Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998 17 Morgunbiaoio/ingimunaur SKÓLASTJÓRAR á Vesturlandi á skólabekk í Skólaskrifstofu Vesturlands í Borgarnesi. Skólastjórar á Vestur- landi á skólabekk Borgamesi - Skólastjórar grunnskóla á Vesturlandi settust á skólabekk nú í vor, er haldið var hið fyrsta í röð nám- skeiða fyrir skólastjóra sem standa mun yfir allt næsta skólaár. Tilgangur þessarar fræðslu er að kynna nýjung- ar í stjómun og með því efla grunn- skólana á svæðinu í þróun fram til nýrrar aldar. Forsendur eru ekki síst þær að huga þarf að stöðu og ímynd skólans í breyttu starfsumhverfi eftir að rekst- ur hans og ábyrgð fluttist að fullu til sveitarfélaga. Grunnskólinn er nú hluti af kerfi sveitarfélagsins og þarf að miðla upplýsingum til stjómenda þess, en verður jafnframt að gæta þess að halda traustum tengslum við þá sem skólinn á að þjóna; nemendur sína og fjölskyldur þeirra. Þetta fyrsta námskeið snerist um kynningarmál og ímynd gmnnskól- ans. Fyrirlesari var Asmundur Þórð- arson, aðjunkt við Samvinnuháskól- ann á Bifröst, og fjaliaði hann um al- mannatengsl, ímynd grannskólans, viðbrögð skóla við gagnrýni, aðkasti og áfollum, en einnig um samskipti og tengsl skólans við fjölmiðla. Að sögn skólastjóra er námskeið af þessu tagi gagnlegt þar sem skól- ar eru æ oftar í umfjöllun fjölmiðla og oft frekar á neikvæðum nótum og stjórnendur skóla lenda oftar í eld- línu þeirrar umræðu en áður var. Skólamenn leggja á það mikla áherslu að umfjöllun um grannskól- ann sé með jákvæðum hætti, því að viðhorf heimila og umhverfis eru oft- ast lykilatriði í farsæld og árangri skólastarfs og rannsóknir sýna að námsgengi nemenda veltur að vera- legu leyti á viðhorfi heimilis þeirra til skólans og þess starfs sem þar fer fram. Þetta endurmenntunartilboð til skólastjóra er samstarfsverkefni Skólastjórafélags Vesturlands, Skóla- skrifstofu Akraneskaupstaðar og Skólaskrifstofu Vesturlands í Borgar- nesi. Morgunblaðið/Silli Eldri borgarar á Húsavík Húsavík - Félag eldri borgara á Húsavík hefur starfað ötullega og lauk vetrarstarfsemi sinni með góugleði nú nýlega. Þar skemmti kór aldraðra undir stjórn Benedikts Helgasonar og undirleik Bjargar Friðriksdóttur. Kórinn skipa um 30 eldri borgar- ar og hagyrðingar úr hópi aldraðra létu kviðlinga fjúka. Spilakvöld eru á hveiju miðvikudagskvöldi og sækja það oftast milli 30 og 40 félagar. Á liðnum vetri var sett á stofn svo- nefnd samverustund fyrir eldri borgara í Keldunni. Þar hittast þeir tvisvar í viku til handavinnu og nutu tilsagnar í föndri undir stjóm Sigrúnar Kjartansdóttur. Einnig var þar þá spilað bob og billiard og spiluð vist og brids. Þessi nýbreytni þótti vel takast svo hún mun verða tekin upp næsta vetur. I íþróttahöllinni spila margir boccia og hafa þeir á landsmótum oft náð góðum árangri. Félagið á 9 holu púttvöll skammt frá íþróttahöllinni og undu menn sér vel þar við leik og mun svo verða á komandi sumri. Einnig er farið að skipuleggja sumarferðir og er sú lengsta 3ja daga ferð um Strandir og Dali. Núverandi formaður er Ás- mundur Bjarnason. 8oo 7000 •svarar spurningumþinum um simann JHvort heatar mer betur, NMT eöa GSM sími? ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ SIMANS :{IIU7000 SIMINN GJAIDBRIAIST WONUSTUNUMBR „Glaðningur með gialdeyrinum" - hjá íslandsbanka Þeir sem duttu í lukkupott Samvinnuferóa-Landsýnar þann 20. maí si. tá senda 5.000 kr. gjaideyrisúttekt frá SL. Gegn framvísun þessarar úttektar í íslandsbanka fá vinningshafarnir mjúkt og vandað baðhandklæði. Handklæðinu fylgir póstkort sem þú getur stílað á tslands- banka og sent frá sumarleyfisstaðnum þínum. Sá sem sendir skemmtilegasta póstkortið vinnur helgarferð fyrir tvo til Dublin í haust með Samvinnuferðum-Landsýn! J Þessir duttu í lukkupottinn þann 20. maí og fá sendan skemmtilegan glaðning á næstu dögum! Bknr. Nafn 137352 Guðmundur Einarsson 158167 Jóhanna Halldórsdóttir 167030 Valborg Aöalgeirsdóttir 198023 Guðrún Markúsdóttir 148273 Inga Jóhanna Kristinsdóttir 140371 Þorkell Sigurgeirsson 137378 Guðlaugur Eyjólfsson 142697 Annadís Jónsdóttir 152917 Sigrún Lárusdóttir 160308 Gísli Guðmundsson 136323 Ragna Gunnarsdóttir 184411 Guöný Hallgrímsdóttir 138923 Árni Unnsteinsson 150386 Margeir Þorgeirsson 150699 Elfa Björk Sævarsdóttir 135050 Fjóla Marinósdóttir 151015 Guðjón Baldursson 550761 Sigurborg Hafsteinsdóttir 151104 Guðleifur Guðmundsson 140476 Jón Sæmundsson Til þess að vera með í næsta útdrætti þarft þú að staðfesta bókunina þína fyrir 20. júní nk., en þá verður dregió f fimmtu og síðustu umferð afmælishappdrættisins. u Við erum við simanu: Virka daga frá kl. 9 - 22 Laugardaga frá kl. 12 -16 Sunnudaga frá kl. 16 -18 Bókunarsíminn er: 569 1010 ÍSLANDSBANKI OPIÐ VIRKA DAGA KL. 08-22 OG UM HELGAR KL. 10-17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.