Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ FOLK I FRETTUM Harrison Ford Harrison Ford er ævintýrahetja sem redd- ar málunum þegar allt er komið í klandur. Frægastur er hann kannski fyrir Han Solo úr Stjörnustríðsmyndunum og Indiana Jones-myndirnar. Dagur Gunnarsson hitti kempuna á förnum vegi í London og spjall- aði við hann um nýjasta ævintýrið. Sex dagar sjö nætur heitir nýjasta Harrison Ford-mynd- in sem er grínmynd með ævin- týralegu og rómantísku ívafí. Að þessu sinni leikur Harrison Ford flugmanninn Quinn sem ferjar ferðamenn milli sólarstranda á KyiTahafseyjum. í einni slíkri ferð brotlendir hann á eyðieyju með glanstímaritaritstjórann Robin sem er leikin af Anne Heche. Quinn og Robin eru sambandslaus við um- heiminn og kemur að sjálfsögðu mjög illa saman í upphafi dvalarinn- ar, en fljótlega taka ævintýrin og rómansinn völdin. Til að flækja mál- Jn bíður Frank, tilvonandi eigin- maður Robin, á nærliggjandi eyju, hann er leikinn af David Schwimmer sem við þekkjum sem Ross úr þáttaröðinni Vinum. Harrison Ford hefur leikið aðal- hlutverkið í fjórum af tíu söluhæstu myndum kvikmyndasögunnar (Stjörnustríðsmyndunum þremur og Raiders of the Lost Ark) og því líta stóru kvikmyndaverin í Hollý- vúdd á hann sem nokkuð örugga fjárfestingu; það er sagt að hann geti farið fram á tuttugu milljón dollara fyrir að leika í mynd og hann ræður líka hverjir aðrir vinna að myndinni, frá leikstjóra til smærri hlutverka. Harrison hefur líka sannað að hann getur leikið meira en tvívíðar ævintýrahetjur, í Blade Runner og Witness var hann í lögguhlutverk- inu og fékk Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í Witness. í Regarding Henry lék hann framapotandi uppa sem lendir í slysi og verður við það að hjartahlýjum einfeldningi. Work- ing Girl og Sabrina voru blanda af rómans og gríni og sýndi hann góð- an grínleik sem kom engum á óvart, það örlaði alltaf á gríninu í hasar- myndunum og var hann -á undan 'bæði Schwarzenegger og Stallone í þeirri deild. í seinni tíð hefur Ford síðan tekið til við slatta af spennu- myndum, Patriot Games, The Fugitive, Clear and Present Danger og Air Force One sem hafa allar skilað miklum gróða. Er það satt að þú hafir tekið þetta hlutverk að þér til að verða þér úti um fleiri flug- tíma og þyrlupróf? „Nei, það er al- gjör della, þú skalt ekki trúa öllu sem þú heyrir hvíslað um mig. Eg er með þyrlupróf, en það tók ég ekki fyrr eri eftir að tökum lauk á þessari mynd. Ég neita því ekki að það var gaman að fá að fljúga þess- ari gömlu DeHaviland Beaver-vél, það voru engar brellur þar, það sést greinilega að það er ég sem flýg. Úr því við höfðum þennan möguleika þá nýttum við okkur það, það var pínulítið erfitt að sannfæra trygg- ingafélagið um að ég væri starfinu vaxinn, en það hafðist, þeir fóru fram á að það væri alltaf annar flug- maður falinn um borð ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis." Var erfitt að gera þessa mynd? „Nei, þetta var auðveldasta mynd sem ég hef leikið í, það var ekki mikið lagt á mig líkamlega, hlaupa upp og niður lítið fjall og svamla að- eins í sjónum er ekki það erfiðasta sem ég hef verið látinn gera á ferl- inum. Pað var ekki það mikið um „aksjónatriði" í þessari mynd þó að aðalhetjumar væru undir miklu álagi. Það var bæði auðvelt og gam- an að leika í þessari mynd, ég skemmti mér konunglega og það var mikið hlegið meðan á tökum stóð.“ Hefurðu einhvem tíma leikið vonda kallinn? „Nei, ætli það, hlutverkið í Mosquito Coast fer kannski næst því, þar lék ég mann sem kom illa fram við krakkana sína, en ég lít ekki á hann sem vondan mann. Ég hef áhuga á alls kyns hlutverkum en hef sjaldan áhuga á að leika bófann því ég hef ekki áhuga á nítján mis- munandi athyglisverðum aðferðum við að myrða fólk. Mér finnst skemmtilegra að kljást við hlutverk þar sem spennan felst í því að fólk lendir í erfiðum aðstæðum og leysir þau vandamál. Ég vil líka skemmta áhorfendum og bófarnir í þannig myndum eru sjaldnast nógu skemmtilegir, eða athyglisverðir, það er alltaf eytt meira púðri í aðal- hetjuna og bófanum er meira stillt upp til að þjóna söguþræðinum." Harrison Ford hefur notið gíf- urlegrar hylli allt frá því hann lék í American Graffiti. Pó hófst hann ekki upp í stjömu- hæðir fyrr en hann lék flugmanninn ráðagóða Han Solo í Stjörnustríði 1977; þar áður var ferillinn fremur skrykkjóttur og þurfti hann eins og frægt er orðið að vinna fyrir sér sem smiður. Ford hefur leikið í svo mörgum frægum stórmyndum að það liggur við að maður þekki and- litið á honum betur en á bestu vin- um sínum, hann er mjög yfirvegað- ur talar mjög lágt, nánast að hann hvísli, í raunveruleikanum er hann nákvæmlega eins og maður sér hann koma fyrir á skjánum. Hann er ekki að eyða tímanum í glens eða grín, er mjög fagmannlegur og vandar sig við að svara spurningun- um skýrt og skorinort og hann lyfti varla augabrún fyrr en ég minntist á ísland í lok viðtalsins. Hvaða mynd er næst? „Hún heitir Random Hearts, með Kristin Seott-Thomas og Sydney Pollaek leikstýrir. Hún fjallar um mann sem lendir í því að rannsaka flugslys sem konan hans fórst í, hann kemst að því að maðurinn sem sat við hliðina á henni í vélinni var viðhaldið hennar. Þegar hann er að vinna úr þessari flækju verður hann ástfanginn af ekkju viðhaldsins." Hvernig velurðu hlutverkin? „Það er svo misjafnt, það veltur bara á því sem stendur til boða á hverjum tíma og hvaða möguleikar eru opnir. Ég vil ekki festast í ákveðinni tegund bíómynda þannig að ég skoða allt, nema kannski hryllingsmyndir, það er líklegast eina tegundin af kvikmyndum sem ég hef engan áhuga á að leika í, það einfaldlega höfðar alls ekki til mín.“ Er einhver af þeim hetjum sem þú hefur leikið í uppáhaldi? „Nei, þetta er eins og með börnin manns, það er ekki hægt að segja að maður elski eitt meira en annað, hlutverkin eru öll mismunandi og hafa öll sínar góðu hliðar.“ Nú hefur þú unnið með mörgum leikkonum. Hvemig var að vinna með Anne Heche? „Það var ánægjulegt, hún er mjög orkumikil og skilur vel hvem- ig maður skapar trúverðuga per- sónu og býr til dramatíska spennu; hún virðist vera gjörsamlega óhrædd." Hver vora þín viðbrögð þegar hún kom út úr skápnum skömmu áður en tökur hófust? „Það var búið að ákveða að hún væri besta leikkonan í hlutverkið og ég sagði við fjölmiðla að ég væri ekki vanur að ræða einkalíf sam- starfsmanna minna og sæi ekki ástæðu til að byrja á því núna. Ég sagði við Anne að ég myndi styðja við bakið á henni í einu og öllu og það var allt og sumt.“ Heldurðu að þú verðir enn að leika „aksjónhetjur" eftir tíu ár? „Ég veit það ekki, Sean Connery er enn að, ég hallast nú frekar að því núorðið að leika hetjur sem hafa einhverja samsvörun í raunvera- leikanum en það er aldrei að vita - ég vil gera alls konar hluti.“ Er önnur Indiana Jones-mynd væntanleg? „Ég bara veit það ekki, ég hef ekki séð neitt handrit, þannig að það er ekkert á döfinni á næstunni.“ Hvað gerirðu þegar þú ert ekki að vinna? „Ég reyni að eyða tíma með fjöl- skyldunni; við búum í Wyoming, þar er mjög fallegt um að litast. Ég flýg mikið þegar ég á frítíma og svo er ég styrktaraðili (OíflilAVMAíW Harrison Ford Foso ^ hreyfingar sem berst fyrir mál- stað Tíbets; við erum að reyna að vekja athygli á stöðu mannréttinda- mála þar síðastliðin fjöratíu ár. Við viljum líka leggja okkar af mörkum til að varðveita menningararf Tí- bets. Hinn vestræni heimur er að breytast í eitt stórt menningar- svæði og mér finnst að það eigi að varðveita fjölbreytileg og flókin menningarkerfi á borð við það sem ég hef kynnst í Tíbet og verja það gegn kínverskum áhrifum." Er það satt að þú hafir smíðað húsið þitt í Wyoming sjálfur? „Nei, ég hannaði það, en hafði ekki tíma til að smíða það sjálfur.“ Kollegi þinn, John Travolta, er líka flugmaður og hefur stundum flogið yfir til íslands í veiðiferðir. Hefur þú einhvern tíma flogið þang- að? „Iss, mín vél nær miklu lengra en það ... nei ég er bara að grínast, ég hef aldrei komið til íslands en ég hef heyrt að það sé dýrt flugvéla- bensínið þar.“ Ég er viss um að það er ekki svo dýrt að þú hafir ekki efni á því. Ég fékk ekkert svar við þessari ósvífni, hann yppti bara öxlum, lyfti höndunum aðeins og skaut á mig einu dæmigerðu Harrison Ford- glotti. Leikstjóri Sex daga sjö nótta, Ivan Reitman, á að baki lang- an feril bæði sem framleið- andi og leikstjóri. Hann leikstýrði Ghostbusters-myndunum, Stripes og Meatballs. A seinni áram hefur hann m.a. leikstýrt grínmyndunum með Araold Schwarzenegger, Twins, Kindergarten Cop og Junior. Var þetta dýr mynd? „Hún kostaði tæplega áttatíu milljónir dollara." Hvað var erfiðast við að gera þessa mynd? „Við voram á lítilli eyju og við þurftum að flytja mikið af dóti þangað sjó- leiðina en annars gekk þetta ótrú- lega vel. Ég var með svo frábæra leikara sem stunda sína vinnu af ástríðu þrátt fyrir að þeir þyrftu að þola nokkra smelli, sérstaklega Anne sem getur verið hálfgerður flækjufótur; það var kannski verst þegar sporðdrekinn stakk hana. Við voram með mann sem sá um sporð- drekana og hann sagði mér að hafa engar áhyggjur því þessi tegund sporðdreka styngi aldrei. Til að vera alveg viss bað ég hann að sanna það og hann setti einn á handlegginn á mér. Ég varð að gera það, fyrst flaug ég með Harrison og svo gerði ég þetta. Hann stakk mig ekki en í fyrstu tökunni datt sporð- drekinn af Anne og þau héldu áfram með atriðið og hún kraup niður og setti hnéð beint á sporðdrekann sem varð frekar fúll og stakk hana í hnéð. Við þurftum að fresta tökum um einn dag... næstum því.“ Hvernig myndirðu lýsa þessum tveimur leikuram? „Eins og allir vita er Harrison Ford heimsfræg kvikmyndastjarna, en að því frátöldu er hann mjög góður leikari og fær ekki nærri því nógu mikla viðurkenningu fyrir það. Hann getur komið meira til skila með öðra auganu en aðrir með mörgum setningum, sem kemur sér sérstaklega vel í grínmyndum. Hann hefur verið í mörgum mynd- um og veit nákvæmlega um hvað málið snýst. Það var gott að geta leitað ráða hjá honum. Hann var alltaf til taks og fylgdist með öllum. tökum frekar en að hanga í hjólhýs- inu. Það var mjög gott að vinna með honum. Ég þurfti leikkonu með jafn sterka nærveru og Harrison; það er það sem myndin gengur út á að samspil þessara skötuhjúa sé lifandi og sterkt. Anne Heche var ein af þeim fyrstu til að koma í sam- lestur með Harrison. Ég hafði ekki séð neina af myndunum hennar, en hún heillaði af okkur sokkana! Hún er einfaldlega frá- bær, fyndin og óvenjuleg. Mig langaði mikið að finna einhverja sem er að hefja ferilinn og hefur ekki sést víða. Það sem réð úrslit- um var hvað hún var óhrædd og kjarkmikil." Ertu ánægður með viðtökurnar sem myndin hefur fengið í Banda- ríkjunum? „Já, myndin er nú þegar búin að hala inn þrjátíu milljónir dollara; hún tók inn ellefu milljónir opnun- arhelgina, sem er næststærsta opn- un sem ég hef átt, og ég hef gert nokkrar þokkalega vinsælar mynd- ir. Aftur á móti finnst mér þetta tal um hvað myndir hala mikið inn fyrstu helgina vera farið að ganga út í öfgar; þetta var aldrei mál hér áður. Ég er mjög ánægður, leikar- arnir eru ánægðir og kvikmynda- verið á eftir að græða fullt af pen- ingum; betur er ekki hægt að gera.“ Voru einhver atriði í myndinni sem komu frá leikurunum í spuna? „Það eru alltaf einhver smærri atriði sem breytast í tökum, ég man nú ekki eftir neinu sérstöku nema að Harrison var alltaf fullur af áhuga þegar upp komu vandamál sem hægt var að leysa með smíða- tólum, eins og þegar þau smíða grindina fyrir flotholtin á flugvélina, þá var hann með á fullu að finna út úr því hvernig þetta væri mögulegt í raunveruleikanum." Nú hefur þú gert grínmyndir með leikurum sem eru þekktari fyrir dramatískan leik. Er það til að koma áhorfendum á óvart? „Nei, mér finnst einfaldlega gam- an að vinna með góðum leikurum og flestir góðir leikarar geta gert hluti á fyndinn hátt ef aðstæðumar era réttar. Ég hef notið þeirra forrétt- inda að vinna með Robert Redford, Emmu Thompson, Sigourney Wea- ver, Arnold Schwarzenegger og eins leikurunum í Sex dögum sjö nóttum og það er gaman að kynnast þessu fólki og reyna að finna út hvaða þætti í persónuleika þess má draga fram og ýkja til að þjóna kómedíunni.“ Ég tel mig hafa séð nokkrar til- vitnanir í frægar bíómyndir í Sex dögum sjö nóttum... „Ójá, og þær era ekki tilviljanir. Þetta er nokkuð sem ég hef ekki gert áður en mér fannst þessi mynd bjóða upp á það. Hún er gerð í anda mynda sem voru gerðar á fimmta áratugnum; glansstíllinn, grínið og rómantíkin eru svipuð.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.