Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
186. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Deilt um
heraðstoð
við Kabila
Kinshasa. Reuters.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, gagnrýndi í gær nokkra Af-
ríkuleiðtoga fyrir að ætla að senda
herlið til aðstoðar Laurent Kabila,
forseta Lýðveldisins Kongó, sem
berst nú við uppreisnarmenn nærri
höfuðborginni, Kinshasa.
Zimbabwe og Angóla eru á meðal
þeirra sem hyggjast veita Kabila
hernaðaraðstoð til að hrinda árás
uppreisnarmanna. Mandela sagði
hins vegar að ástandið myndi aðeins
versna við það.
Uppreisnarmenn segjast gera
harða hríð að borginni Mbanza
Ngungu, sem er 120 km suðaustur af
Kinshasa og sögð síðasta hindrunin á
leiðinni þangað. Kveðast þeir reiðu-
búnir til viðræðna við stjómina um
vopnahlé en hún hefur engu svarað.
-------------------
Bonino í Kosovo
Neyðarhjálp
dugar skammt
Cirez, Pristina. Reuters.
EMMA Bonino, framkvæmdastjóri
mannúðarmála hjá Evrópusamband-
inu, heldur því fram að margir hinna
200 þúsund flóttamanna í Kosovo-
héraði muni ekki lifa veturinn af
verði ekki samið um frið hið
snarasta. „Þjóðir heims verða að
gera sér grein fyrir því að neyðar-
hjálp við flóttafólkið verður jafn-
framt að fylgja pólitísk lausn deil-
unnar,“ sagði Bonino, sem var á ferð
um Kosovo-hérað í gær.
Bonino hitti fjölda flóttafólks á
ferð sinni um héraðið. I þorpinu
Cirez ræddi hún við konur er tjáðu
henni að fjölskylda þemra legði sér
hvaðeina til munns og hefði hvorki
getað þvegið þvott né sig sjálfa svo
vikum skipti.
„ffið sanna IRA“ lýsir yfír vopnahléi í kjölfar sprengingarinnar í Omagh
Reuters
ÞRÍR drengir, tólf og átta ára, sem fórust í sprengjutilræðinu í Omagh
sl. laugardag, voru á meðal þeirra sextán fórnarlamba sem voru borin
til grafar í gær. Gerry Adams og Martin McGuinnes, leiðtogar Sinn
Fein, voru viðstaddir útförina.
Neyðarlög
til að klófesta
tilræðismenn
Dublin, Belfast, London. Reuters.
STJÓRNMÁLAlMENN á írlandi og N-írlandi sögðust í gær telja
vopnahlésyfirlýsingu samtakanna „Hins sanna IRA“, sem birt var í gær,
lítið annað en „kaldrifjað kænskubragð“. Mo Mowlam, N-írlandsmála-
ráðherra bresku ríldsstjómarinnar, kvaðst telja yfirlýsinguna „móðgun"
enda kæmi hún sama daginn og sextán fórnarlamba sprengjutilræðisins
í Omagh síðastliðinn laugardag væru borin til grafar. Talsmenn forsæt-
isráðherra Bretlands og Irlands, Tonys Blairs og Berties Ahems, sögðu
hins vegar að yfirlýsingin myndi engu breyta um þær áætlanir þeirra að
finna þá menn sem stóðu fyrir sprengjutilræðinu í Omagh á laugardag,
þar sem 28 fórust og yfir 200 særðust, og veita þeim makleg málagjöld.
Ahem kynnti í gærkvöld David
Trimble, forsætisráðherra N-ír-
lands, hertar aðgerðir sem írsk
stjórnvöld hyggjast grípa til í því
skyni að koma lögum yfir ódæðis-
mennina. Verður veitt sérstök laga-
heimild til að halda grunuðum
hryðjuverkamönnum í sjö daga án
dóms og laga, dregið verður úr rétti
þeirra til að neita að svara spurn-
ingum lögreglumanna auk þess sem
breytingar verða gerðar á rétti
manna til að verða látnir lausir
gegn tryggingu. „Þessar aðgerðir
eru afar harðneskjulegar," sagði
Ahern í gær, „en ég er ekki reiðu-
búinn að hætta á frekari harmleiki."
í yfirlýsingu sinni í gær sagði
„Hið sanna IRA“ að lýst væri yfir
vopnahléi nú vegna ákalls Aherns í
fyrrakvöld um að öll skæruliðasam-
tök lýðveldissinna lýstu þegar yfir
vopnahléi en einnig vegna harm-
leiksins í Omagh, og hafa samtökin
haldið því fram að ætlun sín hafi
ekki verið að valda mannfalli í
sprengingunni.
Líklegt er hins vegar talið að liðs-
menn „Hins sanna IRA“ hafi orðið
fyrir miklum þrýstingi frá fyrri fé-
lögum sínum í IRA og jafnvel er
talið mögulegt að IRA reyni að kló-
festa illvirkjana áður en yfirvöld
komi höndum yfir þá.
Grunaður höfuðpaur á flótta
Miehael McKevitt, sem á þriðju-
dag var nafngreindur af dagblaðinu
The Daily Telegraph sem leiðtogi
„hins sanna IRA“, sagðist í gær
ekkert hafa haft með Omagh-til-
ræðið að gera. McKevitt og eigin-
kona hans, Bernadette Sands, hafa
flúið heimabæ sinn Dundalk og eru
nú í felum vegna líflátshótana sem
þeim hafa borist.
íbúar Dundalk stóðu hins vegar
fyrir mótmælagöngu í gær þar sem
andstyggð á tilræðinu í Omagh var
lýst, auk þess sem þeir lýstu
óánægju sinni með það slæma orð
sem nú fer af Dundalk og að bærinn
skuli nú nefndur helsta vígi „Hins
sanna IRA“.
Leyniskjöl um vestrænar leyniþjónustur
Alþjóðafylking Islams gegn gyðingum ítrekar viðvaranir
Hammar-
skjöld
myrtur?
Höfðaborg. Reuters.
DESMOND Tutu, erkibiskup og
formaður suður-afrísku Sann-
leiks- og sáttanefndarinnar, birti
í gær skjöl sem hann sagði benda
til þess að leyniþjónustur á Vest-
urlöndum hefðu staðið á bak við
flugslysið sem Dag Hammar-
skjöld, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, fórst í árið
1961. Sagði Tutu að nefndin
hefði ákveðið að birta skjölin
þótt hún gæti ekki ábyrgst áreið-
anleika þeirra. Bandariska leyni-
þjónustan og Sir Brian Urquhart,
fyrrverandi aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SÞ, hafa vísað inni-
haldi skjaianna á bug.
Tutu sagði að nefndinni hefði
ekki tekist að komast að því hve
áreiðanleg skjölin væru. Þar er
vísað til CIA, s-afrísku og bresku
leyniþjónustunnar. Á einum stað
segir: „Talið er að fjarlægja eigi
Reuters
DESMOND Tutu erkibiskup
Hammarskjöld" og síðar: „Ég vil
að hann verði fjarlægður á skil-
virkari hátt en Patrice" og er
talið að þar sé vísað til morðsins
á Patrice Lumumba, sjálfstæðis-
hetju Kongó, sem CIA hefur við-
urkennt að hafa staðið á bak við.
f öðru bréfí eru fyrirskipanir
um að koma fyrir sprengiefni í
hjólaskálum, sem springi þegar
flugvél hefji sig á loft. Hammar-
skjöld og fimmtán aðrir fórust er
flugvél hans brotlenti í Norður-
Ródesíu. Á þeim tíma voru uppi
sögusagnir um að Bretar hefðu
viljað Hammarskjöld feigan til að
koma í veg fyrir að SÞ myndu
veita uppreisnarforingjanum
Moise Tshombe í Kongó Iiðsinni.
Hóta frekari aðgerðum
gegn Bandaríkjunum
Kaíró, Washington. Reuters.
HÓPUR sem nefnir sig Alþjóða-
fylkingu íslams gegn gyðingum og
krossförum hefur á ný hótað
Bandaríkjamönnum, að því er arab-
íska blaðið al-Hayat, sem gefið er út
í London, greindi frá í gær. Hópur-
inn hefði sent yfirlýsingu til Kaíró-
skrifstofu blaðsins og sagt að
„heilögum uppreisnaraðgerðum",
sem nýlega hefði verið gripið til
gegn Bandaríkjunum, yrði haldið
áfram „uns bandarískur her hverfur
frá löndum múslíma".
Talebanar í Afganistan kváðust í
gær myndu vernda saudi-arabíska
auðkýfinginn Osama bin Laden,
sem býr í Kabúl, en hann er talinn
hafa verið potturinn og pannan 1
tilræðunum í Kenýa og Tansaníu.
Segja Talebanar ekki koma til
greina að framselja bin Laden og
segja auk þess afar ólíklegt að
hann hafi staðið að baki sprenging-
unum.
Osamu bin Laden
AI-H ay at
kvaðst hafa feng-
ið yfirlýsinguna
ásamt þrem öðr-
um yfirlýsingum
frá svonefndum
íslömskum frels-
isher hinna
helgu staða, sem
lýst hefði ábyrgð
á hendur sér á
sprengjutilræðunum við sendiráð
Bandaríkjanna í Tansaníu og Kenýa
7. ágúst sl.
Fyrst hefði heyrst frá Alþjóða-
íylkingunni í febrúar sl. er hún
hefði gefið út trúarlega tilskipun frá
nokkrum öfgasinnuðum leiðtogum
múslíma, þ.á m. Osama bin Laden.
Bandaríska blaðið Washington
Post greindi frá því í gær að maður
sem grunaður er um aðild að tilræð-
inu í Nairobi hefði greint lögreglu i
smáatriðum frá vígbúnum alþjóða-
samtökum er beini spjótum sínum
að hagsmunum Bandaríkjamanna á
erlendri grund og sé bin Laden höf-
uðpaur samtakanna.
Maðurinn er sagður heita Mo-
hammed Saddiq Odeh og var hand-
tekinn af pakistönskum yfirvöldum
er hann reyndi að komast til
Afganistans. Hann hafði flogið frá
Kenýa til Pakistans daginn sem
sprengjutilræðin voru framin, en
var framseldur til Kenýa þar sem
hann var yfirheyrður frekar.
Washington Post sagði að Odeh
hefði greint frá því að bin Laden
stjómaði fjögur til fimm þúsund
manna herliði í nokkrum löndum og
hefði auk þess yfir að ráða stóru
vopnabúri, m.a. loftvarnaflaugum,
sprengikúlum og skriðdrekum.
Væra vopnin geymd víðs vegar um
Ai'ganistan.
■ FBI leitar/21