Morgunblaðið - 27.05.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.05.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998 15 AKUREYRI Tímamótasamningur Þórs og KA Morgunblaðið/Kristján TÓMAS Guðmundsson, formaður handknttleiksdeildar Þórs, t.v. og Páll Alfreðsson, formaður handknattleiksdeildar KA, takast í hendur eftir undirskrift samningsins. Það gerðu einnig Þóroddur Hjaltalín, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Valdimar Freysson, formaður knattspyrnudeildar KA, sem standa á milli Tómasar og Páls. Skipta með sér rekstri kvenna- boltans FORSVARSMENN íþróttafélagsins Þórs og Knattspyrnufélags Akur- eyrar skrifuðu undir tímamóta- samning milli félaganna fyrir helgi. Annars vegar þess efnis að KA taki að sér rekstur meistaraflokks og 2. flokks kvenna í handbolta og'hins vegar að Þór taki að sér rekstur sömu flokka í knattspyrnu. Samningurinn gildir næstu 5 árin en skal endurskoðaður árlega. Nöfn liðanna verða Þór-KA í knatt- spyrnu og KA-Þór í handbolta. Með þessum nöfnum þurfa þær stúlkur sem vaxa upp í félögunum ekki að skipta um félög er þær koma upp í 2. flokk eða meistaraflokk heldur verða áfram í sínum félögum. Jafn- framt þessu munu bæði félögin halda uppi unglingastarfi stúlkna í báðum greinum. Þá er stefnt að því að félögin vinni enn frekar saman með yngri flokka sina. Nýleg könnun um þátttöku kvenna í íþróttum á Akureyri hefur sýnt að brottfall kvenna úr íþrótt- um er miklu meira og fyrr en hjá körlum. Er það von sljórnanna að með þessum aðgerðum nái félögin að byggja upp öflugt starf í kvennaboltanum og komi til með að HRÍSEYJARHREPPUR Neyðarkall frá Grunnskólanum í Hrísey Ágætu kennarar nær og fjær! Hafið þið prófað að kenna í fámennum skólum? Hafið þið hugsað um að auka við starfsreynslu ykkar og reyna eitthvað nýtt, t.d. samkennslu. Vitið þið að Hrísey er steinsnar frá Akureyri og ferjuferðir eru oftar en þið haldið. Hrísey er paradís barna og náttúruunnenda. í Hrísey er leikskóli og þar opnar í sumar glæsileg líkams- ræktarstöð. Búið þið í dýru leiguhúsnæði? Ef svo er þá er húsaleiga í Hrísey afar sanngjöm. Okkur sárvantar tvo eldhressa og duglega kennara. í skólanum ríkir góður andi. Þar verða 37 nemendur næsta skólaár í 1.-9. bekk. Allar mögulegar kennslugreinar á lausu. Skólinn er ótrúlega vel búinn miðað við smæð. Hríseyingar eru duglegir og vilja gera allt til að halda uppi góðum skóla. Nemendur skólans eru frábærir. í guðanna bænum hringið eða komið í skoðunarferð hið snarasta. Umsóknarfrestur til 5. júní. Svanhildur Daníelsdóttir, skólastjóri. Vinnus. 466 1763. Heimas. 466 1739. E-mai: Rjupan@nett.is Eftir 1. júní gefur sveitarstjóri upplýsingar. Vinnus. 466 1762. Heimas. 466 1739. HELGA Steinunn Guðmunds- dóttir, formaður KA, og Gísli Kristinn Lórenzson, formaður Þórs, voru að vonum glaðbeitt er þau skáru tertuna sem boðið var upp á eftir undirskrift samningsins. eignast kröftug lið með þessari sameiningu. A blaðamannafundi þar sem samningurinn var kynntur, lýstu formenn KA og Þórs yfir mikilli ánægju með samninginn og undir þau orð tók Þröstur Guðjónsson, formaður íþróttabandalags Akur- eyrar, ÍBA. Aksjon Miðvikudagur 27. maí 21.00ÞNíubíó - Fundið fé (Pay Dirt) Fangelsissálfræðingur kemst á snoðir um falið fé, en fleiri ásæl- ast gullið og upphefst nú æsilegt kapphlaup. I þessari gamanmynd sannast að margur verður af aur- um api. Aðalhlutverk: Jeff Danieis, Dabney Coleman og Rhea Pe- arlman, 1992. HÚSIÐ við Hafnarstræti 103, í miðbæ Akureyrar hefúr verið rifið, en hafist var handa við það verk- efni í byrjun vikunnar. Hallgrími Kristjánssyni og Guðmundi Jóns- syni var veitt leyfi til að byggja tvíloftað hús á lóðinni sunnan við hús Magnúsar Einarssonar org- anista samkvæmt gjörðabók bygg- inganefndar Akureyrarbæjar 1902. Húsið hefur ver- ið byggt á árunum 1902 til 1903 en búsetu þar er fyrst getið 1903. I bók Steindórs Stein- dórssonar, Akureyri, Höfuðborg hins bjarta norðurs segir að þar hafi Magnús Þórðar- son rekið verslunina Díönu um skeið eða áð- ur en hann byggði Norðurpólinn sem stóð við Gránufélagsgötu. Morgunblaðið/Kristj án HAFNARSTRÆTI103 heyrir nú sögunni til, en húsið sem byggt var fyrir 95 árum var rifið í vikunni. Eggert Laxdal kaupmaður eignaðist húsið árið 1909 og bjó þar til dánardægurs 1920. Lengst af hafa tvær til þrjá verslanir verið reknar á götuhæð hússins samtím- is, Hannyrðaverslun Ragnheiðar O. Björnsson var lengi starfrækt í húsinu, Jóhann Ragúels höndlaði þar með tóbaksvörur og sælgæti lengi vel en hin síðari ár hefur Skóverslun M.H. Lyngdal verið þar til húsa, eða allt þar til síðla árs í fyrra. Hafnar- stræti 103 rifíð HAGKAUP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.