Morgunblaðið - 13.06.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 13.06.1998, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Endurskoðuð rekstraráætlun hjá Marel hf. Varla hagnað- ur a þessu ári VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Golli DR. HERMANN Simon, framkvæmdastjóri Simon-Kucher & Partners. Betra að reka fyrir- tæki úti á landi í GÆR bárust fréttir af því að Marel hf. hefði endurskoðað rekstraráætlun félagsins á yfír- standandi ári og gert væri ráð fyrir að nokkur samdráttur yrði í tekj- um Marels og dótturfyrirtækis þess, Camitech í Danmörku, miðað við síðasta ár. I kjölfarið féll verð hlutabréfa í fyrirtækinu úr 17,40 niður í 13, um 25%. Lokagengi dagsins í gær var 13,80. I frétt frá Marel segir að ljóst sé að tap verði á rekstri fyrirtækj- anna fyrri hluta ársins. Þótt áætl- un geri ráð fyrir að afkoma fyrir- tækjanna verði betri á síðari hluta ársins sé ekki reiknað með því á þessari stundu að hagnaður verði af rekstri samstæðunnar á þessu ári. Geir A. Gunnlaugsson fram- kvæmdastjóri segir að í síðasta ársreikningi hafí verið gert ráð fyr- ir að umsvifin á þessu ári yrðu svipuð og í fyrra. Sú verði hins veg- ar ekki raunin. „Við höfðum reikn- að með því að sala á öðrum árs- fjórðungi yrði betri en hún hefur orðið. A það ber þó að líta að mjög mörg tilboð eru útistandandi, en ákvarðanir um fjárfestingar hafa látið bíða eftir sér,“ segir hann. Meginástæða þessa samdráttar í tekjum er minni fjárfesting í fisk- iðnaði en á undanförnum árum, en árið 1997 voru 75% tekna tengd fiskiðnaði. Versnandi ástand þorskstofnsins í Barentshafi og samdráttur á veiðiheimildum hefur leitt til þess að dregið hefur veru- lega úr fjárfestingum í fiskvinnslu í Noregi. Þá hefur af sömu ástæðu minnkandi fi-amboð á fiski frá Rússlandi leitt til versnandi af- komu fískvinnslu á ýmsum svæð- um við Norður-Atlantshaf. Einnig hefur í ár dregið verulega úr fjár- festingu í nýjum rækjuvinnsluskip- um á Norður-Atlantshafi. A vest- urströnd Bandaríkjanna, sem und- anfarin ár hefur verið eitt af mikil- vægustu markaðssvæðum fyrir- tækisins, ríkir einnig nokkur óvissa vegna tillögu á Bandaríkjaþingi um takmörkun á útgerð verksmiðju- skipa og eignarhaldi erlendra aðila á útgerðarfyrirtækjum. Þá var verðmæti afurða á Alaska-ufsaver- tíðinni fyrr á þessu ári lágt. A undanförnum árum hefur ver- ið unnið að því að auka sölu Marel og Carnitech í kjúklinga- og kjöt- iðnaði. „Við stefnum að því að inn- an fárra ára verði helmingur veltunnar þar og helmingur í fisk- iðnaði. Þá verður fyrirtækið mun betur undir sveiflur búið,“ segir Geir. DR. HERMANN Simon, fram- kvæmdastjóri Simon-Kucher & Partners ráðgjafafyrirtækisins í Bonn og Cambridge, hélt erindi á hádegisverðarfundi Þýsk-íslenska verslunarráðsins í gær. Simon er þekktur ráðgjafi í Þýskalandi; höf- undur bókarinnar „Hidden Champions", sem fjallar um 500 lítt þekkt þýsk fyrirtæki og rann- sókn hans á velgengni þeirra. í erindi sínu fjallaði dr. Simon ura þessi 500 fyrirtæki og sameig- inleg einkenni þeirra. Hann sagði að i rannsóknum sínum hefði hann komist að því að þau væru fjöi- mörg. Meðal annars stefndu öll þessi lítt þekktu fyrirtæki að þvf að verða leiðandi á heimsmarkaði og sættu sig ekki við annað. Dr. Simon sagði það vera fyrir- tækjum mikilvægt að ákveða og skilgreina markað sinn. Dr. Simon vék máli sínu að íslenskum fyrirtækjum. „Islendingar verða að taka sig á í markaðssetningu. Fjöldinn allur af Þjóðveijum borð- ar fisk á hverjum degi en hefur ekki hugmynd um uppruna hans. Þarna finnst mér einna helst brotalöm hjá íslenskum fyrirtækj- um,“ sagði hann. Eftir rannsókn sína komst dr. Simon að þeirri niðurstöðu að þvert á móti algengri trú manna væri æskilegra fyrir fyrirtæki að vera staðsett á landsbyggðinni en í þéttbýlinu. Þar væri t.a.m. minni umferð og læti; starfsmenn gætu betur einbeitt sér að starfinu. / Skýrsla framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambands Islands um horfur Ástandið krefst aðhaldsaðgerða af hálfu stjórnvolda DRAGA þarf úr aukningu þjóðarút- gjaida og þá einkum með aðgerðum sem stuðla að meiri spamaði. Að öðrum kosti er.hætta á verðbólgu og almennu jafnvægisleysi á næsta ári. Þetta eru niðurstöður í nýrri úttekt framkvæmdastjómar VSI á framtíð- arhorfum í íslenskum efnahagsmál- um. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri VSÍ, segir meg- inforsendur þessarar niðurstöðu m.a. byggja á að vísbendingar gefi til kynna að einkaneysla og innflutning- ur hér aukist mun meir en gert hafi verið ráð fyrir og innlendir liðir vísi- tölu neysluverðs sýni um og yfir 4% verðbólgu, sem dylst af lækkandi innflutningsverðlagi og hækkandi gengi krónunnar: „Viðskiptahalli er vaxandi og meiri en skýrist einvörð- ungu af miklum fjárfestingum í at- vinnurekstri. Launakostnaður á ís- landi hækkar meira en tvöfalt á við aðrar Evrópuþjóðir auk þess sem við emm að líta þriðja árið í röð þar sem hagvöxtur verður um 5% eða nær tvöfalt á við nágrannalöndin". Þá segir Hannes einnig að þrátt fyrir gildandi kjarasamninga haldi stórir hópar opinberra starfsmanna uppi skipulögðum aðgerðum til að knýja fram enn frekari launahækk- anir; „VSÍ telur það ósamræmanlegt markmiðum um stöðugleika og frið á vinnumarkaði ef opinberir aðilar ganga á nýjan leik til samninga við samtök opinberra starfsmanna um frekari launahækkanir en felast í nýlega gerðum samningum þessara aðila“. Augljós hættumerki Hannes segir ofangreind atriði skýr viðvörunarljós um að framund- an sé vaxandi ójafnvægi og óróleiki á vinnumarkaði: „Hækkandi kostn- aður þrengir að fyrirtækjum sem keppa við erlenda framleiðendur og þjónustuaðila sem búa við minni kostnaðarhækkanir, stöðugra verð- lag og lægri vexti. Háir vextir hafa styrkt krónuna en það þrengir einnig að útflutnings- og samkeppn- isgreinum. Við þessum aðstæðum hafa fyrirtækin brugðist með auk- inni framleiðni en nú er fyrirséð að dragi úr framleiðniaukningu þar sem fullri nýtingu framleiðsluget- unnar er náð. Því verður að hamla gegn verðbólguþrýstingi sem að öðrum kosti mun setja mark sitt á afkomu og umsvif atvinnufyrirtækja þegar á næsta ári“. Draga þarf úr þjóðarútgjöldum VSÍ telur að til að tryggja for- sendur heilbrigðs og varanlegs hag- vaxtar, stöðugs atvinnuástands og samkeppnishæfra lífskjara, sé óhjá- kvæmilegt að ríkisstjómin beiti nú þegar ríkisfjármálum af öllu afli til að draga úr þjóðarútgjöldum um sem svarar 1,5-2% af landsfram- leiðslu. Meðal þeirra leiða sem fram- kvæmdastjóm Vinnuveitendasam- bandsins telur árangursríkar í átt að þessu marki er m.a. sú að nýta tekjuaukningu ríkissjóðs af auknum innflutningi í ár til að greiða niður erlendar skuldir. Áhersla er lögð á að auka ekki umfang opinbers rekst- urs á næsta ári og stefna að a.m.k. 10 milljarða króna afgangi á rekstri ríkissjóðs á næsta ári. Þá telur VSí mikilvægt að örva sparnað almenn- ings m.a. með því að: - Flýta sölu ríkiseigna og gefa al- menningi kost á að greiða keypt hlutabréf með reglubundnum af- borgunum, t.d. næstu þrjú ár. - Gefa almenningi kost á að skrá sig fyrir hlutum í ríkisfyrirtækjum sem seld verði á næstu misserum og tryggja sér kauprétt gegn greiðslu á hluta væntanlegs kaupverðs. - Beita skattalegum hvata til hlutafjárkaupa, m.a. með framlögum til bundins sparnaðar til fjárfestinga í hlutafé. - Endurvekja lögin um húsnæðis- sparnaðarreikninga og tengja þau \ .. { Murdoch < selur sjón- varpsvísinn TV Guide New York. Reuters. NEWS Corp fyrirtæki Rupert Murdochs hefur samþykkt að j selja sjónvarpsvísinn TV Guide eigendum leiðarvísis um dag- * skrá bandariskra kapalsjón- varpsstöðva, Prevue Networks, fyrir um 2 milljarða dollara Ráðamenn News Corp. telja að framtíð sjónvarpsvísa séu al- netið og sjónvarpsskjáir og að samningnum fylgi tveir kostir: þekkt nafh tímaritsins og kap- alumsvif kaupandans, United Video Satellite Group Inc. „Við vildum gera okkur grein fyrir hvemig TV Guide mundi þróast í framtíðinni," sagði Anthea Disney, yfirmað- ur News Corp. fyrirtækisins News America Publishing Group. „Ekki verður aðeins hægt að gefa leiðarvísinn út á prenti. Hann verður að fá að þróast á fleiri sviðum.“ Disney sagði að hinn nýi sameinaði miðill mundi hafa j mikið aðdráttarafl fyrir aug- lýsendur, sem gætu náð til enn fleiri neytenda og að val neyt- enda mundi aukast. Hlutabréf í American fyrir- tæki News Corp. hækkuðu um 94 sent í 24,50 dollara og bréf í United Video hækkuðu um 1,50 dollara í 38,50. 13 milþ'. áskrifendur | TV Guide hefur 13 mffljónir | áskrifenda, fleiri en nokkurt j annað vikublað í Bandaríkjun- um. Ritið hefur snúið sér sífellt meir að beinlínuþjónustu TVGEN (http:/Avww.tvgen. com), sem vefrannsóknarfyrir- tækið Relevant Knowledge segir vinsælustu sjónvarpsfag- skrárstöð á netinu. Prevue Networks býður sjónvarpsdag- skrá og fleiri upplýsingar, sem ná til rúmlega 50 milljóna heimila í Bandaríkjunum og þriggja milljóna heimila í öðr- um löndum. Hægt er að kom- ast í sambamnd við gagnvirka deild ritsins á rúmlega 550 kapalkerfum, sem þjóna rúm- lega 13 milljónum heimila. í efnahagsmálum átaki til að draga úr svartri atvinnu- starfsemi sem nú virðist mjög fara vaxandi. - Gefa tímabundið kost á enn frekari frádráttarbærni lífeyris- sparnaðar en þegar hefur verið ákveðið. Ríkissjóð ber að reka með tekjuafgangi Hannes leggur áherslu á að það | séu sameiginlegir hagsmunir al- mennings, atvinnurekstrar og 1 stjómvalda að verðbólga fari ekki | vaxandi á nýjan leik. Nauðsynlegt sé að beita aga í efnahagsstjóm og nýta það svigrúm sem góðærið gef- ur til að greiða niður skuldir sem söfnuðust á erfíðleikaárunum: „Halli á rekstri ríkissjóðs hefur að jafnaði numið 2% af vergri landsframleiðslu síðastliðin 10 ár sem hefur haft í for | með sér 100 milljarða króna skulda- ( aukningu á núgildandi verðlagi. Við núverandi aðstæður í efnahagslífinu 1 ber að reka ríkissjóð með samsvar- andi afgangi og hallinn var á erfið- leikaárunum og greiða niður skuldir í sama mæli og skuldum var safnað á undanfórnum ámm. Lækkun skulda ríkissjóðs og sveitarsjóða gera hagkerfið öflugra og gjaldmið- ilinn styi’kari til lengri tíma litið. Það er aðeins á færi í-íkisstjómar að tryggja stöðugleika og vöxt og . treysta þannig velmegun til framtíð- ar og á það reynir nú við undirbún- 1 ing fjárlaga næsta árs“. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.