Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 51
FÓLK í FRÉTTUM
• tónlist við tölvuleiki, hefur flakkað víða sem
HRÖNN hefur áhugaá^Mhííg vinnur við dagskrárgerð.
finna góðar plötur í
R&B og trans tónlist.
Annars er þetta blanda
af öllu saman því það
er ekki hægt að búa til
tónlist án þess að hafa
hlustað á alls konar
tónlist.
- Langar þig til að
búa til tónlist?
„Ég hef tekið upp
tónlist og það er
mjög gaman en ég
veit ekki hvort ég
hef einhvern sér-
stakan áhuga á að
leggja það fyrir
mig. Mér finnst að
fólk eigi ekki að
labba inn í hljóðver
og finna bara eitt-
hvað „cool beat“ og
hljóðblanda eitt-
hvað „groove“ inn
á milli. Ég er
langhrifnust af
plötum með heild-
arhugmynd sem
er meira en bara
tónlist og virkar í
raun eins og
kvikmynd. Þá er
ákveðinn karakt-
er í hverju lagi
og hlustandinn
fær eitthvað
meira en bara
tónlist. Ég er til
dæmis mjög
hrifin af kvik-
myndatónlist.
Gömlu
teknóplöturn-
ar voru oft
með heildar-
hugmynd sem
kom frá hryll-
ingsmynd og
það var einhver þráður sem gekk í
gegnum plötuna."
Morgunblaðið/Knstinn
Fjölbreytni í starfi
„Allir góðir
hlutir tengjast“
Hrönn Sveinsdóttir plötusnúður, þátta-
gerðarmaður og tölvuspilaunnandi hefur
komið víða við þrátt fyrir ungan aldur.
Hún trúir á fjölhæfni og framtíðarplön
hennar eru engin einstefna. Rakel Þor-
bergsdóttir hitti Hrönn á Kaffí Frank þar
sem hún þeytir skífu af og til.
HRÖNN var hálfslöpp þegar
hún mætti í viðtalið en lét
það ekki aftra sér og kom
sér fyrir við gluggann á Kaffi
Frank í Lækjargötu. Hún er 21 árs
og útskrifaðist úr MR fyrir ári. Út-
skriftin kom reyndar hálfóvænt því
Hrönn hafði ákveðið að hætta í
skólanum á miðjum vetri og skellti
sér til San Fransisco. Þegar líða
tók að stúdentsprófum komst hún
hins vegar að þeirri niðurstöðu að
best væri að klára skólann og fékk
að taka lokaprófin.
„Þegar ég var 18 ára tók ég upp
á því að skreppa til London af og
til. Síðasta sumar fór ég svo með
kvartett Ó. Jónssonar & Grjóna til
Berlínar með mjög stuttum fyrir-
vara, tók bara með mér tvo stutt-
ermaboli og plötur. Við vorum þar í
tvær vikur, skemmtum okkur vel
og ég spilaði ein eitt köldið.
Þar á eftir fór ég til London og
slóst í för með plötusnúðnum
Depth Charge, öðru nafni J. Saul
Kane, og ferðaðist með honum um
Bretland og Evrópu í svokölluðu
„club-promotion.“ Við fórum til
Spánar, Belgíu, Þýskalands,
Tókýó og New York. Tókýó er ein-
hver brjálaðasta borg sem ég hef
komið til. Mér leið eins og ég væri
í „Blade-Runner“ allan tímann.
Við gátum farið í raftækjabúð sem
var opin allan sólarhringinn og á
sama tíma og við vorum þar var að
koma út ný tegund af Nintendo
sem við keyptum okkur klukkan
sjö um morguninn og fórum með
upp á hótel til að spila. Þetta var
klikkaðasta þrívídd sem ég hef á
ævinni séð.“
- Leikurðu þér mikið með tölvu-
spil?
„Já, ég spila frekar mikið af
tölvuleikjum. Ég held reyndar að
ef maður geri nógu mikið af ein-
hverju sem maður er góður í þá
endi alltaf með því að einhver fari
að borga manni fyrir það. Hvort
sem það eru tölvuleikir eða að leika
sér með jójó, þá gerist þetta á end-
anum. Heimsmeistarinn í jójó sem
ferðast núna um allan heim hlýtur
að hafa byrjað einhvers staðar.“
Plötusnúður á flakki
Þegar Hrönn var í London í
fyrra var hún að vinna hjá plötu-
fyrirtæki við að kynna plötur og
taka þátt í dreifingu. „Við Depth
Charge tókum saman upp tónlist
en hann gerir tripphopp sem er
mjög breskt fyrirbæri. Lagið okk-
ar „Disco Airlines" var til dæmis
gefið út á plötu.
Um þessar mundir spilar hún
mest á Kaffibarnum og á Kaffi
Frank. „Það er mikill munur á því
að spila á klúbbum eða kaffíhúsum.
Það fer reyndar eftir því hvar mað-
ur er að spila og hvaða aldurshópar
sækja staðinn. Ég spila nú samt
bara það sem mig langar til og
reyni að hafa tónlistina sem fjöl-
breyttasta. Ég hlusta á svo mikið
af ólíkri tónlist, reggae, teknó og í
raun hvað sem er. Það er svo
þreytandi að fara til dæmis og
hlusta á Drum&Bass tónlist heilt
kvöld.
Það er enginn púrismi í tónlist
lengur, það er allt komið af ein-
hverju. Það segist enginn hlusta
bara á „minimalískt" teknó því það
væri ekki til nema af því elektró
var til og svo koll af kolli.
Það er nokkurs konar ævistarf
hjá mér að draga upp allar góðar
plötur í heiminum. Að mínu mati
eru til góðar plötur í öllum tónlist-
arstefnum. Reyndar eru tvær tón-
listarstefnur sem að mínu mati eru
réttdræpar, það er að segja engin
ástæða fyrir tilvist þeirra. Það er
að minnsta kosti mjög erfitt að
- Nærðu að lifa af því að vera
plötusnúður?
Það kemur fyrir að ég á engan
pening og ég er að treysta á það
sem ég fæ fyrir kvöldið sem plötu-
snúður. Ég hef í raun aldrei unnið
venjulega vinnu. Ég geri margt
annað en að spila. Ég hef verið að
vinna við gerð tónlistarmyndbanda
og auglýsinga. Núna er ég að gera
heimildamynd um tölvuleiki fyrir
fyrirtækið 20 geitur sem er að
framleiða átta heimildarmyndir
sem ungt fólk gerir. Myndirnar
gerast í samtímanum og fjalla um
nánasta umhverfi okkar og eru
mjög frjálslega unnar og í raun er
allt leyfilegt. Ég er samt með
„manifesto" sem þýðir að allt verð-
ur að vera handfært, við tökum allt
sjálf og gerum allt sjálf. Hvort sem
færa þarf ljós á staðnum eða
klippa.
Þetta er mjög gaman og ég hef
hitt mikið af skemmtilegu fólki í
tengslum við heimildamyndina. Ég
hef líka komist að því að mig myndi
langa til að gera tónlist við tölvu-
leiki. Það eru mörg góð lög sprott-
in upp úr tölvuleikjahugmynd.
Svo er ég að vinna við dagskrár-
gerð hjá Sjónvarpinu sem er að
byrja með nýjan þátt í haust með
ungu fólki.“
- Viltu leggja vinnu við sjónvarp
fyrirþig?
„Ég held að allir góðir hlutir
tengist alltaf. Þú getur verið aug-
lýsingateiknari og allt í einu farið
að búa til tónlist og svo geturðu
farið að klippa hár. Það er allt
hægt.
Eg held að það sé engin ástæða
fyrir mig að fara í Háskólann og
læra til dæmis málsvísindi eða guð-
fræði. Þetta eru hlutir sem fólk
hefur stúderað í gegnum aldirnar
og er mjög ólíkt kúltúrnum sem er
í kringum okkur núna. Þú átt eng-
an möguleika á að hafa bein áhrif á
þetta. Fólk hefur stundað þessi
fræði í þúsund ár og hefur maður
eitthvað við þeirra vísindi að at-
huga? Það er miklu skemmtilegra
að hafa aðgang að nútímanum og
taka þátt í gerjuninni sem á sér
stað úti um allt.“
Spennandi
borgarferðir
í haust
Borg________________3 nætur
Minneappolis kr. 34.400
Barcelona kr. 35.500
Paris kr. 37.700
Innifalið: Flug, skattar, gisting
Fjöldi annarra borga í boði
% y
ferðaskrifstoPa
I stúdenta
í Sími: 561 5656
WWW.fs.is/gtnðtravel ...og ferðin er hqfín
m
Vinsælasti
skólabakpokinn á
Norðurlöndum
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina
Símiar 551 9800 og 551 3072
Ofnhitastillar
• Fínstilling ,4neð einu handtaki"
• Auðvelt að yfirfera stillingu
• Lykill útilokar misnotkun
• Minnstu rennslistrávik
• Hagkvæm rennslistakmörkun
• Þýsk gæða vara
Heildsöludreifing:
Smiðjuvegi 11. Kópavogi
Sími 564 1088,fax 564 1089
Fæst í bygginaavöruverslunum um land allt.
______Jehf.
www.mbl.is