Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.06.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 45 FRETTIR Ýmsar nýjar starfsreglur í kirkjunni í gildi um næstu áramót Mikil umræða á presta- stefnu um val sóknarpresta MEÐAL verkefna á prestastefnu eru umræður um ýmsar starfsregl- ur sem verða settar á grundvelli nýrra laga um stöðu, stjóm og starfshætti kirkjunnar. Gera nýju lögin ráð fyrii- að kirkjuþing setji þessar reglur og hafa sex nefndir unnið að samningu draga. Verkinu hefur stýrt Guðmundur Þór Guð- mundsson, lögfræðingur kirkjuráðs. Starfsreglumar sem hér um ræð- ir era um kjör til kirkjuþings og þingsköp þess, um skipan prófasta og störf þeirra, um héraðsfundi og héraðsnefndir, um stöðu, starf og starfshætti sóknarnefnda og starfs- manna sókna, um leikmannastefnu, um skiptingu starfa presta í presta- köllum, reglur um val á prestum og starfsskyldur þeirra og að síðustu um skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma. Guðmundur Þór Guðmundsson segir að meðan þessar starfsreglur liggja ekki fyrir, en þær eiga að taka gildi um næstu áramót, sé eins konar millibilsástand og á meðan sé starfað eftir eldri reglunum, t.d. hvað varðar val á sóknarprestum. Guðmundur kynnti drögin að starfsreglunum á héraðsfundum prófastsdæmanna síðastliðið vor og segir að þær verði beðnar um form- legar umsagnir. Þá verður leik- mannastefna beðin að gefa umsögn og skylt er að leita umsagnar prestastefnu. Voru reglurnar til umræðu í hópum þar á miðvikudag og átti að ræða þær frekar í gær, fimmtudag og gefa umsagnir. Komu fram ýmsar ábendingar og hug- myndir um breytingar og endur- skoðun á ýmsum þáttum í reglun- um. Reglur ákveðnar á kirkjuþingi Að fengnum umsögnum verða nefndirnar kallaðar saman og segir Guðmundur drögin síðan verða lögð fyrir kirkjuþing. Hann segir ekki ákveðið hvort nefndimar lagi drög- in að væntanlegum umsögnum eða hvort þeim verður vísað til kirkju- þings ásamt umsögnum. Gera má ráð fyrir að mestar um- ræður verði um reglur um val á prestum og starfsskyldur þeirra. Þar em m.a. settar fram reglur um auglýsingu embættis. Skal þar koma fram hver skipi í embættið eða ráði í starfið, hver kjör séu, hvort prestssetur fylgi, hvort lögð sé sérstök áhersla á hæfni umsækj- anda til að sinna tilteknum þáttum safnaðarstarfs, að umsækjendur geri grein fyrir nauðsynlegum upp- lýsingum og fleira. í drögunum er gert ráð íyrir skipun valnefndar sem veiti umsögn um þá sem sækja um embætti sóknarprests og prests. Skal hún skipuð fímm mönn- um: Viðkomandi vígslubiskupi, pró- fasti og þremur fulltrúum presta- kalls. Valnefnd skal við mat á hæfni umsækjenda líta til menntunar, starfsaldurs, starfsreynslu og ferils. Sé áskilin sérstök þekking eða reynsla í auglýsingu skal meta um- sækjendur eftir því hvernig þeir uppfylla þau sérstöku skilyrði. Valnefnd raði umsækjendum Valnefndin raðar umsækjendum eftir hæfni ef því er að skipta og telji hún umsækjendur jafnhæfa skal þeim skipað jafnfætis. Nefndin skal einnig gefa umsögn þótt um- sækjandi Sé aðeins einn. Biskup fel- ur prófasti að boða valnefnd til fundar og skal hann vera lokaður. Þar liggi umsóknir frammi ásamt öðrum gögnum og að lokinni athug- un fer fram val á umsækjanda þeg- ar á þeim fundi eða í síðasta lagi innan tveggja sólarhringa. Prófast- ur sendir síðan biskupi niðurstöðu valnefndar. Ef um embætti sóknar- prests er að ræða sendir biskup kirkjumálaráðherra niðurstöðu val- nefndar. Hafi ekki náðst samstaða í valnefnd ákveður biskup með hvaða umsækjanda hann mæli. Hann skip- ar þann umsækjanda í prestsemb- ætti sem valnefnd hefur náð sam- stöðu um. Meðal breytinga á kirkjuþingi, sem nýju lögin kveða á um, má nefna að nú verða leikmenn þar í meirihluta eða tólf á móti níu prest- um og forseti þess er nú kjörinn úr hópi leikmanna. Leikmenn á kirkju- þingi era kjörnir úr hópi sóknar- nefndarfólks. I drögum að reglum um héraðs- fundi og héraðsnefndir er kveðið nánar á um hlutverk þeirra. Hér- aðsnefnd er aðalfundur prófasts- dæmis og fjallar um mál er varða störf kirkjunnar í prófastsdæminu og héraðsnefnd er framkvæmda- nefnd héraðsfundar. Skal hún fylgja eftir samþykktum héraðsfunda og kveður prófastur nefndina saman svo oft sem þurfa þykir, en hann er formaður hennar. Hið sama má segja um drög að reglum um stöðu og starfshætti sóknamefnda, svo og um leik- mannastefnu, þar er nánar en áður kveðið á um ýmsa þætti starfs þeirra. í reglum um sóknarnefndir era ítarlegri reglur m.a. um fjár- skuldbindingar og bókhald þannig að sem mest samræmi verði hjá öll- um sóknarnefndum. Opið sunnudaga 14:00 -16:1 HUSGOGN SfSumúla 30 - Sími 568 6822 Bl S r'iii . mm t B U B B I ffj 'J u fí j j Mánudaqinn 20 Agust Mánudaginn 29 ísbjarnarblus Nýtt efni Miðvikudaginn 1 fsbjarnarblús Nýtt efni Mánudaginn6 Fingraför Plágan Nýtt efni Miðvikudaginn 8 Fingraför Plágan Nýtt efni Mánudaginn 13 Konuplatan Miðvikudaginn 15 Konuplatan Nýtt efni aqi Frelsi til söfu Blús fyrir Rikka Nýtt efni Miðvikudaginn 22 Dögun Nýtt efni Mánudaginn 27 Sögur af landi Nýtt efni Miðvikudaginn 29 Ég er Nýtt efni Mánudaginn 3 Von Nýtt efni Miðvikudaginn 5 Lífið er Ljúft Nýtt efni Mánudaginn 10 Þrír heimar Nýtt efni Miðvikudaginn 12 Allar áttir Nýtt efni Mánudaginn 17 Trúir þú á engla Nýtt efni hug & handverk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.