Morgunblaðið - 27.05.1998, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
•<
+ Einar Árnason
pípulagningar-
meistari var fæddur
á Stórahrauni í Kol-
beinsstaðahreppi í
Hnappadalssýslu 27.
febrúar 1913. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 19. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru séra
Árni Þdrarinsson,
prófastur á Stóra-
hrauni, f. 20.1. 1860,
d. 3.2. 1948, og Anna
María Elísabet Sig-
urðardóttir, f. 22.2.
1877, d. 22.5. 1958. Einar var
næst yngstur 11 systkina og eru
þrjú þeirra enn á lífi: Ingunn, f.
25.2. 1895, d. 15.5. 1977, Þórar-
inn, f. 8.8. 1898, d. 8.8. 1990,
Kristín, f. 15.1. 1900, d. 21.5.
1982, Anna, f. 27.7.1901, d. 29.2.
1996, Þóra, ellih. Grund, f. 28.2.
1903, Sigurður, f. 15.6. 1904, d.
19.10. 1978, Magnús, f. 11.5.
1906, d. 12.5. 1982, Ingibjörg
Guðrún, Sauðárkróki, f. 20.7.
1908, Guðmundur Snæbjöm,
Á æskuheimili mínu við
Smáragötu bjuggu fyrstu fimm ár
ævi minnar fjórar kynslóðir í sátt
og samlyndi, og eftir það þrjár
kynslóðir. Það var mér gott vega-
nesti og þar var mér kennt að bera
virðingu fyrir þeim, sem mér eldri
eru. Það var líka á þessu heimili
sem sú ótakmarkaða virðing, sem
ég ber enn þann dag í dag fyrir
iðnaðarmönnum, vaknaði. Á þessu
mannmarga heimili var gest-
kvæmt og í þá daga voru bæði
jjjp'öldheimsóknir og helgar-
heimsóknir í hávegum hafðar.
Reykjavík, f. 24.9.
1910, Gyða, f. 12.5.
1915, d. 19.10. 1964.
Árið 1937 kvænt-
ist Einar Vilborgu
Sigurðardóttur frá
Miðengi á Vatns-
leysuströnd, f. 14.11.
1912, d. 23. apríl
síðastliðinn, og eign-
uðust þau fimm
börn. Þau eru: Ingi-
björg, gift Þóri
Þórðarsyni; Sigurð-
ur Lárus, kvæntur
Guðbjörgu Friðriks-
dóttur; Anna María
Elísabet, gift _ Gústafi Guð-
mundssyni; Ámi, kvæntur
Ragnhildi Norgulen, _ Sigur-
björg, gift Eyþóri Árnasyni.
Bamabömin era 16 og barna-
bamabörnin 11. Einar og Vil-
borg bjuggu lengst af í Hólm-
garði 1, Reykjavík, eða frá 1951
til 1994 er þau fluttust á elli-
heimilið Gmnd.
Utför Einars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Amma mín, Ingunn Árnadóttir,
var elst ellefu systkina. Þetta var
samheldinn hópur og systkini
ömmu, makar þeirra og börn komu
oft á Smáragötuna. Eins og al-
gengt er, er í slíkum hópi alltaf að
finna einn sem börn laðast mikið
að.
Eg heillaðist frá fyrstu stundu
af Einari ömmubróður mínum.
Hann hafði einstaklega fallegt
bros og þau fallegustu augu sem
ég hef séð. Þau tindruðu af gleði
þessi stóru, brúnu augu, en um-
fram allt skein frá þeim ást og
hlýja. Einar frændi var pípulagn-
ingameistari, en í augum litlu
stelpunnar var hann töframaður.
Hann gat losað stíflur og gert við
allt sem aflaga fór. Þetta fannst
mér töfrum líkast. Þegar ég sá síð-
ar töframanninn í Sirkus
Schumann í Kaupmannahöfn
fannst mér hann ekki komast í
hálfkvisti við þennan frænda minn,
sem þar að auki var miklu fallegri
maður en sirkusmaðurinn!
Einar frændi minn var
gæfumaður. Hann átti yndislega
konu og góð og mannvænleg börn.
Þau bjuggu lengst af í Hólmgarði
1 - og reyndar er ég núna fyrst að
uppgötva hvað fjölskylduböndin í
þessari fjölskyldu eru óvenjulega
sterk. Eg sé einhvern veginn ekki
fyrir mér að almennt komi í
heimsókn börn og barnabörn
systkina - tala nú ekki um úr ell-
efu systkina hópi. Það eru aðeins
tvær vikur í dag síðan við kvödd-
um Vilborgu, eiginkonu Einars,
hinstu kveðju. Ekki veit ég hvort
það hafi almennt þótt eðhlegt á
vinnustöðum að ungt fólk hafi
beðið um frí til að fylgja eiginkonu
ömmubróður síns. Fyrir okkur var
þetta eðlilegt. Þarna voru saman
komin í tugatali barnabörn Stóra-
hrauns-systkinanna ásamt mökum
sínum. Svona er fjölskyldan okkar.
Einar frændi hágrét á eftir kist-
unni hennar Villu sinnar. Þeim tár-
um reyndi hann ekki að leyna.
Einar elskaði Villu á þann hátt að í
samanburði við þá ást verður stór-
myndin Titanic, sem hálf þjóðin
grætur yfir, að engu. Þau voru gift
í 61 ár og sú virðing sem þau báru
hvort fyrir öðru og fyrir skoðunum
hvors annars væri gott efni í hand-
rit að bók eða kvikmynd. Þegar
Villa missti minnið og flutti á Elli-
heimilið Grund, pakkaði Einar
frændi niður sínum föggum í
Hólmgarðinum og flutti líka á
Grund. Það fannst Önnu, systur
Einars, sem þá var 92 ára svolítið
sorglegt eins og hún orðaði það;
„Nú er litli bróðir kominn á elli-
heimili.“
Einar gekk stíginn milli Minni
Grundar og Grundar á hverjum
einasta morgni, þvoði Villu sinni
og mataði hana og talaði við hana
og um hana af slíkri virðingu og
ást, að unun var á að hlýða. Þegar
ég kvaddi frænda minn í erfi-
drykkjunni fyrir hálfum mánuði,
sagði hann mér að hann ætti að
leggjast inn á sjúkrahús næsta
dag. Svo bætti hann við: „Ég get
alveg dáið núna. Hún Villa mín er
farin, svo mínu hlutverki hér er
lokið.“
Sex dögum síðar var hann far-
inn til fundar við Villu sína. Þau
eru dæmi um sanna ást, sem ekki
einu sinni dauðinn getur aðskilið.
Þeim fækkar Stórahrauns-systkin-
inum og eftir lifa aðeins þrjú
þeirra, Þóra, Ingibjörg og Guð-
mundur. Ég vildi ég hefði haft
þroska fullorðinsáranna þegar mér
gafst kostur á að hitta þessi stór-
fenglegu systkini öll, sum daglega.
En öll lifa þau í minningunni, þetta
fólk, sem á margan hátt er svo
gjörólíkt öðrum, húmorískt og
naut lífsins.
Ég kveð þennan eftirlætis
frænda minn með mikilli virðingu.
Ég mun alltaf hugsa til hans og
vona að öðmm áskotnist að lifa
jafn sönnu og hamingjuríku lífi og
hann gerði. Hans góðu börnum,
tengdabörnum, barnabörnum og
öðmm ástvinum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur. Það er ekki hægt
að setja sig í þau spor að missa
báða foreldra sína með nokkurra
vikna millibili og aðeins sá sem
öllu stjórnar mun megna að sefa
sorg ykkar. Hvíldu í friði, elsku
frændi minn.
Anna Kristine Magnúsdóttir.
Nú er Einar afi látinn. Það er ekki
nema mánuður síðan Villa amma
dó og því er söknuðurinn mikill og
erfitt að sætta sig við að þau séu
bæði dáin. Alltaf gaf afi sér tíma
fyrir spil og spjall, spilagaldrarnir
og eldspýtnaþrautirnar fundust
okkur stórkostlegar. Það áttu ekki
allir afa sem var galdramaður. Að
koma í Hólagarðinn var alltaf eins
og að koma heim, allir vora þangað
velkomnir og ekki þótti tiltökumál
þótt tveir, þrír vinir slæddust með.
Afi hafði dálæti á söng og eru
þær ófáar stundirnar við eldhús-
borðið sem afi söng fyrir okkur.
Alltaf dáðumst við að þeim afa og
ömmu, ást þeirra og virðing hvort
fyrir öðra gaf okkur fallegar minn-
ingar sem verða okkur gott vega-
nesti út í lífið. Allt sem þú kenndir
okkur og umhyggja ykkar ömmu
var okkur afar dýrmæt. Við mun-
um aldrei gleyma öllum okkar
góðu stundum og tilhugsunin um
sameiningu ykkar á ný styrkir
okkur í sorginni.
Bregða ljóma á lífsins strönd
ljóssins gjafir bestar.
Sömu blómum sama hönd
sáir á grafir flestar.
(Káinn.)
Við kveðjum þig með söknuði,
elsku afi.
Erna, Bjarni, Ásta, Inga.
Það var komið fram í lok maí og
ég mætti fyrsta daginn í nýju vinm
una mína á Elliheimilinu Grand. I
starfinu var fólgið að gefa heimilis-
fólkinu kaffi milh morgun- og
hádegisverðar. Þennan fyrsta dag
kemur til mín gullfallegur eldri
maður með dökka húð, stór tindr-
andi augu og sólskinsbros: „Þú
sleppur ekki!“ segir hann hlæjandi
og faðmar mig. „Ég er langömmu-
bróðir hennar,“ segir hann stoltur
við samstarfskonur mínar. Þama
man ég fyrst eftir Einari frænda -
enda stór ætt sem við tilheyrum og
því ekki heiglum hent að kynnast
öllum. En í gegnum starfið á
Grund kynntumst við Einar vel og
þróuðum með okkur vináttu sem er
með þeim dýrmætari sem ég á.
Sumar eftir sumar fór ég aftur að
vinna á Grand, enda búin að kynn-
ast fólkinu þar og ómögulegt að
sh'ta sig frá því yndislega fólki sem
þar er. Það að hitta Einar frænda
daglega átti stóran þátt í því að ég
fór aftur og aftur á Grand. Daglega
kom hann til okkar í kaffi, söng
gömlu yndislegu lögin sem þau
syngja gjarnan í morgunstundinni,
og á hverjum fostudegi máttum við
Erla og Dóra eiga von á því að Ein-
ar laumaði KitKat ofan í vasana
okkar svo lítið bæri á. Einar setti
sinn svip á morgunstundina, sem
og daglega lífið á Grand því hann
þekkti alla, talaði við alla og gladdi
alla sem hann hitti. Oft þegar ég
var á heimleið í hádeginu sá ég
Einar leggja af stað í sund, nokkuð
sem hann gerði mikið af. Ég tók
Einar upp í bílinn og keyrði hann í
sundið. Einai- vildi nú frekar ganga
en ég gat ómögulega sleppt hon-
um! Hver stund með Einari var
yndisleg og mér þótti vænna og
vænna um hann því meir sem ég
kynntist honum. Þessir litlu bíltúr-
ar okkar verða alltaf dýrmæt
minning sem ég mun varðveita.
Það var ekki bara yndislegt að
kynnast Einari og spjalla við hann
um heima og geima heldur var
ólýsanlegt að sjá hvemig hann var
við Villu konuna sína. Þau vora
með fallegri hjónum sem ég hef séð
og þótt hugur hennar væri fjarri
líkamanum og hún þekkti nánast
engan, þá lýstust augu hennar upp
í hvert sinn sem hún sá Einar sinn
koma. Alltaf kom hann til hennar, í
öllum veðram og mataði, klæddi og
talaði við hana. Þau vora gift í 61
ár og ástina, tryggðina og vinátt-
una gat maður séð með því einu að
sjá hvemig Einar horfði á konu
sína. Síðasta skipti sem ég hitti
Einar var í jarðarforinni hennar
Villu fyrir tveimur vikum. Stóru
fallegu augun hans vora brostin af
sorg og það var nánast ekkert sem
ég gat sagt, það er nánast ómögu-
legt að finna huggunarorð við slík-
ar kringumstæður. Svo við Einar
fóðmuðumst bara eins og alltaf.
Það þurfti ekki meira. Nú er Einar
kominn til Villu sinnar, enda mun
hann passa hana áfram, hvort sem
það er þessa heims eða annars.
Lestin brunar, hraðar hraðar,
húmið Ijósrák sker,
bráðum ert þú einhvers staðar
óralangt frá mér.
(Jón Helgason.)
Hvíl í friði, elsku Einar frændi,
og takk fyrir þau yndislegu kynni
sem við áttum. Ég mun aldrei
gleyma þér.
Þín vinkona,
Lízella.
Þeim hjónum Einari Árnasyni
og Vilborgu Sigurðardóttur
kynntist ég þegar ég hóf störf í
heimilishjálp hjá þeim vorið 1993.
Var ég hjá þeim í um hálft ár og
kynntist þar góðu fólki. Alltaf
voru nýbakaðar vöfflur og bakk-
elsi á boðstólum þegar komið var
til þeirra og átti Einar heiðurinn
að þeim og heimabökuðu kæfunni
sinni sem er sú besta sem við
munum eftir að hafa bragðað.
Hann fór í sund á hverjum degi og
sagði hann oft að honum fyndist
hann eins og nýr og betri maður
eftir laugarferðimar, en þær voru
ómissandi fyrir hann. Var ég þá
hjá Vilborgu á meðan og spiluðum
við teningaspilið yatsy í gríð og
erg og fór ekki á milli mála að hún
hafði meiri hæfni en ég á þvi
sviðinu og skemmtum við okkur
alltaf konunglega.
Stuttu eftir að ég byrjaði störf
hjá þeim kom upp úr kafinu að við
Einar voram skyld og ljómaði hann
oft þegar hann sagði að það væri
auðséð frá hverjum minn rauði
hárblær og fas væri komið. For-
eldrar mínir komu oft í heimsókn
til þeirra hjóna í Hólmgarðinn og
var þá mikið spjallað og hlegið.
Þau hjón fluttu síðar að Grand og
dvaldist Vilborg á Dvalarheimilinu
en Einar á Minni-Grand.
Heimsóttum við þau þangað og
voru miklir fagnaðarfundir í hvert
sinn. Einar var fríður maður og
góður heim að sækja og eins og
sagt er „mikill maður“.
Vilborg var nett og falleg kona
og var skopskynið aldrei langt
undan hjá henni og fór ekki á milli
mála að ástin var mjög heit á milli
þeirra hjóna. Að leiðarlokum vilj-
um við þakka þeim hjónum fyrir
þær yndislegu stundir sem við nut-
um þeirra samvista og megi friður
Guðs vera með þeim. Hafið þökk
fyrir allt og allt.
Hanna Sigríður Stefánsdótfir,
Hafdís Hannesdóttir,
Stefán Kristjánsson.
Nú hefur elsku Einar afi kvatt
þennan heim aðeins sex dögum eftir
að Villa amma var jarðsett. Fátæk-
leg orð okkar nægja vart til að segja
hvað okkur býr í hjarta við fráfall
þeirra því að missirinn er mikill.
Ekki er hægt að fylla það rými sem
nú er í hjarta okkar eftir að þau yf-
irgáfu þessa jarðvist. Við þökkum
fyrir að hafa fengið að kynnast þeim
eins yndisleg og ástrík og þau voru.
Alltaf var svo gott að koma til
þeirra í Hólmgarðinn og gestri-
snara fólk er varla til. Nær undan-
tekningai-laust sátum við og spiluð-
um yatzy og fengum ömmuvöfflur
og brauð með afakæfu.
Afi og amma vora gift í rám
sextíu ár og ást þeirra var mjög
mikil. Það sést best á því hversu
vel hann hugsaði um hana í veik-
indum hennar. Afí taldi það ekki
eftir sér að fara til ömmu og gefa
henni að borða þótt hann væri
heilsulítill sjálfur. Hann sinnti
henni af mikilli ástúð og sýndi
henni mikinn skilning. Eftir að
amma lést var afi orðinn mjög
veikur og allur þróttur farinn. Við
getum huggað okkur við það að nú
eru þau saman á ný.
Við biðjum góðan guð að geyma
þau.
Ólöf Lilja og Erla Sóley.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RÍKARÐUR SUMARLIÐASON
fyrrv. yfirdeildarstjóri
hjá Pósti og síma,
Ástúni 8,
Kópavogi,
lést á Landakotsspítala sunnudaginn 24. maí.
hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 28. maí kl. 13.30.
Sigrún Einarsdóttir,
Tómas Ríkarðsson, Steinunn Arnórsdóttir,
Ágústa Ríkarðsdóttir, Gunnlaugur Nielsen,
Ríkarður Ríkarðsson, Friðbjörg Sif Grétarsdóttir,
Einar Már Ríkarðsson
og barnabörn hins látna.
+
Ástkaer faðir okkar, afi og langafi,
SNORRI DANÍEL HALLDÓRSSON,
andaðist á Hrafnistu, Laugarási, sunnudaginn
24. maí sl.
Gunnar Snorrason, Jóna Valdimarsdóttir,
Snorri Örn Snorrason, Camilla Söderberg,
Sigurður Ingvi Snorrason, Anna Guðný Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VALTÝR GUÐJÓNSSON,
Suðurgötu 12,
áður Suðurgötu 46,
Keflavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja 25. maí.
Útförin auglýst síðar.
Emil Valtýsson,
Guðrún Valtýsdóttir,
Gylfi Valtýsson, Áslaug Bergsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
EINAR
ÁRNASON