Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 56

Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 56
S3.Lausnir Nýherja fyrir Lotus Notes JQj Premlum Partner www.nyherji.is ffmitlribiðiífe TNT Express Worldwide 580 1010 íslandspóstur hf Hraðflutningar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK _ * Asta Möller segir áherslu lagða á að leysa hjúkrunarfræðingadeilu með vinnustaðasamningi Mikil ábyrgð hvílir á samninganefndinni VIÐRÆÐUR hjúkrunarfræðinga og fulltrúa stjórnvalda halda áfram um helgina en hingað til hafa þær engan árangur borið. Asta Möller, for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verið væri að velta hugmyndum fram og til baka og bætti við að mikil ábyrgð hvfldi á samninganefndinni. „Við erum að skoða hvort hægt sé að leysa mál- ið í gegnum félagið með vinnustaðasamningi og hvort okkur takist að ná samkomulagi sem hjúkr- unarfræðingar, sem sagt hafa upp störfum, eru til- búnir að gangast inn á ,“ sagði Asta. ( jk Hún sagði að það hlyti að fara að koma í ljós fljótlega hvort málið gæti leyst með þessum hætti. Hún sagði að aðganga félagsins að málinu byggð- ist á því að eftir á að ijúka seinni hluta samnings- gerðarinnar frá samningunum sem gerðir voru á síðasta ári. „Ef stofnanirnar og stjórnvöld vilja leggja eitthvað af mörkum til að ná samkomulagi stendur ekki á félaginu að ná slíku samkomulagi og það er á þeim grundvelli sem við vinnum nú. Markmið beggja aðila hlýtur að vera að ná samn- ingi sem hjúkrunarfræðingar geta sætt sig við og Betur setið heima ef til- lögum verður hafnað dregið uppsagnir sínar til baka í kjölfarið, annað væri óskynsamlegt." Ekki borinn undir atkvæði Aðspurð sagði hún að þessi vinnustaðasamning- ur, ef af verður, yrði ekki borinn undir atkvæði þar sem friðarskyldan á samningnum komst á í fyrra. „Það var kosið um saminginn í fyrra en þessum hluta samningsins lýkur með samkomu- lagi í aðlögunarnefnd eða úrskurði í úrskurðar- nefnd ef samkomulag næst ekki.“ Hún sagði fulltrúa félagsins vera í þröngri stöðu og mikil ábyrgð hvfldi á þeim. „Félagið getur aldrei tryggt að allir samþykki samninginn. Það eru einstaklingarnir sem sögðu upp og þeir ákveða hvort þeir ógildi uppsagnir sínar. Það er mikil ábyrgð á okkur. Ef við gerum eitthvað sem hjúkrunarfræðingar hafna eftir helg- ina, þá hefðum við betur setið heima,“ sagði Asta. Hún sagði ekki hafa verið teknar upp formlegar viðræður um verktakagreiðslur til hjúkrunarfræð- inga sem kallaðir yrðu til starfa í neyðartilfellum, eftir að uppsagnir þeiira taka gildi. „En við höfum óskað eftir viðræðum við heilbrigðisyfírvöld fyrfr hönd hjúkrunarfræðinga. Við erum að tala um fyr- irkomulag slíkrar neyðarþjónustu." Ásta segir að fólk sé mjög ergilegt yfir því þeg- ar stjórnendur stofnananna segjast ætla að halda starfseminni gangandi með því að vísa í skyldur hjúkrunarfræðinga og eigi það við hvort sem menn hafi sagt upp eða ekki. Hún segir að mikil reiði ríki meðal þeirra 40% hjúkrunarfræðinga sem ekki hafa sagt upp vegna fyrirætlana stjórnenda spítalanna um að kalla fólk úr orlofi. „Nú á að fara að setja fólk, sem ekki sagði upp, í þá aðstöðú að koma inn gegn vilja þess. Hverskonar framkoma er þetta við fólk sem á þó ekki í þessum deilum,“ spyr Asta. „Eg heyri að þetta fer verulega í taugarnar á fólki og líka að gengið sé út frá því að fólk sem er við störf leggi á sig tvöfalda vinnu ef hjúkrunarfræðingar ganga út um mánaðamót." Vill skoða áhrif lýsis á ónæmis- kerfi í RANNSÓKNUM sem Ingibjörg Harðardóttir matvælaefnafræðing- ur hefur gert á áhrifum lýsis á ónæmiskerfið hafa komið fram vís- bendingar um að það geti aukið við- nám gegn sýkingum. „Þetta eru fyrstu niðurstöður,“ segir Ingibjörg en rannsóknir voru gerðar á tilraunadýi'um þar sem einn hópur fékk ómega-3 fitusýrur, annar ómega-6 og sá þriðji ómega- 9. Rannsökuð voru viðbrögð ónæm- iskerfis þeirra gegn sýkingum og kom í ljós að þeir hópar sem fengu ómega-3 fitusýrur, sem meðal ann- ars er að finna í lýsi, lifðu frekar af sýkingar en aðrir hópar. „Þær niðurstöður sem ég hef fengið gefa vísbendingar um að áhugavert væri að skoða áhrif lýsis á ákveðna þætti í ónæmiskerfi manna,“ sagði Ingibjörg. ■ Lækningamáttur lýsis/E 16. Ný sjón- varpsstöð í loftið NÝ SJÓNVARPSSTÖÐ, Skjár 1, hefur hafið tilraunaútsendingar á ör- bylgju. Að sögn Hólmgeirs Baldurs- sonar hjá Islenska sjónvarpsfélaginu mun stöðin hefja starfsemi í ágúst og verður opin öllum án endurgjalds. Stöðin mun leggja áherslu á skemmtiefni, íslenskt og erlent, sem sent verður út alla daga frá klukkan 20.30 til miðnættis. í dag ná útsendingar Skjás 1 til alls höfuðborgarsvæðisins, Suður- nesja og Akraness en eftir tvær vik- ur hefjast einnig tilraunaútsending- ar á Suðurlandi. --------------- Kona skarst illa í andliti DÖNSK kona hrasaði á salernunum í Þórsmörk í gærnótt og skarst illa í andliti. Konan var flutt á heilsu- gæslustöðina á Hellu en þaðan á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem hún gekkst undir aðgerð í gær. Morgunblaðið/EAX Skjöl um leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs afhent í Höfða Valdi ísland með- al annars vegna sendiherrans MÓTTAKA vai- haldin í Höfða í gær þar sem Day Olin Mount, sendiherra Bandaríkjanna á Islandi, afhenti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra gögn frá leiðtogafundi Ronalds Reagans Bandai-íkjaforseta og Mikhafls Gorbatsjovs Sovétleið- toga á Islandi árið 1986.1 gögnunum kemur fram hvernig Reagan vildi að fundinum loknum leggja áherslu á að kanna hversu viljugir Sovétmenn væru til að fækka kjarnorkuvopnum við samningaborðið í afvopnunarvið- ' ræðunum í Genf í ljósi þess, sem rætt var á fundinum í Reykjavík. Mount sagði í samtali við Morg- unblaðið að ljóst væri að Reagan hefði viljað halda fundinn í Reykja- vík, en færri vissu að einnig hefði verið persónuleg ástæða fyrir stað- setningunni. „Hann valdi einnig Reykjavík af -'því að Nick Ruwe var sendiherra hér,“ sagði hann. „Ruwe var trúnað- arvinur og þegar Reagan bauð hon- um_ sendiherrastöðu vildi hann fara til Islands. Reagan vissi að hann gat treyst honum og jafnvel þótt fyrir- varinn væri skammur myndi sendi- herrann skapa umhverfi, sem myndi leyfa forsetanum að einbeita sér að viðræðunum við Gorbatsjov." I skjali þar sem línan er lögð fyrir fundinn, sem haldinn var í október, segir að Reagan eigi ekki von á því að undirrita neitt samkomulag í Reykjavík, en hann vonist til þess að fundurinn tryggi að leiðtogafundur í Bandaríkjunum beri árangur. I skýrslu um fundinn, sem dagsett er 3. nóvember, segir að tilgangur hans hafi verið að kanna allar leiðir til árangurs í afvopnunarviðræðum. I skjalinu segir að ekki sé ljóst hvort Sovétmenn muni „hafa þá visku til að bera að samþykkja bandarísku tillögurnar", sem Reag- an lagði fram í Reykjavík. Síðan er lögð fram áætlun um hvernig eigi að fylgja því eftir að ná fram þeim til- lögum, sem settar voru fram í Reykjavík. Þar hafa stórir kaflar verið strikaðir út, en markmiðið er sagt vera að sjá til þess að Reagan geti brugðist hratt við taki Sovét- menn undir tillögur um útrýmingu langdrægra flauga. Skjöl þessi eru hingað komin fyrir milligöngu Dougs Bereuters, þing- manns repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Bereuter er vara- formaður alþjóðanefndar Bandaríkja- þings og einnig formaður þingmanna- hóps í Norður-Atlantshafsráðinu. Hann var hér á fundi ráðsins í fyrra og fékk þá hugmynd er hann heim- sótti Höfða og frétti að þar ætti að vera safn um leiðtogafundinn að safna saman bandarískum skjölum um hann og senda hingað. Málað í Sundahöfn ÞEIR notuðu daginn vel menn- irnir sem voru við málningar- vinnu í Sundahöfn í gær. Tími viðhalds skipa, smárra sem stórra, er í hámarki og þegar saman fer sléttur sjór og blíð- viðri fj'ölgar tunnuflekunum í kringum þau. -----♦-♦-♦-- • • Olvaður öku- maður á ferð RETT fyrir klukkan sex í gær- morgun keyrði ölvaður maður á stolnum bfl á kyrrstæðan mannlaus- an bíl í Hlíðahverfi í Reykjavík. Ökumaður slasaðist ekki en báðir bílarnfr eru talsvert skemmdir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.