi að sex af hverjum tfu sem
styðja Amsterdam-sáttmálann eru
ekki vissir i' sinni sök, meðan sex af
hverjum tíu, sem ætla að hafna eru
vissir. Óvissan liggur því meðal
þeirra, sem eru jákvæðir og því
eiga andstæðingar greiðari aðgang
að hinum jákvæðu en öfugt.
Samkvæmt könnun í Politiken
eru 74 prósent Dana á rnóti því að
Evrópusambandið þróist í átt að
pólitísku sambandi. Ef andstæðing-
um tekst að nýta sér þennan ótta
gætu þeir átt hægt með að vekja
tortryggni í þessa veruna. Þó
skoðanakannanir sýni að verkfalls-
fólkið tengi ekki saman atkvæða-
greiðsluna og lögin, sem bundu
enda á verkfallið, berast aðrar sög-
ur af vinnustöðum. Einn heimildar-
maður Morgunblaðsins veit af
vinnustað, þar sem 250 manns voru
í verkfalli og þeir hafa allir í hug
að hafna sáttmálanum sem andóf
gegn stjórninni. Það er því enn of
snemmt að segja til um hvort
skoðanakannanir hafa rétt fyrir sér
í þetta skiptið. Niðurstöður þing-
kosninganna nýlega gengu þvert á
spár um hægristjórn og reynslan
hefur sýnt að Danir eru óútreikn-
anlegir þegar í kjörklefann kemur.
Heitt kaffi
og hressandi
umræður
sem koma
blóðinu á
hreyfingu!
Kaffi og góður félagsskapur
Sjálfstæðismenn hittast daglega íValhöll
kl. 15 -18. Frambjóðendur verða til skrafs
og ráðagerða auk þess sem uppákomur
verða á hverjum degi - píanóleikur, söngur,
upplestur o.fl.
Allir velkomnir
Sjálfst&ðisfélöq'm
ÍReqkjavik
D
Megane Upera
Hljómflutningstæki
meó fjarstýringu í stýrinu
RENAULT
- þekktur fyrir þægindi Ármúla 13
Viö höfum lækkaö veröiö á Pergo parketi
og bjóöum nú þriggja ára gamalt verö
F a m i I y
PERGO
O r i g i n a
4 gerðir, 7mm. Verð kr. 1.995 pr.m2, stgr.
15| li PERGO 11 gerðir, 8mm. Verð kr. 2.995 pr.m2, stgr.
^QþfOfnasmlðjan
Háteigsvegi 7, sími 511 1100, netfang www.ofn.is
Opið á laugardögum í maí frá kl. 10 til 14
W
SWOO'