Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 19.05.1998, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Líkami og sál ✓ I hópi fjögurra erlendra gestalistamanna, sem taka þátt í verkefninu Flögð og fögur skinn, er Louise Bourgeois. Halldór Björn Runólfsson segír frá listakonunni. LOUISE við vinnu á myndverki sínu Klefi (Bogi móðursýkinnar), frá 1992 - 1993. OFT HEFUR verið á það bent að nær ómögulegt sé fyrir miðaldra lista- mann að hasla sér völl í listaheimin- um, hvað þá heldur ef hinn sami er orðinn roskinn. Bandaríski hugmyndlistamað- urinn Lawrence Weiner, sem okkur er kunnur eftir að hann sýndi á Annarri hæð við Lauga- veginn, hvatti eitt sinn nokkra íslenska list- nema til að spreyta sig í heimabyggð sinni New York. „En hafi ykkui- ekki hlotnast frami innan 25 ára aldurs skulu þið ekki bíða boðanna heldur hypja ykkur áður en borgin leggur líf ykkar í rúst.“ Þessi merkilegu heilræði Bronxarans ágæta voi-u ábyggilega orð í tíma töluð. Weiner hafði fylgst með nægilega mörgum, eftirvæntingar- fullum sálum verða örvæntingunni að bráð á grimmilegu skákborði stórborgarinnar við Hudsonarmynnið til að vita hvað hann söng. En ef til vill hefði hann getað bætt því við að einungis þeim sem þegar tefldi á barmi glötun- ar væri óhætt að staldra þar við ögn lengur. Alltént mætti benda á Louise Bourgeois því til sönnunar. „Sú gamla“ virtist eiga sér níu líf eins og kötturinn, þótt hvert þeirra héngi ávallt á bláþræði. Hver skyldi hún vera þessi kona sem manna eftirminnilegast hefur tekist að brenna fangamark sitt á listaheiminn síðast- liðin tíu til fimmtán ár? Louise fæddist á Saint Germaine-breiðgöt- unni í París, á jóladag, árið 1911, dóttir teppa- salans og forvarðarins Louis Bourgeois. Aðeins tíu ára gömul var hún farin að hjálpa til við við- gerðir á gömlum gobelin-teppum með því að teikna fætur manna og hesta sem vantaði á trosnaðan neðri hluta vefmyndanna. Hún þótti svo hæfileikaríkur viðgerðarmaður að faðir hennai’ réð hana sem aðalteiknara viðgerða- verkstæðis síns. Hún var einnig fyrirmyndar- nemandi í Fénelon-menntaskólanum þar sem stærðfræðigáfur hennar komu snemma í ljós. Eini skugginn sem bar á æsku hennar voru veikindi móðurinnar, sem lifði af spænsku veikina með naumindum sem varanlegur lungnaþembusjúklingur. Faðir Louise nýtti sér veikindi konu sinnai- til að flytja inn á heimilið unga, enska kennslukonu, Sadie, sem hann hélt við þótt hún væri einungis fáeinum árum eldri en dóttirin. Yfir vetrarmánuðina dvaldi fjöl- skyldan á Rivierunni í Suður-Frakklandi þar eð móður Louise þoldi ekki rakann í París. A sumrin dvaldi hin verðandi listakona hins veg- ar í Brighton á Suður-Englandi, í umsjá Sadie, þar sem henni var gert að fullnema sig í ensku. Svikavefurinn kringum sjúlkinginn, móður hennar, reyndi svo á þolrifin í Louise að hún neytti fyrsta tækifæris sem henni bauðst til að flytjast að heiman. Eftir stúdentspróf árið 1932, og stutt stærðfræðinám við Háskólann í París, sneri hún sér að listinni og sótti tíma í fjórum helstu einkaskólum borgarinnar, Ran- son, Julian, Colai'ossi og la Grande Chaumiére. „Eg leitaði logandi ljósi að sannleikanum; fólki sem væri ærlegt og hafið yfir allt undirferli.“ Meðal kennara hennar á skólunum fjórum voru Othon Friesz, André Lhote, Bissiére, Gromaire og Fernand Léger, allt nafntogaðh- lista- og kennimenn. Þeh- sem kunna einhver deili á okkar eigin listasögu minnast eflaust Þorvaldar Skúlasonar og Nínu Tryggvadóttur, en tveir síðastnefndu listamennirnh- voru einmitt kennai-ar þeirra. Ef Louise hefði ekki kynnst væntanlegum eiginmanni sínum - band- aríska listfræðingnum Robert Goldwater - 1937, og flust ári síðar með honum til New York, er aldrei að vita nema fundum þeirra hefði getað borið saman. Áður en hjónin héldu vestur um haf ætt- leiddu þau lítinn munaðarleysingja, Michel að nafni, en eignuðust síðan tvo syni til viðbótar, Jean-Louis og Alain, skömmu eftir að þau höfðu stofnað heimili í New York. Þótt erfitt væri fyrir Louise að rækja móðurhlutverkið í nýju landi og sinna listinni um leið, lét hún ekki deigan síga heldur tók virkan þátt í listalífi borgarinnar og sýndi reglulega málverk sín, teikningar og gi'afíkmyndir. Arið 1949 söðlaði hún svo um og tók að helga sig höggmyndalist. Löngu áður en hún öðlaðist viðurkenningu sem einn fremsti listamaður Bandaríkjanna mátti ljóst vera hvíhkh' hæfileikar voru á ferðinni þai’ sem Louise Bourgeois fór. Þegar í byrjun 6. áratugarins var hún farin að stilla saman höggmyndum sínum eins og samfelld- um umhverfisverkum - skógi af tótem-fígúrum þar sem einingarnar kölluðust á -löngu áður en slíkt var þekkt stærð í hinum alþjóðlega list- heimi. Þá vai- inntak verka hennar jafnt sem efni og aðferðir ólíkt flestu sem aðrir mynd- höggvarai- voru að fást við á 6. og 7. áratugn- um. Hún hikaði ekki við að leita inn á líkamlegar og djúpsálarlegar brautir til að takast á við drauga úr fortíðinni sem stöðugt ásóttu hana. Louise Bourgeois hafði frá öndverðu verið handgengin súrrealismanum, sem átti sitt kjörskeið á millistríðsárunum. Nú - undh- lok 7. ái'atugarins - blés hún nýju lífi í þessa list- stefnu, sem var orðin svo snyrt og snurfusuð að hún var orðin að innantómu sirkusgríni. Með því að afhjúpa eigin sálarangist og búa henni efnislegan búning í formi klefa af ýmsum stærðum og gerðum - þar sem saman fóru marmaramyndir af líkamshlutum, speglar, fundnir gripir, mjúkir efnismassar, glerflöskur með líkamsvökvum og annað óvænt þing s.s. fallöxi - tefldi hún saman ólýsanlegri fegurð og óhugnaði með óviðjafnanlegum sköpunar- mætti. Louise Bourgeois mátti bíða fram á áttræðisaldurinn til að öðlast þá viðurkenningu sem henni ber sem einhver frumlegasti og ær- legasti listamaður efth'stríðsáranna. Uppruni hennar og kyn komu í veg fyrir skjótan frama en með aðstoð framsækinna lista- og mennta- kvenna í Bandaríkjunum tókst henni að kom- ast gegnum múr fordómanna og slá í gegn í hinum alþjóðlega listaheimi. Þegar hún var valin til að vera fulltrúi Bandai'íkjanna á 45. Tvíæringnum í Feneyjum, árið 1993 - eftir að hafa slegið í gegn á Documenta í Kassel, árinu áður - skildi almenningur loksins stærð þessar- ar fíngerðu og brothættu listakonu. Það tók hana liðlega hálfa öld að koma, opna augu okk- ar og leggja heiminn að fótum sér. Hvað á siðlaus maður skilið? KVIKMYJVDIR Stjörnubíó U-TURN ★ ★’/2 Leikstjóri: Oliver Stone. Handrits- höfundur: John Ridley eftir bók sinni „Stray Dogs“. Aðalhlutverk: Sean Penn, Jennifer Lopez, Nick Nolte, Powers Boothe, Jon Voight, Billy Bob Thornton, Claire Danes og Joaquin Phoenix. Tristar 1998. STÓRKOSTLEGT landslag Arizona í víðmynd. Lest. Sting- andi sól. Hrægammar. Mustang blæjubíll árgerð 1964 á fleygi- ferð. Við stýrið er óálitlegur náungi. Smábær í niðumíðslu með einni aðalgötu. Ennio Morrieone. Upphafið á nýjustu mynd Oli- ver Stones minnir um allt á nútíma kúrekamynd. Maður finn- ur á sér að aðkomumaðurinn á eftir að gera usla í bænum en ef- ast þó um að hann eigi eftir að skora einhvern á hólm og næla sér í fógetastöðuna því hann er kúrekinn í svörtu fötunum. Bobby Cooper, leikinn af Sean Penn, er samviskulaus smá- krimmi í peningavandræðum. Hann kemur í smábæinn Super- ior þar sem ekkert virðist gerast. Hann hittir sætustu gelluna í bænum (Jennifer Lopez) og þar með á hann eftir að komast að og lenda í öllu því sem kraumar und- ir yfirborði krummaskuðsins. Það er skemmtilega létt yfir U- turn þótt hún gerist hrikalega blóðug, í fáránlegu og gráglettnu ofbeldi að hætti Tarantinos. Oli- ver Stone er maður með ofeldi á heilanum, og hér spyr hann sjálf- an sig og áhorfendur: Hvað á sið- laus maður skilið? Hann setur áhorfendur í þá raunastöðu að líka ekki aðalpersónan, en fá samúð með henni smám saman, því það eru takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að leggja á eina manneskju sama hversu ógeðfelld hún er. Eða hvað? Myndin byrjar sem sagt vel; hún er áhugaverð, skemmtileg og áreitin en eftir miðbikið verður hún helst til langdregin. Endirinn er samt góður, og minnir skemmtilega á lokaatriðið í hinni yndislegu suðrænu kúrekamynd „Duel in the Sun“ (K. Vidor 1946), þótt hann sé hálfgerð afskræming á því, þar sem ekki er um að ræða eldheita ást milli aðalpersónanna heldur bullandi sjálfselsku. Kúrekastíllinn hefur skemmti- legan „film noir“ tón, og skapar það furðulega og skemmtilega stemmningu með ýktum en óg- leymanlegum persónum, og Oli- ver Stone hefur valið einstaklega góðan leikarahóp. Gamli karlinn Nick Nolte kemur á óvart sem eiginmaður hinnar gullfallegu Lopez sem einnig sýnir mjög góðan leik sem óánægt og undir- förult tálkvendi. Claire Danes fær fínt hlutverk vitgrannrar stúlku sem lætur sig dreyma um annað líf, og sýnir á sér nýja hlið sem leikkona. Joaquin Phoenix leikur ofbeldisfullan og heimskan náunga sem hægt er að hlæja að, en persónan er sú klisju- kenndasta í myndinni. Sean Penn er frábærlega sterkur leikari, og það er ágætt að sjá hann ekki of oft, þá getur maður notið hans til hins ýtrasta eins og nú. Honum tekst að sjálfsögðu vel upp sem ógeðfelldur og brjóstumkennan- legur náungi og er á heimavelli í því hlutverki. Billy Bob Thornton leikur ógeðslegan bifvélavirkja sem féflettir Penn, og er ein af ýktari persónunum en það er gaman að honum. Stíllinn á myndinni er tískan í dag; gróf filma, náttúruleg lýsing, iðandi myndavélahreyfingar með hröðum aðdráttarskotum sem er ágætur stíll til að gera ódýra mynd flotta, en persónlulega finnst mér það frekar þreytt og ofnotað. Tónlistin er mjög fjölbreytt og skemmtileg, bæði stefin hans Morricones og bandarísku djass- og dægurlögin. I samspili við leikmynd og búninga gefur tón- listin myndinni yfirbragð tíma- leysu sem hentar einkar vel. U-tum er skemmtileg hug- mynd og vel unnin, sem hefði orðið frábær kvikmynd ef hún hefði ekki allan tímann komið við sömu veiku punktana hjá áhorf- endum og handritið þar með heldur endurtekningasamt. Hildur Loftsdóttir Andblær vorsins MYNDLIST Listlnís Öfeigs VATNSLITIR Verk Helgu Magnúsdóttur. Opið á verslunartíma. Aðgangur ókeypis. Til 27. maí. HELGA Magnúsdóttir sýnir 16 akvarellur í Listhúsi Ófeigs Björns- sonar. Helga útskrifaðist úr málara- deild Myndlista- og handíðaskólans 1989, og síðast sýndi hún á vegum listkynningar SPRON í útibúinu í Mjódd. Vatnslitamyndir Helgu eru kyrralífsuppstilingar, þar sem myndefnið og myndbyggingin vega ekki þungt, en meira reynt að laða fram gegnsæi og flæði akvarellunnar. Akvarellan er afbrigði af vatnslit- um sem er skyldara teikningu og kallígrafíu en málverki, og það er einmitt þegar léttleiki skissunnar og hraði pensilskriftarinnar fá að njóta sín að kostir akvarellunnar koma best fram. Helga leggur mikið upp úr flökti lita og birtu. Myndin „Vor“ er gott dæmi, þar sem vel tekst til og sam- ræmi og samspil ríkja án nokkurrar fyrirætlunar eða reglu. Liturinn svíf- ur gegnsær yfir pappírnum. Þótt stíllinn sé frekar ómótaður og maður saknar meira afgerandi persónuein- kenna, þá vh’ðist Helga ná ágætum tökum á akvarellunni og andblær sumarsins er yfir myndum hennar. Það á vel við á vordögum. Gallcrf Listakot MÁLVERK Verk Sigurrósar Stefánsdóttur. Opið virka daga frá 12:00 til 18:00 og laug- ardaga frá 10:00 til 16:00. Aðgangur ókeypis. Til 30. maí. í LISTAKOTI sýnir Sigurrós Stefánsdóttir 15 olíumálverk og 17 vatnslitamyndir. Sigurrós byrjaði myndlistarferil sinn nokkuð seint, miðað við það sem gengur og gerist, útskrifaðist úr málunardeild Mynd- listarskólans á Akureyri í fyrra og hefur sýnt nokkrum sinnum á Ak- ureyri og Sauðárkróki. Óll málverkin utan eitt eru af uppstilltum fígúrum, nokkrum sam- an, dregnar almennum og sviplaus- um dráttum. Myndirnar sýna fólk, en ekki persónur, allt er það meira eða minna einsleitt, með svipbrigða- laus andlit, stillt upp til myndatöku, án þess að nokkur tengsl séu milli þess önnur en þau sem sjást á myndum úr fjölskyldualbúmum. Sigurrós virðist nota fígúrumar til að stilla saman formi og litum á flet- inum, en uppstillingarnar eru frek- ar daufar og fígúrurnar koma fyrir sjónir eins og brúðumyndir. Mikið er lagt upp ú samspili lita og allur litaskalinn óspart notaður, en þrátt fyrir það vantar meiri snerpu í and- stæðum lita og birtutóna. Áherslulínur fáar og frekar dregið úr. Yfirbragðið á allt að vera ró- lyndislegt og á lágu nótunum og gæti þess vegna farið vel við pastellitaða púða í sófa. Vatnslitamyndirnar sem Sigurrós sýnir, og kallar „Línur í landslagi", eru agnarsmáar og koma einna helst fyrir sjónir eins og gjafavara, enda er gylltur ramminn í aðalhlut- verki og ber myndirnar ofurliði. Ovænt undantekning er hringlaga absti'aktmálverk sem hún kallar „Línur í landslagi" þar sem Sig- urrós sleppir framan af sér beislinu og formi og litum. En að öðru leyti læðist að manni sá grunur að Sig- urrós sé full upptekin af því halda sig tryggilega innan marka hins smekklega. Gunnar J. Árnason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.