Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 29
LJÓSMYND Guðmundar Ingólfssonar frá Riverton í Manitóba.
LITIÐ til Karlsskála. Ljósmynd Wayne Gudmundson.
En það eru ekki síst myndir hans
úr þéttbýli sem vekja athygli. I
mynd frá Kópavoginum sýnir hann
hversu kaldhamrað íslenskt borgar-
landslag getur verið, þar sem sést í
forgrunni hvernig mosavaxinn
steinn hefur verið umkringdur
snyrtilegum gangstéttarhellum og
malbiki, í bakgrunni rís Hamra-
borgin í miðbæ Kópavogs eins og
bergstapi.
Öll sýningin ber vott um óaðfínn-
anlegt handverk. Allar myndirnar
eru svart/hvítar, teknar á stórar
filmur. Framköllunin á pappírnum
býður upp á dýpt og breidd i
grátónum sem jafnvel vandaðasta
prentun í bók nær ekki að kalla
fram. Það er því hægt að skoða sýn-
inguna sem hreina svartlist, þar
sem boðið er upp á blæbrigði í
grátónum sem sjást varla lengur í
myndlist. Með sýningunni fylgir
vönduð sýningarskrá prýdd fjölda
mynda. Vel hefur tekist til með
prentun og sá Prentsmiðjan Oddi
um þá hlið mála.
„Heimahagar - Homeplaces“ er
áhrifarík og margbrotin sýning.
Margt af því besta sem ljósmynda-
listin hefur upp á að bjóða fær hér
að njóta sín. Við verðum að eiga það
inni hjá Guðmundi Ingólfssyni að
hann haldi sýningu á ljósmyndum
sínum frá eigin heimaslóðum hér á
Islandi.
Gunnar J. Árnason
Klassísk rómantík
TOIVLIST
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
SAMLEIKUR Á FIÐLU OG
PÍANÓ
Elisabeth Zeuthen Schneider
og Halldór Haraldsson fluttu
tónverk eftir Hartmann feðga
og Carl Nielsen. Þriðjudagurinn
18. ágúst, 1998.
SKANDINAVÍSKIR listamenn
hafa á öllum tímum verið sérlega
viðkvæmir fyrir öllu er gerðist í
Mið-Evrópu og jafnvel Rússar og
Englendingar hafa ævinlega gefið
mikið fyrir viðurkenningu ítalskra,
þýski'a og jafnvel franskra starfs-
bræðra. Þetta átti sinn þátt í að nor-
ræn tónskáld, fyrir utan Grieg og
Sibelíus, hafa um langan tím legið
óbætt hjá garði. Á síðari tímum hef-
ur rykið verið blásið af verkum nor-
rænu tónskáldanna, sem uppi voru á
nltjándu öldinni og þá hefur komið í
ijós, að margt gott er að finna í fór-
um þeirra.
Hér á landi var Hartmann aðal-
lega þekktur fyrir nokkur alþýðleg
sönglög og þegar „endurreisn" ís-
lenskrar tónlistar hófst, eftir seinni
heimsstyrjöldina, var sú danska tón-
list er ráðið hafði miklu fram að
þeim tíma hér á landi, eitthvað sem
tónlistarmenn vildu útrýma og köll-
uðu þýsk-danska rómantík. Nú hafa
tónlistarmenn jafnað sig og sjá að
fortíðin var ekki alvondur óvinur og
Skandínavar sjálfir eru teknir að
leika verk sinna manna. Hér á landi
hefur Sveinbjörn Sveinbjörnsson
notið þessa og á tónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar sl.
þriðjudag fluttu Elisabeth Zeuthen
Schneider og Halldór Haraldsson
verk eftir þá Hartmann feðga og
Carl Nielsen, sem Danir lærðu ekki
að meta fyrr en Englendingar og
Bandraríkjamenn hófu verk hans til
skýjanna.
Tónleikarnir hófust á sónötu fyr-
ir fiðlu og píanó eftir Johan Peter
Emilius Hartmann (1805-1900).
Sónatan er samin 1826 og hvað tón-
stfl og formskipan snertir, klassísk
að gerð. Fyrsti kaflinn er viðamest-
ur og ágætlega saminn en seinni
kaflarnir, einkum skérsóið og
lokakaflinn eru fremur litlir í sér en
margt fallegt að heyra í þeim
þriðja, hæga þættinum. Það ber að
hafa í huga, að Emilius er aðeins 21
árs, þegar verkið er samið og snill-
ingar tímans voru Haydn, Mozart
og Beethoven. Elisabeth Zeuthen
er ágætur fiðlari en nokkuð vantaði
á köflum, að samspil hennar og
Halldórs væri í jafnvægi, trúlega
vegna lítils æfingatíma og flutning-
urinn því í heild að mestu „beint af
augum“.
Sonur Emiliusar hét Emil
(1836-1898) og þar mátti heyra að
rómantíkin hafði haldið innreið sína
í Danaveldi. Eftir Emil, sem lifði í
skugga föður síns, var flutt Andante
og Allegro op. 12 og var þessi hug-
þekka tónlist nokkuð vel flutt.
Lokaverkið var fiðlusónata í
A-dúr, óp. 9, eftir Carl Nielsen
(1865-1931), en eftir hann liggja
þrjár sónötur fyrir fiðlu og píanó. Sú
fyrsta, sem Nielsen samdi er hann
var 17 ára, hefur ekki verið gefin út.
Hann er þrítugur er hann gefur út
hina eiginlegu fyrstu sónötu sína
fyrir fiðlu og píanó en 47 ára þegar
sú seinni er samin.
Þrátt fyrir að „fyrri“ sónatan sé
samin 1895, á blómatímabili, róman-
tíkurinnar, eru töluverð umbrot í
henni en á þessum árum lék Nielsen
aðra fiðlu, í hljómsveit konunglega
leikhússins, í Kaupmannahöfn.
Sónatan er á köflum nokkuð erfið og
einnig tyrfin, þar sem klassísk
vinnubrögð eru ljósari en rómantísk,
enda verður sérstaða Nielsens sú,
seinna meir, að eiga meira saman
með klassík og modernisma, en
rómantík, sérstaklega fyrir sitt sér-
kennilega tónmál. Margt var vel
leikið hjá Zeuthen og Halldóri eink-
um í hæga þættinum, sem er á köfl-
um sérkennflegur, t.d. miðhlutinn en
nokkuð var vöntun á samspili og
samvirkni í túlkun og leik áberandi,
sérstaklega í fyrsta kaflanum, sem
er býsna erfiður á köflum og má í
því sambandi gera ráð fyrir, að
miklu valdi stuttur tími samæfinga.
Jón Ásgeirsson.
Signý Þóra Fríða
Sæmundsdóttir Sæmundsdóttir
Kaffileikhúsið
„Ágústkvöld“
SIGNÝ Sæmundsdóttir og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir flytja „Ágúst-
kvöld í Kaffileikhúsinu" í kvöld,
fimmtudagskvöld.
Á efnisskrá eru m.a. glettnir
söngvar, rómantískar „chansons" og
kaffihúsasmellir. Meðal laga á efnis-
skránni eru lög eftir Atia Heimi
Sveinsson við ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar, lög eftir Satie, Poulence, Þor-
stein Gylfason og G. Donnizetti.
Signý Sæmundsdóttir var einsöngv-
ari með Kammersveit Reykjavíkur á
EXPO heimssýningunni í Portúgal og
framundan er undirbúningur að tón-
leikahaldi í Reykjavík og víðar. Þóra
Fríða Sæmundsdóttir lauk píanókenn-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1978 og stundaði fi-am-
haldsnám í Þýskalandi við tónlistarhá-
skólana í Freiburg og Stuttgart.
LÆGSTI KOSTNAÐURINN
Á HVERN SJÓÐSFÉLAGA
Samkvæmt Viðskiptablaðinu 15. júli 1998*
FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Frjálsi llfeyrissjóðurinn er stærsti og
elsti séreignarlffeyrissjóður landsins.
Við val á lífeyrissjóði er mikilvægt að skoða hvemig raunávöxtun sjóðanna hefur verið
síðasta árið og hver kostnaðurinn er á hvern félaga í sjóðnum.
Kostnaður á hvem
virkan sjóösfélaga
Hrein raunávöxtun 1997
Hrein raunávöxtun 1998
Frjálsi
lífeyrissjóðurinn
1.520 kr.
7,89%
13%
*í Viðskiptablaðinu 15. júlí 1998
kemur fram að Ftjálsi lífeyrissjóðurinn
var með hæstu hreinu raunávöxtunina
árið 1997 og lægsta kostnað á hvem
virkan sjóðsfélaga.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn þolir því allan
samanburð!
Er nokkur spurning hvaða lífeyrissjóð þú velur?
Hringdu í síma 540 5060 eða komdu til okkar á Laugaveg 170.