Morgunblaðið - 28.06.1998, Síða 1
104 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
143. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Var Kim
ekki faðir
Kims?
Moskvu. Reuters.
KIM Jong-il, leiðtogi Norður-
Kóreu, er ekki sonur Kims II-
sungs, fyrrverandi einræðis-
herra landsins, eins og haldið
hefur verið fram, að sögn
Pjotrs Pak II, gamals manns af
kóreskum uppruna sem kenndi
Kim eldri marxíska heimspeki
á fimmta áratugnum.
Pak, sem er á níræðisaldri
og býr nú í Kasakstan, heldur
þessu fram í viðtali við rúss-
neska dagblaðið Trud-7. Hann
segir að raunverulegur faðir
Kims yngri, sem fæddist í
febrúar 1942, hafí barist við
hlið Kims Il-sungs gegn
Japönum í síðari heimsstyrj-
öldinni.
Blaðið segir að kommúnista-
stjórnin í Moskvu hafí falið
Pak að fræða Kim Il-sung um
kenningar Marx og Leníns á
fímmta áratugnum.
BILL Clinton Bandarílgaforseti og Jiang Zemin, forseti Kína, virtust afslappaðir við móttökuat-
höfnina á Torgi hins himneska friðar þrátt fyrir að þeir hefðu nýlega sent hvor öðrum tóninn
vegna handtöku þriggja kínverskra andófsmanna.
Qrðaskiptum Clintons og Zemins sjónvarpað um allt Kína
„Ekkert getur stöðvað
batnandi samskipti“
Peking. Reuters.
12 létust í
jarðskjálfta í
Tyrklandi
Ankara. Reuters.
TALIÐ er að 12 manns hafí látist þegar
öflugur jarðskjálfti varð í Tyrklandi í
gær. Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar
NTV mældist slqálftinn 6,3 stig á
Richter-kvarða.
I frétt stöðvarinnar sagði að fjöldi
manns hefði slasast og margar byggingar
hrunið í skjálftanum. Upptök skjálftans
voru í héraðinu Adana í suðurhluta Tyrk-
lands, en hann fannst víða um landið.
Lakkrís
í stað Viagra
ÞRÁTT fyrir að undralyfið Viagra geti
reynst einföld leið til að hleypa nýju lífí í
ástarlíf úrvinda nútímafólks mælir Alan
Hirsch, sérfræðingur Stofnunar í Lykt-
ar- og bragðvísindum í Chicago heldur
með því að fólk notfæri sér lyktarskynið
til að lífga upp á kynlffið.
I nýrri bók sinni Scentsational Sex
gerir Hirsch grein fyrir niðurstöðum
rannsóknar sem gerð hefur verið á
áhrifúm lyktar á fólk. Samkvæmt þeim
hefur lykt af kanil, ilmjurtum, graskers-
böku, lakkrís, kleinuhringjum, popp-
korni og appelsínum örvandi áhrif á
karla en lykt af lakkrís, agúrkum,
graskersböku og ilmjurtum örvandi
áhrif á konur. Hirsch segir niðurstöð-
urnar ekki koma á óvart enda hafí
kanill, múskat og engifer, sem notað sé í
graskersbökur, öldum saman verið not-
uð til Iækninga og lakkris á sama hátt
verið notaður til örvunar í kínverskum
lækningum.
„Fjöldamorð-
ingja“ þyrmt
YFIRVÖLD í Texas í Bandaríkjunum
hafa ákveðið að þyrma h'fi Henry Lee
Lucas, sem dæmdur var til dauða fyrir
14 árurn. Lucas, sem er einn frægasti
„fjöldamorðingi“ samti'mans, játaði á
sínum tíma að hafa myrt a.m.k. 100 kon-
ur í 27 fylkjum. Hann hefur hins vegar
dregið játningar sínar til baka og segir
þær nú einungis hafa verið til þess gerð-
ar að hafa lögregluna að fífli.
Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur,
kom að máli Lucasar fyrir tveimur árum
og komst þá að þeirri niðurstöðu að játn-
ingarnar væru uppspuni. Rannsóknum
214 morða var á sínum tíma hætt eftir
að þau voru tengd játningum hans og
hafa einungis nokkur þeirra verið tekin
upp að nýju þrátt fyrir að ljóst sé að
Lucas hefði þurft að keyra 17.600 km á
30 dögum til þess að fremja þau öll.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti fordæmdi
harðlega árás kínverska hersins á óvopnaða
námsmenn á Torgi hins himneska friðar árið
1989 á fréttamannafundi með Jiang Zemin,
forseta Kína, í gærmorgun. „Eg trúi því og
bandaríska þjóðin trúir því að það hafi verið
rangt að beita valdi og fórna mannslífum,“
sagði Clinton. „Þrátt fyrir alla okkar samn-
inga greinir okkur enn á um þessa atburði."
Zemin lét hins vegar engan bilbug á sér
finna og ítrekaði harðlínustefnu kínversku
stjórnarinnar. „Hefði kínverska stjórnin ekki
giápið til staðfastra aðgerða á þessum tíma
nytum við ekki þess stöðugleika sem við búum
við í dag,“ sagði hann. Orðaskiptum leiðtog-
anna var sjónvarpað beint um allt Kína og var
það í fyrsta skipti sem kínverskum almenningi
gafst tækifæri til að fylgjast með opinskáum
umræðum um þessa atburði.
Clinton, sem gagnrýndur hefur verið fyrir
að fórna kröfum um mannréttindi fyrir við-
skiptahagsmuni, gagnrýndi einnig handtöku
þriggja kínverskra andófsmanna en Zemin
svaraði því stuttaralega og sagði: „í Kína höf-
um við okkar lög.“ Fundinum lauk síðan með
því að Clinton hvatti Zemin til að taka upp við-
ræður við Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tíb-
etbúa. Sagðist hann þess fullviss að Dalai
Lama myndi falla honum vel í geð. Jafnframt
hvatti hann Kínverja til að taka upp beinar
viðræður við stjómvöld á Tævan.
Kjarnaoddum ríkjanna
verði beint annað
Þrátt fyrir að ýmis viðkvæm mál kæmu upp
á fundinum var hann á vinsamlegum nótum og
lögðu leiðtogarnir mikla áherslu á batnandi
samskipti ríkjanna. Jiang Zemin, sem fyrr um
daginn sagði að batnandi samskipti Banda-
ríkjanna og Kína væru óhjákvæmileg og að
ekkert gæti stöðvað þau, sagði Clinton öflugan
baráttumann fyrir bandarískum hagsmunum
og sjálfan sig öflugan baráttumann fyrir kín-
verskum hagsmunum. „En þrátt fyrir þetta
eigum við vinsamlegar viðræður og skoðana-
skipti," sagði hann. „Það er þetta sem ég kalla
lýðræði."
Clinton sagði mikilvægt að þjóðirnar horfðu
til framtíðar þrátt fyrir að þær greindi á um
ýmsa þætti í fortíðinni og hældi m.a kínversk-
um stjórnvöldum fyi'ir þá staðfestu sem þau
hefðu sýnt við að halda gengi kínverska gjald-
miðilsins stöðugu.
Clinton kom til Peking, sem er annar
áfangastaður hans á níu daga ferð um Kína á
laugardagsmorgun. Hann var þar viðstaddur
hátíðlega móttökuathöfn á Torgi hins
himneska friðar og átti að henni lokinni
tveggja tíma viðræður við Jiang Zemin. Að
þeim loknum bh'tu forsetarnir sameiginlegá
yfírlýsingu þar sem m.a. kemur fram að sam-
komulag hafi náðst um það að í framtíðinni
beini ríkin kjarnaoddum sínum ekki hvort að
öðru.
A fundinum urðu leiðtogarnir einnig ásáttir
um að vinna að stöðugleika í Suður-Asíu með
því að koma í veg fyrir útflutning sem gæti
nýst Indverjum og Pakistönum til kjarnorku-
væðingar. Þá var ákveðið að Bandaríkjamenn
myndu verða Kínverjum innan handar við
einkavæðingu húsnæðismarkaðar og við upp-
byggingu kínverska heilbrigðis-, eftirlauna- og
tryggingakei’físins. Sagði Jiang viðræðumar
hafa verið jákvæðar og uppbyggilegar og að
þær myndu „ekki einungis sfyrkja sameiginlega
hagsmuni Kína og Bandaríkjanna heldur einnig
hafa mikilvæg áhrif á friðarumleitanir, stöðug-
leika og hagvöxt í Asíu og heiminum öllum.“
Sagði hann þá ákvörðun að beina kjamaoddum
annað sýna að Bandaríkjamenn og Kínverjar
væra ,Jélagar en ekki andstæðingar".
Vorferð á lifandi
jökulbungu
Menn fengu opinbert
leyfí til að stela
Reiðskóli í
höfuðborginni