Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 35
MENNTUN
Morgunblaðið/Geir
FÓLKIÐ á bak við kennslumyndbandið: Ólína Sigurgeirsdóttir, Kristín Helgadóttir og Gerður Steinþórsdótt-
ir í fremri röð og Sölvi Sveinsson, Sigrún Björnsdóttir, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir og Svava Þorkelsdóttir
í þeirri aftari.
skólar/námskeið
1 tungumál
■ Enskunám á Englandi
f boði er alhliða enskunám allt árið við
virtan enskuskóla. Sumamámskeið fyrir
unglinga. Fámennir námshópar.
Vettvangsferðir og íþróttir. Fæði og hús-
næði hjá enskri fjölskyldu.
Nánari upplýsingar gefur Marteinn M.
Jóhannsson í síma 557 6448 eftir kl.
18.00.
slime-line"
dömubuxur frá
gardeur®
Heilbrigðisskólinn
við Armúla
Uáuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
NÚNA í vor var Heilbrigðisskólinn
við Armúla stofnaður en hann er sér-
stök deild við Fjölbrautaskólann þar.
Hann lýtur stjórn Sölva Sveinssonar
skólameistara og skólanefndar. Sér-
stakt fagráð heilbrigðisstétta og
ráðuneyta er skólameistara til halds
og trausts þegar námsframboð er
skipulagt. I skólanum er einnig end-
urmenntun skipulögð í samvinnu við
einstök stéttarfélög.
Fagráðið á að koma í veg fyrir
stöðnun Heilbrigðisskólans og
tryggja að námið sé ævinlega í sam-
ræmi við þörfina á vinnumarkaðin-
um. „Einnig verður hægt að stunda
fjarnám við skólann," segir Sölvi
Sveinsson og að fengist hafi styrkur
úr Þróunarsjóði til þess. Fjamámið
verður í samvinnu við Verkmennta-
skólann á Akureyri.
í Heilbrigðisskólanum eru nokkr-
ar brautir sem FÁ hefur sérhæft sig
í: Læknaritarabraut, námsbraut fyr-
ir aðstoðarmenn tannlækna,
sjúkraliðabraut, lyfjatæknabraut,
námsbraut fyiir nuddara og fyrir
fólk í félagslegri heimaþjónustu.
Einnig er í honum framhaldsnám
fyrir sjúkraliða og ýmiss konar önn-
ur námskeið.
Tvær nýjar brautir eru í undir-
búningi, önnur fyrir rannsóknar-
menn sem myndu sérhæfa sig í
sýnatöku' og aðstoðarstörfum á
rannsóknarstofum, hin verður náms-
braut íyrir fótaaðgerðafræðinga.
„Lögð verður mikil áhersla í skólan-
um á sí- og endurmenntun fyrir heil-
brigðisstéttir, og farið með námskeið
út um allt land,“ segir Sölvi.
Kennslumyndband um böðum
Fjölbrautaskólinn við Armúla fékk
styrk til að vinna nýtt námsefni fyrir
sjúkraliðabrautina, en skortur hefur
verið á íslensku efni. Svava Þorkels-
dóttir og Guðrún Hildur Ragnars-
dóttir kennarar við skólann fengu þá
hugmynd að láta gera kennslumynd-
band til að nota í verklegri kennslu.
Myndbandið var síðan unnið af
nemendum Sigrúnar Björnsdóttur í
hagnýtri fjölmiðlun í Háskóla ís-
lands og Kvikmyndafélaginu Nýja
Bíó. Reiknað er með að myndbandið
nýtist einnig í fjarkennslu og við
þjálfun starfsfólks á hjúkrunar- og
vistheimilum landsins.
Höfundar myndbandsins sem fjall-
ar um böðun sjúklinga eru Kristín
Helgadóttir og Gerður Steinþórs-
dóttii- nemendur í hagnýtri fjölmiðl-
un sem unnu það í samvinnu við
kennara skólans. Ólína Sigurgeirs-
dóttir lék sjúklinginn í myndinni.
—H]—
Heimili
að heiman í
Kaupmannahöfn
Vandaðar,
ferðamannaíbúðir
miðsvæðis í
Kaupmannahöfn.
Verð á mann frá dkr.
* A dag.
Allar íbúðirnar cru
mcð eldhúsi og baði.
Hafðu samband við
ferðaskrifstofúna þína eða
'Jiv SfcaviU- iJciuulintuHtt
Sími 00 45 33 12 33 30,
fax 00 45 33 12 313 03
*Verð á mann miðað við 4 í íbúð í viku
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-150C
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-107C
MARKMIÐIÐ er að styrkja raungreinakennslu í skólum.
Raungreinakennarar
á tölvunámskeiði
RAUNGREINAKENNARAR frá
Háskóla Islands, Iðnskólanum 1
Reykjavik, Tækniskóla Islands,
Fjölbrautaskóla Breiðholts og
Vélskólanum hafa að undanförnu
setið námskeið í LabVIEW hug-
búnaðinum frá National Instru-
ments. Tilgangurinn er að nota
LabVIEW til að styrkja raun-
greinakennslu.
Verkfræðistofan VISTA, Höfða-
bakka 9, sem er dreifingaraðili
kerfisins hér á landi, stóð fyrir
námskciðinu. Leiðbeinandi var
Andrés Þórarinsson rafmagns-
verkfræðingur.
Á næstunni verður sambærilegt
námskeið á Akureyri fyrir kenn-
ara Háskólans á Akureyri, Verk-
meimtaskólans á Akureyri og
fleiri skólamenn norðanlands.
Nokkrir fleiri skólar eru að
íhuga að nota LabVIEW til að
styrkja raungreinakennslu hjá sér.
Þúsundir verkfræðinga, vísinda-
manna og tæknimanna, víða um
heim, nota LabVIEW til að búa til
lausnir fyrir krcfjandi kerfi.
LabVIEW er myndrænt hugbúnað-
arverkfæri byggt á G forritamál-
inu fyrir mælingar, stýringar,
gagnagreiningu og framsetningu
upplýsinga. Myndrænt viðmót,
með fáar takmarkanir, gerir
LabVIEW aðgengileg fyrir vís-
indamenn og verkfræðinga.
LabVIEW kom fyrst á
markaðinn 1984 og hefur verið í
stöðugri þróun síðan. Núverandi
útgáfa er 5.0. LabVIEW var upp-
haflega eingöngu fyrir Macintosh
tölvur, en aðrar tölvur höfðu ekki
á myndrænu framsetningu sem
óskað var eftir. Núna keyrir
LabVIEW á öllum tölvukerfum,
þ.e. Macintosh, Windows 95,
Windows NT, Sun SPARC, HP
UNIX og Concurrent. Forrit sem
þróað er á einu kerfi keyrir án
breytinga á öðru kerfi.
LabVIEW er talið heppilegt til
skjámyndagerðar og smíði mæli-
kerfa. Samskipti við mælispjöld
eru þróuð, sem og samskipti við
stýrivélar, samskipti um tölvunet
og um RS-232 raðtengi.
HONDA
5 d v r a 1 . 4 i _________________________________
7 5 h e s t ö ( I
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Innifalið í verði bílsins
M400cc 16 ventla vél með tölvustýröri innsprautun
.......... “S
► Vindskeið með bremsuljósi
lÚtvarp og kassettutæki
IHonda teppasett
M4" dekk
kSamtæsingar
IABS bremsukerfi
►Ryðvörn og skráning
Verð á götuna: 1.295.000.-
Aðrar vélarstærðir einnig á lager, viðbótarbúnaður tilgreindur:
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.490.000,-
160 hestöfl 115 hestöfl 90 hestöfl
Honda Civic 1.4 Si
1.375.000,-
Honda Civic 1.6 VTi VTEC
1.890.000,-
15" álfelgur
Rafdrifin sóllúga
6 hátalarar
Sportinnrétting
Leöurstýri og leðurgírhnúður
Fjarstýðar samlæsingar
Höfuðpúðar aftan
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Umboðsaðiiar:
Sjálfskipting 100.000,-
(0
HONDA
Sími: 520 1100
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísaijörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011