Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Sagnfræðiráðstefnu um Norðurlöndin og kalda stríðið lauk í Reykjavík í gær Erindi ráðstefnunnar gefin út og dreift um allan heim Morgunblaðið/Golli DR. VALUR Ingimundarson sagnfræðingur, sem sá um skipulagningu ráðstefnunnar, og Christian Osterman stjórnandi Kaldastríðssögu- verkefnis Woodrow-Wilson-stofnunarinnar. MARGAR nýjar og athyglisverðar upplýsingar komu fram um þátt Norðurlanda í stefnu Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna í kalda stríð- inu á fjögurra daga sagnfræðiráð- stefnu um Norðurlöndin og kalda stríðið, sem lauk á Grand Hótel í Reykjavík í gær. Þetta segja þeir dr. Valur Ingimundarson sagnfræð- ingur, sem sá um skipulagningu ráðstefnunnar, og Christian Osterman stjórnandi Kaldastríðs- söguverkefnis Woodrow-Wilson- stofnunarinnar. Sú stofnun stóð að ráðstefnunni í Reykjavík ásamt The London School of Economics og Sagnfræðistofnun Háskóla íslands. Valur og Ostermann nefna meðal annars nýjar upplýsingar um sam- band Sovétmanna við Finna, en í er- indum á ráðstefnunni hefði m.a. komið fram að sovéskir ráðamenn hefðu ekki endilega tekið tillit til óska og krafna finnskra kommún- ista, sem þeir þó áttu ýmislegt sam- eiginlegt með hugmyndafræðilega, heldur hefðu þeir frekar viljað vinna með miðjuflokkum eða borg- aralegum flokkum í Finnlandi. Geysir í Haukadal Ekki for- sendur fyrir gosi í sumar ÁRNI Bragason, forstjóri Náttúru- vemdar ríkisins sem sæti á í Geysis- nefnd, segir ekki vera forsendur fyr- ir gosi í Geysi í sumar. Enn liggi ekki fyrir nægar upplýsingar um áhrif þess á Strokk muni Geysir gjósa og á meðan svo er verði ekkert aðhafst. „Við gerðum rannsóknir á Geysi í vetur sem Helgi Torfason hjá Orku- stofnun stýrði. Dælt var vatni af yfir- borði hversins og í ljós kom að hver- inn getur gosið af sjálfsdáðum. Hins vegar náðist ekki að klára rannsókn- irnar vegna fjárskorts og þar við sit- ur. Við þurfum heildarmynd af jarð- hitasvæðinu til að geta áttað okkur á því hvað muni gerast með Strokk ef Geysir verður látinn gjósa og til þess þurfum við viðbótarrannsóknir. Það er ljóst að gos úr Strokki eru mun verðmætari en gos úr Geysi fyrir ferðaþjónustuna. Strokkur gýs með reglulegu millibili og ég tel of mikið í húfi að stofna þeim gosum í hættu.“ Fjársvelti Stjóm Náttúruverndar ríkisins ákvað að ráðist yrði í fyrrnefndar rannsóknir sem Helgi Torfason jarð- fræðingur framkvæmdi og vom þær gerðar dagana 24. til 25. janúar síð- astliðinn. Að sögn Helga gengu til- raunir með hverinn vel en hætta þurfti verkinu áður en endanleg nið- urstaða fékkst. Hann gagnrýnir það fjársvelti sem Geysissvæðið hefur búið við. „Það hefur verið varið æv- intýralega litlu fé í hverasvæðið. Þama kemur stór hluti allra ferða- manna en samt hefur svæðið aldrei fengið að njóta þess. Til samanburð- ar vil ég nefna að 22 milljónum var varið í hverinn í Öskjuhlíð sem er út af fyrir sig gott framtak en ég held að það sé meira fé en lagt hefur verið í Geysissvæðið frá upphafi. Það er verið að eltast við að spara í stað þess gera hlutina almennilega." Aðspurður segist hann hlynntur því að láta Geysi gjósa en með því skilyrði að ekkert verði eyðilagt. Þá nefna þeir athyglisverðar upp- lýsingar um hlutverk Grænlands í hemaðaráætlunum kalda stríðsins. Til dæmis tilraunir Bandaríkja- EFTIR tíu daga og þriggja nátta hlaup umhverfis landið er Friðar- hlaupið væntanlegt til Reykjavík- ur. Því lýkur á Ingólfstorgi í dag klukkan 14.00. Ferðalag Friðarhlaupsins um- hverfis landið hefur vakið at- hygli og að sögn hiauparanna sem verið hafa með frá upphafi hafa rútur stoppað og ófáir ferðamenn hlaupið spölkorn með kyndilinn, þar á meðal Breti með gerviliðamót sem gerði sér lítið fyrir og hljóp upp brekku á Beru fjarðarströnd. Þetta er al- þjóðiegt hlaup sem fer fram í yfir 80 iöndum og þýskur ferðamaður sem varð á vegi hlauparanna í Stafafelli í Lóni sagði frá því að fyrir þrem vikum hefðu hlaup- arar farið í gegn um heimaþorp hans í Þýskalandi. Rúmlega þúsund manns hafa tekið þátt í hlaupinu og eru manna til þess að kaupa Grænland á árunum 1946 til 1948 og áætlanir þeirra um að koma meðaldrægum eldflaugum undir ísinn á Grænlandi hlauparar á öllum aldri, frá tveggja ára og upp úr, segir í fréttatilkynningu. 12 manna hlaupahópur frá Sri Chinmoy maraþonliðinu hefur fylgt hlaup- inu frá upphafi en þau íþrótta- samtök hafa séð um skipulagn- ingu hlaupsins og auk þess hafa ungmenna- og héraðssambönd skipuiagt þátttöku almennings umhverfis landið. Dagleiðir hafa að jafnaði verið 120-140 km en misjafnt hvað menn hlaupa mikið í einu. Þeir sem viija hlaupa í Friðar- hlaupinu síðasta spölinn geta slegist með í för á Vesturlands- vegi eða Miklubraut. Hlaupararnir koma til Mosfells- bæjar um kl. 12.10, fara frá Ár- túnshöfða um 12.55 og verða á móts við Grensás um 13.25. Reiknað er með að komið verði á Ingólfstorg rétt fyrir kl. 14. í lok sjötta og í upphafi sjöunda ára- tugarins. Valur og Ostermann telja upp fleiri áhugaverða þætti sem fram komu á ráðstefnunni, þar á meðal miklar umræður um hlut- leysisstefnu Svíþjóðar og að hern- aðarsamstarf Svía við vestræn ríki hefði verið miklu meira í kalda stríðinu en áður hefði verið talið. Rúmlega 30 fyrirlestrar Rúmlega þrjátíu fyrirlestrar voru haldnir á ráðstefnunni og segir Val- ur að þátttaka í umræðunum og á ráðstefnunni almennt hefði verið mjög góð. Hann segir að hluti af öll- um fyrirlestrum ráðstefnunnar og ný skjöl frá vestrænum og rússn- eskum skjalasöfnum um kalda stríð- ið verði birtur í hefðbundnu tímariti Kaldastríðsverkefnisins á vegum Woodrow-Wilson-stofnunarinnar sem og í öðrum ritum sem stofnunin gefur út. Þá sé ætlunin að gefa út ít- arlega bók með öllum fyrirlestnim á ráðstefnunni. Þannig verði erindi ráðstefnunnar birt í tímaritum og bókum og dreift út um allan heim. Skagaströnd Kántrí- bær opn- aður á ný í GÆR opnaði Hallbjörn Hjartarson Kántríbæ 2 en þrír mánuðir eru síð- an bygging hins nýja staðar hófst.s Sá eldri brann nú í vetur. „Ég á fá orð til að túlka það kraftaverk sem nú er að gerast,“ sagði Hallbjöm í gær. „Það var erfitt að horfa á gamla bæinn brenna og dagurinn i dag er á sinn hátt líka erf- iður. Á staðnum þar sem eldtung- urnar eyðilögðu minn gamla stað er risið glæsilegt hús og ég stend í þakkarskuld við marga.“ Opnun á Kántríbæ 2 hófst klukkan 14.30 með því að prestur staðarins, séra Guðmundur Karl, vígði húsið en klukkan 16.00 var það formlega opn- að almenningi. Klukkan 18.00 hljóm- aði Útvarp Kántrýbæjar enn á ný og var fyrsta lagið sem spilað var, Komdu í Kántrýbæ. Auk Hallbjöms koma að rekstrin- um tengdasonur hans og dóttir. Þau sjá um veitingar en Hallbjörn sér um rekstur útvarpsstöðvarinnar. A ► 1-56 Vorferð á lifandi jökulbungu ►Fylgst með einstökum rann- sóknarleiðangri Jöklarannsóknafé- lagsins og rannsóknastofnana í Grímsvötn, sem nú stóð i tvær vik- ur með þáttöku 35 leiðangurs- manna. /10 „Menn fengu opinbert leyfi til að stela“ ►Einn af sérfræðingum Sovétríkj- anna gömlu í utanríkis- og vamar- málum, Georgí Arbatov, tók þátt í skoðanaskiptum á ráðstefnu í Reykjavík um kalda stríðið. /22 Skjaddi, fyldingur og skotveiðar ►Nova Scotia-fylki í Kanada hef- ur margt að bjóða þeim sem unna útivist ogveiðiskap. /24 Skrítin lykt, stórir hófar og iþrótt sem krefst aga ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Eirík Sig- urðsson í reiðskólanumÞyrli í Víðidalnum fyrir ofan Árbæ. /26 B_______________________ ► 1-16 Ungviði í öndvegi í Hvallátrum ► /1 & 8-9 Eyjan gleymda í Skjálfandafljóti ►Þingey í Skjálfandafljóti er án efa með fáfömustu svæðum á lág- lendi íslands. /2 Vatnshjólin í Hama og 5 stjarna veitinga- staður í smáþorpi ►Önnur grein Jóhönnu Kristjóns- dóttur frá Sýrlandi. /4 FERÐALÖG ► 1-4 ísland ►Jökladýrð, hvalir og ráðherra á peysunni. /2 Ferðaþjónusta á Kúbu ►Liðið er að eingöngu áhugamenn um kommúnískar byltingar og Kastró horfi löngunaraugum til Kúbu. /4 BÍLAR_____________ ► 1-4 Tvær f rumgerðir smíðaðarádag ►í tæknimiðstöð Renauit á 100 afmæli bílafyrirtækisins. /1 Reynsluakstur ►Nissan Patrol SR — endurbætt- ur en með sama drifbúnaði og vél. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► 1-20 IMef nd til að markaðs- setja Seyðlsfjörð ►Skortur á vinnuafli, sérstaklega fagfólki. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42 Leiðari 28 Stjörnuspá 42 Helgispjall 28 Skák 42 Reykjavikurbréf 28 Fólk 1 fréttum 46 Minningar 33 Útv./sjónv. 44,54 Myndaaögur 40 Dagbók/veður 55 Bréf til blaðsins 40 Mannl.str. lOb ídag 42 Dægurtónl. 12b INNLENDAR Fí ÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 HLAUPARAR í friðarhiaupinu fara um Skagafjörð. Því lýkur í Reykjavík um klukkan 14.00 í dag. Friðarhlaupið kemur til Reykja víkur í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.