Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Dauði hrossanna um borð í Norrænu
rannsakaður í Danmörku
Hestar fluttir með
sama hætti mörg
undanfarin ár
gengið vel. Dýralæknir hafi tryggt
að hestamir hafi haft nægilegt rými
í bílnum.
Köfnun líkleg
dánarorsök
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er langlíklegast að
hrossin hafi kafnað í bílnum. Kvöld-
ið fyrir flutninginn hafi verið gengið
frá flutningabílnum á hafnarbakk-
anum á Seyðisfirði eins og til stóð
að gengið yrði frá honum um borð í
skipinu, þ.e. með opinn hlera á aft-
anverðum bílnum og með viftu í
gangi sem tengd var við rafmagn.
Allt virkaði þetta rétt aðfaranótt
fimmtudags. Halldór segir að grun-
ur leiki á um að eitthvað hafi brugð-
ist við fráganginn um borð í skipinu.
Varðandi eftirmála segir Halldór
að embættið vilji fá skýringar á því
hvað hafi farið úrskeiðis svo hægt
verði að tryggja að sambærilegir
hlutir gerist ekki á ný.
Morgunblaðið/Bima Mjöil AtladótUr
TILMAN hefur dvalið á Islandi í sumar og að hluta til á Patreksfirði.
Þar kann hann vel við sig og finnst afskaplega gaman að vera úti að
leika, meðal annars á bryggjunni.
YFIRDÝRALÆKNISEMBÆTTIÐ
á íslandi á samstarf við yfirdýra-
lækni í Danmörku um rannsókn á
hrossunum níu sem drápust í hesta-
flutningabíl um borð í ferjunni Nor-
rænu fyrir einni viku. Danska yfir-
dýralæknisembættið tók hestana til
krufningar og er nú beðið skýrslu
embættisins.
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir segir að samkvæmt fyrstu
niðurstöðum hafi smitsjúkdómar
ekki fundist í hrossunum. „Menn
óttast enn hitasótt í hrossum en það
er ljóst að öllum okkar reglum var
fylgt hvað það varðar enda voru
önnur hross í skipinu við góða
heilsu,“ segir Halldór.
Halldór hefur beðið um að fá
senda skýrslu frá dönskum starfs-
bræðrum sínum svo fljótt sem auðið
er. Hann kveðst telja að rétt hafi
verið staðið að flutningi hrossanna.
Hestar hafi verið fluttir með sama
hætti mörg undanfarin ár og alltaf
WILLIAM Webb þreytir stórlaxinn í Vífilsfljóti, en Orri Vigfússon fylgist spenntur með framvindu mála.
Missti tröll eftir nær
fímm stunda viðureign
MENN hafa verið að setja í og
landa óvenjumörgum stórlöxum í
sumar, sérstaklega þó í gömlu stór-
laxadrottningunni Laxá í Aðaldal.
Það er þó ekki þar með sagt að
það sé liðin tíð að menn missi þá
stærstu. Fyrir skömmu fréttist að
enskur unglingur hefði glímt við
mikið ferlíki í Vífilsfljóti í Selá í
Vopnafirði. Laxinn tók upp úr
klukkan átta um kvöldið og klukk-
an var orðin kortér yfir eitt um
nóttina þegar flugan losnaði úr
honum . Orri Vigfússon, sem stóð
við hlið drengsins orrustuna á
enda, sagði menn hafa giskað á að
hann væri 26 pund.
Ungi maðurinnn, William Webb,
setti í laxinn nákvæmlega klukkan
20.45 um kvöldið og notaði hann
flugu númer sextán og gáruhnút.
„Hann stóð sig mjög vel, elti laxinn
upp og niður allt fljótið, sem er
mjög langt og víða erfitt í botninn,
datt tvisvar í ána og tók aldrei of
fast á laxinum. Fiskurinn var hins
vegar illviðráðanlegur og fór ferða
sinna nánast eins og hann vildi.
Það varð dimmt, en sem betur fer
kom tunglið fram og lýsti okkur.
Það er spuming hvaða möguleika
strákurinn átti og svo fór að flugan
losnaði úr laxinum,“ sagði Orri
Vigfússon í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Oi-ri sagði enn fremur, að veiðin
í Selá væri að nálgast 850 laxa. sem
væri mjög góð útkoma. Þá væri
veiðin jöfn og góð á öllum svæðum.
Nú í vikubyrjun veiddi Steingrím-
ur J. Sigfússon 20 punda hæng á
efra svæði árinnar og er það
stærsti laxinn í sumar.
„Ef skoðuð era meðaltöl í lax-
veiði síðastliðin 24 ár og síðastliðin
5 ár hefur orðið 10% samdráttur á
landsmeðaltali en aukning um 6% í
Selá. Þetta er mjög ánægjuleg vís-
bending um langtímaþróunina í
Selá. Laxastiginn og hið mikla upp-
eldissvæði í efri hluta árinnar hafa
þannig mjög jákvæð áhrif á að
bæta villta stofninn í þessari veiði-
perlu,“ sagði Orri.
Fréttir úr
ýmsum áttum
Um 160 laxar eru komnir á land
úr Svalbarðsá í Þistilfirði og hafa
hollin verið að fá 10 til 20 laxa. Ry-
sjótt veður hefur traflað veiðar, en
mikill lax er sagður í ánni. 20 og
19,5 punda laxar, veiddir snemma í
júlí, eru stærstir enn sem komið er.
Veiði hefur verið lífleg í Breið-
dalsá allra síðustu daga og
dagsveiði verið 4 til 8 laxar. Um 60
laxar voru komnir úr ánni í gær-
morgun og bleikjuveiði hefur
einnig verið prýðileg.
Milli 60 og 70 laxar hafa veiðst í
Miðá og hermt ert að bleikjuveiði
sé komin yfir 500 fiska. Þetta eru
fleiri laxar en allt síðasta sumar og
sama má segja um bleikjuveiðina,
auk þess sem bleikjan er mun
vænni í ár en í fyrra. Að sögn Lúð-
víks Gissurarsonar leigutaka ár-
innar er allt annað og betra hljóð í
viðskiptavinunum í sumar og það
er ekki aðeins vegna mun betri
veiði, heldur einnig vegna þess að
veiðifélag árinnar hefur reist nýtt
og vel búið veiðihús.
Fáskrúð var komin í 163 laxa í
gærdag og höfðu síðustu 6 dagar
gefið 59 laxa. Þetta er 18 löxum
meiri veiði en allt síðasta sumar.
Á mánudagsmorgun var Gljúfurá
komin í 86 laxa. Miðað við hve langt
er liðið á sumar hefði ekki þótt
óeðlilegt að þeir væra hundraði
fleiri. Sum sé léleg vertíð til þessa
og ekki mikill lax í ánni, auk þess
sem stóraukið álag vegna fjölgunar
stanga úr þremur í fjórar yfir há-
veiðitímann hefur verið til bölvunar
að mati flestra sem verið hafa að
veiðum í sumar. Veiðifélagsmenn
hafa bent á að um raunveralega
fjölgun stanga sé ekki að ræða þar
sem skomir hafi verið tíu dagar aft-
an af veiðitímanum og stangardög-
unum dreift yfir hásumarið. Stærð-
fræðilega er því ekki um stanga-
fjölgun að ræða í Gljúfurá.
Forstjóri Ríkiskaupa má ekki gegna formennsku í lyfjaverðsnefnd
Kom heilbrigð-
isráðuneyt-
inu á óvart
„Langar að
koma aftur
að ári“
ÞÝSKU mæðginin Petra og Tilman
Bartsch hafa dvalið hér á landi í
sumar af heilsufarsástæðum. Tilm-
an er haldinn sjaldgæfum sjúkdómi
sem gerir vart við sig þegar hita-
stigið fer yfir 20 stig á Celsius. Því
er ekki óhætt fyrir hann að vera í
heimalandi sínu frá miðjum maí
fram í miðjan september.
Mæðginin vonast til að geta
komið hingað aftur næsta sumar
og langar til að leigja eða kaupa
sér h'tið hús þar sem þau geta tek-
ið á móti Ijölskyldunni, en fimm
mánaða aðskilnaður á ári hverju
getur verið ansi langur. Tvö
systkini Tilmans og föður hans
Iangar að eyða sumarfrnnu sínu
hér, en það er sex vikna Iangt. Ef
einhver getur leigt híbýli sín að
sumarlagi fylgir hér heimilisfang
fjölskyldunnar í Þýskalandi.
Petra og Tilman Bartsch
Offermanstrafie 10
52159 Roetgen
Deutschland
sími: 00 49 2471 3064
bréfsími: 00 49 2471 2065
UMBOÐSMAÐUR Alþingis kemst
að þeirri niðurstöðu í áliti, sem tekið
var saman vegna kvörtunar Félags
íslenskra stórkaupmanna, að Júlíus
S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa,
megi ekki gegna starfi formanns
lyfjaverðsnefndar. Segir í niður-
stöðum álitsins að starfsskyldurnar
séu í þeim mæli ósamrýmanlegar,
að sami maður megi ekki gegna
þessum störfum á sama tíma. Lagt
er til að skipan nefndarinnar verði
komið í lögmætt horf og er þeim til-
mælum beint til ráðherra að vandað
verði betur til könnunar hæfisskil-
yrða áður en nefndarmenn séu skip-
aðir í nefnd.
Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar
ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðu-
neytisins kom álit umboðsmanns
Alþingis mjög á óvart. „Lögfræð-
ingar skoðuðu þetta áður en Júlíus
var beðinn um að taka að sér for-
mennsku í nefndinni og ráðuneytið
mun óska eftir viðræðum við um-
boðsmann til að fá nánari skýringu
á málinu," sagði Davíð í samtali við
Morgunblaðið.
í áliti umboðsmanns kemur fram
að rök heilbrigðisráðuneytis fyrir
formennsku Júlíusar í nefndinni séu
ekki nægilega sterk. Umboðsmaður
vísar til bréfa sem ráðuneytið sendi
Félagi íslenskra stórkaupmanna í
ágúst 1996 og umboðsmanni Al-
þingis í apríl 1997 þar sem Júlíus er
ekki talinn vanhæfur til að eiga sæti
í lyfjaverðsnefnd þar sem Ríkis-
kaup annist ekki kaup á lyfjum fyrir
sjúkrahúsin heldur sjái aðeins um
framkvæmd útboða. Því sé Júlíus
ekki aðili að málunum.
Umboðsmaður Alþingis bendir á
að samkvæmt lögum annist Ríkis-
kaup innkaup íyrir allar stofnanir
og fyrirtæki ríkisins. Fjármálaráð-
herra geti þó heimilað einstökum
ríkisstofnunum að annast eigin inn-
kaup en sjúkrahúsin hafi ekki feng-
ið slíkt leyfi.
Það er niðurstaða umboðsmanns
að Júlíus „geti ekki átt sæti í lyfja-
verðsnefnd á sama tíma og hann
gegnir stöðu forstjóra Ríkiskaupa, á
meðan það fellur í hlut Ríkiskaupa
að aðstoða stærstu lyfjakaupendur
landsins, sjúkrahúsin, við að kaupa
lyf á sem hagstæðustu verði með út-
boðum á lyfjum." Umboðsmaður
telur að ekki verði horft framhjá því
að þessar starfsskyldur stangist á
við skyldur formanns lyfjasölu-
nefndar sem ákveður hámarksverð
lyfseðilsskyldi-a lyfja í heildsölu og
smásölu.
Ráðherra vandi betur
könnun á hæfisskilyrðum
Umboðsmaður beinir þeim til-
mælum til ráðherra að vanda betur
til könnunar á því hvort almenn
hæfisskilyrði séu uppfyllt. Það ráði
t.a.m. ekki úrslitum um hæfi Júlíus-
ar hvort Ríkiskaup teljist beinn
kaupandi lyfja eður ei, því hæfis-
reglur stjómsýsluréttar segi m.a.
að það valdi vanhæfi þegar maður
er aðili máls, fyrirsvars-, umboðs-
eða aðstoðarmaður aðila máls við
undirbúning og meðferð þess.
Einnig er bent á að markmið
hæfislaga sé ekki eingöngu að
hindra að ómálefnaleg sjónarmið
hafi áhrif á ákvarðanir í stjórnsýslu
heldur einnig að koma í veg fyrir að
almenningur eða þeir sem hlut eiga
að máli geti haft réttmæta ástæðu
til að ætla að svo geti verið.
Umboðsmaður bendir á að árið
1992 hafi hann komist að þeirri nið-
urstöðu að lyfjamálastjóri, sem ráð-
herra skipaði án tilnefningar í lyfja-
verðlagsnefnd, væri vanhæfur og
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu í mars 1993 að skrifstofu-
stjóri í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti, sem ráðherra skip-
aði einnig án tilnefningar, væri van-
hæfur.
Davíð segir ekkert sameiginlegt
með áliti umboðsmanns á vanhæfi
Júlíusar og fyrri tilvikunum tveim-
ur, mjög mismunandi rök liggi að
baki. Þá var um starfsmenn ráðu-
neytisins að ræða en nú sé um að
ræða forstjóra Ríkiskaupa.