Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 20

Morgunblaðið - 27.05.1998, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Lykillinn að líkams- klukkunni fundinn? FRÉTTIR Jeltsín Rússlandsforseti ræðir við Harald Noregskonung Yill lán til að rífa niður kj arnor kukafbáta Moskvu. Reuters. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær að Rússar myndu rífa niður alla gamla kjamorkukafbáta sína í Barentshafi ef Norðmenn veittu þeim lán til að standa straum af kostnaðinum. „Við þurfum ekki á kafbátunum að halda núna, einkum kjarn- orkukafbátunum," sagði Jeltsín við fréttamenn eftir að hafa rætt við Harald Noregskonung, sem er í fimm daga heimsókn í Rússlandi. „Verði fjárhagsvandinn leystur með lánum frá Norðmönnum hefjumst við strax handa við að rífa kafbátana niður.“ „Við gætum fjarlægt alla gömlu kafbátana af öllu Barentshafs- svæðinu og lýst það öryggissvæði," hafði fréttastofan Itar-Tass einnig eftir forsetanum. Vilja rífa niður hluta flotans Ekki kom fram hvernig konungur- inn svaraði tillögunni og Jeltsín sagði ekkert um hversu há lán Rússar þyrftu til að losa sig við kafbátana. Jevgení Prímakov, utanríkis- ráðherra Rússlands, tók síðar fram að Rússar byðust aðeins til að eyði- leggja gamla kjamorkukafbáta, sem þeir höfðu þegar ákveðið að leggja. „Við erum ekki að tala um þá kaf- báta sem annast eftirlit á svæðinu," sagði hann. Norðmenn hafa lengi haft miklar áhyggjur af ryðguðum kafbátum við landamæri ríkjanna vegna hættunn- ar á umhverfisspjöllum. Rússar eru með um 90 gamla kjarnorkuknúna kafbáta í Norður-Rússlandi, að sögn rússneska tímaritsins Itogi. BANDARÍSKIR visindamenn hafa uppgötvað ljósnæmt litar- efni sem hefur áhrif á líkams- klukku manna. Svo virðist sem efni þetta stýri dægursveiflunni sem stillir líkamsstarfsemi á borð við blóðþrýsting, hugarstarf og svefn. Litarefnið cryptchrome (felu- litur) finnst í augum, húð og þeim hluta heilans sem stýrir Iíkamsklukkunni. Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega öld sem áð- ur óþekkt litarefni finnst í spendýrum, og kann að koma að notum við meðferð skammdeg- isþunglyndis og þotuþreytu. Aziz Sancar, prófessor við Háskóiann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, og dr. Yasu- hide Miyamoto greina frá upp- götvuninni í nýjasta hefti Proceedings of the National Academy of Sciences. Sancar segir að áður fyrr hafi verið gert ráð fyrir því að sama litarefnið stjórnaði sjón og stillingu dægur- sveiflunnar. Sjónlitarefnið, rhodopsin (sjón- purpuri), uppgötvaðist 1877. Það tengist A-vítamíni. Cryptochrome, sem tengist B2- vítamíni, drekkur í sig blátt Ijós og sendir boð til annars hluta heilans en rhodopsin gerir. Sanc- ar vonast til þess að hægt verði að beita B2-vítamíni við meðferð sumra þunglyndissjúklinga. Reuters Endurbótum á Sfinxinum lokið EGYPTAR fögnuðu í fyrrakvöld því að lokið hefur verið við að fríska upp á útlit Sfinxsins fræga. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, var gestgjafi í glæsilegri veislu við pýramídana í Giza þar sem m.a. var rakin saga þessarar 4500 ára gömlu styttu sem lík- ist að hálfu leyti manni og að hálfu leyti ketti. Vonast er til að endurbæturnar verði til að glæða á nýjan leik ferðaþjónustu sem að und- anförnu hefur dalað nokkuð vegna fjölda hryðjuverka á svæðinu. Sfinxinn var til forna helsta tákn egypsku konungsQölskyldunnar en ekki er vitað nákvæmlega í hvaða tilgangi hann var reist- ur. Hitt telja sérfræðingar öruggt að ástandi Sfinxsins hafi hrakað meira á síðustu fimmtíu árum heldur en samanlagt á árþúsundunum þar á undan enda var Sfinx- inn fram til 1926 grafinn upp að öxlum í sand og þannig vel varinn gegn áhrifum veðra og vinda. Hafist var handa við að lag- færa þennan risavaxna „kattarmann" árið 1988 eftir að stórt stykki brotnaði úr öxl Sfinxins og féll til jarðar. Endurbæturnar stóðu yfir í átta ár og kostuðu alls um 1,8 milljónir punda, næstum því 210 milljónir íslenskra króna, að sögn Zahi Hawass, sérlegs fornleifafræðings eg- ypsku ríkisstjórnarinnar, og voru notaðir alls 12.244 kalksteinar til að styrkja undir- stöður Sfinxins. „Sfinxinn brosir nú breitt því hann hefur náð heilsu á nýjan leik,“ sagði Hawass. Dræm aðsókn að heimssýn- ingunni Margir kvarta yfir háu verðlagi Lissabon. Reuters. AÐSÓKNIN að heimssýningunni í Lissabon, „Expo 1998“, hefur verið dræm og aðeins um fimmtungur þess sem búist hafði verið við. Frá þvi heimssýningin var sett á fdstudag hafa gestimir verið um 20.000 á dag, en því hafði verið spáð að þeir yrðu 100-150.000 á dag. Antonio Guterres, forsætis- ráðherra Portúgals, sagði þó í gær að engin ástæða væri til að örvænta og kvaðst sannfærður um að aðsóknin ykist jafnt og þétt og yrði mjög mikil í sumar. „Eg hygg að aðsóknin sé aldrei mjög mikil fyrstu dagana," sagði forsætisráðherrann og nefndi sem dæmi síðustu heimssýningu, í Sevilla á Spáni 1992. „Hvað sem öðru líður hafa tugþúsundir manna þegar sótt sýninguna og mest er um vert að þeir höfðu mikla ánægju af henni.“ Margir hafa kvartað yfir háu verði á mat og drykk á sýningunni en forsætisráðherrann taldi verðlagninguna eðlilega. „Jú, ég tel að betra væri að þetta væri ókeypis, rétt eins og best væri að allt í lífinu væri ókeypis. Því miður vildum við frekar að skattgreiðendur stæðu ekki undir heimssýningunni og staðreyndin er að verðið endur- speglar gæði sýningarinnar." Kfnverjar fagna góðri kjörsókn í Hong Kong Þöglir sem gröf- in um úrslitin Hong Kong. Reuters. KÍNVERSK stjómvöld sögðust í gær afar ánægð með framkvæmd þingkosninganna í Hong Kong á sunnudag. I málgagni kommúnista- stjómarinnar í gær em kosningam- ar sagðar vatnaskil í sögu Hong Kong vegna mikillar kjörsóknar og ausið er lofi á almenning þar fyrir að axla samfélagslega ábyrgð sína. Ekki er hins vegar minnst einu orði á niðurstöður kosninganna, enda unnu lýðræðisflokkar undir stjóm Martins Lee, harðs gagnrýnanda kommúnistastjórnarinnar, þar 14 af þeim 20 þingsætum sem kosið var um. Talsmenn Kínastjómar sögðust í gær fullvissir um að kjörnir fulltrú- ar myndu hlíta þeim reglum sem giltu í Hong Kong. Lee hefur verið kallaður niðurrifs- maður af kínverskum stjómvöldum og var rekinn af þingi 1. júlí í fyrra þegar Kína tók við stjórn Hong Kong af Bretum. Hann lét sjálfur hafa eftir sér í gær að öruggur sigur lýðræðis- flokkanna hefði gefið sér „óskorað umboð“ til að krefjast aukins lýðræð- is í Hong Kong og hann spáði því að erfiðir tímar væru framundan hjá Tung Chee-hwa, ríkisstjóra Hong Kong, enda horfði hann nú fram á kröftuga stjórnarandstöðu. Lee sagði kínversk stjómvöld hrædd um að glata völdum sínum en hvatti þau til að taka lýðræði opnum höndum því einungis þannig mætti auka þá hagsæld sem gera myndi Kína að stórveldi. Kohl ræðst gegn keppinautnum Bonn. Reuters. HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka- lands sem sækist eftir endurkjöri, gagnrýndi í gær keppinauta sína í kosningabaráttunni harkalega fyrir að treysta á stuðning arftakaflokks austur-þýzkra kommúnista við myndun stjórnar eins hinna 16 sam- bandslanda Þýzkalands, þar sem kosningar fóm fram fyrir skömmu. Kohl sagði að fyrst að Jafnaðar- mannaflokkurinn (SPD) hefði valið að treysta á stuðning PDS, arftaka- flokks hins illa þokkaða kommúista- flokks Austur-Þýzkalands, SED, við stjómarmyndunina í Sachsen-An- halt, gæti SPD ekki gert neitt tilkall til hinnar pólitísku miðju, eins og kanzlaraefni hans Gerhard Schröder hefur reynt að gera í kosninga- Brottrekstur tals- manns kanzl- arans merki um taugaveiklun? baráttunni íyrir kosningar til Sam- bandsþingsins í haust. Fullyrti Kohl að Schröder myndi heldur ekki hika við að þiggja stuðning PDS ef hann gæti með því orðið kanzlari eftir kosningarnar. Þing Sachsen-Anhalt staðfesti í gær Reinhard Höppner, héraðsleið- toga SPD í Sachsen-Anhalt, í emætti forsætisráðherra sambandslandsins með 67 atkvæðum gegn 43. Þing- menn PDS tryggðu kjör Höppners, sem fer fyrir minnihlutastjórn SPD. En stjómmálaskýrendur sögðu hins vegar í gær að ákvörðun Kohls um að reka talsmann sinn nú, fjórum mánuðum fyrir kosningar, bæri vott um taugaveiklun í ljósi slæms gengis í skoðanakönnunum. Peter Haus- mann, talsmaður Kohls frá því í janúar 1995, fékk að taka pokann sinn í fyrradag. Hann er sjötti tals- maðurinn sem kanzlarinn rekur úr þjónustu sinni frá því hann tók við embætti fyrir 16 árum. Höfðu þýzkir fréttaskýrendur á orði að ákvörðunin væri óvenjulega örvæntingarfullt skref hjá Kohl, sem annars hefði á sér ímynd óhaggan- leikans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.